{"id":2923,"date":"2017-12-18T18:32:07","date_gmt":"2017-12-18T18:32:07","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/domarabokin-20-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:07","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:07","slug":"domarabokin-20-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/domarabokin-20-kafli\/","title":{"rendered":"D\u00f3marab\u00f3kin 20. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XX.<\/p>\n<p>Eftir \u00feetta dr\u00f3gu \u00cdsraelssynir \u00fat og s\u00f6fnu\u00f0ust saman svo sem einn ma\u00f0ur v\u00e6ri fr\u00e1 Dan og allt til Berseba og af landi G\u00edlea\u00f0 til Drottins \u00ed Mispa. Og \u00feeir yppustu af \u00fev\u00ed \u00f6llu f\u00f3lki sem var fyrir allri \u00cdsraels\u00e6tt gengu til samans \u00ed Gu\u00f0s samkundu, fj\u00f6gur hundru\u00f0 \u00fe\u00fasund manns f\u00f3tg\u00f6nguli\u00f0 sem \u00fatdr\u00f3gu sver\u00f0. En synir Benjam\u00edn heyr\u00f0u a\u00f0 \u00cdsraelssynir voru komnir til Mispa. Og \u00cdsraelssynir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Segi\u00f0 fram hvernin \u00feetta vonda verk er ske\u00f0.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 svara\u00f0i Lev\u00edtinn \u00feeirrar kvinnu b\u00f3ndi sem a\u00f0 drepin var og sag\u00f0i: &#8222;Eg kom \u00ed G\u00edbea \u00ed Benjam\u00edn me\u00f0 minni kvinnu a\u00f0 vera \u00fear um n\u00f3tt. <span class=\"athugasemd\" title=\"Hr\u00e6\u00f0ilegt verk \u00feeirra \u00ed G\u00edbea\">[<\/span> \u00de\u00e1 risu borgarmenn G\u00edbea upp \u00ed m\u00f3ti m\u00e9r og spenntu mig \u00ed h\u00fasinu um n\u00f3ttina og \u00f6tlu\u00f0u a\u00f0 drepa mig; \u00feeir sk\u00f6mmu\u00f0u m\u00edna konu svo a\u00f0 h\u00fan d\u00f3. S\u00ed\u00f0an t\u00f3k eg hana og skipti henni \u00ed stykki og sendi eg \u00feau \u00fat um alla \u00cdsraels landareign \u00fev\u00ed \u00feeir h\u00f6f\u00f0u gj\u00f6rt einn skammarhlut og heimskupar \u00ed \u00cdsrael. Sj\u00e1, \u00fe\u00e9r eru\u00f0 n\u00fa allir Israelissynir, r\u00e1\u00f0gist um og gj\u00f6ri\u00f0 nokku\u00f0 h\u00e9r til.&#8220;<\/p>\n<p>\tEftir \u00feetta tilbj\u00f3 sig allt f\u00f3lki\u00f0 svo sem einn ma\u00f0ur v\u00e6ri og sag\u00f0i: &#8222;\u00dear skal enginn ma\u00f0ur fara til s\u00edns heimilis og eigi hverfa aftur \u00ed sitt h\u00fas heldur viljum v\u00e9r n\u00fa \u00feetta gj\u00f6ra vi\u00f0 G\u00edbea: V\u00e9r skulum taka hluti og telja t\u00edu menn af hundra\u00f0i og hundra\u00f0 af \u00fe\u00fasund og \u00fe\u00fasund af t\u00edu \u00fe\u00fasundum af \u00f6llum Israelis \u00e6ttkv\u00edslum a\u00f0 \u00feeir safni f\u00e6\u00f0slum handa f\u00f3lkinu svo a\u00f0 \u00fea\u00f0 fari og gj\u00f6ri vi\u00f0 G\u00edbea Benjam\u00edn eftir \u00fev\u00ed sem \u00feeirra skammarlegt verk er og \u00feeir hafa frami\u00f0 \u00ed \u00cdsrael.