{"id":2927,"date":"2017-12-18T18:32:07","date_gmt":"2017-12-18T18:32:07","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/rutarbok-3-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:07","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:07","slug":"rutarbok-3-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/rutarbok-3-kafli\/","title":{"rendered":"Rutarb\u00f3k 3. kafli"},"content":{"rendered":"<p>III.<\/p>\n<p>Og Naem\u00ed, hennar m\u00e1gkona, sag\u00f0i til hennar: &#8222;M\u00edn d\u00f3ttir, eg vil leita \u00fe\u00e9r hv\u00edldar svo a\u00f0 gott r\u00e1\u00f0 gj\u00f6rist fyrir \u00fe\u00e9r. \u00deessi B\u00f3as, vor fr\u00e6ndi, hj\u00e1 hvers amb\u00e1ttum \u00fe\u00fa hefur veri\u00f0, hann vinsar bygg sitt \u00ed n\u00f3tt \u00ed s\u00ednum lauagar\u00f0i. \u00dear fyrir skalt \u00fe\u00fa laugast og smyrja \u00feig og kl\u00e6\u00f0 \u00feig og gakk ofan \u00ed lauagar\u00f0inn so a\u00f0 enginn sj\u00e1i \u00feig \u00fear til \u00feeir hafa eti\u00f0 og drukki\u00f0. En \u00fe\u00e1 hann gengur a\u00f0 sofa \u00fe\u00e1 hygg \u00fe\u00fa a\u00f0 vandlega hvar hann liggur, kom s\u00ed\u00f0an og lyft upp \u00e1brei\u00f0unni a\u00f0 hans f\u00f3tum og leggst \u00fear ni\u00f0ur. Svo mun hann segja \u00fe\u00e9r hva\u00f0 \u00fe\u00fa skalt gj\u00f6ra.&#8220; Rut svara\u00f0i henni og sag\u00f0i: &#8222;Allt \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fa segir m\u00e9r \u00fea\u00f0 vil eg gj\u00f6ra.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg h\u00fan gekk inn \u00ed lauagar\u00f0inn og gj\u00f6r\u00f0i allt so sem hennar m\u00e1gkona haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 henni. En sem B\u00f3as haf\u00f0i eti\u00f0 og drukki\u00f0 og hann var gle\u00f0ikenndur f\u00f3r hann og lag\u00f0i sig \u00e1 bak vi\u00f0 bindinin. Rut kom leynilega og lyfti upp \u00e1brei\u00f0unni a\u00f0 f\u00f3tum hans og lag\u00f0ist ni\u00f0ur. En sem n\u00fa var mi\u00f0 n\u00f3tt kom \u00f3tti yfir B\u00f3as og undran og s\u00e1 a\u00f0 kvinna l\u00e1 til hans f\u00f3ta. Og hann sag\u00f0i: &#8222;Hver ert \u00fe\u00fa?&#8220; H\u00fan svara\u00f0i: &#8222;Eg em Rut, \u00fe\u00edn \u00fe\u00e9nustukvinna. <span class=\"athugasemd\" title=\"sword \u00fe\u00edna skikkju\">[<\/span> Breittu \u00fe\u00edna v\u00e6ngi yfir \u00fe\u00edna \u00fe\u00e9nustukvinnu \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa ert erfinginn.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn hann sag\u00f0i: &#8222;Blessu\u00f0 s\u00e9rtu fyrir Drottni, m\u00edn d\u00f3ttir. \u00de\u00fa hefur gj\u00f6rt \u00fe\u00e1 seinni miskunn st\u00e6rri \u00feeirri hinni fyrstu a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur ekki fari\u00f0 eftir ungum m\u00f6nnum, hverki r\u00edkum n\u00e9 f\u00e1t\u00e6kum. N\u00fa m\u00edn d\u00f3ttir, \u00f3ttast ekki. Allt \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fa segir vil eg gj\u00f6ra \u00fe\u00e9r \u00fev\u00ed veit allur minn borgarl\u00fd\u00f0ur a\u00f0 \u00fe\u00fa ert dygg\u00f0r\u00edk st\u00falka. N\u00fa er \u00fea\u00f0 satt a\u00f0 eg em erfinginn. \u00de\u00f3 er \u00fear annar n\u00e1nari en eg. Hv\u00edl \u00fe\u00fa \u00feig h\u00e9r \u00ed n\u00f3tt. Vilji hann taka \u00feig \u00e1 morgun \u00fe\u00e1 er vel. En ef hann vill eigi \u00fe\u00e1 vil eg taka \u00feig, svo sannlega sem Drottinn lifir. Sof \u00fe\u00fa til morguns.