{"id":3012,"date":"2017-12-18T18:32:21","date_gmt":"2017-12-18T18:32:21","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-konungabok-7-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:21","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:21","slug":"sidari-konungabok-7-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-konungabok-7-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari konungab\u00f3k 7. kafli"},"content":{"rendered":"<p>VII.<\/p>\n<p>En Eliseus sag\u00f0i: &#8222;Heyri\u00f0 or\u00f0 Drottins: Svo segir Drottinn: \u00c1 morgun um \u00feennan t\u00edma skal einn m\u00e6lir similiumj\u00f6ls seljast fyrir einn sekel og tveir m\u00e6lir byggs fyrir einn sekel \u00ed borgarhli\u00f0i Samaria.&#8220; \u00de\u00e1 svara\u00f0i einn af h\u00f6f\u00f0ingjum vi\u00f0 hvers h\u00f6nd a\u00f0 k\u00f3ngurinn studdi sig og sag\u00f0i til gu\u00f0smanns: &#8222;\u00de\u00f3 a\u00f0 Drottinn gj\u00f6ri glugga \u00e1 himninum hvernin m\u00e1 \u00feetta ver\u00f0a?&#8220; Hann sag\u00f0i: &#8222;\u00de\u00fa skalt \u00fea\u00f0 sj\u00e1 me\u00f0 \u00fe\u00ednum augum og ekki eta \u00fear af.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg \u00fear voru fj\u00f3rir l\u00edk\u00fer\u00e1ir menn \u00fati fyrir borgarhli\u00f0i. \u00deeir talast vi\u00f0 s\u00edn \u00e1 milli og segja svo: &#8222;\u00dev\u00ed viljum v\u00e9r h\u00e9r heljar b\u00ed\u00f0a? \u00de\u00f3 v\u00e6r viljum fara \u00ed borgina \u00fe\u00e1 er \u00fear hall\u00e6ri og hungur so v\u00e9r munum deyja \u00fear. Ef b\u00ed\u00f0um v\u00e9r h\u00e9r \u00fe\u00e1 munum v\u00e9r og so deyja. F\u00f6rum v\u00e9r til herb\u00fa\u00f0a \u00feeirra s\u00fdrlenskra. Ef \u00feeir l\u00e1ta oss lifa \u00fe\u00e1 lifum v\u00e9r en sl\u00e1i \u00feeir oss \u00ed hel \u00fe\u00e1 erum v\u00e9r dau\u00f0ir.&#8220; \u00deeir st\u00f3\u00f0u upp n\u00e6r d\u00f6gun og f\u00f3ru a\u00f0 herb\u00fa\u00f0um s\u00fdrlenskra. Og sem \u00feeir komu a\u00f0 \u00feeim fremstu herb\u00fa\u00f0um, sj\u00e1, \u00fe\u00e1 var \u00fear enginn ma\u00f0ur.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed a\u00f0 Drottinn haf\u00f0i l\u00e1ti\u00f0 \u00fe\u00e1 Syros heyra hestahneggjan, vagnagn\u00fd og \u00f3kyrrleik \u00f3fl\u00fdjanda hers so a\u00f0 hver sag\u00f0i til annars: <span class=\"athugasemd\" title=\"Gu\u00f0 hr\u00e6r\u00f0ir Syros\">[<\/span> &#8222;Sj\u00e1i\u00f0, \u00cdsraelsk\u00f3ngur hefur leigt (s\u00e9r til li\u00f0s) \u00ed m\u00f3ti oss Hethiters k\u00f3ng og k\u00f3ngana af Egyptalandi og eru \u00feeir n\u00fa komnir yfir oss.&#8220; Og \u00feeir hlupu upp og fl\u00fa\u00f0u \u00ed d\u00f6gunina fr\u00e1 s\u00ednum tjaldb\u00fa\u00f0um, hestum, \u00f6snum og \u00f6llu \u00fev\u00ed sem \u00ed herb\u00fa\u00f0um var a\u00f0 bjarga l\u00edfinu.