{"id":3011,"date":"2017-12-18T18:32:21","date_gmt":"2017-12-18T18:32:21","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-konungabok-6-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:21","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:21","slug":"sidari-konungabok-6-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-konungabok-6-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari konungab\u00f3k 6. kafli"},"content":{"rendered":"<p>VI.<\/p>\n<p>Sp\u00e1mannasynir s\u00f6g\u00f0u til Elisei: <span class=\"athugasemd\" title=\"Eliseus\">[<\/span> &#8222;Sj\u00e1, \u00feessi sta\u00f0ur \u00fear v\u00e9r b\u00faum hj\u00e1 \u00fe\u00e9r er oss of \u00fer\u00f6nglendur. V\u00e9r viljum fara til J\u00f3rdanar og taki hver s\u00e9r \u00fear tr\u00e9 svo v\u00e9r m\u00e6ttum byggja oss \u00fear b\u00fasta\u00f0.&#8220; En hann svara\u00f0i: &#8222;Fari\u00f0 \u00feanga\u00f0.&#8220; Og einn sag\u00f0i: &#8222;Bi\u00f0 eg a\u00f0 \u00fe\u00fa viljir fara me\u00f0 \u00fe\u00ednum \u00fe\u00e9nurum.&#8220; Hann sag\u00f0i: &#8222;Eg vil fara me\u00f0 y\u00f0ur.&#8220; Og hann f\u00f3r me\u00f0 \u00feeim. En sem \u00feeir komu til J\u00f3rdanar t\u00f3ku \u00feeir til a\u00f0 h\u00f6ggva vi\u00f0ina. Ma\u00f0ur einn var a\u00f0 h\u00f6ggva tr\u00e9, \u00fe\u00e1 hraut \u00f6xin \u00ed vatni\u00f0. En hann kalla\u00f0i upp og sag\u00f0i: &#8222;Av\u00ed, minn herra, auxin hraut \u00ed vatni\u00f0! \u00dear me\u00f0 var m\u00e9r l\u00e9\u00f0 h\u00fan.&#8220; Og gu\u00f0sma\u00f0ur svara\u00f0i: &#8222;Hvar f\u00e9ll h\u00fan ni\u00f0ur?&#8220; Og hann v\u00edsa\u00f0i honum \u00fea\u00f0. \u00de\u00e1 hj\u00f3 hann eitt tr\u00e9 og snara\u00f0i \u00fev\u00ed \u00feanga\u00f0, \u00fe\u00e1 flaut \u00f6xin upp a\u00f0 tr\u00e9nu. <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00e1rni\u00f0 fl\u00fdtur\">[<\/span> Og hann sag\u00f0i: &#8222;Tak hana aftur.&#8220; Og hann r\u00e9tti \u00fat h\u00f6nd s\u00edna og t\u00f3k aftur \u00f6xina.<\/p>\n<p>\tOg \u00fea\u00f0 ske\u00f0i svo a\u00f0 k\u00f3ngurinn af S\u00fdrlandi str\u00edddi \u00e1 \u00cdsrael og r\u00e1\u00f0ga\u00f0ist vi\u00f0 s\u00edna \u00fe\u00e9nara og sag\u00f0i: &#8222;V\u00e9r viljum setja vorar herb\u00fa\u00f0ir h\u00e9r og \u00fear.&#8220; En gu\u00f0sma\u00f0ur sendi til \u00cdsraelsk\u00f3ngs og l\u00e9t undirv\u00edsa honum: &#8222;Vara \u00feig og far ekki til \u00feess sta\u00f0ar \u00fev\u00ed a\u00f0 Syri eru \u00fear fyrir.&#8220; \u00de\u00e1 sendi \u00cdsraelsk\u00f3ngur burt til \u00feess sta\u00f0ar sem gu\u00f0sma\u00f0ur sag\u00f0i honum, forsvara\u00f0i hann og h\u00e9lt \u00fear vaktara og gj\u00f6r\u00f0i \u00fea\u00f0 ekki eitt sinn e\u00f0ur tv\u00e6r reisur einskostar.