{"id":2981,"date":"2017-12-18T18:32:18","date_gmt":"2017-12-18T18:32:18","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-samuelsbok-22-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:18","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:18","slug":"sidari-samuelsbok-22-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-samuelsbok-22-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari Sam\u00faelsb\u00f3k 22. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXII.<\/p>\n<p>Og Dav\u00ed\u00f0 tala\u00f0i or\u00f0in \u00feessa lofs\u00f6ngs fyrir Drottni \u00feann t\u00ed\u00f0 a\u00f0 Drottinn haf\u00f0i frelsa\u00f0 hann af hendi allra hans \u00f3vina og af hendi Saul og m\u00e6lti: <span class=\"athugasemd\" title=\"Ein \u00feakkargj\u00f6r\u00f0 Dav\u00ed\u00f0s \/ Psal. 18\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tDrottinn er mitt bjarg og mitt h\u00e6li og minn hj\u00e1lpari.<\/p>\n<p>\tGu\u00f0 er minn styrkur \u00e1 hvern eg tr\u00fai, minn skj\u00f6ldur og horn minnar heilsu, minn verndari og mitt athvarf, minn frelsari, \u00fe\u00fa sem hj\u00e1lpar m\u00e9r fr\u00e1 \u00f6llu rangl\u00e6ti.<\/p>\n<p>\tEg vil lofa og \u00e1kalla Drottin, svo ver\u00f0 eg frelsa\u00f0ur fr\u00e1 m\u00ednum \u00f3vinum.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed dau\u00f0ans p\u00ednur h\u00f6f\u00f0u spennt mig og Bel\u00edals bekkir skelfdu mig.<\/p>\n<p>\tHelv\u00edtis harmkv\u00e6li h\u00f6f\u00f0u spennt mig og dau\u00f0ans sn\u00f6rur voru fallnar yfir mig.<\/p>\n<p>\t\u00cd minni ney\u00f0 kalla\u00f0i eg \u00e1 Drottin og hr\u00f3pa\u00f0i til m\u00edns Gu\u00f0s og hann heyr\u00f0i m\u00edna raust af s\u00ednu musteri og mitt kall kom fyrir hann til hans eyrna.<\/p>\n<p>\tJ\u00f6r\u00f0in bifa\u00f0ist og hr\u00e6r\u00f0ist, himinsins grundv\u00f6llur hristist og bifa\u00f0ist \u00fe\u00e1 hann var rei\u00f0ur.<\/p>\n<p>\t\u00dear gekk reykur upp af hans n\u00f6sum og fort\u00e6randi eldur af hans munni svo a\u00f0 \u00fear af leiftra\u00f0i.<\/p>\n<p>\tHann beyg\u00f0i himnana og f\u00f3r ofan og \u00fear var myrkur undir hans f\u00f3tum.<\/p>\n<p>\tOg hann f\u00f3r \u00e1 ker\u00fab\u00edm og flaug \u00feanga\u00f0 og hann sveima\u00f0i \u00e1 v\u00e6ngjum vindsins.<\/p>\n<p>\tHans tjald umhverfis hann var myrkur og svartur sk\u00fdjaklasi.<\/p>\n<p>\tAf birtunni fyrir honum \u00fe\u00e1 brann me\u00f0 eldingu.<\/p>\n<p>\tDrottinn duna\u00f0i af himninum og S\u00e1 allra h\u00e6sti l\u00e9t \u00fat s\u00ednar rei\u00f0ar\u00ferumur.<\/p>\n<p>\tHann skaut s\u00ednum p\u00edlum og sundurdreif\u00f0i \u00feeim, hann l\u00e9t eldingar flj\u00faga og hr\u00e6ddi \u00fe\u00e1.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 s\u00e1u menn vatsfossana og jar\u00f0arinnar grundvellir opnu\u00f0ust af straffi Drottins, af bl\u00e6stri andans hans grimmdar.<\/p>\n<p>\tHann sendi \u00fat af h\u00e6\u00f0unum a\u00f0 s\u00e6kja mig og hann dr\u00f3 mig \u00fat af miklum v\u00f6tnum.<\/p>\n<p>\tHann frelsa\u00f0i mig fr\u00e1 m\u00ednum \u00f3vinum og fr\u00e1 \u00feeim sem mig h\u00f6tu\u00f0u og m\u00e9r yfirsterkari voru.<\/p>\n<p>\t\u00deeir mig yfirf\u00e9llu \u00ed minni m\u00f3tgangst\u00ed\u00f0 og Drottinn var mitt tr\u00fana\u00f0artraust.