<\/p>\n<p>\tN\u00fa sem \u00feeir l\u00edk\u00fer\u00e1u menn komu \u00ed \u00fe\u00e6r herb\u00fa\u00f0ir er n\u00e6st voru \u00fe\u00e1 gengu \u00feeir \u00ed eina tjaldb\u00fa\u00f0ina, \u00e1tu og drukku og t\u00f3ku \u00fear silfur, gull og kl\u00e6\u00f0na\u00f0, gengu \u00ed burt og geymdu \u00fea\u00f0. En sem \u00feeir komu aftur gengu \u00feeir \u00ed a\u00f0ra tjaldb\u00fa\u00f0 og b\u00e1ru \u00fea\u00f0an sl\u00edkt og gengu burt og geymdu.<\/p>\n<p>\tA\u00f0 s\u00ed\u00f0ustu t\u00f6lu\u00f0u \u00feeir me\u00f0 s\u00e9r: &#8222;Ei gj\u00f6rum v\u00e9r r\u00e9tt. \u00deessi dagur er mikillra fagna\u00f0art\u00ed\u00f0inda. Ef v\u00e9r b\u00ed\u00f0um og \u00feegjum allt til bjarts dags \u00e1 morgun \u00fe\u00e1 finnst vor misgj\u00f6rningur. Fyrir \u00fev\u00ed f\u00f6rum aftur, komum og kunngj\u00f6rum \u00feetta \u00ed k\u00f3ngsins h\u00fasi.&#8220; Og sem \u00feeir komu a\u00f0 porti borgarinnar k\u00f6llu\u00f0u \u00feeir \u00e1 hli\u00f0v\u00f6rslumenn borgarinnar og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;V\u00e9r komum \u00ed herb\u00fa\u00f0ir \u00feeirra Syris og sj\u00e1, \u00fear var enginn ma\u00f0ur og einskis manns m\u00e1l\u00e6 heyr\u00f0u v\u00e9r \u00fear. En hestar og asnar voru bundnir og tjaldb\u00fa\u00f0irnar sem \u00fe\u00e6r st\u00f3\u00f0u.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 k\u00f6llu\u00f0u hli\u00f0ver\u00f0ir borgarinnar og kunngj\u00f6r\u00f0u \u00feetta inn \u00ed k\u00f3ngsins h\u00f6ll. Sem k\u00f3ngurinn heyr\u00f0i \u00feetta st\u00f3\u00f0 hann upp um n\u00f3ttina og sag\u00f0i til sinna \u00fe\u00e9nara: &#8222;Eg kann segja y\u00f0ur hva\u00f0 \u00feeir Syri hafa gj\u00f6rt oss. \u00deeir vita a\u00f0 v\u00e9r erum mj\u00f6g a\u00f0 \u00ferotum komnir af hungri. \u00dev\u00ed eru \u00feeir farnir fr\u00e1 herb\u00fa\u00f0um og leynast \u00ed m\u00f6rkum \u00fati og hugsa a\u00f0 \u00fe\u00e1 er v\u00e9r g\u00f6ngum \u00fat af sta\u00f0num \u00fe\u00e1 \u00e6tla \u00feeir a\u00f0 h\u00f6ndla oss lifandi og komast so \u00ed borgina.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 svara\u00f0i einn af hans \u00fe\u00e9nurum og sag\u00f0i: &#8222;T\u00f6kum v\u00e9r \u00fe\u00e1 fimm hesta sem afgangs eru hj\u00e1 oss, hverjir a\u00f0 eftir eru (sj\u00e1, \u00feeir eru eftir or\u00f0nir af \u00f6llum \u00feeim fj\u00f6lda \u00ed \u00cdsrael var, hinir eru \u00ed burt) og sendum \u00fe\u00e1 \u00e1 nj\u00f3sn \u00feanga\u00f0.&#8220; S\u00ed\u00f0an t\u00f3ku \u00feeir tvo vagna og hesta og sendu til s\u00fdrlenskra herb\u00fa\u00f0a og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Fari\u00f0 og sko\u00f0i\u00f0.&#8220; Og sem \u00feeir f\u00f3ru af sta\u00f0 komu \u00feeir \u00e1 \u00feeirra f\u00f6r allt til J\u00f3rdanar og sj\u00e1, um alla vegu l\u00e1gu ker og kl\u00e6\u00f0i er Syri h\u00f6f\u00f0u kasta\u00f0 fr\u00e1 s\u00e9r \u00ed fl\u00f3ttanum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Supra. 