{"id":3015,"date":"2017-12-18T18:32:25","date_gmt":"2017-12-18T18:32:25","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-konungabok-10-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:25","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:25","slug":"sidari-konungabok-10-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-konungabok-10-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari konungab\u00f3k 10. kafli"},"content":{"rendered":"<p>X.<\/p>\n<p>Akab \u00e1tti sj\u00f6t\u00edgi sonu \u00ed Samaria. <span class=\"athugasemd\" title=\"Akabs \u00e6tt afm\u00e1\u00f0 af Jeh\u00fa\">[<\/span> Og Jeh\u00fa skrifa\u00f0i br\u00e9f og sendi \u00ed Samariam til \u00feeirra yppurstu af \u00feeim sta\u00f0 Jesreel og til \u00feeirra elstu og til \u00feeirra sem f\u00f3stru\u00f0u sonu Akab, svo l\u00e1tandi: &#8222;\u00de\u00e1 \u00feessi br\u00e9f koma til y\u00f0ar, \u00fe\u00e9r sem hafi\u00f0 y\u00f0ars herra sonu hj\u00e1 y\u00f0ur, vagna v\u00edghesta, sterkar borgir og vopnab\u00fana\u00f0, \u00fe\u00e1 sj\u00e1i\u00f0 y\u00f0ur um hver y\u00f0ur l\u00edst best fallinn af sonum y\u00f0ar herra, \u00fe\u00e1 setji\u00f0 hann \u00ed tignars\u00e6ti hans f\u00f6\u00f0urs og str\u00ed\u00f0i\u00f0 svo fyrir y\u00f0ars herra h\u00fasi.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn \u00feeir ur\u00f0u mj\u00f6g \u00f3ttaslegnir og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Sj\u00e1, tveir k\u00f3ngar g\u00e1tu ekki sta\u00f0i\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti honum. Hva\u00f0 munum v\u00e9r \u00fe\u00e1 mega standa honum \u00ed m\u00f3ti?&#8220; Og \u00feeir sem voru settir yfir h\u00fasi\u00f0 og yfir borgina og \u00feeir elstu og \u00feeir sem f\u00f3stru\u00f0u sonu Akab sendu aftur til Jeh\u00fa og l\u00e9tu segja honum: &#8222;V\u00e9r erum \u00fe\u00ednir \u00fej\u00f3nar, v\u00e9r viljum gj\u00f6ra hva\u00f0 helst sem \u00fe\u00fa segir oss. \u00d6ngvan viljum v\u00e9r til k\u00f3ngs setja. Gj\u00f6r hva\u00f0 best l\u00edkar \u00fe\u00e9r.&#8220;<\/p>\n<p>\tEftir \u00feetta skrifa\u00f0i hann anna\u00f0 br\u00e9f til \u00feeirra, svo l\u00e1tanda: &#8222;Svo framt sem \u00fe\u00e9r eru\u00f0 m\u00ednir og vilji \u00fe\u00e9r hl\u00fd\u00f0a m\u00ednum or\u00f0um \u00fe\u00e1 h\u00e1lsh\u00f6ggvi\u00f0 alla sonu y\u00f0ars herra og f\u00e6ri\u00f0 m\u00e9r \u00feeirra h\u00f6fu\u00f0 \u00e1 morgun um \u00feetta mund til Jesreel.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"70 synir Akab \u00ed hel slegnir\">[<\/span> En k\u00f3ngsins synir voru sj\u00f6t\u00edgir og \u00feeir inu yppustu \u00ed sta\u00f0num f\u00f3stru\u00f0u \u00fe\u00e1 upp. N\u00fa sem br\u00e9fi\u00f0 kom til \u00feeirra \u00fe\u00e1 t\u00f3ku \u00feeir strax k\u00f3ngsins syni og dr\u00e1pu \u00ed einu sj\u00f6t\u00edgi menn og l\u00f6g\u00f0u \u00feeirra h\u00f6fu\u00f0 \u00ed karfir og sendu \u00feau til hans \u00ed Jesreel. Og sem sendima\u00f0ur kom undirv\u00edsa\u00f0i hann honum og sag\u00f0i a\u00f0 k\u00f3ngsins sona h\u00f6fu\u00f0 v\u00e6ri komin. Hann svara\u00f0i: &#8222;Leggi\u00f0 \u00feau \u00ed tv\u00e6r hr\u00fagur fyrir portdyrum til morguns.