{"id":3023,"date":"2017-12-18T18:32:25","date_gmt":"2017-12-18T18:32:25","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-konungabok-18-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:25","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:25","slug":"sidari-konungabok-18-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-konungabok-18-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari konungab\u00f3k 18. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XVIII.<\/p>\n<p>\u00c1 \u00feri\u00f0ja \u00e1ri H\u00f3sea sonar Ela \u00cdsraelsk\u00f3ngs t\u00f3k Esek\u00edas son Akas k\u00f3ngd\u00f3m yfir J\u00fada. <span class=\"athugasemd\" title=\"12 \/ Esek\u00edas 29 \u00e1r k\u00f3ngur \u00ed J\u00fada \/ 2. Para. 29\">[<\/span> Og hann var fimm og tuttugu \u00e1ra gamall \u00fe\u00e1 hann var\u00f0 k\u00f3ngur \u00ed J\u00fada og hann r\u00edkti n\u00edu og tuttugu \u00e1r \u00ed Jer\u00fasalem. Hans m\u00f3\u00f0ir h\u00e9t Ab\u00ed, d\u00f3ttir Zacharie. Og hann gj\u00f6r\u00f0i hva\u00f0 Drottni vel \u00fe\u00f3kna\u00f0ist so sem hans fa\u00f0ir Dav\u00ed\u00f0. Hann ni\u00f0ursl\u00f3 allar h\u00e6\u00f0ir og sundurbraut \u00feau sk\u00fargo\u00f0 og upphj\u00f3 alla bl\u00f3tsk\u00f3ga og sundursl\u00f3 \u00feann koparorm sem M\u00f3ses haf\u00f0i gj\u00f6ra l\u00e1ti\u00f0. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00cdsraelssynir h\u00f6f\u00f0u brennt fyrir honum reykelsi allt til \u00feess dags. Og hann nefndi hann Neh\u00fastan. Hann setti s\u00edna tr\u00fa til Drottins \u00cdsraels Gu\u00f0s svo a\u00f0 eftir hann var ekki hans l\u00edki \u00e1 me\u00f0al allra k\u00f3nga J\u00fada og ekki heldur haf\u00f0i veri\u00f0 fyrir hann. Hann h\u00e9lt s\u00e9r a\u00f0 Drottni og veik hvergi af hans vegum og h\u00e9lt hans bo\u00f0or\u00f0 sem Drottinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 M\u00f3se. <span class=\"athugasemd\" title=\"Esek\u00edas einn heilagur k\u00f3ngur\">[<\/span> Og Drottinn var me\u00f0 honum og allt haf\u00f0i hann sig forsj\u00e1llega \u00ed \u00f6llum s\u00ednum me\u00f0fer\u00f0um. Svo og f\u00e9ll hann fr\u00e1 k\u00f3nginum af Assyria og var honum ekki undirgefinn. Hann sl\u00f3 og Philisteos allt til Gasa og allar \u00feeirra land\u00e1lfur, virki \u00feeirra og v\u00edgsker\u00f0ar borgir. <\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00fev\u00ed fj\u00f3r\u00f0a \u00e1ri Ezechie J\u00fadak\u00f3ngs, \u00fea\u00f0 var \u00e1 \u00fev\u00ed sj\u00f6unda \u00e1ri H\u00f3sea sonar Ela \u00cdsraelsk\u00f3ngs, \u00fe\u00e1 f\u00f3r Salmanasar k\u00f3ngur af Assyria upp \u00ed m\u00f3t Samaria og settist um hana og vann hana a\u00f0 \u00ferimur \u00e1rum li\u00f0num, \u00e1 \u00fev\u00ed s\u00e9tta \u00e1ri Ezechie, \u00fea\u00f0 er \u00e1 \u00fev\u00ed n\u00edunda \u00e1ri Hosee \u00cdsraelsk\u00f3ngs, \u00fe\u00e1 var\u00f0 Samaria unnin. <span class=\"athugasemd\" title=\"Supra. 