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00cdsrael berst \u00ed m\u00f3t Benjam\u00edn\">[<\/span> S\u00ed\u00f0an safna\u00f0ist allur Israelis her \u00ed m\u00f3t G\u00edbeon l\u00edka sem einn ma\u00f0ur v\u00e6ri og t\u00f3ku sig saman. <\/p>\n<p>\tOg Israelis \u00e6ttkv\u00edslir sendu menn til alls Benjam\u00edns kyn\u00fe\u00e1ttar og l\u00e9tu segja \u00feeim: ,\u00dev\u00ed er soddan skemmdarverk ske\u00f0 hj\u00e1 y\u00f0ur? Framselji\u00f0 \u00fe\u00e1 menn sem \u00feessa sk\u00f6mm hafa gj\u00f6rt \u00ed G\u00edbea svo v\u00e9r megum sl\u00e1 \u00fe\u00e1 \u00ed hel og \u00ed burt taka svo \u00fea\u00f0 hi\u00f0 vonda af \u00cdsrael.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn synir Benjam\u00edn vildu ekki hl\u00fd\u00f0a raust sinna br\u00e6\u00f0ra \u00cdsraelssona heldur komu \u00feeir saman af borgunum til G\u00edbea og vildu berjast vi\u00f0 Israelissonu. <span class=\"athugasemd\" title=\"Benjamite forsvara \u00feeirra gl\u00e6p\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tEn synir Benjam\u00edn voru taldir af st\u00f6\u00f0unum sex og tuttugu \u00fe\u00fasund manns sem f\u00e6rir voru \u00ed str\u00ed\u00f0 fyrir utan \u00fe\u00e1 borgarmenn G\u00edbea sem voru a\u00f0 t\u00f6lu sj\u00f6 hundru\u00f0 einvala li\u00f0s. Og \u00ed \u00feessum hersfj\u00f6lda voru sj\u00f6 hundru\u00f0 menn \u00fatvaldir sem voru aurvhentir og jafntamir \u00e1 b\u00e1\u00f0ar hendur og voru so tamir \u00e1 sl\u00f6ngur a\u00f0 \u00feeir h\u00e6f\u00f0u eitt h\u00e1r \u00e1 mannsh\u00f6f\u00f0i so \u00feeim br\u00e1st \u00fea\u00f0 ekki.<\/p>\n<p>\tEn \u00feeir af \u00cdsrael (fyrir utan \u00fe\u00e1 sem voru af Benjam\u00edn) voru taldir fj\u00f6gur hundru\u00f0 \u00fe\u00fasund manns sem b\u00e1ru sver\u00f0 og f\u00e6rir voru til bardaga. \u00cdsraelssynir gengu upp til Gu\u00f0s h\u00fass og spur\u00f0u Gu\u00f0 r\u00e1\u00f0a og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Hver skal vera vor h\u00f6f\u00f0ingi og heyja bardaga \u00feennan \u00ed m\u00f3ti sonum Benjam\u00edn?&#8220; Drottinn sag\u00f0i: &#8222;J\u00fada skal vera y\u00f0ar h\u00f6f\u00f0ingi.&#8220; Og \u00cdsraelssynir bjuggu sig til \u00e1rla morguns og settu s\u00ednar herb\u00fa\u00f0ir fyrir G\u00edbea. Og hver ma\u00f0ur af \u00cdsrael gekk \u00fat a\u00f0 berjast vi\u00f0 Benjam\u00edn og \u00feeir skipu\u00f0u s\u00e9r \u00ed fylkingar til a\u00f0 str\u00ed\u00f0a \u00e1 G\u00edbea. \u00de\u00e1 f\u00e9llu Benjam\u00ednsynir \u00fat af sta\u00f0num og felldu \u00e1 \u00feeim degi af \u00cdsrael tv\u00e6r og tuttugu \u00fe\u00fasundir manna. <span class=\"athugasemd\" title=\"22000\">[<\/span><\/p>\n<p>\tEn \u00cdsraelsf\u00f3lks her efldu styrk og bjuggust aftur til bardagans \u00ed \u00feeim sama sta\u00f0 sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u vi\u00f0b\u00fai\u00f0 hinn fyrra dag. Og \u00cdsraelssynir gengu upp og gr\u00e9tu fyrir Drottni allt til kvelds. Og \u00feeir a\u00f0spur\u00f0u Drottin og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Skulu v\u00e9r framar meir fara a\u00f0 berjast vi\u00f0 sonu Benjam\u00edn, vora br\u00e6\u00f0ur?