{"id":2990,"date":"2017-12-18T18:32:18","date_gmt":"2017-12-18T18:32:18","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrri-konungabok-7-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:18","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:18","slug":"fyrri-konungabok-7-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrri-konungabok-7-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrri konungab\u00f3k 7. kafli"},"content":{"rendered":"<p>VII.<\/p>\n<p>En Sal\u00f3mon uppbygg\u00f0i sitt h\u00fas \u00ed \u00ferett\u00e1n \u00e1r og fullkomna\u00f0i \u00fea\u00f0 me\u00f0 \u00f6llu. <span class=\"athugasemd\" title=\"Sal\u00f3mons h\u00fas\">[<\/span> Hann bygg\u00f0i eitt h\u00fas af L\u00edbanonsk\u00f3gi, hundra\u00f0 \u00e1lna langt, fimmt\u00edgi \u00e1lna breitt og \u00ferj\u00e1t\u00edgi \u00e1lna h\u00e1tt,<\/p>\n<p>\tog lag\u00f0i bita og bj\u00e1lka \u00e1 st\u00f3lpana \u00e1 fj\u00f3rum skip\u00f6num sedrusvi\u00f0arst\u00f3lpa. <span class=\"athugasemd\" title=\"S\u00e1 konunglegi salur\">[<\/span> En \u00fear yfir (lag\u00f0i hann) eitt herbergi af sedrus \u00e1 \u00fe\u00e1 s\u00f6mu st\u00f3lpa sem voru fimm og fj\u00f6rut\u00edgir, j\u00e1 fimmt\u00e1n \u00ed hverri skipan. <\/p>\n<p>\tOg \u00fear voru gluggar \u00fer\u00edsettir hvorir \u00ed m\u00f3t \u00f6\u00f0ru, \u00fer\u00edr \u00ed m\u00f3ti \u00ferimur, og \u00feeir voru ferskeyttir \u00e1 hvern veg.<\/p>\n<p>\tHann bygg\u00f0i og eitt forbyrgi me\u00f0 st\u00f3lpum, fimmt\u00edgir \u00e1lna langt og \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00e1lna breitt, og enn eitt forbyrgi fyrir framan \u00feetta me\u00f0 st\u00f3lpum og \u00feykkvum bitum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Hofsalur cantzeleri\">[<\/span><\/p>\n<p>\tHann bygg\u00f0i og einn m\u00e1lstefnusal a\u00f0 sitja d\u00f3ma \u00fati og \u00feilja\u00f0i hann \u00ed rj\u00e1fur og \u00ed g\u00f3lf me\u00f0 sedrusvi\u00f0artrj\u00e1m. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00deingh\u00fas\">[<\/span><\/p>\n<p>\tHann gj\u00f6r\u00f0i og so s\u00ednu h\u00fasi eitt forbyrgi bak vi\u00f0 salinn, me\u00f0 sama hagleik sm\u00ed\u00f0a\u00f0.<\/p>\n<p>\tHann gj\u00f6r\u00f0i og svo eitt h\u00fas l\u00edka sem salinn handa pharaonisd\u00f3ttur, hverja Sal\u00f3mon haf\u00f0i teki\u00f0 s\u00e9r til eiginkvinnu.