{"id":3002,"date":"2017-12-18T18:32:21","date_gmt":"2017-12-18T18:32:21","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrri-konungabok-19-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:21","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:21","slug":"fyrri-konungabok-19-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrri-konungabok-19-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrri konungab\u00f3k 19. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XIX.<\/p>\n<p>Og Akab sag\u00f0i til Jesabel alla \u00fe\u00e1 hluti sem El\u00edas haf\u00f0i gj\u00f6rt og hvernin hann haf\u00f0i drepi\u00f0 alla Baals sp\u00e1menn me\u00f0 sver\u00f0i. \u00de\u00e1 sendi Jesabel eitt bo\u00f0 til Eliam og l\u00e9t segja honum: &#8222;Gu\u00f0irnir gj\u00f6ri m\u00e9r \u00fea\u00f0 og \u00fea\u00f0 ef eg gj\u00f6ri ei \u00e1 morgun \u00feennan t\u00edma \u00feinni s\u00e1l l\u00edka sem \u00fe\u00fa gj\u00f6r\u00f0ir eins \u00feeirra s\u00e1lu.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn sem hann \u00feetta fornam t\u00f3k hann sig upp og gekk burt \u00feanga\u00f0 sem hans hugur v\u00edsa\u00f0i honum og kom til Berseba \u00ed J\u00fada og l\u00e9t sinn \u00fe\u00e9nara \u00fear eftir vera. <span class=\"athugasemd\" title=\"El\u00edas fl\u00fdr fyrir Jesabel\">[<\/span> En hann gekk \u00ed burt \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkina eina daglei\u00f0 og kom og setti sig undir eitt einibertr\u00e9 og beiddist \u00fe\u00e1 a\u00f0 deyja og sag\u00f0i: &#8222;\u00dea\u00f0 er n\u00f3g. So tak n\u00fa m\u00edna s\u00e1l, Drottinn. Eigi em eg betri en m\u00ednir forfe\u00f0ur.&#8220; Og hann lag\u00f0i sig undir einibertr\u00e9\u00f0 og sofna\u00f0i. <\/p>\n<p>\tOg sj\u00e1, engill Drottins t\u00f3k \u00e1 honum og sag\u00f0i til hans: <span class=\"athugasemd\" title=\"Exo. 24 \/ Math. 4\">[<\/span> &#8222;Statt upp og sn\u00e6\u00f0.&#8220; Og sem hann leit hj\u00e1 s\u00e9r \u00fe\u00e1 var \u00fear einn eldbaka\u00f0ur leifur hj\u00e1 hans h\u00f6f\u00f0i og ein kanna me\u00f0 vatni. Og sem hann haf\u00f0i eti\u00f0 og drukki\u00f0 \u00fe\u00e1 lag\u00f0i hann sig ni\u00f0ur aftur a\u00f0 sofa. Og engill Drotins kom \u00ed anna\u00f0 sinn, t\u00f3k \u00e1 honum og sag\u00f0i: &#8222;Statt \u00fe\u00fa upp og sn\u00e6\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00e1tt langan veg fyri h\u00f6ndum a\u00f0 ganga.&#8220; Og hann st\u00f3\u00f0 upp, \u00e1t og drakk og gekk \u00ed styrkleik \u00feeirrar f\u00e6\u00f0u fj\u00f6rut\u00edgir daga og fj\u00f6rut\u00edgir n\u00e6tur allt til Gu\u00f0s fjalls H\u00f3reb.<\/p>\n<p>\tOg hann kom \u00fear inn \u00ed einn hellir og var \u00fear um n\u00f3ttina. Og sj\u00e1, or\u00f0 Drottins kom til hans og sag\u00f0i til hans: &#8222;Hva\u00f0 gj\u00f6rir \u00fe\u00fa h\u00e9r, El\u00eda?&#8220; Hann sag\u00f0i: &#8222;Eg hefi vanl\u00e6tt vegna Drottin, Gu\u00f0s Seba\u00f3t, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00cdsraelssynir hafa yfirgefi\u00f0 \u00feinn s\u00e1ttm\u00e1la og ni\u00f0urbroti\u00f0 \u00fe\u00edn altari og slegi\u00f0 \u00fe\u00edna sp\u00e1menn \u00ed hel me\u00f0 sver\u00f0i og eg er alleina eftir or\u00f0inn og \u00feeir sitja um a\u00f0 taka mig af l\u00edfi.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"R\u00f3m. 11\">[<\/span> Hann sag\u00f0i: &#8222;Far \u00fat h\u00e9\u00f0an og gakk fyrir Drottin upp \u00e1 fjalli\u00f0&#8220; og sj\u00e1, a\u00f0 Drottinn gengur framhj\u00e1 og eitt miki\u00f0 og sterkt ve\u00f0ur hvert e\u00f0 fjalli\u00f0 klauf og bergi\u00f0 braut \u00ed sundur fyri Drottni en Drottinn var ekki \u00ed jar\u00f0skj\u00e1lftanum. En eftir jar\u00f0skj\u00e1lftann kom einn eldur en Drottinn var ekki \u00ed eldinum. Og eftir eldinn kom \u00fear einn h\u00e6gur og mj\u00fakur vindbl\u00e6r.