&#8220; Drottinn svara\u00f0i: &#8222;Fari\u00f0 upp \u00ed m\u00f3ti \u00feeim.&#8220; Og sem Israelisl\u00fd\u00f0ur dr\u00f3 \u00ed m\u00f3t sonum Benjam\u00edn \u00feann annan dag \u00fe\u00e1 f\u00e9llu Benjam\u00edn \u00fat af G\u00edbea \u00e1 \u00feeim degi \u00ed m\u00f3ts vi\u00f0 \u00fe\u00e1 og sl\u00f3gu enn \u00e1tj\u00e1n \u00fe\u00fasundir manna af \u00cdsraelssonum, alla vopnf\u00e6ra menn. <span class=\"athugasemd\" title=\"18000\">[<\/span><\/p>\n<p>\tEftir \u00feetta f\u00f3ru allir Israelissynir upp og allt f\u00f3lki\u00f0 og komu til Gu\u00f0s h\u00fass og gr\u00e9tu og voru \u00fear fyrir Drottni og f\u00f6stu\u00f0u \u00feann dag til kvelds og offru\u00f0u brennif\u00f3rnum og \u00feakkl\u00e6tisoffri fyrir Drottni. Og \u00cdsraelssynir a\u00f0spur\u00f0u Drottin (en s\u00e1ttm\u00e1ls\u00f6rk Drottins var \u00ed \u00feeim sta\u00f0 \u00e1 \u00feeim t\u00edma og P\u00edneas son Eleassar sonar Aron st\u00f3\u00f0u fyrir Drottins h\u00fasi \u00e1 \u00feeim t\u00edma) og \u00feeir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Skulu v\u00e9r enn lengur fara a\u00f0 berjast vi\u00f0 sonu Benjam\u00edn, vora br\u00e6\u00f0ur, e\u00f0a skulum v\u00e9r af l\u00e1ta?&#8220; Drottinn sag\u00f0i: &#8222;Dragi\u00f0 upp \u00ed m\u00f3ts vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e1 morgun vil <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (Eg) \/ segir Gu\u00f0, vil \u00fea\u00f0 gj\u00f6ra. Hinga\u00f0 til hafi \u00fe\u00e9r vilja\u00f0 gj\u00f6ra \u00fea\u00f0. En \u00fea\u00f0 heitir eg en ekki \u00fe\u00e9r\">[<\/span> eg gefa \u00fe\u00e1 \u00ed y\u00f0ar hendur.&#8220;  <\/p>\n<p>\tOg Israelissynir settu launs\u00e1tur um G\u00edbea. So dr\u00f3 \u00cdsraelsher \u00e1 \u00feeim \u00feri\u00f0ja degi \u00e1 m\u00f3ti Benjam\u00edn og bjuggust a\u00f0 str\u00ed\u00f0a \u00e1 G\u00edbea, eins svo sem \u00e1\u00f0ur tvisvar. \u00de\u00e1 f\u00f3ru synir Benjam\u00edn \u00fat \u00e1 m\u00f3ts vi\u00f0 herinn og g\u00e1fu sig fr\u00e1 sta\u00f0num og t\u00f3ku til a\u00f0 sl\u00e1 og s\u00e6ra nokkra menn af f\u00f3lkinu so sem \u00feeir gj\u00f6r\u00f0u \u00e1\u00f0ur fyrri tv\u00e6r reisur \u00fat \u00ed markinni \u00e1 tvo vegu, s\u00e1 eini liggur til Betel en annar til G\u00edbea, og sl\u00f3gu n\u00e6r \u00ferj\u00e1t\u00edgi menn af \u00cdsrael. \u00de\u00e1 hugsu\u00f0u synir Benjam\u00edn: &#8222;\u00deeir falla fyrir oss so sem fyrr.