{"id":2966,"date":"2017-12-18T18:32:14","date_gmt":"2017-12-18T18:32:14","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-samuelsbok-7-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:14","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:14","slug":"sidari-samuelsbok-7-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-samuelsbok-7-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari Sam\u00faelsb\u00f3k 7. kafli"},"content":{"rendered":"<p>VII.<\/p>\n<p>N\u00fa sem Dav\u00ed\u00f0 k\u00f3ngur sat \u00ed s\u00ednu h\u00fasi og Drottinn haf\u00f0i gefi\u00f0 honum hv\u00edld fyrir \u00f6llum hans \u00f3vinum allt um kring \u00fe\u00e1 sag\u00f0i hann til Natan sp\u00e1manns: <span class=\"athugasemd\" title=\"1. Para. 18 \/ Natan\">[<\/span> &#8222;Sj\u00e1, eg b\u00fd \u00ed einu h\u00fasi sem er byggt af sedrusvi\u00f0i en Gu\u00f0s \u00f6rk b\u00fdr undir tjald\u00feaki.&#8220; Natan svara\u00f0i k\u00f3nginum: &#8222;Far og gj\u00f6r allt \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fa hefur \u00ed \u00fe\u00ednu hjarta \u00fev\u00ed Drottinn er me\u00f0 \u00fe\u00e9r.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00feeirri n\u00f3tt kom or\u00f0 Drottins til Natan og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. 66 \/ 1. Para. 33\">[<\/span> &#8222;Far og seg \u00fe\u00fa m\u00ednum \u00fej\u00f3n Dav\u00ed\u00f0: Svo segir Drottinn: Skalt \u00fe\u00fa byggja m\u00e9r eitt h\u00fas a\u00f0 b\u00faa \u00ed? Eg hefi ekki \u00ed nokkru h\u00fasi b\u00fai\u00f0 fr\u00e1 \u00feeim degi sem eg f\u00e6r\u00f0i \u00cdsraelssyni af Egyptalandi og allt til \u00feessa dags heldur hefi eg gengi\u00f0 \u00ed tjaldb\u00fa\u00f0um og landtj\u00f6ldum hvar sem eg f\u00f3r me\u00f0 \u00f6llum \u00cdsraelssonum. Hefi eg og nokkurn t\u00edma tala\u00f0 vi\u00f0 nokkurn af \u00cdsraels kynkv\u00edslum sem eg hefi b\u00edfala\u00f0 a\u00f0 f\u00e6\u00f0a mitt f\u00f3lk \u00cdsrael og sagt so: \u00dev\u00ed byggi \u00fe\u00e9r m\u00e9r ekki neitt h\u00fas af sedrusvi\u00f0i?<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed skalt \u00fe\u00fa n\u00fa so segja til Dav\u00ed\u00f0s m\u00edns \u00fej\u00f3ns: <span class=\"athugasemd\" title=\"Psa. 18\">[<\/span> Svo segir Drottinn Seba\u00f3t: Eg t\u00f3k \u00feig af sau\u00f0ah\u00fasi a\u00f0 \u00fe\u00fa skyldir vera einn h\u00f6f\u00f0ingi yfir mitt f\u00f3lk \u00cdsrael. S\u00ed\u00f0an hefi eg og veri\u00f0 me\u00f0 \u00fe\u00e9r hvert sem \u00fe\u00fa hefur gengi\u00f0 og so hef eg uppr\u00e6tt alla \u00fe\u00edna \u00f3vini fyrir \u00feig og gj\u00f6rt \u00fe\u00e9r eitt st\u00f3rt nafn svo sem annarra maktarmanna \u00e1 j\u00f6r\u00f0u. Og eg vil skikka m\u00ednu f\u00f3lki \u00cdsrael einn sta\u00f0 og planta \u00fea\u00f0 og \u00fear skulu \u00feeir b\u00faa og ekki meir fara villt og rangl\u00e6tissynir skulu ekki meir \u00fevinga \u00fe\u00e1 sem \u00e1\u00f0ur er ske\u00f0 og fr\u00e1 \u00feeim t\u00edma er eg skikka\u00f0i d\u00f3mendur yfir mitt f\u00f3lk \u00cdsrael, svo og vil eg gefa \u00fe\u00e9r hv\u00edld fyrir \u00f6llum \u00fe\u00ednum \u00f3vinum. Og Drottinn kunngj\u00f6rir \u00fe\u00e9r a\u00f0 Drottinn vill gj\u00f6ra \u00fe\u00e9r eitt h\u00fas.