{"id":3018,"date":"2017-12-18T18:32:25","date_gmt":"2017-12-18T18:32:25","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-konungabok-13-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:25","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:25","slug":"sidari-konungabok-13-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-konungabok-13-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari konungab\u00f3k 13. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XIII.<\/p>\n<p>\u00c1 \u00fev\u00ed \u00feri\u00f0ja og tuttugasta \u00e1ri J\u00f3as, sonar Ahas\u00eda, J\u00fadak\u00f3ngs, var\u00f0 J\u00f3akas sonur Jeh\u00fa k\u00f3ngur yfir \u00cdsrael \u00ed Samaria \u00ed seytj\u00e1n \u00e1r. <span class=\"athugasemd\" title=\"II \/ J\u00f3akas 17 \u00e1r k\u00f3ngur yfir \u00cdsrael \/ 3. Reg. 19\">[<\/span> Og hann framdi \u00fea\u00f0 sem Drottni illa l\u00edka\u00f0i og gekk eftir syndum Jer\u00f3b\u00f3am sonar Nebat sem kom \u00cdsrael til a\u00f0 syndgast og hann l\u00e9t ekki \u00fear af. Og rei\u00f0i Drottins gramdist yfir \u00cdsrael og hann gaf \u00fe\u00e1 undir hendur Hasaels k\u00f3ngs af Syria og Benhadad sonar Hasael so lengi sem \u00feeir lif\u00f0u. <\/p>\n<p>\tEn J\u00f3akas ba\u00f0st fyrir \u00ed augliti Drottins og Drotitnn b\u00e6nheyr\u00f0i hann. \u00dev\u00ed hann s\u00e1 Israelis \u00e1nau\u00f0, hvernin a\u00f0 k\u00f3ngurinn af Syria \u00ferengdi \u00feeim me\u00f0 margh\u00e1ttu\u00f0um aga og \u00f3fri\u00f0i. Og Drottinn gaf \u00cdsrael einn hj\u00e1lparmann sem \u00fe\u00e1 frelsti af valdi s\u00fdrlenskra so a\u00f0 \u00cdsraelssynir bjuggu \u00ed s\u00ednum tjaldb\u00fa\u00f0um eins og \u00e1\u00f0ur. En \u00fe\u00f3 l\u00f6g\u00f0u \u00feeir ekki af Jer\u00f3b\u00f3ams syndir hver e\u00f0 \u00cdsrael kom til a\u00f0 syndgast heldur gengu \u00feeir fram \u00ed \u00feeim. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fear st\u00f3\u00f0 einn <span class=\"athugasemd\" title=\"sword Lundur\">[<\/span> bl\u00f3tsk\u00f3gur \u00ed Samaria. Og \u00fear var ekki fleira eftir or\u00f0i\u00f0 af J\u00f3akas f\u00f3lki heldur en fimmt\u00edgi riddarar, t\u00edu vagnar og t\u00edu \u00fe\u00fasund f\u00f3tg\u00f6nguli\u00f0s. \u00dev\u00ed a\u00f0 S\u00fdrlandsk\u00f3ngur haf\u00f0i fyrirkomi\u00f0 \u00feeim \u00f6llum og haf\u00f0i gj\u00f6rt \u00fe\u00e1 sem agnir \u00ed sumarhl\u00f6\u00f0u.<\/p>\n<p>\tHva\u00f0 meira er a\u00f0 segja um J\u00f3akas og allt hva\u00f0 hann gj\u00f6r\u00f0i og hver hans magt var, sj\u00e1, \u00fea\u00f0 er skrifa\u00f0 \u00ed \u00cdsraelsk\u00f3nga kron\u00edku. Og J\u00f3akas sofna\u00f0i me\u00f0 s\u00ednum fe\u00f0rum og var jar\u00f0a\u00f0ur \u00ed Samaria. Og hans son J\u00f3as t\u00f3k k\u00f3ngd\u00f3m eftir hann. <span class=\"athugasemd\" title=\"12 \/ J\u00f3as 16 \u00e1r k\u00f3ngur \u00ed \u00cdsrael\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00fev\u00ed seytj\u00e1nda og tuttugasta \u00e1ri J\u00f3as J\u00fadak\u00f3ngs var\u00f0 J\u00f3as son J\u00f3akas k\u00f3ngur yfir \u00cdsrael \u00ed Samaria sext\u00e1n \u00e1r. Og hann gekk illa \u00ed augliti Drottins \u00fev\u00ed hann fylgdi Jer\u00f3b\u00f3ams syndum sem kom \u00cdsrael til a\u00f0 syndgast og hann gekk fram \u00ed \u00feeim.