{"id":2956,"date":"2017-12-18T18:32:14","date_gmt":"2017-12-18T18:32:14","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrri-samuelsbok-28-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:14","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:14","slug":"fyrri-samuelsbok-28-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrri-samuelsbok-28-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrri Sam\u00faelsb\u00f3k 28. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXVIII.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 ske\u00f0i so \u00e1 \u00feeim t\u00edma a\u00f0 Philistei draga saman mikinn her og vilja herja \u00e1 \u00cdsrael. Og Ak\u00eds tala\u00f0i vi\u00f0 Dav\u00ed\u00f0: &#8222;\u00de\u00fa skalt vita a\u00f0 eg vil a\u00f0 \u00fe\u00fa og \u00fe\u00ednir menn fari herf\u00f6r \u00feessa me\u00f0 m\u00e9r.&#8220; Dav\u00ed\u00f0 svara\u00f0i Ak\u00eds: &#8222;N\u00fa vel, \u00fe\u00fa skalt reyna hva\u00f0 \u00feinn \u00fe\u00e9nari skal gj\u00f6ra.&#8220; Ak\u00eds sag\u00f0i til Dav\u00ed\u00f0s: &#8222;Eg vil a\u00f0 \u00fe\u00fa s\u00e9rt h\u00f6fu\u00f0v\u00f6r\u00f0ur minn alla m\u00edna daga.&#8220;<\/p>\n<p>\t<span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (Sam\u00fael) \/ \u00deess getur Ritningin \u00fear fyrir a\u00f0 vara s\u00e9rhvern \u00fear vi\u00f0 so a\u00f0 hann skilji r\u00e9tt \u00feessa eftirfarandi s\u00fdn um Sam\u00fael og viti \u00fea\u00f0 a\u00f0 Sam\u00fael var dau\u00f0ur og sl\u00edkt haf\u00f0i \u00f3hreinn andi undir nafni og pers\u00f3nu Samuelis tala\u00f0 og gj\u00f6rt vi\u00f0 Saul og galdrakonuna\">[<\/span> Sam\u00fael var anda\u00f0ur og allur \u00cdsraelsl\u00fd\u00f0ur haf\u00f0i gr\u00e1ti\u00f0 hann og jar\u00f0a\u00f0 hann \u00ed sinni borg Rama. Saul haf\u00f0i og \u00far landi reki\u00f0 alla galdramenn og fj\u00f6lkynngismenn. En sem her Philistei var n\u00fa samankominn settu \u00feeir herb\u00fa\u00f0ir s\u00ednar \u00ed S\u00fanem. \u00de\u00e1 samansafna\u00f0i Saul \u00f6llum \u00cdsrael og settu herb\u00fa\u00f0ir s\u00ednar \u00ed Gilb\u00f3a. En er Saul s\u00e1 her Philistinorum \u00f3tta\u00f0ist hann og hans hjarta var\u00f0 mj\u00f6g skelft. Og hann gekk til umr\u00e1\u00f0a vi\u00f0 Drottin en Drottin svara\u00f0i honum \u00f6ngu, hvorki \u00ed draumi n\u00e9 <span class=\"athugasemd\" title=\"b \/ (Lj\u00f3s) \/ \u00dea\u00f0 sem var \u00e1 brj\u00f3stskildinum kennimannsins\">[<\/span> fyri lj\u00f3s n\u00e9 heldur fyrir sp\u00e1menn.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i Saul til sinna \u00fe\u00e9nara: &#8222;Leiti\u00f0 upp fyrir mig \u00fe\u00e1 kvinnu sem hefur <span class=\"athugasemd\" title=\"sword Phitons\">[<\/span> sp\u00e1fararanda so eg megi fara til hennar og f\u00e1 v\u00edsindi af henni.&#8220; Hans \u00fe\u00e9narar sv\u00f6ru\u00f0u: &#8222;Sj\u00e1, \u00fear er ein kvinna \u00ed End\u00f3r, h\u00fan hefur einn sp\u00e1fararanda.&#8220; Og Saul t\u00f3k kl\u00e6\u00f0askipti og gekk \u00feanga\u00f0 og tveir menn me\u00f0 honum og kom um n\u00f3tt til kvinnunnar og sag\u00f0i: &#8222;Eg bi\u00f0 \u00feig, sp\u00e1 \u00fe\u00fa m\u00e9r fyrir sp\u00e1fararanda og vek upp \u00feann sem eg segi \u00fe\u00e9r.