<\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00e1 \u00feinn t\u00edmi er n\u00fa kominn a\u00f0 \u00fe\u00fa ert sofna\u00f0ur me\u00f0 \u00fe\u00ednum fe\u00f0rum \u00fe\u00e1 vil eg uppvekja \u00feitt s\u00e6\u00f0i eftir \u00feig hvert koma skal af \u00fe\u00ednu l\u00edfi og hans r\u00edki vil eg sta\u00f0festa. <span class=\"athugasemd\" title=\"Christus fyrirheitinn Dav\u00ed\u00f0\">[<\/span> Hann skal m\u00ednu nafni eitt h\u00fas byggja og s\u00e6ti hans konunglega r\u00edkis vil eg sta\u00f0festa \u00e6vinlega. Eg vil vera hans fa\u00f0ir og hann skal vera minn sonur.<\/p>\n<p>\tEf hann misgj\u00f6rir \u00fe\u00e1 vil eg tyfta hann me\u00f0 mannanna hr\u00edsi og me\u00f0 pl\u00e1gum \u00feeirra mannanna sona. En minni miskunnsemi skal eg ekki sn\u00faa fr\u00e1 honum svo sem eg sneri henni fr\u00e1 Saul hvern eg \u00ed burt t\u00f3k fr\u00e1 \u00fe\u00e9r. En \u00feitt h\u00fas og k\u00f3ngsr\u00edki skal vera sta\u00f0fast \u00e6vinlega fyrir \u00fe\u00e9r og \u00feitt h\u00e1s\u00e6ti skal st\u00f6\u00f0ugt standa eil\u00edflega.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Psa. 89 \/ Luc. 1\">[<\/span><\/p>\n<p>\tEn sem Natan haf\u00f0i n\u00fa kunngj\u00f6rt Dav\u00ed\u00f0 \u00f6ll \u00feessi or\u00f0 og alla \u00feessa vitran \u00fe\u00e1 kom Dav\u00ed\u00f0 k\u00f3ngur og var fyrir Drottni og sag\u00f0i: &#8222;Hver er eg, Drottinn, Drottinn, og hva\u00f0 er mitt h\u00fas a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur f\u00e6rt mig allt hinga\u00f0? Og enn \u00fe\u00f3tti \u00fe\u00e9r \u00fea\u00f0 ei n\u00f3g, Drottinn, Drottinn, heldur tala\u00f0ir \u00fe\u00fa um \u00fe\u00edns \u00fe\u00e9nara h\u00fas sem koma skal l\u00f6ngum t\u00edma h\u00e9r eftir. \u00dea\u00f0 er <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (\u00dea\u00f0 er) \/ \u00de\u00fa talar vi\u00f0 mig um eitt eil\u00edft r\u00edki \u00fear enginn kann k\u00f3ngur a\u00f0 vera n\u00e9 m\u00e1 hann s\u00e9 b\u00e6\u00f0i Gu\u00f0 og ma\u00f0ur me\u00f0 \u00fev\u00ed hann skal vera minn son en skal \u00fe\u00f3 vera k\u00f3ngur a\u00f0 eil\u00edfu, sl\u00edkt heyrir alleina Gu\u00f0i til\">[<\/span> mannsins l\u00f6gm\u00e1l sem er Gu\u00f0 Drottinn. Og hva\u00f0 skal Dav\u00ed\u00f0 meir tala vi\u00f0 \u00feig? \u00de\u00fa \u00feekkir \u00feinn \u00fe\u00e9nara, Drottinn, Drottinn. S\u00f6kum \u00fe\u00edns or\u00f0s og eftir \u00fe\u00ednu hjarta hefur \u00fe\u00fa gj\u00f6rt alla \u00feessa st\u00f3ra hluti a\u00f0 \u00fe\u00fa vildir kunngj\u00f6ra \u00fe\u00e1 \u00fe\u00ednum \u00fe\u00e9nara. <\/p>\n<p>\t\u00dear fyrir ert \u00fe\u00fa mj\u00f6g mikla\u00f0ur, Drottinn Gu\u00f0. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fear er enginn so sem \u00fe\u00fa og \u00fear er enginn Gu\u00f0 nema \u00fe\u00fa eftir \u00f6llu \u00fev\u00ed sem v\u00e9r h\u00f6fum heyrt me\u00f0 vorum eyrum. \u00dev\u00ed hvar er sl\u00edkt f\u00f3lk \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni sem \u00feitt f\u00f3lk \u00cdsrael? Fyrir hvers skuld Gu\u00f0 framgekk a\u00f0 frelsa s\u00e9r eitt f\u00f3lk og a\u00f0 gj\u00f6ra s\u00e9r eitt nafn og a\u00f0 verka svoddan st\u00f3ra og hr\u00e6\u00f0ilega gj\u00f6rninga \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni fyrir \u00fe\u00ednu f\u00f3lki hvert \u00fe\u00fa frelsa\u00f0ir \u00fe\u00e9r af Egyptalandi fr\u00e1 hei\u00f0ingjum og \u00feeirra gu\u00f0um. Og \u00fe\u00fa tilbj\u00f3st \u00fe\u00e9r \u00feitt f\u00f3lk \u00cdsrael \u00fe\u00e9r til \u00e6vinlegs f\u00f3lks og \u00fe\u00fa, Drottinn, ert or\u00f0inn \u00feeirra Gu\u00f0.