<\/p>\n<p>\tEn hva\u00f0 meira er a\u00f0 segja um J\u00f3as og hva\u00f0 hann gj\u00f6r\u00f0i og hans magt og hvernin hann str\u00edddi me\u00f0 Amas\u00eda J\u00fadak\u00f3ng, sj\u00e1, \u00fea\u00f0 er skrifa\u00f0 \u00ed \u00cdsraelsk\u00f3nga kron\u00edku. Og J\u00f3as sofna\u00f0i me\u00f0 s\u00ednum fe\u00f0rum. Og Jer\u00f3b\u00f3am sat \u00e1 hans st\u00f3li. En J\u00f3as var jar\u00f0a\u00f0ur \u00ed Samaria hj\u00e1 \u00cdsraelsk\u00f3ngum. <\/p>\n<p>\tOg \u00fea\u00f0 ske\u00f0i a\u00f0 gu\u00f0sma\u00f0ur Eliseus var\u00f0 sj\u00fakur so hann anda\u00f0ist af \u00feeirri s\u00f3tt. <span class=\"athugasemd\" title=\"Eliseus sp\u00e1r \u00ed m\u00f3ti Syris\">[<\/span> Og J\u00f3as \u00cdsraelsk\u00f3ngur kom ofan til hans og gr\u00e9t fyrir honum og sag\u00f0i: &#8222;Minn fa\u00f0ir, minn fa\u00f0ir, Israelis vagn og hans <span class=\"athugasemd\" title=\"sword Forma\u00f0ur\">[<\/span> stj\u00f3rn!&#8220; En Eliseus svara\u00f0i honum: &#8222;Tak \u00feinn boga og \u00f6rvar.&#8220; Og sem hann t\u00f3k bogann og \u00f6rvarnar sag\u00f0i hann til \u00cdsraelsk\u00f3ngs: &#8222;Spanna \u00fe\u00fa upp bogann me\u00f0 \u00feinni hendi.&#8220; Og hann uppspanna\u00f0i hann. S\u00ed\u00f0an lag\u00f0i Eliseus s\u00edna h\u00f6nd upp \u00e1 k\u00f3ngsins h\u00f6nd og sag\u00f0i: &#8222;Opna glugginn \u00ed m\u00f3t austri.&#8220; Og hann opna\u00f0i glugginn. \u00de\u00e1 sag\u00f0i Eliseus: &#8222;Skj\u00f3t \u00fear \u00fat \u00f6r af boganum.&#8220; Og hann skaut. \u00de\u00e1 sag\u00f0i Eliseus: &#8222;Sigurskeyti Drottins, ein sigur\u00f6r \u00ed m\u00f3t Syris! Og \u00fe\u00fa munt sl\u00e1 Syros \u00ed Afek \u00fear til \u00feeir ver\u00f0a a\u00f0 \u00f6ngvu!&#8220; <\/p>\n<p>\tOg hann sag\u00f0i: &#8222;Tak n\u00fa p\u00edlurnar.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Eliseus sp\u00e1r \u00ed m\u00f3ti \u00feeim Syris\">[<\/span> Og sem hann t\u00f3k \u00fe\u00e6r sag\u00f0i hann til \u00cdsraelsk\u00f3ngs: &#8222;Sl\u00e1 \u00fe\u00fa n\u00fa \u00e1 j\u00f6r\u00f0ina.&#8220; Og hann sl\u00f3 \u00ed \u00ferj\u00e1r reisur og l\u00e9t \u00fe\u00e1 af. \u00dea\u00f0 misl\u00edka\u00f0i gu\u00f0smanni vi\u00f0 hann og sag\u00f0i: &#8222;Hef\u00f0ir \u00fe\u00fa slegi\u00f0 fimm e\u00f0a sex sinnum \u00fe\u00e1 skyldir \u00fe\u00fa hafa slegi\u00f0 \u00fe\u00e1 Syris \u00fear til \u00feeir hef\u00f0u or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 \u00f6ngvu en n\u00fa munt \u00fe\u00fa sl\u00e1 \u00fe\u00e1 \u00ed \u00ferj\u00e1r reisur.