<\/p>\n<p>\tK\u00f3ngsins hjarta af Syria felmtra\u00f0i vi\u00f0 \u00feetta og hann kalla\u00f0i saman s\u00edna \u00fe\u00e9nara og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Vilji \u00fe\u00e9r ekki segja m\u00e9r hver af voru li\u00f0i mun fl\u00fainn til \u00cdsraelsk\u00f3ngs?&#8220; \u00de\u00e1 sag\u00f0i einn af hans \u00fe\u00e9nurum: &#8222;Ekki er svo, minn herra k\u00f3ngur, heldur Eliseus s\u00e1 sp\u00e1ma\u00f0ur \u00ed \u00cdsrael, hann segir \u00cdsraelsk\u00f3ngi allt \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00fa talar \u00ed \u00fe\u00ednu svefnherbergi.&#8220; Hann sag\u00f0i: &#8222;Fari\u00f0 og viti\u00f0 hvar hann er svo eg megi senda \u00feanga\u00f0 og l\u00e1ta taka hann.&#8220; Og \u00feeir undirv\u00edsu\u00f0u honum og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Sj\u00e1, hann er \u00ed D\u00f3tan.&#8220; \u00de\u00e1 sendi k\u00f3ngurinn \u00feanga\u00f0 hesta og vagna og mikinn styrk s\u00edns herli\u00f0s. Og sem \u00feeir komu \u00fear um n\u00f3tt sl\u00f3gu \u00feeir herskildi um borgina. <\/p>\n<p>\tEn sem \u00fe\u00e9nari gu\u00f0smanns st\u00f3\u00f0 upp mj\u00f6g \u00e1rla gekk hann \u00fat og sj\u00e1, \u00fe\u00e1 s\u00e1 hann her manna gir\u00f0a um borgina \u00f6llumegin me\u00f0 hestum og v\u00f6gnum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gu\u00f0 hl\u00edfir s\u00ednum \/ 1. J\u00f3h. 4 \/ Psal. 34\">[<\/span> Og \u00fe\u00e9narinn kunngj\u00f6r\u00f0i honum og sag\u00f0i: &#8222;Av\u00ed, minn herra, hva\u00f0 skulu vi\u00f0 a\u00f0hafast?&#8220; Hann sag\u00f0i: &#8222;\u00d3ttast ekki \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir eru fleiri sem oss veita li\u00f0 heldur en \u00feeir sem eru me\u00f0 \u00feeim.&#8220; Og Eliseus f\u00e9ll til b\u00e6nar og sag\u00f0i: &#8222;Drottinn, l\u00fak upp hans augum a\u00f0 hann megi sj\u00e1.&#8220; Og Drottinn upplauk sveinsins augum og hann s\u00e1 og sj\u00e1, a\u00f0 fjalli\u00f0 var fullt umbergis Eliseum af eldlegum hestum og v\u00f6gnum. Og Drottinn sl\u00f3 \u00fe\u00e1 me\u00f0 blindu eftir Elisei or\u00f0um. Og Eliseus sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Ekki er \u00feetta vegurinn n\u00e9 s\u00fa borgin. Fylgi\u00f0 m\u00e9r, eg vil v\u00edsa y\u00f0ur til \u00feess manns sem \u00fe\u00e9r leiti\u00f0 eftir.&#8220; Og hann leiddi \u00fe\u00e1 til Samariam.<\/p>\n<p>\tEn sem \u00feeir voru komnir \u00ed Samariam sag\u00f0i Eliseus: &#8222;Drottinn, l\u00fak \u00fe\u00fa n\u00fa upp \u00feeirra augum svo a\u00f0 \u00feeir megi sj\u00e1.