&#8220; Kvinnan svara\u00f0i honum: &#8222;Sj\u00e1, \u00fe\u00fa veist vel hva\u00f0 Saul hefur gj\u00f6rt, hvernin hann hefur af landi reki\u00f0 galdramenn og fj\u00f6lkynngismenn. \u00dev\u00ed vilt \u00fe\u00fa \u00fe\u00e1 lei\u00f0a m\u00edna s\u00e1l \u00ed sn\u00f6ru so eg hreppi dau\u00f0a?&#8220; Saul s\u00f3r henni vi\u00f0 Drottin og m\u00e6lti: &#8222;So sannarlega sem Drottinn lifir, \u00feig skal ekkert illt ske h\u00e9r fyrir.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 svara\u00f0i kvinnan: &#8222;Hvern vilt \u00fe\u00fa \u00fe\u00e1 a\u00f0 eg uppveki \u00fe\u00e9r?&#8220; Hann svara\u00f0i: &#8222;Vek upp Sam\u00fael fyrir mig.&#8220; \u00de\u00e1 kvinnan s\u00e1 n\u00fa Sam\u00fael kalla\u00f0i h\u00fan h\u00e1rri r\u00f6ddu og sag\u00f0i til Saul: &#8222;\u00dev\u00ed hefur \u00fe\u00fa sviki\u00f0 mig? \u00de\u00fa ert Saul.&#8220; K\u00f3ngurinn sag\u00f0i til hennar: &#8222;Eigi skaltu \u00f3ttast. Hva\u00f0 s\u00e9r \u00fe\u00fa?&#8220; Kvinnan sag\u00f0i: &#8222;Eg s\u00e9 <span class=\"athugasemd\" title=\"c \/ (Gu\u00f0i) \/ \u00dea\u00f0 er, d\u00f3mara \/ Exo. 22\">[<\/span> gu\u00f0i uppst\u00edga \u00far j\u00f6r\u00f0unni.&#8220; Hann sag\u00f0i: &#8222;Hvernin er hann \u00ed h\u00e1tt?&#8220; H\u00fan ansa\u00f0i: &#8222;Einn gamall ma\u00f0ur kemur \u00fear upp og er kl\u00e6ddur einum silkikyrtli.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"(Silkikyrtil) \/ \u00dea\u00f0 er, kennimannskl\u00e6\u00f0i \/ Exo. 28\">[<\/span> \u00de\u00e1 merkti Saul a\u00f0 \u00fea\u00f0 var Sam\u00fael og hneig\u00f0i sig \u00e1 s\u00edna \u00e1sj\u00f3nu til jar\u00f0ar og ba\u00f0st fyrir.<\/p>\n<p>\tEn Sam\u00fael sag\u00f0i til Saul: &#8222;\u00dev\u00ed hefur \u00fe\u00fa gj\u00f6rt m\u00e9r \u00f3n\u00e1\u00f0ir a\u00f0 \u00fe\u00fa l\u00e9st uppvekja mig h\u00e9r upp?&#8220; Saul svara\u00f0i: &#8222;Eg er staddur \u00ed st\u00f3rri angist. Philistei herja \u00e1 mig og Gu\u00f0 er vikinn fr\u00e1 m\u00e9r og vill \u00f6ngva vissu gj\u00f6ra m\u00e9r, hverki fyrir sp\u00e1menn n\u00e9 drauma. \u00dear fyrir l\u00e9t eg kalla \u00feig a\u00f0 \u00fe\u00fa s\u00fdnir m\u00e9r hva\u00f0 eg skal gj\u00f6ra.&#8220;<\/p>\n<p>\tSam\u00fael svara\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"1. Reg. 15\">[<\/span> &#8222;\u00dev\u00ed spyr \u00fe\u00fa mig fyrst a\u00f0 Drottinn er vikinn fr\u00e1 \u00fe\u00e9r og er or\u00f0inn \u00feinn \u00f3vin? Drottinn mun gj\u00f6ra \u00fe\u00e9r sem hann hefur sagt fyri mig og mun sl\u00edta r\u00edki\u00f0 af \u00feinni hendi og gefa Dav\u00ed\u00f0 \u00fe\u00ednum n\u00e1unga \u00fea\u00f0. S\u00f6kum \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00fa varst \u00f3hl\u00fd\u00f0inn r\u00f6ddu Drottins og fullkomna\u00f0ir ekki hans grimmdarrei\u00f0i \u00e1 Amalek. Og \u00fev\u00ed hefur Drottinn gj\u00f6rt \u00fe\u00e9r \u00feetta. \u00dear a\u00f0 auk mun Drottinn gefa \u00cdsrael me\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00ed hendur Philistinorum. \u00c1 morgun munt \u00fe\u00fa og \u00fe\u00ednir synir vera me\u00f0 m\u00e9r og so mun Drottinn gefa \u00cdsraelsher \u00ed Philisteis hendur.