&#8220; En \u00cdsraelssynir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Fl\u00fdjum v\u00e9r so a\u00f0 v\u00e9r megum lokka \u00fe\u00e1 fr\u00e1 sta\u00f0num \u00fat \u00e1 veguna.&#8220;<\/p>\n<p>\tS\u00ed\u00f0an bj\u00f3st \u00cdsraelsf\u00f3lk, hver og einn af s\u00ednum sta\u00f0, bjuggu sig til bardaga \u00ed Baal Tamar. Og \u00fea\u00f0 Israelis str\u00ed\u00f0sf\u00f3lk sem \u00ed launs\u00e1trinu l\u00e1 kom fram af s\u00ednum sta\u00f0 af \u00feeim hellir Gaba og komu til G\u00edbea t\u00edu \u00fe\u00fasund manna, valdasta li\u00f0 af \u00f6llum \u00cdsrael, svo a\u00f0 \u00fear var\u00f0 har\u00f0ur bardagi. En \u00feeir vissu ekki a\u00f0 \u00f3lukkan st\u00f3\u00f0 fyrir \u00feeim. So sl\u00f3 Drottinn Benjam\u00edn fyrir \u00cdsraelssonum svo a\u00f0 \u00cdsraelssynir dr\u00e1pu \u00e1 \u00feeim degi fimm og tuttugu \u00fe\u00fasundir og hundra\u00f0 menn af Benjam\u00edn, allt kaska str\u00ed\u00f0smenn. <span class=\"athugasemd\" title=\"25000 slegnir af Benjam\u00edn\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tEn sem \u00feeir Benjamiter s\u00e1u fall sinna manna \u00fe\u00e1 g\u00e1fu Israelissynir \u00feeim r\u00fam \u00fev\u00ed \u00feeir treystu upp \u00e1 \u00fea\u00f0 launs\u00e1tur sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u sett til baka hj\u00e1 G\u00edbea. Og \u00feeir \u00ed launs\u00e1trinu hlupu \u00e1 borgina og sl\u00f3gu hennar alla innbyggjara me\u00f0 sver\u00f0seggjum.<\/p>\n<p>\tEn \u00cdsraelsmenn og \u00feeir sem \u00ed launs\u00e1trinu voru h\u00f6f\u00f0u merki sett me\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 \u00feeir sem \u00ed leyndum voru skyldu falla yfir \u00fe\u00e1 me\u00f0 sver\u00f0i \u00fe\u00e1 reykurinn g\u00e6fi sig upp af sta\u00f0num.<\/p>\n<p>\tEn sem \u00feeir \u00ed \u00cdsrael snerust vi\u00f0 \u00ed bardaganum og Benjam\u00edn sl\u00f3 \u00fea\u00f0 sem fyrir var\u00f0 og s\u00e6r\u00f0u \u00ferj\u00e1t\u00edgi menn af \u00cdsrael og hugsu\u00f0u: &#8222;\u00deeir liggja fallnir fyrir oss svo sem fyrr&#8220; \u0096 \u00ed \u00feessu bili kom upp reykur af sta\u00f0num. Og Benjam\u00edn snerist vi\u00f0 og, sj\u00e1, a\u00f0 reykinn og logann af sta\u00f0num lag\u00f0i upp \u00ed himininn.<\/p>\n<p>\tOg \u00cdsraelsl\u00fd\u00f0ur snerist vi\u00f0 og b\u00f6r\u00f0ust me\u00f0 \u00f6llu megni \u00ed m\u00f3t Benjamitis. Og er Benjamite s\u00e1u \u00fea\u00f0 sneru \u00feeir \u00e1 fl\u00f3tta undan \u00cdsrael \u00e1 \u00feann veg sem liggur til ey\u00f0imerkur en \u00feeir s\u00f3ttu eftir \u00feeim. <span class=\"athugasemd\" title=\"Hr\u00e6\u00f0ilegt saurlifna\u00f0arstraff\">[<\/span> Svo komu og \u00feeir sem borgina h\u00f6f\u00f0u brennt og fordj\u00f6rfu\u00f0u \u00fe\u00e1 og sl\u00f3gu \u00e1 allar s\u00ed\u00f0ur. Og \u00feeir umkringdu Benjam\u00edn og eltu \u00fe\u00e1 allt til Men\u00faa og felldu \u00fe\u00e1 allt austur a\u00f0 G\u00edlea\u00f0 og \u00fear f\u00e9ll af Benjam\u00edn \u00e1tj\u00e1n \u00fe\u00fasund manna, \u00feeir e\u00f0 allir voru v\u00edgk\u00e6nir str\u00ed\u00f0smenn.