&#8220; Og Drottinn upplauk \u00feeirra augum so \u00feeir s\u00e1u og sj\u00e1, \u00feeir voru \u00ed mi\u00f0ri Samaria. En \u00cdsraelsk\u00f3ngur, sem hann s\u00e1 \u00fe\u00e1, \u00fe\u00e1 sag\u00f0i hann til Eliseum: &#8222;Minn fa\u00f0ir, skal eg sl\u00e1 \u00fe\u00e1?&#8220; Hann svara\u00f0i: &#8222;Ekki skalt \u00fe\u00fa sl\u00e1 \u00fe\u00e1 en \u00fe\u00e1 sem \u00fe\u00fa tekur me\u00f0 sve\u00f0ri \u00fe\u00ednu og boga, \u00fe\u00e1 s\u00f6mu m\u00e1tt \u00fe\u00fa sl\u00e1. Set brau\u00f0 og vatn fyrir \u00fe\u00e1 so \u00feeir megi eta og drekka og l\u00e1t \u00fe\u00e1 s\u00ed\u00f0an fara til s\u00edns herra.&#8220; \u00de\u00e1 var b\u00fain til mikil m\u00e1lt\u00ed\u00f0. Og sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u eti\u00f0 og drukki\u00f0 \u00fe\u00e1 l\u00e9t hann \u00fe\u00e1 fara og \u00feeir dr\u00f3gu til s\u00edns herra. Og aldrei s\u00ed\u00f0an kom s\u00e1 str\u00ed\u00f0sher s\u00fdrlenskra \u00ed \u00cdsraelsland.<\/p>\n<p>\tOg eftir \u00feetta ske\u00f0i svo a\u00f0 Benhadad k\u00f3ngur af Syria dr\u00f3 saman allan sinn her og f\u00f3r upp og settist um Samariam. <span class=\"athugasemd\" title=\"Hall\u00e6ri \u00ed Samaria \u00e1 d\u00f6gum Elisei\">[<\/span> Og \u00fear var\u00f0 miki\u00f0 hall\u00e6ri \u00ed Samaria. Og \u00feeir s\u00e1tu um sta\u00f0inn svo lengi a\u00f0 eitt asnah\u00f6fu\u00f0 var selt fyrir \u00e1ttat\u00edgi silfurpeninga og einn fj\u00f3r\u00f0ungur af kab me\u00f0 d\u00fafnadrit var keypt fyrir fimm silfurpeninga.<\/p>\n<p>\tEn sem \u00cdsraelsk\u00f3ngur gekk \u00e1 m\u00farnum kalla\u00f0i ein kvinna til hans og sag\u00f0i: &#8222;Hj\u00e1lpa \u00fe\u00fa m\u00e9r, minn herra k\u00f3ngur!&#8220; Hann sag\u00f0i: &#8222;Hj\u00e1lpar ekki Drottin \u00fe\u00e9r? Hvar me\u00f0 skal eg hj\u00e1lpa \u00fe\u00e9r? Af kornhl\u00f6\u00f0unni e\u00f0a af v\u00edn\u00fer\u00fagunni?&#8220; Og k\u00f3ngurinn sag\u00f0i til hennar: &#8222;Hva\u00f0 ska\u00f0ar \u00feig?&#8220; H\u00fan sag\u00f0i: &#8222;\u00deessi kvinna sag\u00f0i til m\u00edn: Gef \u00feinn son fram og etum hann \u00ed dag en \u00e1 morgun viljum vi\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0 etum minn son. <span class=\"athugasemd\" title=\"Hryggilegur tilbur\u00f0ur \u00ed Samaria\">[<\/span> Svo h\u00f6fum vi\u00f0 matgj\u00f6rt og eti\u00f0 minn son. Og eg sag\u00f0i til hennar \u00e1 \u00f6\u00f0rum degi: Tak n\u00fa \u00feinn son og l\u00e1t hann hinga\u00f0 so a\u00f0 vi\u00f0 etum hann. En h\u00fan hefur fali\u00f0 sinn son.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn sem k\u00f3ngurinn heyr\u00f0i kvinnunnar or\u00f0 reif hann s\u00edn kl\u00e6\u00f0i \u00fe\u00e1 hann gekk \u00e1 m\u00farnum. \u00de\u00e1 s\u00e1 allt f\u00f3lki\u00f0 a\u00f0 hann var kl\u00e6ddur \u00ed sekk innst kl\u00e6\u00f0a. Og hann sag\u00f0i: &#8222;Gu\u00f0 gj\u00f6ri m\u00e9r \u00fea\u00f0 og \u00fea\u00f0 ef h\u00f6fu\u00f0 Elisei sonar Safat skal vera \u00ed dag \u00e1 honum!