&#8220; Og h\u00fan sofna\u00f0i til morguns hj\u00e1 hans f\u00f3tum.<\/p>\n<p>\tOg h\u00fan st\u00f3\u00f0 upp fyrr en nokkur \u00feekkti annnan. Og hann hugsa\u00f0i: &#8222;Enginn skal f\u00e1 \u00feetta a\u00f0 vita a\u00f0 \u00feessi kvinna kom \u00ed lauagar\u00f0inn.&#8220; Og hann sag\u00f0i: &#8222;L\u00e1t \u00fe\u00fa hinga\u00f0 yfirkl\u00e6\u00f0i \u00feitt og grei\u00f0 \u00fea\u00f0 til.&#8220; H\u00fan gj\u00f6r\u00f0i svo. Og hann m\u00e6lti sex m\u00e6lir me\u00f0 bygg og lag\u00f0i \u00fea\u00f0 \u00e1 hana. Og hann kom \u00ed sta\u00f0inn. En h\u00fan f\u00f3r til sinnar m\u00e1gkonu. Og er h\u00fan s\u00e1 hana spur\u00f0i h\u00fan: &#8222;Hvernin hefur \u00fe\u00e9r tilgengi\u00f0, m\u00edn d\u00f3ttir?&#8220; Og h\u00fan kunngj\u00f6r\u00f0i henni allt \u00fea\u00f0sem \u00feessi ma\u00f0ur haf\u00f0i gj\u00f6rt henni og sag\u00f0i: &#8222;\u00deessa sex m\u00e6la mj\u00f6ls gaf hann m\u00e9r \u00fev\u00ed hann sag\u00f0i: \u00de\u00fa skalt ekki fara me\u00f0 tv\u00e6r hendur t\u00f3mar heim til \u00feinnar m\u00e1gkonu.&#8220; Og h\u00fan sag\u00f0i: &#8222;B\u00ed\u00f0 kyrr, m\u00edn d\u00f3ttir, \u00fear til \u00fe\u00fa veist hver endalykt \u00e1 fellur h\u00e9r um \u00fev\u00ed \u00feessi ma\u00f0ur l\u00e9ttir ei fyrr en hann hefur fullgj\u00f6rt \u00fea\u00f0 hann hefur tala\u00f0 \u00ed dag.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>III. Og Naem\u00ed, hennar m\u00e1gkona, sag\u00f0i til hennar: &#8222;M\u00edn d\u00f3ttir, eg vil leita \u00fe\u00e9r hv\u00edldar svo a\u00f0 gott r\u00e1\u00f0 gj\u00f6rist fyrir \u00fe\u00e9r. \u00deessi B\u00f3as, vor fr\u00e6ndi, hj\u00e1 hvers amb\u00e1ttum \u00fe\u00fa hefur veri\u00f0, hann vinsar bygg sitt \u00ed n\u00f3tt \u00ed s\u00ednum lauagar\u00f0i. \u00dear fyrir skalt \u00fe\u00fa laugast og smyrja \u00feig og kl\u00e6\u00f0 \u00feig og gakk ofan \u00ed lauagar\u00f0inn so a\u00f0 enginn sj\u00e1i \u00feig \u00fear til \u00feeir hafa eti\u00f0 og drukki\u00f0. En \u00fe\u00e1 hann gengur a\u00f0 sofa \u00fe\u00e1 hygg \u00fe\u00fa a\u00f0 vandlega hvar hann liggur, kom s\u00ed\u00f0an og lyft upp \u00e1brei\u00f0unni a\u00f0 hans f\u00f3tum og leggst \u00fear ni\u00f0ur. Svo mun hann segja <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/rutarbok-3-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2927","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2927","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2927"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2927\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2927"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}