{"id":2919,"date":"2017-12-18T18:32:07","date_gmt":"2017-12-18T18:32:07","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/domarabokin-16-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:07","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:07","slug":"domarabokin-16-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/domarabokin-16-kafli\/","title":{"rendered":"D\u00f3marab\u00f3kin 16. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XVI.<\/p>\n<p>Samson gekk \u00ed burt til Gasa og s\u00e1 \u00fear eina sk\u00e6kju og gekk inn til hennar. \u00deetta fr\u00e9ttu borgarmenn Gasa: &#8222;Samson er kominn hinga\u00f0 til vor.&#8220; Og \u00feeir umkringdu hann og l\u00e9tu sitja um hann alla n\u00f3ttina \u00ed sta\u00f0arportinu en voru kyrrir um alla n\u00f3ttina og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Verum kyrrir. \u00c1 morgun strax a\u00f0 birtir \u00fe\u00e1 viljum v\u00e9r sl\u00e1 hann \u00ed hel.&#8220; Samson svaf til mi\u00f0rar n\u00e6tur. S\u00ed\u00f0an st\u00f3\u00f0 hann upp a\u00f0 mi\u00f0ri n\u00f3ttu og t\u00f3k b\u00e1\u00f0ar hur\u00f0irnar fr\u00e1 sta\u00f0arportinu me\u00f0 b\u00e1\u00f0um dyrast\u00f3lpunum og slagbr\u00f6ndunum og lag\u00f0i \u00e1 s\u00ednar her\u00f0ar og bar \u00fea\u00f0 efst upp \u00e1 fjalli\u00f0 sem veit til Hebron.<\/p>\n<p>\tOg eftir \u00feetta lag\u00f0i hann \u00e1st vi\u00f0 eina kvinnu sem bj\u00f3 \u00ed \u00feeim <span class=\"athugasemd\" title=\"sword vi\u00f0 l\u00e6k\">[<\/span> dal sem h\u00e9t S\u00f3rek. S\u00fa nefndist Dal\u00edla. <span class=\"athugasemd\" title=\"Dal\u00edla\">[<\/span> Til hennar komu h\u00f6f\u00f0ingjar Philistinorum og s\u00f6g\u00f0u henni: &#8222;Komstu \u00e1 sl\u00e6gsmuni vi\u00f0 hann a\u00f0 ver\u00f0ir \u00fe\u00fa v\u00eds hvar af hann hefur svo mikinn styrkleika og me\u00f0 hverju m\u00f3ti a\u00f0 v\u00e9r megum sigra hann so v\u00e9r f\u00e1um bundi\u00f0 hann og yfirbuga\u00f0. Ef \u00fe\u00fa gj\u00f6rir \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 viljum v\u00e9r gefa \u00fe\u00e9r hver um sig \u00fe\u00fasund og hundra\u00f0 silfurpeninga.&#8220;<\/p>\n<p>\tDal\u00edla sag\u00f0i til Samson: &#8222;Minn k\u00e6ri, seg \u00fe\u00fa m\u00e9r \u00ed hverju a\u00f0 falinn er \u00feinn mikli sterkleiki og me\u00f0 hverju a\u00f0 \u00feig m\u00e1 binda svo \u00fe\u00fa sl\u00edtir ekki.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Samson styrkur er Drottinn\">[<\/span> Samson svara\u00f0i henni: &#8222;Ef eg er bundinn me\u00f0 sj\u00f6 l\u00ednstrengjum n\u00fdjum votum \u00fe\u00e1 ver\u00f0 eg veikur og so sem hver annar ma\u00f0ur.&#8220; \u00de\u00e1 fengu Philistei henni sj\u00f6 l\u00ednstrengi n\u00fdja sem ei voru enn \u00feurrir og h\u00fan batt hann \u00fear me\u00f0 (en \u00feeir leyndust \u00ed herberginu hj\u00e1 henni) og h\u00fan sag\u00f0i til hans: &#8222;Philistei yfir \u00feig, Samson!