<\/p>\n<p>\t\u00cd \u00f6llum \u00feessum h\u00fasum voru kostulegir steinar, \u00fath\u00f6ggnir eftir r\u00e9ttum skammt og m\u00e1ta upp \u00e1 allar s\u00ed\u00f0ur, ne\u00f0an fr\u00e1 grundvelli og upp undir \u00feaki\u00f0, \u00fear til og s\u00e1 st\u00f3ri gar\u00f0ur utan til. <span class=\"athugasemd\" title=\"Rup. 3\">[<\/span> En grundv\u00f6llurinn var og svo af kostulegum og st\u00f3rum steinum, t\u00edu og \u00e1tta \u00e1lna a\u00f0 vexti og \u00fea\u00f0 voru kostulega \u00fath\u00f6ggnir steinar eftir r\u00e9ttum skammti og sedrusvi\u00f0ir. En s\u00e1 st\u00f3ri gar\u00f0ur haf\u00f0i allt um kring \u00ferj\u00e1r ra\u00f0ir \u00fath\u00f6ggvinna steina og eina r\u00f6\u00f0 af sedrusfjalvi\u00f0ar\u00feili eins og s\u00e1 gar\u00f0ur hj\u00e1 Drottins h\u00fasi innan til og s\u00e1 salur sem st\u00f3\u00f0 hj\u00e1 h\u00fasinu.<\/p>\n<p>\tOg k\u00f3ng Sal\u00f3mon sendi \u00fat og l\u00e9t s\u00e6kja H\u00edram af Thiro hver e\u00f0 var sonur einnrar ekkju af \u00e6tt Neftal\u00edm og hans fa\u00f0ir haf\u00f0i veri\u00f0 einn ma\u00f0ur af Thiro. <span class=\"athugasemd\" title=\"H\u00edram \/ 1. Para. 19 \/ 4. Reg. 25\">[<\/span> Hann var einn smi\u00f0ur og fr\u00e1b\u00e6r hagleiksma\u00f0ur \u00e1 kopar, fullur af v\u00edsd\u00f3mi, skilningi og kunn\u00e1ttu a\u00f0 sm\u00ed\u00f0a allra handa sm\u00ed\u00f0i af m\u00e1lmi. Og sem hann kom til Sal\u00f3mons k\u00f3ngs sm\u00ed\u00f0a\u00f0i hann allar hans sm\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n<p>\tOg hann gj\u00f6r\u00f0i tvo koparst\u00f3lpa, \u00e1tj\u00e1n \u00e1lna h\u00e1van hvorn fyrir sig, og einn \u00fer\u00e1\u00f0ur t\u00f3lf \u00e1lna vaf\u00f0ist um hvorn st\u00f3lpa. Og hann gj\u00f6r\u00f0i tvo hnappa steypta af kopar og setti \u00fe\u00e1 ofan \u00e1 st\u00f3lpana og hvor hnappur var fimm \u00e1lna h\u00e1r. Og \u00fear var upp \u00e1 hvorum hnappi ofan \u00e1 st\u00f3lpunum sj\u00f6 laufvi\u00f0astrengir fl\u00e9tta\u00f0ir l\u00edka sem hlekkir. <span class=\"athugasemd\" title=\"Tveir koparst\u00f3lpar\">[<\/span> Og hann gj\u00f6r\u00f0i \u00e1 hvorum hnappi tv\u00e6r ra\u00f0ir me\u00f0 granataepli r\u00e9tt um kring \u00e1 einu bandi sem hnappurinn var b\u00fainn me\u00f0. Og hnapparnir voru l\u00edka sem rosa fyrir salnum, fj\u00f6gra \u00e1lna st\u00f3rir. En granataeplin voru tv\u00f6 hundru\u00f0 \u00ed r\u00f6\u00f0um r\u00e9tt um kring, ofan og ne\u00f0an til \u00feess bands sem gekk um kring mi\u00f0jan hnappinn, \u00e1 hvorum hnappnum \u00e1 b\u00e1\u00f0um st\u00f3lpunum. Og hann reisti upp st\u00f3lpana fyrir forbyrgi musterisins. Og \u00feann sem hann setti \u00e1 h\u00e6gri s\u00ed\u00f0u kalla\u00f0i hann Jak\u00edn en \u00feann sem hann setti \u00e1 vinstri s\u00ed\u00f0u kalla\u00f0i hann B\u00f3as. Og \u00fea\u00f0 st\u00f3\u00f0 upp \u00e1 st\u00f3lpunum l\u00edka svo sem r\u00f3sir. Svo var s\u00e1 gj\u00f6rningur st\u00f3lpanna fullkomna\u00f0ur.