{"id":2999,"date":"2017-12-18T18:32:21","date_gmt":"2017-12-18T18:32:21","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrri-konungabok-16-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:21","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:21","slug":"fyrri-konungabok-16-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrri-konungabok-16-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrri konungab\u00f3k 16. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XVI.<\/p>\n<p>\u00c1 \u00fev\u00ed sj\u00f6tta og tuttugasta \u00e1ri Asa J\u00fadak\u00f3ngs var\u00f0 Ella sonur Baesa k\u00f3ngur yfir \u00cdsrael \u00ed Tirsa tv\u00f6 \u00e1r. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ella tv\u00f6 \u00e1r k\u00f3ngur yfir \u00cdsrael\">[<\/span> Og hans \u00fe\u00e9nari Simr\u00ed, h\u00f6fu\u00f0sma\u00f0ur yfir helmingi af hans v\u00f6gnum, gj\u00f6r\u00f0i uppreist \u00ed m\u00f3ti honum. Og hann var \u00ed Tirsa, drakk og var\u00f0 drukkinn \u00ed h\u00fasi Arsa sem var f\u00f3viti \u00ed Tirsa. Og Simr\u00ed kom \u00fear inn og sl\u00f3 hann \u00ed hel \u00e1 \u00fev\u00ed sj\u00f6unda og tuttugasta \u00e1ri Asa k\u00f3ngs J\u00fada og var\u00f0 k\u00f3ngur \u00ed hans sta\u00f0. <\/p>\n<p>\tEn sem hann var k\u00f3ngur or\u00f0inn og sat \u00ed s\u00ednu h\u00e1s\u00e6ti \u00fe\u00e1 sl\u00f3 hann allt Baesa h\u00fas og l\u00e9t ekkert mannsbarn eftir lifa. <span class=\"athugasemd\" title=\"Simr\u00ed afm\u00e1r h\u00fas Baesa\">[<\/span> \u00dear me\u00f0 drap hann hans fr\u00e6ndur og vini. Svo ey\u00f0ilag\u00f0i Simr\u00ed Baesa h\u00fas allt saman eftir or\u00f0i Drottins sem hann tala\u00f0 haf\u00f0i yfir Baesa fyrir Jeh\u00fa sp\u00e1mann fyrir sakir allra synda Baesa og hans sonar Ella sem \u00feeir fr\u00f6mdu og komu \u00cdsrael til a\u00f0 syndgast til a\u00f0 m\u00f3\u00f0ga og styggja Drottin, \u00cdsraels Gu\u00f0, me\u00f0 \u00feeirra afgu\u00f0ad\u00fdrkan. En hva\u00f0 meira er a\u00f0 segja um Ella og allt \u00fea\u00f0 hann gj\u00f6r\u00f0i, sj\u00e1, \u00fea\u00f0 er skrifa\u00f0 \u00ed \u00cdsraelsk\u00f3nga kron\u00edku.<\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00fev\u00ed sj\u00f6unda og tuttugasta \u00e1ri Asa k\u00f3ngs var\u00f0 Simr\u00ed k\u00f3ngur \u00ed Tirsa \u00ed sj\u00f6 daga. <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ Simr\u00ed k\u00f3ngur \u00ed sj\u00f6 daga\">[<\/span> \u00dev\u00ed \u00cdsraelsf\u00f3lk sat \u00fe\u00e1 um borg Philisteis Gibeton. En sem f\u00f3lki\u00f0 \u00ed herb\u00fa\u00f0um heyr\u00f0i \u00fea\u00f0 a\u00f0 Simr\u00ed haf\u00f0i gj\u00f6rt uppreist \u00ed m\u00f3ti k\u00f3nginum og slegi\u00f0 hann \u00ed hel \u00fe\u00e1 gj\u00f6r\u00f0i allur \u00cdsrael \u00e1 \u00feeim sama degi Amr\u00ed str\u00ed\u00f0sh\u00f6fu\u00f0smann til k\u00f3ngs yfir allan \u00cdsrael \u00ed s\u00ednum herb\u00fa\u00f0um. Og Amr\u00ed f\u00f3r upp