17 \/ Samaria unnin af Salmanassar\">[<\/span> Og Assyriak\u00f3ngur flutti \u00cdsrael burt me\u00f0 s\u00e9r til Assyriam og setti \u00fe\u00e1 \u00ed Hala og Habor hj\u00e1 vatninu G\u00f3san og \u00ed borgir \u00feeirra Medorum fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u ekki hl\u00fdtt Drottins \u00feeirra Gu\u00f0s r\u00f6ddu og h\u00f6f\u00f0u yfirtro\u00f0i\u00f0 hans s\u00e1ttm\u00e1la og allt \u00fea\u00f0 sem M\u00f3ses Gu\u00f0s \u00fe\u00e9nari haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 \u00feeim, \u00fear af h\u00f6f\u00f0u \u00feeir ekki par haldi\u00f0 n\u00e9 gj\u00f6rt. <span class=\"athugasemd\" title=\"Syndir Israelis\">[<\/span><\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00fev\u00ed fj\u00f3rt\u00e1nda \u00e1ri Ezechie k\u00f3ngs f\u00f3r upp Sennaker\u00edb k\u00f3ngur af Assyria m\u00f3t \u00f6llum sterkum borgum \u00ed J\u00fada og vann \u00fe\u00e6r. <span class=\"athugasemd\" title=\"Sennaker\u00edb \/ 2. Para. 32 \/ Esa. 32 \/ Eccle. 48\">[<\/span> \u00de\u00e1 sendi Esek\u00edas k\u00f3ngur J\u00fada til k\u00f3ngsins af Assyria til Lak\u00eds og l\u00e9t segja honum: &#8222;Eg hefi misgj\u00f6rt. V\u00edk fr\u00e1 m\u00e9r, eg vil bera hva\u00f0 \u00fe\u00fa leggur upp \u00e1 mig.&#8220; \u00de\u00e1 lag\u00f0i k\u00f3ngurinn af Assyria upp \u00e1 Ezechiam J\u00fadak\u00f3ng (a\u00f0 gjalda) \u00ferj\u00fa hundru\u00f0 centener silfurs og \u00ferj\u00e1t\u00edgir centener gulls. Og Ezechias gaf allt \u00fea\u00f0 silfur sem fannst \u00ed h\u00fasi Drottins og \u00fea\u00f0 f\u00e9 sem var \u00ed k\u00f3ngsins f\u00e9hirslum. \u00c1 sama t\u00edma braut Ezechias hur\u00f0ina \u00e1 h\u00fasi Drottins og \u00fe\u00e6r spengur sem hann haf\u00f0i sj\u00e1lfur l\u00e1ti\u00f0 sm\u00ed\u00f0a og gaf \u00fea\u00f0 Assyriak\u00f3ngi. <\/p>\n<p>\tEn Assyriak\u00f3ngur sendi Tartan og Rabsacen fr\u00e1 Lak\u00eds til k\u00f3ng Ezechiam me\u00f0 miklum hersafla til Jer\u00fasalem og \u00feeir f\u00f3ru upp \u00feanga\u00f0. En sem \u00feeir komu t\u00f3ku \u00feeir s\u00e9r st\u00f6\u00f0u hj\u00e1 vatsgr\u00f6funum n\u00e6r \u00fev\u00ed efsta fiskad\u00edki sem er \u00e1 vegi \u00feess litunarakurs og k\u00f6llu\u00f0u \u00e1 k\u00f3nginn. \u00de\u00e1 kom \u00fat til tals vi\u00f0 \u00fe\u00e1 Eljak\u00edm son Hilk\u00eda, hofmeistarinn, og Sebna skrifari og J\u00f3a son Assaf, kanselerinn. <\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i Rabsaces til \u00feeirra: <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (Rabsaces) \/ \u00fe\u00f0\u00fd\u00f0ist \u00e6\u00f0sti skenkjari \u00e1 norr\u00e6nu\">[<\/span> &#8222;K\u00e6ri, segi\u00f0 Ezechia k\u00f3ngi: Svo segir s\u00e1 mikli k\u00f3ngur, k\u00f3ngur af Assyria: Hvert er \u00feitt hi\u00f0 mikla traust er \u00fe\u00fa treystir \u00e1? Meinar \u00fe\u00fa a\u00f0 \u00fe\u00fa hafir enn nokkra magt e\u00f0a r\u00e1\u00f0 herna\u00f0 a\u00f0 halda? Upp \u00e1 hva\u00f0 treystir \u00fe\u00fa a\u00f0 \u00fe\u00fa ert fallinn fr\u00e1 m\u00e9r? Sj\u00e1, setur \u00fe\u00fa \u00fe\u00edna