&#8220; En hann rykkti \u00ed sundur strengjunum sem \u00fe\u00e1 h\u00f6rtygill fer \u00ed sundur \u00fe\u00e1 hann kennir elds. Og veit n\u00fa ekki gj\u00f6r en \u00e1\u00f0ur um hans afl.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i Dal\u00edla til Samson: &#8222;Sj\u00e1, \u00fe\u00fa hefur gabba\u00f0 mig og logi\u00f0 a\u00f0 m\u00e9r. Seg m\u00e9r n\u00fa \u00fe\u00f3 me\u00f0 hverju \u00feig megi binda?&#8220; Hann svara\u00f0i henni: &#8222;Ef \u00feeir binda mig me\u00f0 n\u00fdjum reipum sem til \u00f6ngrar vinnu hafa h\u00f6f\u00f0 veri\u00f0 \u00fe\u00e1 ver\u00f0 eg \u00f3styrkur og so sem a\u00f0rir menn.&#8220; \u00de\u00e1 t\u00f3k Dal\u00edla n\u00fd reip og batt hann \u00fear me\u00f0 og sag\u00f0i: &#8222;Philistei yfir \u00feig, Samson!&#8220; (en \u00feeir leyndust \u00ed herberginu) og hann sleit \u00feau \u00ed sundur af s\u00ednum armleggjum sem h\u00f6r\u00fer\u00e1\u00f0.<\/p>\n<p>\tEn Dal\u00edla sag\u00f0i til hans: &#8222;\u00de\u00fa hefur enn n\u00fa gabba\u00f0 mig og logi\u00f0 a\u00f0 m\u00e9r. K\u00e6ri, seg m\u00e9r \u00fe\u00f3 hvar me\u00f0 \u00feig megi binda?&#8220; En hann svara\u00f0i henni: &#8222;Ef \u00fe\u00fa samansn\u00fdr m\u00edna sj\u00f6 h\u00f6fu\u00f0lokka me\u00f0 einum h\u00e1rdregli og festir \u00fe\u00e1 vi\u00f0 h\u00e6l.&#8220; Og h\u00fan sag\u00f0i til hans: &#8222;Philistei yfir \u00feig, Samson!&#8220; Og hann vakna\u00f0i af s\u00ednum svefni og rykkti upp s\u00ednum fl\u00e9ttu\u00f0um lokkum me\u00f0 h\u00e6lunum og h\u00e1rdreglinum. \u00de\u00e1 sag\u00f0i h\u00fan til hans: &#8222;Hvernin m\u00e1tt \u00fe\u00fa segja a\u00f0 \u00fe\u00fa hafir \u00e1st \u00e1 m\u00e9r \u00fear \u00feitt hjarta er ei me\u00f0 m\u00e9r? \u00cd \u00ferj\u00e1r reisur hefur \u00fe\u00fa n\u00fa gabba\u00f0 mig og ekki sagt m\u00e9r \u00ed hverju \u00feitt mikla afl f\u00f3lgi\u00f0 v\u00e6ri.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn sem h\u00fan heldur \u00e1 \u00fev\u00ed hinu sama vi\u00f0 hann alla daga \u00fe\u00e1 m\u00e6ddist hugur hans mj\u00f6g so til dau\u00f0a so hann l\u00e9t henni \u00ed lj\u00f3si sitt hjarta og sag\u00f0i til hennar: &#8222;Aldrei hefur h\u00e1rhn\u00edfur komi\u00f0 \u00e1 mitt h\u00f6fu\u00f0 \u00fev\u00ed eg er Gu\u00f0s <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (Nazareus) \u00dea\u00f0 er, Gu\u00f0i helga\u00f0ur\">[<\/span> Nazareus fr\u00e1 m\u00f3\u00f0urkvi\u00f0i. <span class=\"athugasemd\" title=\"Samson yfirunninn af konunni\">[<\/span> Og ef \u00fe\u00fa rakar mitt h\u00e1r af m\u00ednu h\u00f6f\u00f0i \u00fe\u00e1 hverfur minn styrkur fr\u00e1 m\u00e9r svo eg ver\u00f0 so \u00f3styrkur sem a\u00f0rir menn.