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sneru s\u00e9r hinir a\u00f0rir \u00e1 fl\u00f3tta til ey\u00f0imerkur a\u00f0 \u00fev\u00ed bjargi Rimm\u00f3n. Og \u00e1 \u00feeim sama degi sl\u00f3gu \u00feeir fimm \u00fe\u00fasund manna og \u00feeir s\u00f3ttu eftir \u00feeim til G\u00edde\u00f3m og sl\u00f3gu enn af \u00feeim tv\u00e6r \u00fe\u00fasundir manns. So a\u00f0 \u00e1 \u00feeim degi f\u00e9llu af Benjam\u00edn fimm og tuttugu \u00fe\u00fasundir, vopnf\u00e6rir og villdustu str\u00ed\u00f0smenn. <span class=\"athugasemd\" title=\"25000 af Benjam\u00edn \u00ed hel slegnir\">[<\/span> Ein sex hundru\u00f0 manns fl\u00fa\u00f0i undan til ey\u00f0imerkur til \u00feess bjargs sem kallast Rimm\u00f3n og voru \u00fear fj\u00f3ra m\u00e1nu\u00f0i. Og \u00cdsraelsmenn komu aftur til sona Benjam\u00edn og sl\u00f3gu \u00fea\u00f0 sem \u00ed borginni var me\u00f0 sver\u00f0seggjum, b\u00e6\u00f0i f\u00f3lk og f\u00e9na\u00f0 og allt \u00fea\u00f0 sem \u00fear fannst inni, og allar borgir \u00ed Benjam\u00edn brenndu \u00feeir \u00e1 bj\u00f6rtu b\u00e1li.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XX. Eftir \u00feetta dr\u00f3gu \u00cdsraelssynir \u00fat og s\u00f6fnu\u00f0ust saman svo sem einn ma\u00f0ur v\u00e6ri fr\u00e1 Dan og allt til Berseba og af landi G\u00edlea\u00f0 til Drottins \u00ed Mispa. Og \u00feeir yppustu af \u00fev\u00ed \u00f6llu f\u00f3lki sem var fyrir allri \u00cdsraels\u00e6tt gengu til samans \u00ed Gu\u00f0s samkundu, fj\u00f6gur hundru\u00f0 \u00fe\u00fasund manns f\u00f3tg\u00f6nguli\u00f0 sem \u00fatdr\u00f3gu sver\u00f0. En synir Benjam\u00edn heyr\u00f0u a\u00f0 \u00cdsraelssynir voru komnir til Mispa. Og \u00cdsraelssynir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Segi\u00f0 fram hvernin \u00feetta vonda verk er ske\u00f0.&#8220; \u00de\u00e1 svara\u00f0i Lev\u00edtinn \u00feeirrar kvinnu b\u00f3ndi sem a\u00f0 drepin var og sag\u00f0i: &#8222;Eg kom \u00ed G\u00edbea \u00ed Benjam\u00edn me\u00f0 minni kvinnu a\u00f0 vera \u00fear um <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/domarabokin-20-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2923","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2923","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2923"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2923\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2923"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}