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn sem Eliseus var n\u00fa anda\u00f0ur og \u00feeir h\u00f6f\u00f0u jar\u00f0a\u00f0 hann \u00fe\u00e1 f\u00e9llu v\u00edkingar Moabitarum inn \u00ed landi\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed sama \u00e1ri. <span class=\"athugasemd\" title=\"Eliseus andast\">[<\/span> Og \u00fea\u00f0 ske\u00f0i svo a\u00f0 \u00feeir j\u00f6r\u00f0u\u00f0u einn mann. Og sem \u00feeir s\u00e1u v\u00edkinga k\u00f6stu\u00f0u \u00feeir manninum \u00ed Elisei gr\u00f6f. Og sem hann f\u00e9ll ni\u00f0ur og kom vi\u00f0 bein Elisei \u00fe\u00e1 var\u00f0 hann lifandi og st\u00f3\u00f0 upp \u00e1 s\u00ednar f\u00e6tur. <span class=\"athugasemd\" title=\"Dau\u00f0 bein Elisei uppvekja framli\u00f0inn\">[<\/span><\/p>\n<p>\tSvo kvaldi n\u00fa Hasael k\u00f3ngurinn af Syria \u00cdsraelsl\u00fd\u00f0 svo lengi sem J\u00f3akas lif\u00f0i. En Drottinn var \u00feeim n\u00e1\u00f0igur og s\u00e1 aumur \u00e1 \u00feeim og sneri s\u00e9r til \u00feeirra s\u00f6kum s\u00edns s\u00e1ttm\u00e1la sem hann haf\u00f0i gj\u00f6rt vi\u00f0 Abraham, \u00cdsak og Jakob og vildi ekki ey\u00f0a \u00feeim og kasta\u00f0i \u00feeim ei fr\u00e1 s\u00ednu andliti allt til \u00feessa dags.<\/p>\n<p>\tOg Hasael S\u00fdrlandsk\u00f3ngur anda\u00f0ist og hans son Benhadad var\u00f0 k\u00f3ngur \u00ed hans sta\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"4. Reg. 12\">[<\/span> Og J\u00f3as snerist vi\u00f0 og vann \u00fe\u00e6r borgir af Benhadad Hasaelsonar hendi sem hann haf\u00f0i me\u00f0 \u00f6rl\u00f6gum undir sig teki\u00f0 fr\u00e1 J\u00f3akas s\u00edns f\u00f6\u00f0urs hendi. Og \u00ed \u00ferj\u00e1r reisur sl\u00f3 J\u00f3as hann og vann aftur borgirnar Israeli.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XIII. \u00c1 \u00fev\u00ed \u00feri\u00f0ja og tuttugasta \u00e1ri J\u00f3as, sonar Ahas\u00eda, J\u00fadak\u00f3ngs, var\u00f0 J\u00f3akas sonur Jeh\u00fa k\u00f3ngur yfir \u00cdsrael \u00ed Samaria \u00ed seytj\u00e1n \u00e1r. [ Og hann framdi \u00fea\u00f0 sem Drottni illa l\u00edka\u00f0i og gekk eftir syndum Jer\u00f3b\u00f3am sonar Nebat sem kom \u00cdsrael til a\u00f0 syndgast og hann l\u00e9t ekki \u00fear af. Og rei\u00f0i Drottins gramdist yfir \u00cdsrael og hann gaf \u00fe\u00e1 undir hendur Hasaels k\u00f3ngs af Syria og Benhadad sonar Hasael so lengi sem \u00feeir lif\u00f0u. En J\u00f3akas ba\u00f0st fyrir \u00ed augliti Drottins og Drotitnn b\u00e6nheyr\u00f0i hann. \u00dev\u00ed hann s\u00e1 Israelis \u00e1nau\u00f0, hvernin a\u00f0 k\u00f3ngurinn af Syria \u00ferengdi \u00feeim me\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-konungabok-13-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3018","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3018","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3018"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3018\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3018"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}