&#8220;<\/p>\n<p>\tOg Eliseus sat \u00ed s\u00ednu h\u00fasi og \u00f6ldungarnir s\u00e1tu hj\u00e1 honum. Og k\u00f3ngurinn sendi einn mann undan s\u00e9r. En \u00e1\u00f0ur en sendima\u00f0urinn kom til hans \u00fe\u00e1 sag\u00f0i hann til \u00f6ldunganna sem hj\u00e1 honum s\u00e1tu: &#8222;Viti \u00fe\u00e9r ekki a\u00f0 \u00feessi manndr\u00e1pasonurinn hefur sent hinga\u00f0 a\u00f0 sn\u00ed\u00f0a af m\u00e9r mitt h\u00f6fu\u00f0? Sj\u00e1i\u00f0 til \u00feegar sendima\u00f0urinn kemur, \u00fe\u00e1 l\u00e1ti\u00f0 aftur dyrnar og leyfi\u00f0 honum ei inn a\u00f0 ganga. Sj\u00e1, hans herra kemur skj\u00f3tt eftir honum.&#8220; En sem hann var \u00feetta a\u00f0 tala vi\u00f0 \u00fe\u00e1, sj\u00e1, \u00fe\u00e1 kom sendima\u00f0urinn til hans og sag\u00f0i: &#8222;Sj\u00e1, sl\u00edkt <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (Illt) \/ So gengur oss \u00fe\u00e1 v\u00e9r \u00fej\u00f3num y\u00f0rum Gu\u00f0i, \u00fe\u00e9r \u00e6rulausu sp\u00e1menn, hva\u00f0 betur oss gekk \u00fe\u00e1 v\u00e9r \u00fej\u00f3nu\u00f0um Baal \/ Jere. 44\">[<\/span> illt kemur af Drottni. Hva\u00f0 skal eg meir vona til Drottins?&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>VI. Sp\u00e1mannasynir s\u00f6g\u00f0u til Elisei: [ &#8222;Sj\u00e1, \u00feessi sta\u00f0ur \u00fear v\u00e9r b\u00faum hj\u00e1 \u00fe\u00e9r er oss of \u00fer\u00f6nglendur. V\u00e9r viljum fara til J\u00f3rdanar og taki hver s\u00e9r \u00fear tr\u00e9 svo v\u00e9r m\u00e6ttum byggja oss \u00fear b\u00fasta\u00f0.&#8220; En hann svara\u00f0i: &#8222;Fari\u00f0 \u00feanga\u00f0.&#8220; Og einn sag\u00f0i: &#8222;Bi\u00f0 eg a\u00f0 \u00fe\u00fa viljir fara me\u00f0 \u00fe\u00ednum \u00fe\u00e9nurum.&#8220; Hann sag\u00f0i: &#8222;Eg vil fara me\u00f0 y\u00f0ur.&#8220; Og hann f\u00f3r me\u00f0 \u00feeim. En sem \u00feeir komu til J\u00f3rdanar t\u00f3ku \u00feeir til a\u00f0 h\u00f6ggva vi\u00f0ina. Ma\u00f0ur einn var a\u00f0 h\u00f6ggva tr\u00e9, \u00fe\u00e1 hraut \u00f6xin \u00ed vatni\u00f0. En hann kalla\u00f0i upp og sag\u00f0i: &#8222;Av\u00ed, minn herra, auxin hraut \u00ed <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-konungabok-6-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3011","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3011","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3011"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3011\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3011"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}