&#8220; En sem Dal\u00edla s\u00e1 n\u00fa a\u00f0 hann haf\u00f0i birt henni s\u00edna alv\u00f6ru \u00fe\u00e1 sendi h\u00fan og l\u00e9t kalla \u00e1 h\u00f6f\u00f0ingja Philistinorum og l\u00e9t segja \u00feeim: &#8222;Komi\u00f0 n\u00fa enn um sinn upp hinga\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann hefur n\u00fa birt m\u00e9r sitt hjarta.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 komu h\u00f6f\u00f0ingjar Philisteis upp til hennar og h\u00f6f\u00f0u me\u00f0 s\u00e9r f\u00e9 \u00fea\u00f0 sem \u00feeir lofu\u00f0u henni. Og h\u00fan l\u00e9t hann sofna yfir knj\u00e1m s\u00e9r og kalla\u00f0i \u00feann til s\u00edn sem alla hans lokka sj\u00f6 raka\u00f0i af hans h\u00f6f\u00f0i. Og h\u00fan t\u00f3k til a\u00f0 hrinda honum fr\u00e1 s\u00e9r. Hvarf \u00fe\u00e1 fr\u00e1 honum hans styrkleiki. Og h\u00fan sag\u00f0i til hans: &#8222;Philistei yfir \u00feig, Samson!&#8220; En sem hann n\u00fa uppvakna\u00f0i af s\u00ednum svefni hugsa\u00f0i hann: &#8222;Eg mun ganga \u00fat so sem eg hefi \u00e1\u00f0ur oft gj\u00f6rt og hrista mig.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Samson fanginn og blinda\u00f0ur\">[<\/span> Og hann vissi ekki a\u00f0 Drottinn var vikinn fr\u00e1 honum. Jafnsnart gripu Philistei hann og stungu \u00fat b\u00e6\u00f0i hans augu og fluttu hann til Gasa og bundu hann me\u00f0 tveimur koparvi\u00f0jum a\u00f0 hann skyldi draga kvern \u00ed myrkvastofu. En hans h\u00f6fu\u00f0h\u00e1r t\u00f3ku a\u00f0 spretta aftur \u00fear \u00feau voru afr\u00f6ku\u00f0.<\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00e1 h\u00f6f\u00f0ingjar Philistinorum s\u00f6fnu\u00f0ust saman a\u00f0 gj\u00f6ra miki\u00f0 offur s\u00ednum gu\u00f0i Dag\u00f3n og sig sj\u00e1lfa gla\u00f0a a\u00f0 gj\u00f6ra \u00fe\u00e1 s\u00f6g\u00f0u \u00feeir hver til annars: &#8222;Vor gu\u00f0 hefur gefi\u00f0 oss vorn \u00f3vin Samson \u00ed vorar hendur.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Dag\u00f3n\">[<\/span> S\u00f6mulei\u00f0is al\u00fe\u00fd\u00f0uf\u00f3lki\u00f0 lofa\u00f0i \u00feeirra gu\u00f0 \u00fev\u00ed \u00feeir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Vor gu\u00f0 hefur gefi\u00f0 vorn \u00f3vin \u00ed vorar hendur, s\u00e1 sem eyddi vort land og drepi\u00f0 hefur mikinn mannfj\u00f6lda fyrir oss.&#8220; Og sem drykkur k\u00e6tir n\u00fa hj\u00f6rtu \u00feeirra \u00fe\u00e1 segja \u00feeir: &#8222;L\u00e1ti\u00f0 s\u00e6kja Samson so hann leiki fyrir oss.&#8220; \u00de\u00e1 t\u00f3ku \u00feeir Samson af fangelsinu og hann l\u00e9k fyrir \u00feeim. Og \u00feeir settu hann \u00e1 millum tveggja st\u00f3lpa.<\/p>\n<p>\tEn Samson sag\u00f0i til \u00feess ungmennis sem hann leiddi vi\u00f0 h\u00f6nd s\u00e9r: &#8222;L\u00e1t \u00fe\u00fa mig fara \u00feanga\u00f0 a\u00f0 \u00feeim st\u00f3lpum sem h\u00fasi\u00f0 stendur \u00e1 so eg megi sty\u00f0ja mig vi\u00f0 \u00fe\u00e1.