<\/p>\n<p>\tHann f\u00e6r\u00f0i mig \u00fat \u00e1 v\u00ed\u00f0lendi\u00f0, hann frelsa\u00f0i mig \u00fev\u00ed a\u00f0 eg \u00fe\u00f3kna\u00f0ist honum.<\/p>\n<p>\tDrottinn endurgeldur m\u00e9r eftir minni r\u00e9ttv\u00edsi, hann bitalar m\u00e9r eftir hreinleik minna handa.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed eg held Drottins vegu og er ekki \u00f3gu\u00f0legur \u00ed m\u00f3ti m\u00ednum Gu\u00f0i.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed eg hefi alla hans d\u00f3ma m\u00e9r fyrir augum og eg kasta ekki hans bo\u00f0um fr\u00e1 m\u00e9r<\/p>\n<p>\theldur em eg flekklaus fyrir honum og eg vakta mig fyrir syndinni.<\/p>\n<p>\t\u00dear fyrir launar Drottinn m\u00e9r eftir minni r\u00e9tv\u00edsi, eftir m\u00ednum r\u00e9ttindum fyrir hans augum.<\/p>\n<p>\tHj\u00e1 \u00feeim heil\u00f6gu ert \u00fe\u00fa heilagur, hj\u00e1 \u00feeim g\u00f3\u00f0u ert \u00fe\u00fa g\u00f3\u00f0ur, hj\u00e1 \u00feeim hreinu ert \u00fe\u00fa hreinn og hj\u00e1 \u00feeim \u00feversn\u00fanu ert \u00fe\u00fa \u00feversn\u00fainn.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed \u00fe\u00fa hj\u00e1lpar \u00fev\u00ed f\u00e1t\u00e6ka f\u00f3lki og me\u00f0 \u00fe\u00ednum augum ni\u00f0ur\u00ferykktir \u00fe\u00fa \u00fe\u00e1 hina h\u00e1vu.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed \u00fe\u00fa, Drottinn, ert mitt lj\u00f3s, Drottinn uppl\u00fdsir m\u00edn myrkur.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed me\u00f0 \u00fe\u00e9r kann eg \u00ed gegnum a\u00f0 ganga hermannafylkingar og \u00ed m\u00ednum Gu\u00f0i kann eg a\u00f0 st\u00f6kkva yfir m\u00farinn.<\/p>\n<p>\tGu\u00f0s vegir eru l\u00fdtalausir, m\u00e1l Drottins er t\u00e1hreint. Hann er skj\u00f6ldur allra \u00feeirra sem \u00e1 hann treysta.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed hver er Gu\u00f0 utan Drottin og hver er styrkur utan vor Gu\u00f0?<\/p>\n<p>\tGu\u00f0 styrkir mig me\u00f0 krafti og v\u00edsar m\u00e9r \u00e1 einn flekklausan veg.<\/p>\n<p>\tHann gj\u00f6rir m\u00ednar f\u00e6tur svo sem hjartar (f\u00e6tur) og setur mig \u00e1 m\u00edna vegu. h\u00e6\u00f0.<\/p>\n<p>\tHann kennir m\u00ednum h\u00f6ndum a\u00f0 berjast og hann l\u00e6rir m\u00edna arma a\u00f0 spenna st\u00e1lboga. <span class=\"athugasemd\" title=\"Psal. 144\">[<\/span><\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00fa gefur m\u00e9r \u00feinn hj\u00e1lpr\u00e6\u00f0isskj\u00f6ld og \u00fe\u00e1 \u00fe\u00fa au\u00f0m\u00fdkir mig \u00fe\u00e1 gj\u00f6rir \u00fe\u00fa mig st\u00f3ran.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa gefur m\u00e9r n\u00f3g gangr\u00fam svo a\u00f0 m\u00ednir h\u00e6lar skri\u00f0ni ekki.<\/p>\n<p>\tEg vil veita m\u00ednum \u00f3vinum eftirf\u00f6r og ey\u00f0ileggja \u00fe\u00e1 og eigi aftur sn\u00faa fyrr en eg hefi gj\u00f6rt \u00fe\u00e1 a\u00f0 \u00f6ngvu.<\/p>\n<p>\tEg vil fyrirkoma \u00feeim og \u00ed sundurmerja \u00fe\u00e1 og \u00feeir skulu eigi standa m\u00e9r \u00ed m\u00f3t, \u00feeir munu falla undir m\u00ednar f\u00e6tur.