og allur \u00cdsrael me\u00f0 honum fr\u00e1 Gibeton og settist um Tirsa. En sem Simr\u00ed s\u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00feeir mundu vinna sta\u00f0inn \u00fe\u00e1 gekk hann \u00ed k\u00f3ngsh\u00f6llina og uppbrenndi sig sj\u00e1lfan me\u00f0 k\u00f3ngsins h\u00fasi. <span class=\"athugasemd\" title=\"Hr\u00e6\u00f0ilegur dau\u00f0i Simr\u00ed\">[<\/span> Og svo d\u00f3 hann fyrir s\u00ednar syndir sem hann haf\u00f0i gj\u00f6rt a\u00f0 hann gj\u00f6r\u00f0i \u00fea\u00f0 sem Drottni illa l\u00edka\u00f0i og gekk \u00e1 Jer\u00f3b\u00f3ams vegum og \u00ed hans syndum sem hann gj\u00f6r\u00f0i og kom \u00cdsrael til a\u00f0 syndgast. En hva\u00f0 meira er a\u00f0 segja um Simr\u00ed og hvernin hann gj\u00f6r\u00f0i eina uppreist, sj\u00e1, \u00fea\u00f0 er skrifa\u00f0 \u00ed \u00cdsraelsk\u00f3nga kron\u00edku.<\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00feeim t\u00edma skipti \u00cdsrael s\u00e9r \u00ed tvenna flokka. Helmingur f\u00f3lksins eftirfylgdi Tibn\u00ed syni G\u00ednat og g\u00e1fu honum k\u00f3ngsnafn en s\u00e1 annar helmingur h\u00e9lt me\u00f0 Amr\u00ed. En \u00fea\u00f0 f\u00f3lk sem fylgdi Amr\u00ed var\u00f0 aflameira en \u00fea\u00f0 f\u00f3lk sem fylgdi Tbhn\u00ed syni G\u00ednat. Og Tibn\u00ed f\u00e9ll en Amr\u00ed var\u00f0 k\u00f3ngur.<\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00fev\u00ed ellefta og tuttugasta \u00e1ri Asa J\u00fadak\u00f3ngs  var\u00f0 Amr\u00ed k\u00f3ngur yfir \u00cdsrael \u00ed t\u00f3lf \u00e1r og r\u00edkti \u00ed Tirsa sex \u00e1r. <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ Amr\u00ed var k\u00f3ngur yfir \u00cdsrael xy \u00e1r\">[<\/span> Hann keypti \u00fea\u00f0 bjarg Samaria af Semer fyrir tvo sintener silfurs og reysti \u00fear bygg\u00f0 og kalla\u00f0i \u00fe\u00e1 borg sem hann reisti Samaria eftir Semers nafni sem var herra yfir \u00fev\u00ed fjalli. <span class=\"athugasemd\" title=\"Samaria reist af Amr\u00ed\">[<\/span> Amr\u00ed gj\u00f6r\u00f0i \u00fea\u00f0 sem Drottni illa l\u00edka\u00f0i og var verri en allir \u00feeir sem voru fyrir honum og gekk \u00ed \u00f6llum Jer\u00f3b\u00f3ams vegum sonar Nebat og \u00ed hans syndum me\u00f0 hverjum a\u00f0 hann kom \u00cdsrael til a\u00f0 syndgast a\u00f0 \u00feeir stygg\u00f0u Drottin, Gu\u00f0 \u00cdsraels, me\u00f0 \u00feeirra afgu\u00f0ad\u00fdrkan.<\/p>\n<p>\tEn hva\u00f0 meira er a\u00f0 segja um Amr\u00ed og allt \u00fea\u00f0 hann gj\u00f6r\u00f0i og hans magt sem hann framdi, sj\u00e1, \u00fea\u00f0 er skrifa\u00f0 \u00ed \u00cdsraelsk\u00f3nga kron\u00edku. Og Amr\u00ed sofna\u00f0i me\u00f0 s\u00ednum fe\u00f0rum og var jar\u00f0a\u00f0ur \u00ed Samaria. <span class=\"athugasemd\" title=\"Amr\u00ed andast\">[<\/span> Og hans son Akab var\u00f0 k\u00f3ngur \u00ed hans sta\u00f0.