<\/p>\n<p>\tOg hann gj\u00f6r\u00f0i eitt koparhaf og \u00fea\u00f0 var kringl\u00f3tt, t\u00edu \u00e1lna v\u00edtt fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum barmi til annars og fimm \u00e1lna h\u00e1tt og ein sn\u00fara \u00ferj\u00e1t\u00edgi \u00e1lna l\u00f6ng var um m\u00e6lirinn allt um kring hafi\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Koparhafi\u00f0\">[<\/span> Og \u00fear voru knappar undir barminum kringum \u00fea\u00f0 sama haf sem var t\u00edu \u00e1lna v\u00edtt, r\u00e9tt \u00ed kringum hafi\u00f0, og \u00feessir sm\u00e1hnappar voru steyptir \u00ed tv\u00e6r ra\u00f0ir. Og \u00fea\u00f0 st\u00f3\u00f0 upp \u00e1 t\u00f3lf uxum, \u00ferimur var sn\u00fai\u00f0 \u00ed m\u00f3t nor\u00f0ri, \u00ferimur \u00ed m\u00f3t vestri, \u00ferimur \u00ed m\u00f3t su\u00f0ri og \u00ferimur \u00ed m\u00f3t austri. Og hafi\u00f0 st\u00f3\u00f0 \u00fear ofan \u00e1 og allur aftari hlutur uxanna st\u00f3\u00f0 inn undir koparhafinu. Og \u00feykktin \u00e1 hafinu var \u00feverarhandar en barmarnir \u00fear \u00e1 voru sem barmar \u00e1 einum bikar, l\u00edka sem ein \u00fatsprungin rosa. Og \u00fea\u00f0 t\u00f3k tv\u00f6 \u00fe\u00fasund <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (Bathos) er nokkursh\u00e1ttar st\u00f3r m\u00e6lir\">[<\/span> bathos.<\/p>\n<p>\tHann gj\u00f6r\u00f0i og svo t\u00edu koparst\u00f3la, hvern fj\u00f6gra \u00e1lna langan og brei\u00f0an og \u00feriggja \u00e1lna h\u00e1van. Og st\u00f3larnir voru so gj\u00f6r\u00f0ir a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u flatvegi \u00e1 millum listanna og utan \u00e1 flatvegunum millum listanna voru le\u00f3n, uxi og ker\u00fab\u00edm og flatvegirnir sem le\u00f3nin og uxarnir voru upp \u00e1 h\u00f6f\u00f0u lista ofan og ne\u00f0an og litla f\u00e6tur \u00fear upp \u00e1. <span class=\"athugasemd\" title=\"Koparst\u00f3larnir\">[<\/span> Og hver st\u00f3ll haf\u00f0i fj\u00f6gur koparhj\u00f3l me\u00f0 koparauxlum og \u00e1 \u00feeim fj\u00f3rum hornum voru fj\u00f3rir hj\u00f3l\u00e1sar steyptir, hver gagnvart \u00f6\u00f0rum, ne\u00f0an undir vi\u00f0 hvern inni. <\/p>\n<p>\tEn h\u00e1lsinn \u00e1 mi\u00f0jum st\u00f3lnum var einnrar \u00e1lnar h\u00e1r og s\u00edvalur, h\u00e1lfrar annarrar \u00e1lnar v\u00ed\u00f0ur og \u00fea\u00f0 voru doppur \u00e1 h\u00e1lslistunum sem voru me\u00f0 fj\u00f3rum hornum en ekki kringl\u00f3ttar. En \u00feau fj\u00f6gur hj\u00f3l st\u00f3\u00f0u upp me\u00f0 s\u00ed\u00f0unum og hj\u00f3la\u00e1sarnir voru upp me\u00f0 st\u00f3lnum, hvert hj\u00f3l var h\u00e1lfrar annarrar \u00e1lnar h\u00e1tt. Og hj\u00f3lin voru l\u00edka sem vagnahj\u00f3l og \u00feeirra hj\u00f3l\u00e1sar og allt \u00fea\u00f0 hj\u00f3lunum tilheyr\u00f0i var allt me\u00f0 steyptan kopar. Og fj\u00f3rar axlir voru \u00e1 hverju st\u00f3lshorni \u00e1 st\u00f3lunum.