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa kannt a\u00f0 brynja mig me\u00f0 styrkleik \u00ed bardaga, \u00fe\u00fa kannt a\u00f0 kasta \u00feeim undir mig sem setja sig upp \u00ed m\u00f3ti m\u00e9r.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa l\u00e6tur m\u00edna \u00f3vini fl\u00fdja undan m\u00e9r so eg ey\u00f0ileggi \u00fe\u00e1 sem mig hata.<\/p>\n<p>\t\u00deeir kalla en \u00fear er enginn sem hj\u00e1lpar, til Drottins, en hann svarar \u00feeim ekki.<\/p>\n<p>\tEg vil melja \u00fe\u00e1 so sem duft jar\u00f0ar, so sem \u00f6\u00f0rum gatnasaur vil eg sundurdreifa \u00feeim og feykja \u00feeim.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa hj\u00e1lpar m\u00e9r fr\u00e1 or\u00f0a\u00fer\u00e6tum f\u00f3lksins og var\u00f0veitir mig til eins h\u00f6fu\u00f0s \u00e1 me\u00f0al hei\u00f0ingjanna, eitt f\u00f3lk sem eg ekki \u00feekki \u00fej\u00f3nar m\u00e9r.<\/p>\n<p>\t\u00dea\u00f0 hefur brug\u00f0ist annarlegum sonum m\u00f3ti m\u00e9r og \u00feeir hl\u00fd\u00f0a m\u00e9r me\u00f0 hl\u00fd\u00f0ugum eyrum.<\/p>\n<p>\t\u00deeir annarlegu synir eru a\u00f0 \u00ferotum komnir og vaf\u00f0ir \u00ed \u00feeirra b\u00f6ndum.<\/p>\n<p>\tDrottinn lifir og lofa\u00f0ur veri minn styrkur og Gu\u00f0, styrkur m\u00edns hj\u00e1lpr\u00e6\u00f0is, skal upphefjast,<\/p>\n<p>\ts\u00e1 Gu\u00f0 sem gefur m\u00e9r hefndina og fleygir f\u00f3lkinu undir mig.<\/p>\n<p>\tHann hj\u00e1lpar m\u00e9r \u00fat fr\u00e1 m\u00ednum \u00f3vinum, \u00fe\u00fa upphefur mig fr\u00e1 \u00feeim sem settu sig \u00ed m\u00f3ti m\u00e9r, \u00fe\u00fa hj\u00e1lpar m\u00e9r fr\u00e1 \u00feeim rangl\u00e1tu.<\/p>\n<p>\t\u00dear fyrir vil eg \u00feakka \u00fe\u00e9r, Drottinn, \u00e1 me\u00f0al hei\u00f0ingjanna og \u00fe\u00ednu nafni lofsyngja, <span class=\"athugasemd\" title=\"R\u00f3m. 15\">[<\/span><\/p>\n<p>\ts\u00e1 e\u00f0 au\u00f0s\u00fdnir s\u00ednum k\u00f3ngi st\u00f3rt hj\u00e1lpr\u00e6\u00f0i og veitir miskunn s\u00ednum smur\u00f0a Dav\u00ed\u00f0 og hans s\u00e6\u00f0i \u00e6vinlega.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXII. Og Dav\u00ed\u00f0 tala\u00f0i or\u00f0in \u00feessa lofs\u00f6ngs fyrir Drottni \u00feann t\u00ed\u00f0 a\u00f0 Drottinn haf\u00f0i frelsa\u00f0 hann af hendi allra hans \u00f3vina og af hendi Saul og m\u00e6lti: [ Drottinn er mitt bjarg og mitt h\u00e6li og minn hj\u00e1lpari. Gu\u00f0 er minn styrkur \u00e1 hvern eg tr\u00fai, minn skj\u00f6ldur og horn minnar heilsu, minn verndari og mitt athvarf, minn frelsari, \u00fe\u00fa sem hj\u00e1lpar m\u00e9r fr\u00e1 \u00f6llu rangl\u00e6ti. Eg vil lofa og \u00e1kalla Drottin, svo ver\u00f0 eg frelsa\u00f0ur fr\u00e1 m\u00ednum \u00f3vinum. \u00dev\u00ed dau\u00f0ans p\u00ednur h\u00f6f\u00f0u spennt mig og Bel\u00edals bekkir skelfdu mig. Helv\u00edtis harmkv\u00e6li h\u00f6f\u00f0u spennt mig og dau\u00f0ans sn\u00f6rur voru fallnar <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-samuelsbok-22-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2981","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2981","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2981"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2981\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2981"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}