<\/p>\n<p>\tEn sem El\u00edas \u00fea\u00f0 heyr\u00f0i \u00fe\u00e1 dr\u00f3 hann kl\u00e6\u00f0i fyrir andlit s\u00e9r og gekk fram \u00ed dyrnar \u00e1 hellirnum og sj\u00e1, \u00fear kom ein raust til hans og sag\u00f0i: &#8222;Hva\u00f0 gj\u00f6rir \u00fe\u00fa h\u00e9r, El\u00eda?&#8220; Hann sag\u00f0i: &#8222;Eg hefi vandl\u00e6tt vegn Drottins, Gu\u00f0s Seba\u00f3t, \u00fev\u00ed \u00cdsraelssynir hafa forl\u00e1ti\u00f0 \u00feinn s\u00e1ttm\u00e1la, ni\u00f0urbroti\u00f0 \u00fe\u00edn altari og \u00ed hel slegi\u00f0 \u00fe\u00edna sp\u00e1menn me\u00f0 sver\u00f0i og eg einnsaman er eftir or\u00f0inn en \u00feeir sitja um a\u00f0 taka mig af l\u00edfi.&#8220;<\/p>\n<p>\tDrottinn sag\u00f0i til hans: <span class=\"athugasemd\" title=\"4. Reg. 9 \/ Eccle. 48 \/ Hasael \/ Jeh\u00fa \/ Eliseus\">[<\/span> &#8222;Far \u00fe\u00fa aftur sama veg um ey\u00f0im\u00f6rku til Damscum og gakk \u00fear inn og smyr Hasael til k\u00f3ngs yfir Syriam og Jeh\u00fa son Nims\u00ed til k\u00f3ngs yfir \u00cdsrael og Eliseum son Safat af Abel Meh\u00f3la til eins sp\u00e1manns \u00ed \u00feinn sta\u00f0. Og \u00fea\u00f0 skal ske a\u00f0 hver sem kemst undan sver\u00f0i Hasael \u00feann skal Jeh\u00fa drepa og hver sem setur undan sver\u00f0i Jeh\u00fa \u00feann skal Heliseus drepa. Og eg mun eftirl\u00e1ta sj\u00f6 \u00fe\u00fasund manna \u00ed \u00cdsrael sem ekki hafa beygt s\u00edn kn\u00e9 fyrir Baal og hverra allra munnar ekki hafa kysst hann.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg hann gekk \u00fea\u00f0an og fann Heliseum son Safat. Hann var a\u00f0 erja fyrir s\u00e9r me\u00f0 t\u00f3lf uxum og hann var sj\u00e1lfur \u00e1 milli \u00feeirra t\u00f3lf uxa. Og El\u00edas gekk til hans og lag\u00f0i sinn m\u00f6ttul yfir hann. <span class=\"athugasemd\" title=\"Eliseus til sp\u00e1manns smur\u00f0ur\">[<\/span> En hann yfirgaf uxana og rann eftir El\u00eda og sag\u00f0i: &#8222;Leyf m\u00e9r a\u00f0 minnast vi\u00f0 minn f\u00f6\u00f0ur og m\u00f3\u00f0ur, s\u00ed\u00f0an vil eg eftirfylgja \u00fe\u00e9r.&#8220; Hann svara\u00f0i honum: &#8222;Far \u00fe\u00fa og kom aftur. Eg hefi nokku\u00f0 a\u00f0 gj\u00f6ra me\u00f0 \u00feig.&#8220; Og hann skildi vi\u00f0 hann og t\u00f3k eitt par uxa og s\u00e6f\u00f0i og sau\u00f0 kj\u00f6ti\u00f0 me\u00f0 trj\u00e1num sem voru \u00e1 uxunum og gaf f\u00f3lkinu \u00fea\u00f0 a\u00f0 eta. S\u00ed\u00f0an st\u00f3\u00f0 hann upp, fylgdi El\u00eda eftir og \u00fej\u00f3na\u00f0i honum.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XIX. Og Akab sag\u00f0i til Jesabel alla \u00fe\u00e1 hluti sem El\u00edas haf\u00f0i gj\u00f6rt og hvernin hann haf\u00f0i drepi\u00f0 alla Baals sp\u00e1menn me\u00f0 sver\u00f0i. \u00de\u00e1 sendi Jesabel eitt bo\u00f0 til Eliam og l\u00e9t segja honum: &#8222;Gu\u00f0irnir gj\u00f6ri m\u00e9r \u00fea\u00f0 og \u00fea\u00f0 ef eg gj\u00f6ri ei \u00e1 morgun \u00feennan t\u00edma \u00feinni s\u00e1l l\u00edka sem \u00fe\u00fa gj\u00f6r\u00f0ir eins \u00feeirra s\u00e1lu.&#8220; En sem hann \u00feetta fornam t\u00f3k hann sig upp og gekk burt \u00feanga\u00f0 sem hans hugur v\u00edsa\u00f0i honum og kom til Berseba \u00ed J\u00fada og l\u00e9t sinn \u00fe\u00e9nara \u00fear eftir vera. [ En hann gekk \u00ed burt \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkina eina daglei\u00f0 og kom <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrri-konungabok-19-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-3002","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3002","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3002"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/3002\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3002"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}