<\/p>\n<p>\tOg \u00e1 h\u00e1lsinum ofan \u00e1 st\u00f3lnum einnrar \u00e1lnar h\u00e1vum r\u00e9tt um kring voru listur og sina flatvegir \u00e1 st\u00f3lnum og hann l\u00e9t \u00fatgrafa \u00fear sem sl\u00e9tt var \u00e1 \u00feeim s\u00f6mum flatvegum og listum ker\u00fab\u00edm, le\u00f3n og laufavi\u00f0, hvert hj\u00e1 \u00f6\u00f0ru, r\u00e9tt um kring \u00fear upp \u00e1. Eftir \u00feessum m\u00e1ta gj\u00f6r\u00f0i hann \u00fe\u00e1 t\u00edu steypta st\u00f3la og h\u00f6f\u00f0u allir einn m\u00e1ta og m\u00e6lir.<\/p>\n<p>\tOg hann gj\u00f6r\u00f0i t\u00edu <span class=\"athugasemd\" title=\"sword P\u00f6nnur\">[<\/span> koparkvarnir og \u00fear gengu fj\u00f3rut\u00edgi bath \u00ed hverja kv\u00f6rn og var fj\u00f6gra \u00e1lna st\u00f3r og \u00fear var ein kvern \u00e1 hverjum st\u00f3l. Og hann setti fimm st\u00f3la \u00ed \u00fea\u00f0 h\u00e6gra horn \u00ed musterinu og \u00fe\u00e1 a\u00f0ra fimm vi\u00f0 \u00fea\u00f0 vinstra horn. En koparhafi\u00f0 setti hann \u00e1 \u00feann h\u00e6gra veg utan til \u00ed m\u00f3t su\u00f0ri.<\/p>\n<p>\tOg H\u00edram gj\u00f6r\u00f0i og svo p\u00f6nnur, sk\u00faflur, munnlaugar, og fullkomna\u00f0i so allan gj\u00f6rninginn sem Sal\u00f3mon k\u00f3ngur l\u00e9t gj\u00f6ra \u00ed Drottins h\u00fasi sem voru \u00feeir tveir st\u00f3lpar og \u00feeir b\u00f6ll\u00f3ttu hnappar ofan \u00e1 \u00feeim tveimur st\u00f3lpum og \u00fe\u00e6r tv\u00e6r fl\u00e9tta\u00f0ar sn\u00farur a\u00f0 hylja \u00fe\u00e1 tvo b\u00f6ll\u00f3ttu hnappa \u00e1 st\u00f3lpunum og \u00feau fj\u00f6gur hundru\u00f0 granataepli \u00e1 \u00feeim tveimur fl\u00e9ttu\u00f0um laufvi\u00f0arstrengjum, j\u00e1, tv\u00e6r ra\u00f0ir me\u00f0 granatepli \u00e1 hvorum streng a\u00f0 hylja \u00fe\u00e1 tvo b\u00f6ll\u00f3ttu hnappa \u00e1 st\u00f3lpunum, \u00fear til koparhafi\u00f0 og t\u00f3lf uxa und hafinu og \u00fe\u00e1 t\u00edu st\u00f3la og t\u00edu kvernir \u00fear ofan \u00e1, eldsg\u00f6gnin, sk\u00faflurnar og munlaugaranar. Og \u00f6ll \u00feessi ker sem H\u00edram gj\u00f6r\u00f0i k\u00f3ng Sal\u00f3moni til Drottins h\u00fass \u00feau voru af kl\u00e1ru l\u00e1t\u00fani. \u00cd takmarki hj\u00e1 J\u00f3rdan l\u00e9t k\u00f3ngurinn steypa \u00feau \u00ed leirugri j\u00f6r\u00f0u millum S\u00fak\u00f3g og Sartan. Og Sal\u00f3mon l\u00e9t \u00f6ll ker vera \u00f3vegin s\u00f6kum \u00feyngdar \u00feess ofurmikla kopars.