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn sem hann gekk \u00fat um morguninn gekk hann \u00feanga\u00f0 og sag\u00f0i til alls f\u00f3lksins: &#8222;\u00de\u00e9r eru\u00f0 r\u00e9ttl\u00e1tir. Sj\u00e1, hafi eg gj\u00f6rt uppreist \u00ed m\u00f3ti m\u00ednum herra og drepi\u00f0 hann, hver hefur \u00fe\u00e1 slegi\u00f0 alla \u00feessa \u00ed hel? So sj\u00e1i\u00f0 n\u00fa a\u00f0 \u00fear er ekki neitt af Drottins or\u00f0i falli\u00f0 \u00e1 j\u00f6r\u00f0 sem Drottinn tala\u00f0i \u00e1 m\u00f3ti Akabs h\u00fasi og Drottinn hefur gj\u00f6rt so sem hann tala\u00f0i fyrir sinn \u00fej\u00f3n Eliam.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"3. Reg. 21\">[<\/span> Svo sl\u00f3 Jeh\u00fa \u00fe\u00e1 alla \u00ed hel \u00fe\u00e1 sem eftirlif\u00f0u af Akabs h\u00fasi \u00ed Jesreel, alla hans g\u00e6\u00f0inga og alla hans fr\u00e6ndur og hans presta, so lengi a\u00f0 \u00fear var\u00f0 ekki einn eftir.<\/p>\n<p>\tOg hann t\u00f3k sig upp og f\u00f3r af sta\u00f0 og kom til Samariam. \u00dear var eitt fj\u00e1rh\u00fas \u00e1 veginum. \u00dear fann Jeh\u00fa Ahas\u00eda J\u00fadak\u00f3ngs br\u00e6\u00f0ur og sag\u00f0i: &#8222;Hverjir eru \u00fe\u00e9r?&#8220; \u00deeir sv\u00f6ru\u00f0u: &#8222;V\u00e9r erum Ahasie br\u00e6\u00f0ur og viljum n\u00fa fara ofan a\u00f0 heilsa sonum k\u00f3ngs og drottningarinnar.&#8220; Og hann sag\u00f0i: &#8222;Handtaki\u00f0 \u00fe\u00e1 lifandi.&#8220; Og \u00feeir t\u00f3ku \u00fe\u00e1 lifandi og dr\u00e1pu \u00fe\u00e1 hj\u00e1 \u00feeim brunni sem st\u00f3\u00f0 hj\u00e1 fj\u00e1rh\u00fasinu, tvo menn hins fimmtatigar, og \u00fear lif\u00f0i ekki einn eftir af \u00feeim. <span class=\"athugasemd\" title=\"42 Ahasie br\u00e6\u00f0ur drepnir\">[<\/span><\/p>\n<p>\tEn sem hann fer\u00f0a\u00f0ist \u00fea\u00f0an fann hann J\u00f3nadab son Rekab hver e\u00f0 m\u00e6tti honum og hann heilsa\u00f0i honum og sag\u00f0i til hans: <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00f3nadab \/ Jere. 35\">[<\/span> &#8222;Er \u00feitt hjarta r\u00e9tt so sem mitt hjarta er me\u00f0 \u00fe\u00ednu hjarta?&#8220; J\u00f3nadab svara\u00f0i: &#8222;J\u00e1.&#8220; Hann m\u00e6lti: &#8222;S\u00e9 \u00fea\u00f0 so, \u00fe\u00e1 gef m\u00e9r \u00fe\u00edna h\u00f6nd.&#8220; Og hann r\u00e9tti honum h\u00f6ndina. Og hann t\u00f3k han til s\u00edn og l\u00e9t hann setjast upp hj\u00e1 s\u00e9r \u00ed vagninn og sag\u00f0i: &#8222;Far me\u00f0 m\u00e9r og sj\u00e1 kapp m\u00edns vandl\u00e6tis vegna Drottins.&#8220; Og \u00feeir fluttu hann me\u00f0 honum \u00e1 hans eigin vagni. En sem hann kom \u00ed Samariam \u00fe\u00e1 sl\u00f3 hann \u00fe\u00e1 alla \u00ed hel sem \u00fear voru og eftirlif\u00f0u af Akabs hyski, allt \u00fear til \u00fear var ekki eitt mannsbarn eftir eftir \u00feeim or\u00f0um sem Drottinn sag\u00f0i til Eliam.<\/p>\n<p>\tOg Jeh\u00fa samansafna\u00f0i \u00f6llu f\u00f3lkinu og l\u00e9t segja til \u00feeirra: <span class=\"athugasemd\" title=\"1. Reg. 16\">[<\/span> &#8222;Akab d\u00fdrka\u00f0i Baal l\u00edtt, Jeh\u00fa vill \u00fej\u00f3na honum betur. \u00dear fyrir l\u00e1ti\u00f0 n\u00fa kalla saman hinga\u00f0 til m\u00edn alla Baals sp\u00e1menn, alla hans \u00fe\u00e9nara og alla hans presta svo a\u00f0 ei ver\u00f0i einn eftir. \u00dev\u00ed a\u00f0 eg hefi miki\u00f0 offur a\u00f0 f\u00f3rnf\u00e6ra Baal. En s\u00e1 sem ekki kemur hann skal missa l\u00edfi\u00f0.