von \u00ed brotnum reyrsprota Egyptalands hver e\u00f0 \u00feegar viknar ef nokkur sty\u00f0ur sig vi\u00f0 hann og fl\u00edsast \u00ed hans h\u00f6nd og stingur hana \u00ed gegnum? Eins er fara\u00f3 Egyptak\u00f3ngur \u00f6llum \u00feeim sem honum treysta. En vilji \u00fe\u00e9r og segja til m\u00edn: V\u00e9r h\u00f6fum traust \u00ed Drottni vorum Gu\u00f0i, er hann \u00fe\u00e1 ekki s\u00e1 hvers h\u00e6\u00f0ir og altari Ezechias hefur ni\u00f0urbroti\u00f0 og sagt til J\u00fada og Jer\u00fasalem: Fyrir \u00feessu altari sem er \u00ed Jer\u00fasalem skulu \u00fe\u00e9r tilbi\u00f0ja?<\/p>\n<p>\tLofa \u00fe\u00fa m\u00ednum herra k\u00f3nginum af Assyria: Eg vil f\u00e1 \u00fe\u00e9r tv\u00f6 \u00fe\u00fasund hesta ef \u00fe\u00fa kannt til a\u00f0 f\u00e1 svo marga riddara til a\u00f0 r\u00ed\u00f0a \u00feeim. Hvernin m\u00e1tt \u00fe\u00fa \u00fe\u00e1 standa m\u00f3ti einum minnsta h\u00f6f\u00f0ingja sem m\u00ednum herra er undirgefinn? Og \u00fe\u00fa treystir upp \u00e1 \u00fe\u00e1 egypsku vegna \u00feeirra vagna og riddarali\u00f0s. E\u00f0a meinar \u00fe\u00fa a\u00f0 eg s\u00e9 kominn hinga\u00f0 \u00e1n vilja Drottins a\u00f0 fordjarfa \u00feinn sta\u00f0? Drottinn hefur bo\u00f0i\u00f0 m\u00e9r og sagt: Far upp til \u00feess lands og ey\u00f0ilegg \u00fea\u00f0.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i Eljak\u00edm son Hilk\u00eda og Sebna og J\u00f3a til Rabsaca: &#8222;Tala \u00fe\u00fa vi\u00f0 \u00fe\u00edna \u00fe\u00e9nara \u00e1 s\u00fdrlensku \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00e9r skiljum \u00fea\u00f0 m\u00e1l vel en tala ekki vi\u00f0 oss Gy\u00f0ingam\u00e1l s\u00f6kum f\u00f3lksins sem \u00e1 m\u00farnum stendur.&#8220; En s\u00e1 yppasti skenkjari sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Hefur minn herra nokku\u00f0 sent mig til \u00fe\u00edns herra e\u00f0a til \u00fe\u00edn a\u00f0 eg skyldi tala svoddan or\u00f0? Heldur til \u00feeirra manna sem \u00fear eru upp \u00e1 m\u00farnum a\u00f0 \u00feeir eti me\u00f0 y\u00f0ur \u00feeirra eigin saur og drekki \u00feeirra eigi\u00f0 \u00fevag.&#8220; So st\u00f3\u00f0 s\u00e1 yppasti skenkjari og hr\u00f3pa\u00f0i me\u00f0 h\u00e1rri r\u00f6ddu \u00e1 j\u00fa\u00f0versku og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"Rabsaces gu\u00f0lastan\">[<\/span> &#8222;Heyri\u00f0 \u00feess megtuga k\u00f3ngs or\u00f0, k\u00f3ngsins af Assyria! Svo segir hann: L\u00e1ti\u00f0 ekki k\u00f3ng Ezechias sv\u00edkja y\u00f0ur \u00fev\u00ed a\u00f0 ekki hefur hann m\u00e1tt til a\u00f0 frelsa y\u00f0ur fr\u00e1 minni hendi. Og l\u00e1ti\u00f0 ei heldur Ezechiam gefa y\u00f0ur oftraust \u00e1 Drottni \u00fear hann segir: Drottinn mun frelsa oss svo a\u00f0 \u00feessi borg mun ekki gefast \u00ed Assyriak\u00f3ngs hendur. Hl\u00fd\u00f0i\u00f0 ekki Ezechia!