<\/p>\n<p>\tSal\u00f3mon gj\u00f6r\u00f0i og svo \u00f6ll verkf\u00e6ri sem heyr\u00f0i til h\u00fasi Drottins, sem var eitt gullaltari, eitt gullbor\u00f0 sem f\u00f3rnarbrau\u00f0in l\u00e1gu upp \u00e1, fimm kertastikur \u00e1 h\u00e6gri s\u00ed\u00f0u og fimm kertastikur \u00e1 \u00fe\u00e1 vinstri s\u00ed\u00f0u fyrir kornum af kl\u00e1ru gulli, me\u00f0 gullbl\u00f3mstrum, l\u00f6mpum og lj\u00f3sas\u00f6xum; \u00fear til sk\u00e1lir, diskar, munnlaugar, skei\u00f0ir og p\u00f6nnur af kl\u00e1ru gulli. <span class=\"athugasemd\" title=\"Exod. 25\">[<\/span> Og tengslin upp \u00e1 dyrunum \u00ed h\u00fasinu innan til \u00ed \u00fev\u00ed allrahelgasta og \u00e1 h\u00fassins dyrum \u00ed musterinu voru af gulli.<\/p>\n<p>\tSvo var n\u00fa allur gj\u00f6rningurinn fullkomna\u00f0ur sem Sal\u00f3mon k\u00f3ngur gj\u00f6r\u00f0i \u00e1 Drottins <span class=\"athugasemd\" title=\"2. Para. 5\">[<\/span> h\u00fasi. Og Sal\u00f3mon f\u00e6r\u00f0i \u00fear inn allt \u00fea\u00f0 sem hans fa\u00f0ir Dav\u00ed\u00f0 haf\u00f0i helga\u00f0 af silfri, gulli og kerum og lag\u00f0i \u00fea\u00f0 \u00ed f\u00e9hirslur Drottins h\u00fass.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>VII. En Sal\u00f3mon uppbygg\u00f0i sitt h\u00fas \u00ed \u00ferett\u00e1n \u00e1r og fullkomna\u00f0i \u00fea\u00f0 me\u00f0 \u00f6llu. [ Hann bygg\u00f0i eitt h\u00fas af L\u00edbanonsk\u00f3gi, hundra\u00f0 \u00e1lna langt, fimmt\u00edgi \u00e1lna breitt og \u00ferj\u00e1t\u00edgi \u00e1lna h\u00e1tt, og lag\u00f0i bita og bj\u00e1lka \u00e1 st\u00f3lpana \u00e1 fj\u00f3rum skip\u00f6num sedrusvi\u00f0arst\u00f3lpa. [ En \u00fear yfir (lag\u00f0i hann) eitt herbergi af sedrus \u00e1 \u00fe\u00e1 s\u00f6mu st\u00f3lpa sem voru fimm og fj\u00f6rut\u00edgir, j\u00e1 fimmt\u00e1n \u00ed hverri skipan. Og \u00fear voru gluggar \u00fer\u00edsettir hvorir \u00ed m\u00f3t \u00f6\u00f0ru, \u00fer\u00edr \u00ed m\u00f3ti \u00ferimur, og \u00feeir voru ferskeyttir \u00e1 hvern veg. Hann bygg\u00f0i og eitt forbyrgi me\u00f0 st\u00f3lpum, fimmt\u00edgir \u00e1lna langt og \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00e1lna breitt, <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrri-konungabok-7-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2990","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2990","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2990"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2990\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2990"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}