&#8220; En Jeh\u00fa gj\u00f6r\u00f0i \u00feetta til kl\u00f3kleika svo a\u00f0 hann fengi ey\u00f0ilagt alla Baals \u00fe\u00e9nara. Og Jeh\u00fa sag\u00f0i: &#8222;Helgi\u00f0 Baal \u00feessa h\u00e1t\u00ed\u00f0.&#8220; Og \u00feeir k\u00f6llu\u00f0u \u00fe\u00e1 saman. Og Jeh\u00fa sendi til allra \u00cdsrael\u00edta og l\u00e9t alla Baals \u00fe\u00e9nara koma svo a\u00f0 \u00fear sat ekki einn eftir sem ekki kom. Og \u00feeir komu \u00ed Baals hof svo a\u00f0 h\u00fasi\u00f0 var\u00f0 fullt sem mest m\u00e1tti inni vera.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i hann til \u00feeirra sem a\u00f0 settir voru fyrir skr\u00fa\u00f0ah\u00fasin: &#8222;Beri\u00f0 fram <span class=\"athugasemd\" title=\"sword Skr\u00fa\u00f0a\">[<\/span> kl\u00e6\u00f0i handa \u00f6llum Baals \u00fe\u00e9nurum.&#8220; Og \u00feeir b\u00e1ru \u00fat kl\u00e6\u00f0in. \u00de\u00e1 gekk Jeh\u00fa inn \u00ed Baals kirkju me\u00f0 J\u00f3nadab syni Rekab og sag\u00f0i til hans: &#8222;Rannsaki\u00f0 og sj\u00e1i\u00f0 til a\u00f0 h\u00e9r s\u00e9 enginn \u00fe\u00e9nari Drottins \u00e1 me\u00f0al y\u00f0ar heldur alleinasta Baals \u00fe\u00e9narar.&#8220; En sem \u00feeir komu inn a\u00f0 f\u00e6ra offur og brennif\u00f3rnir \u00fe\u00e1 setti Jeh\u00fa \u00e1ttat\u00edgir menn fyrir utan dyrnar og sag\u00f0i: &#8222;Ef \u00fe\u00e9r l\u00e1ti\u00f0 nokkurn af \u00feeim m\u00f6nnum undan komast sem eg gef n\u00fa undir y\u00f0ar hendur \u00fe\u00e1 skal \u00feess sama l\u00edf vera \u00ed ve\u00f0i fyrir hann sem \u00ed burtu sleppur.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn sem loki\u00f0 var a\u00f0 f\u00f3rnf\u00e6ra \u00fe\u00e1 sag\u00f0i Jeh\u00fa til sinna h\u00f6f\u00f0ingja og str\u00ed\u00f0smanna: <span class=\"athugasemd\" title=\"Baals sp\u00e1menn drepnir\">[<\/span> &#8222;Fari\u00f0 n\u00fa inn og drepi\u00f0 \u00fe\u00e1 alla saman og l\u00e1ti\u00f0 \u00f6ngvan komast \u00fat.&#8220; Og \u00feeir sl\u00f3gu \u00fe\u00e1 alla me\u00f0 sver\u00f0seggjum og riddararnir og kapparnir k\u00f6stu\u00f0u \u00feeim burt. Og \u00feeir gengu til Baals kirkju borgar og ni\u00f0urbrutu og \u00fatb\u00e1ru sk\u00fargo\u00f0in af Baals kirkju og uppbrenndu \u00feau. <span class=\"athugasemd\" title=\"Baals afgu\u00f0ad\u00fdrkan afm\u00e1\u00f0\">[<\/span> Og \u00feeir brutu \u00ed sundur Baals sk\u00fargo\u00f0 me\u00f0 Baals hofi og gj\u00f6r\u00f0u eitt heimgligt n\u00e1\u00f0h\u00fas \u00fear af allt til \u00feessa dags. Svo ey\u00f0ilag\u00f0i Jeh\u00fa Baal af \u00cdsrael. En Jeh\u00fa l\u00e9t ekki af Jer\u00f3b\u00f3ams syndum sonar Nabat hver a\u00f0 \u00cdsrael kom til a\u00f0 syndgast me\u00f0 \u00feeim gullk\u00e1lfum sem a\u00f0 st\u00f3\u00f0u \u00ed Betel og Dan. <span class=\"athugasemd\" title=\"Syndir Jeh\u00fa\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tOg Drottinn sag\u00f0i til Jeh\u00fa: &#8222;S\u00f6kum \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur svo mikla stund l\u00e1gt \u00e1 a\u00f0 gj\u00f6ra \u00fea\u00f0 sem m\u00e9r hefur vel l\u00edka\u00f0 og \u00fe\u00fa gj\u00f6r\u00f0ir \u00ed m\u00f3t Akabs h\u00fasi allt \u00fea\u00f0 sem \u00ed m\u00ednu hjarta bj\u00f3 \u00fe\u00e1 skulu \u00fe\u00ednir synir sitja \u00e1 \u00cdsraels st\u00f3li inn til fj\u00f3r\u00f0a li\u00f0s.