&#8220; \u00de\u00e1 f\u00e9ll Saul fram allur til jar\u00f0ar svo langur sem hann var og var\u00f0 harla mj\u00f6g hr\u00e6ddur fyrir Sam\u00faels or\u00f0um svo a\u00f0 hann var\u00f0 m\u00e1ttlaus. \u00dev\u00ed hann haf\u00f0i ekki matar neytt allan \u00feann dag og \u00fe\u00e1 n\u00f3tt.<\/p>\n<p>\tOg kvinnan gekk inn til Saul og s\u00e1 a\u00f0 hann var mj\u00f6g hr\u00e6ddur og h\u00fan sag\u00f0i til hans: &#8222;Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00fe\u00edn amb\u00e1tt hl\u00fdddi \u00feinni r\u00f6ddu og eg lag\u00f0i mitt l\u00edf \u00ed h\u00e6ttu og eg hl\u00fddda \u00fe\u00ednum or\u00f0um sem \u00fe\u00fa sag\u00f0ir m\u00e9r. Svo hl\u00fd\u00f0 \u00fe\u00fa n\u00fa og einnin or\u00f0um amb\u00e1ttar \u00feinnar: Eg vil setja fyrir \u00feig l\u00edti\u00f0 brau\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00fa megir eta og styrkjast so a\u00f0 \u00fe\u00fa megir fara \u00feinn veg.&#8220; Hann neita\u00f0i og sag\u00f0i: &#8222;Eg vil ekki eta.&#8220; \u00de\u00e1 neyddu hans \u00fe\u00e9narar og kvinnan honum til so hann hl\u00fdddi \u00feeirra r\u00e1\u00f0um. Og hann st\u00f3\u00f0 upp af j\u00f6r\u00f0unni og setti sig \u00e1 s\u00e6ngina. Kvinnan \u00e1tti og einn alinn k\u00e1lf \u00ed s\u00ednu h\u00fasi, h\u00fan f\u00f3r sem snarast og l\u00e9t sl\u00e1tra honum. Og h\u00fan t\u00f3k mj\u00f6l, hno\u00f0a\u00f0i og baka\u00f0i \u00f3s\u00fdrt brau\u00f0 og bar \u00fea\u00f0 fram fyrir Saul og hans \u00fe\u00e9nara. Og sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u eti\u00f0 st\u00f3\u00f0u \u00feeir upp og gengu alla \u00fe\u00e1 n\u00f3tt.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXVIII. \u00dea\u00f0 ske\u00f0i so \u00e1 \u00feeim t\u00edma a\u00f0 Philistei draga saman mikinn her og vilja herja \u00e1 \u00cdsrael. Og Ak\u00eds tala\u00f0i vi\u00f0 Dav\u00ed\u00f0: &#8222;\u00de\u00fa skalt vita a\u00f0 eg vil a\u00f0 \u00fe\u00fa og \u00fe\u00ednir menn fari herf\u00f6r \u00feessa me\u00f0 m\u00e9r.&#8220; Dav\u00ed\u00f0 svara\u00f0i Ak\u00eds: &#8222;N\u00fa vel, \u00fe\u00fa skalt reyna hva\u00f0 \u00feinn \u00fe\u00e9nari skal gj\u00f6ra.&#8220; Ak\u00eds sag\u00f0i til Dav\u00ed\u00f0s: &#8222;Eg vil a\u00f0 \u00fe\u00fa s\u00e9rt h\u00f6fu\u00f0v\u00f6r\u00f0ur minn alla m\u00edna daga.&#8220; [ Sam\u00fael var anda\u00f0ur og allur \u00cdsraelsl\u00fd\u00f0ur haf\u00f0i gr\u00e1ti\u00f0 hann og jar\u00f0a\u00f0 hann \u00ed sinni borg Rama. Saul haf\u00f0i og \u00far landi reki\u00f0 alla galdramenn og fj\u00f6lkynngismenn. En sem her Philistei var n\u00fa samankominn <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fyrri-samuelsbok-28-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2956","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2956","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2956"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2956\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2956"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}