<\/p>\n<p>\tSvo sta\u00f0fest \u00fe\u00fa n\u00fa, Drottinn Gu\u00f0, \u00fea\u00f0 or\u00f0 \u00e6vinlega sem \u00fe\u00fa tala\u00f0ir um \u00feinn \u00fe\u00e9nara og um hans h\u00fas og gj\u00f6r sem \u00fe\u00fa hefur tala\u00f0. \u00de\u00e1 mun \u00feitt nafn miklast til \u00e6vinlegrar t\u00ed\u00f0ar svo a\u00f0 menn skulu segja: Drottinn Seba\u00f3t er Gu\u00f0 yfir \u00cdsrael, og Dav\u00ed\u00f0 \u00fe\u00edns \u00fe\u00e9nara h\u00fas skal standa sta\u00f0fast fyrir \u00fe\u00e9r. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa, Drottinn Seba\u00f3t, \u00fe\u00fa \u00cdsraels Gu\u00f0, hefur opna\u00f0 \u00fe\u00edns \u00fe\u00e9nara eyru og sagt: Eg vil byggja \u00fe\u00e9r eitt h\u00fas. \u00dear fyrir hefur \u00feinn \u00fe\u00e9nari fundi\u00f0 sitt hjarta a\u00f0 hann bi\u00f0ur \u00feessa b\u00e6n til \u00fe\u00edn. N\u00fa Drottinn, Drottinn, \u00fe\u00fa ert Gu\u00f0 og \u00fe\u00edn or\u00f0 skulu bl\u00edfa sannleikur. \u00de\u00fa tala\u00f0ir \u00feetta hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a til \u00fe\u00edns \u00fe\u00e9nara. So tak n\u00fa til og blessa \u00fe\u00edns \u00fe\u00e9nara h\u00fas svo \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00e6vinlega fyrir \u00fe\u00e9r. \u00dev\u00ed \u00fe\u00fa, Drottinn, Drottinn, hefur \u00fea\u00f0 tala\u00f0 og me\u00f0 \u00feinni blessan skal \u00fe\u00edns \u00fej\u00f3ns h\u00fas blessast \u00e6vinlega.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>VII. N\u00fa sem Dav\u00ed\u00f0 k\u00f3ngur sat \u00ed s\u00ednu h\u00fasi og Drottinn haf\u00f0i gefi\u00f0 honum hv\u00edld fyrir \u00f6llum hans \u00f3vinum allt um kring \u00fe\u00e1 sag\u00f0i hann til Natan sp\u00e1manns: [ &#8222;Sj\u00e1, eg b\u00fd \u00ed einu h\u00fasi sem er byggt af sedrusvi\u00f0i en Gu\u00f0s \u00f6rk b\u00fdr undir tjald\u00feaki.&#8220; Natan svara\u00f0i k\u00f3nginum: &#8222;Far og gj\u00f6r allt \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fa hefur \u00ed \u00fe\u00ednu hjarta \u00fev\u00ed Drottinn er me\u00f0 \u00fe\u00e9r.&#8220; \u00c1 \u00feeirri n\u00f3tt kom or\u00f0 Drottins til Natan og sag\u00f0i: [ &#8222;Far og seg \u00fe\u00fa m\u00ednum \u00fej\u00f3n Dav\u00ed\u00f0: Svo segir Drottinn: Skalt \u00fe\u00fa byggja m\u00e9r eitt h\u00fas a\u00f0 b\u00faa \u00ed? Eg hefi ekki \u00ed nokkru h\u00fasi <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/sidari-samuelsbok-7-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2966","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2966","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2966"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2966\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2966"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}