<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed svo segir k\u00f3ngurinn af Assyria: Me\u00f0taki\u00f0 m\u00edna n\u00e1\u00f0 og gangi\u00f0 \u00fat til m\u00edn og gefist \u00e1 mitt vald. Svo skal hver ma\u00f0ur neyta af s\u00ednu v\u00edntr\u00e9 og f\u00edkjutr\u00e9 og drekka vatn af s\u00ednum brunni \u00fear til eg kem a\u00f0 f\u00e6ra y\u00f0ur burt \u00ed eitt land hvert a\u00f0 l\u00edka er sem y\u00f0art land, \u00ed hverju a\u00f0 er korn, v\u00edn, brau\u00f0, v\u00edngar\u00f0ar, ol\u00edutr\u00e9, vi\u00f0smj\u00f6r og hunang. So skulu \u00fe\u00e9r halda y\u00f0ru l\u00edfi og ekki deyja. Hl\u00fd\u00f0i ekki Ezechia \u00fev\u00ed hann sv\u00edkur y\u00f0ur \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 hann segir: Drottinn mun frelsa oss. Hafa nokku\u00f0 hei\u00f0ingjanna gu\u00f0ir frelsa\u00f0 hver sitt land af Assyriak\u00f3ngs hendi? Hvar eru gu\u00f0ir \u00feeirra \u00ed Hemat og Arpad? Hvar eru gu\u00f0ir \u00feeirra \u00ed Sefarva\u00edm, Hena og \u00cdva? Hafa \u00feeir og frelsa\u00f0 Samariam af minni hendi? Hvar er nokkurs sta\u00f0ar \u00ed \u00f6llum l\u00f6ndum s\u00e1 Gu\u00f0 sem frelsa\u00f0 hefur sitt land af minni hendi so a\u00f0 Drottinn megi frelsa Jer\u00fasalem af minni hendi?&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa 10\">[<\/span><\/p>\n<p>\tOg f\u00f3lki\u00f0 \u00feag\u00f0i og svara\u00f0i honum \u00f6ngvu. \u00dev\u00ed a\u00f0 k\u00f3ngurinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 og sagt: &#8222;Svari\u00f0 honum \u00f6ngvu.&#8220; \u00de\u00e1 kom Eljak\u00edm son Hilk\u00eda, hofmeistarinn, og Sebna skrifari og J\u00f3a son Assaf, kans\u00e9lerinn til Ezechiam me\u00f0 sundurrifnum kl\u00e6\u00f0um og s\u00f6g\u00f0u honum \u00f6ll or\u00f0 Rabsacis.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XVIII. \u00c1 \u00feri\u00f0ja \u00e1ri H\u00f3sea sonar Ela \u00cdsraelsk\u00f3ngs t\u00f3k Esek\u00edas son Akas k\u00f3ngd\u00f3m yfir J\u00fada. [ Og hann var fimm og tuttugu \u00e1ra gamall \u00fe\u00e1 hann var\u00f0 k\u00f3ngur \u00ed J\u00fada og hann r\u00edkti n\u00edu og tuttugu \u00e1r \u00ed Jer\u00fasalem. Hans m\u00f3\u00f0ir h\u00e9t Ab\u00ed, d\u00f3ttir Zacharie. Og hann gj\u00f6r\u00f0i hva\u00f0 Drottni vel \u00fe\u00f3kna\u00f0ist so sem hans fa\u00f0ir Dav\u00ed\u00f0. Hann ni\u00f0ursl\u00f3 allar h\u00e6\u00f0ir og sundurbraut \u00feau sk\u00fargo\u00f0 og upphj\u00f3 alla bl\u00f3tsk\u00f3ga og sundursl\u00f3 \u00feann koparorm sem M\u00f3ses haf\u00f0i gj\u00f6ra l\u00e1ti\u00f0. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00cdsraelssynir h\u00f6f\u00f0u brennt fyrir honum reykelsi allt til \u00feess dags. Og hann nefndi hann Neh\u00fastan. Hann setti s\u00edna tr\u00fa til <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-konungabok-18-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3023","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3023","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3023"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3023\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3023"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}