6\">[<\/span> En sem sendimenn komu aftur undirv\u00edsu\u00f0u \u00feeir \u00feetta k\u00f3nginum. Gekk \u00fe\u00e1 f\u00f3lki\u00f0 \u00fat og r\u00e6nti herb\u00fa\u00f0ir \u00feeirra Syris. Og \u00e1 \u00feessum sama degi gekk m\u00e6lir similumj\u00f6ls fyrir einn sekel silfurs og tveir m\u00e6lir byggs fyrir einn sekel eftir or\u00f0um Drottins.<\/p>\n<p>\tEn k\u00f3ngurinn tilsetti \u00feann hertuga a\u00f0 vera \u00ed borgarhli\u00f0i vi\u00f0 hvers h\u00f6nd k\u00f3ngur haf\u00f0i stutt sig og f\u00f3lki\u00f0 f\u00f3ttra\u00f0 hann til bana \u00ed borgarhli\u00f0inu svo sem gu\u00f0sma\u00f0ur haf\u00f0i sagt \u00fe\u00e1 k\u00f3ngurinn gekk ofan til hans. Og \u00fea\u00f0 ske\u00f0i sem gu\u00f0sma\u00f0ur sag\u00f0i til k\u00f3ngsins \u00fe\u00e1 hann svo sag\u00f0i: &#8222;\u00c1 morgun um \u00feennan t\u00edma skulu tveir m\u00e6lir byggs kaupast fyrir einn syclum og einn m\u00e6lir similiumj\u00f6ls skal og gilda einn syclum \u00ed Samaria borgarhli\u00f0i.&#8220; En \u00feessi hertugi haf\u00f0i svara\u00f0 gu\u00f0smanni og sagt: &#8222;Sj\u00e1, \u00fe\u00f3 a\u00f0 Drottinn gj\u00f6r\u00f0i glugga \u00e1 himninum, hvernin m\u00e1 \u00fev\u00edl\u00edkt ske?&#8220; Hann svara\u00f0i: &#8222;Sj\u00e1, \u00fe\u00fa skalt me\u00f0 \u00fe\u00ednum augum horfa \u00e1 \u00fea\u00f0 en ekki eta \u00fear af.&#8220; Og \u00fea\u00f0 ske\u00f0i so \u00fea\u00f0 hann var\u00f0 f\u00f3ttro\u00f0inn af f\u00f3lkinu \u00ed borgarhli\u00f0inu og hann l\u00e9t l\u00edfi\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>VII. En Eliseus sag\u00f0i: &#8222;Heyri\u00f0 or\u00f0 Drottins: Svo segir Drottinn: \u00c1 morgun um \u00feennan t\u00edma skal einn m\u00e6lir similiumj\u00f6ls seljast fyrir einn sekel og tveir m\u00e6lir byggs fyrir einn sekel \u00ed borgarhli\u00f0i Samaria.&#8220; \u00de\u00e1 svara\u00f0i einn af h\u00f6f\u00f0ingjum vi\u00f0 hvers h\u00f6nd a\u00f0 k\u00f3ngurinn studdi sig og sag\u00f0i til gu\u00f0smanns: &#8222;\u00de\u00f3 a\u00f0 Drottinn gj\u00f6ri glugga \u00e1 himninum hvernin m\u00e1 \u00feetta ver\u00f0a?&#8220; Hann sag\u00f0i: &#8222;\u00de\u00fa skalt \u00fea\u00f0 sj\u00e1 me\u00f0 \u00fe\u00ednum augum og ekki eta \u00fear af.&#8220; Og \u00fear voru fj\u00f3rir l\u00edk\u00fer\u00e1ir menn \u00fati fyrir borgarhli\u00f0i. \u00deeir talast vi\u00f0 s\u00edn \u00e1 milli og segja svo: &#8222;\u00dev\u00ed viljum v\u00e9r h\u00e9r heljar b\u00ed\u00f0a? \u00de\u00f3 v\u00e6r <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-konungabok-7-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3012","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3012","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3012"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3012\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3012"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}