&#8220; En \u00fea\u00f0 geymdi Jeh\u00fa ekki a\u00f0 hann var\u00f0veitti a\u00f0 ganga \u00ed Drottins \u00cdsraels l\u00f6gm\u00e1li af \u00f6llu s\u00ednu hjarta \u00fev\u00ed hann linnti ekki af Jer\u00f3b\u00f3ams syndum sem kom \u00cdsrael til a\u00f0 syndgast.<\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00feeim sama t\u00edma t\u00f3k Drottinn til a\u00f0 l\u00e1ta s\u00e9r lei\u00f0ast \u00cdsrael. <span class=\"athugasemd\" title=\"Hasael \/ 3. Reg. 19\">[<\/span> \u00dev\u00ed Hasael sl\u00f3 \u00fe\u00e1 \u00ed \u00f6llum Israelis lands\u00e1lfum fr\u00e1 J\u00f3rdan m\u00f3t s\u00f3larinnar uppkomu og allt land G\u00edlea\u00f0, Ga\u00f0, R\u00faben og Manasse, fr\u00e1 Ar\u00f3er sem liggur hj\u00e1 Arnonl\u00e6k og G\u00edlea\u00f0 og Basan.<\/p>\n<p>\tEn hva\u00f0 meira er a\u00f0 segja af Jeh\u00fa og allt \u00fea\u00f0 hann hefur gj\u00f6rt og \u00f6ll hans magt, sj\u00e1, \u00fea\u00f0 er skrifa\u00f0 \u00ed \u00cdsraelsk\u00f3nga kron\u00edku. Og Jeh\u00fa sofna\u00f0i me\u00f0 s\u00ednum fe\u00f0rum og \u00feeir j\u00f6r\u00f0u\u00f0u hann \u00ed Samaria. Og J\u00f3akas hans son var\u00f0 k\u00f3ngur \u00ed hans sta\u00f0. En s\u00e1 t\u00edmi sem Jeh\u00fa r\u00edkti yfir \u00cdsrael \u00ed Samaria voru \u00e1tta og tuttugu \u00e1r. <span class=\"athugasemd\" title=\"Jeh\u00fa 28 \u00e1r k\u00f3ngur \u00ed \u00cdsrael\">[<\/span><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>X. Akab \u00e1tti sj\u00f6t\u00edgi sonu \u00ed Samaria. [ Og Jeh\u00fa skrifa\u00f0i br\u00e9f og sendi \u00ed Samariam til \u00feeirra yppurstu af \u00feeim sta\u00f0 Jesreel og til \u00feeirra elstu og til \u00feeirra sem f\u00f3stru\u00f0u sonu Akab, svo l\u00e1tandi: &#8222;\u00de\u00e1 \u00feessi br\u00e9f koma til y\u00f0ar, \u00fe\u00e9r sem hafi\u00f0 y\u00f0ars herra sonu hj\u00e1 y\u00f0ur, vagna v\u00edghesta, sterkar borgir og vopnab\u00fana\u00f0, \u00fe\u00e1 sj\u00e1i\u00f0 y\u00f0ur um hver y\u00f0ur l\u00edst best fallinn af sonum y\u00f0ar herra, \u00fe\u00e1 setji\u00f0 hann \u00ed tignars\u00e6ti hans f\u00f6\u00f0urs og str\u00ed\u00f0i\u00f0 svo fyrir y\u00f0ars herra h\u00fasi.&#8220; En \u00feeir ur\u00f0u mj\u00f6g \u00f3ttaslegnir og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Sj\u00e1, tveir k\u00f3ngar g\u00e1tu ekki sta\u00f0i\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti honum. Hva\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-konungabok-10-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3015","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3015","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3015"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3015\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3015"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}