<\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00fev\u00ed \u00e1ttunda og \u00fer\u00edtuganda \u00e1ri Asa J\u00fadak\u00f3ngs t\u00f3k Akab son Amr\u00ed k\u00f3ngd\u00f3m yfir \u00cdsrael og r\u00edkti yfir \u00cdsrael \u00ed Samaria tv\u00f6 og tuttugu \u00e1r og gj\u00f6r\u00f0i \u00fea\u00f0 Drottni illa l\u00edka\u00f0i, fram yfir alla \u00fe\u00e1 sem veri\u00f0 h\u00f6f\u00f0u fyrir hann. <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ Akab 22 \u00e1r k\u00f3ngur yfir \u00cdsrael\">[<\/span> Hann l\u00e9t s\u00e9r eigi n\u00e6gja a\u00f0 hann gekk \u00ed syndum Jer\u00f3b\u00f3am sonar Nabat. \u00dear til t\u00f3k hann Jesabel, d\u00f3ttir Etbaals k\u00f3ngs af S\u00eddon, s\u00e9r til eiginkvinnu. <span class=\"athugasemd\" title=\"Jesabel Akabs h\u00fasfr\u00fa\">[<\/span> Og hann f\u00f3r a\u00f0 \u00fej\u00f3na Baal og tilba\u00f0 hann og reisti Baal eitt altari \u00ed Baals h\u00fasi hvert hann bygg\u00f0i honum \u00ed Samaria og planta\u00f0i einn lund. So a\u00f0 Akab gj\u00f6r\u00f0i framar meir a\u00f0 reita og styggja Drottin, \u00cdsraels Gu\u00f0s, en allir a\u00f0rir \u00cdsraelskonungar \u00feeir sem veri\u00f0 h\u00f6f\u00f0u fyrir hann.<\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00feessum sama t\u00edma bygg\u00f0i H\u00edel af Betel Jer\u00edk\u00f3. <span class=\"athugasemd\" title=\"H\u00edel bygg\u00f0i upp Jer\u00edk\u00f3\">[<\/span> Og \u00fea\u00f0 kosta\u00f0i hans hinn fyrsta son Ab\u00edram \u00fe\u00e1 hann lag\u00f0i grundv\u00f6llinn og hans yngsta son Seg\u00fab \u00fe\u00e1 hann setti p\u00f6rtin eftir Drottins or\u00f0i sem hann haf\u00f0i tala\u00f0 fyrir J\u00f3s\u00faa son N\u00fan. <span class=\"athugasemd\" title=\"Josue 6\">[<\/span><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XVI. \u00c1 \u00fev\u00ed sj\u00f6tta og tuttugasta \u00e1ri Asa J\u00fadak\u00f3ngs var\u00f0 Ella sonur Baesa k\u00f3ngur yfir \u00cdsrael \u00ed Tirsa tv\u00f6 \u00e1r. [ Og hans \u00fe\u00e9nari Simr\u00ed, h\u00f6fu\u00f0sma\u00f0ur yfir helmingi af hans v\u00f6gnum, gj\u00f6r\u00f0i uppreist \u00ed m\u00f3ti honum. Og hann var \u00ed Tirsa, drakk og var\u00f0 drukkinn \u00ed h\u00fasi Arsa sem var f\u00f3viti \u00ed Tirsa. Og Simr\u00ed kom \u00fear inn og sl\u00f3 hann \u00ed hel \u00e1 \u00fev\u00ed sj\u00f6unda og tuttugasta \u00e1ri Asa k\u00f3ngs J\u00fada og var\u00f0 k\u00f3ngur \u00ed hans sta\u00f0. En sem hann var k\u00f3ngur or\u00f0inn og sat \u00ed s\u00ednu h\u00e1s\u00e6ti \u00fe\u00e1 sl\u00f3 hann allt Baesa h\u00fas og l\u00e9t ekkert mannsbarn eftir <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrri-konungabok-16-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2999","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2999","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2999"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2999\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2999"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}