&#8220; En h\u00fasi\u00f0 var alskipa\u00f0 b\u00e6\u00f0i af m\u00f6nnum og kvinnum. \u00dear voru \u00ed \u00fev\u00ed sama sinni samankomnir allir h\u00f6f\u00f0ingjar Philisteis og upp \u00e1 \u00feakinu voru n\u00e6r \u00ferj\u00e1r \u00fe\u00fasundir manns og kvinnur sem horf\u00f0u \u00e1 hvernin Samson l\u00e9k. En Samson \u00e1kalla\u00f0i Drottin og sag\u00f0i: &#8222;Drottinn Gu\u00f0, minnst \u00fe\u00fa n\u00fa m\u00edn og gef m\u00e9r n\u00fa, Gu\u00f0, aftur styrkleik minn (hinn fyrra) so a\u00f0 eg megi um sinn hefna m\u00edn \u00e1 Philisteis fyrir m\u00edn b\u00e6\u00f0i augu!&#8220;<\/p>\n<p>\tOg hann greip sinni hendi um hvorn st\u00f3lpa sem \u00ed mi\u00f0ju h\u00fasinu st\u00f3\u00f0u, hverjir a\u00f0 h\u00e9ldu \u00fev\u00ed \u00f6llu upp. <span class=\"athugasemd\" title=\"Samson d\u00f3mari yfir \u00cdsrael \u00ed xx \u00e1r\">[<\/span> Og hann sag\u00f0i: &#8222;Deyi \u00f6nd m\u00edn me\u00f0 \u00feeim Philisteis!&#8220; Og hann svipti st\u00f3lpunum styrklega undan svo a\u00f0 h\u00fasi\u00f0 f\u00e9ll ofan \u00e1 h\u00f6f\u00f0ingjana og \u00e1 allt f\u00f3lki\u00f0 sem \u00fear var inni svo a\u00f0 hann drap fleiri deyjandi en hann haf\u00f0i drepi\u00f0 me\u00f0an hann lif\u00f0i. Eftir \u00feetta komu hans br\u00e6\u00f0ur ofan \u00feanga\u00f0 og allir af hans f\u00f6\u00f0urs h\u00fasi og t\u00f3ku hann upp og f\u00e6r\u00f0u hann \u00fea\u00f0an og gr\u00f3fu hann \u00ed s\u00edns f\u00f6\u00f0urs Man\u00f3a gr\u00f6f hver a\u00f0 liggur \u00e1 millum Sarea og Esta\u00f3l. Hann var d\u00f3mandi yfir \u00cdsrael \u00ed tuttugu \u00e1r.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XVI. Samson gekk \u00ed burt til Gasa og s\u00e1 \u00fear eina sk\u00e6kju og gekk inn til hennar. \u00deetta fr\u00e9ttu borgarmenn Gasa: &#8222;Samson er kominn hinga\u00f0 til vor.&#8220; Og \u00feeir umkringdu hann og l\u00e9tu sitja um hann alla n\u00f3ttina \u00ed sta\u00f0arportinu en voru kyrrir um alla n\u00f3ttina og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Verum kyrrir. \u00c1 morgun strax a\u00f0 birtir \u00fe\u00e1 viljum v\u00e9r sl\u00e1 hann \u00ed hel.&#8220; Samson svaf til mi\u00f0rar n\u00e6tur. S\u00ed\u00f0an st\u00f3\u00f0 hann upp a\u00f0 mi\u00f0ri n\u00f3ttu og t\u00f3k b\u00e1\u00f0ar hur\u00f0irnar fr\u00e1 sta\u00f0arportinu me\u00f0 b\u00e1\u00f0um dyrast\u00f3lpunum og slagbr\u00f6ndunum og lag\u00f0i \u00e1 s\u00ednar her\u00f0ar og bar \u00fea\u00f0 efst upp \u00e1 fjalli\u00f0 sem veit til <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/domarabokin-16-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2919","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2919","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2919"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2919\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2919"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}