{"id":2912,"date":"2017-12-18T18:32:04","date_gmt":"2017-12-18T18:32:04","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/domarabokin-9-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:04","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:04","slug":"domarabokin-9-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/domarabokin-9-kafli\/","title":{"rendered":"D\u00f3marab\u00f3kin 9. kafli"},"content":{"rendered":"<p>IX.<\/p>\n<p>Og Ab\u00edmelek son Jer\u00fabbaal f\u00f3r til S\u00edkem til sinna m\u00f3\u00f0urbr\u00e6\u00f0ra og tala\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e1 og vi\u00f0 alla s\u00edna \u00e6ttmenn af s\u00edns m\u00f3\u00f0urf\u00f6\u00f0urs h\u00fasi og sag\u00f0i: <span class=\"athugasemd\" title=\"Ab\u00edmelek d\u00f3mari \u00ed \u00ferj\u00fa \u00e1r\">[<\/span> &#8222;Eg bi\u00f0 y\u00f0ur a\u00f0 tala fyrir alm\u00fagans eyrum \u00ed Sik\u00edm: Hvert mun heldur betra vera fyrir y\u00f0ur a\u00f0 sj\u00f6t\u00edgi menn, allir synir Jer\u00fabbaal, s\u00e9 herrar yfir y\u00f0ur e\u00f0a a\u00f0 einn ma\u00f0ur ver\u00f0i y\u00f0ar herra? Hugsi\u00f0 og um \u00fea\u00f0 a\u00f0 eg er y\u00f0ar hold og bein.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 t\u00f6lu\u00f0u hans m\u00f3\u00f0urbr\u00e6\u00f0ur \u00f6ll \u00feessi or\u00f0 um hann fyrir allra manna eyrum \u00ed Sik\u00edm. Og \u00feeirra hj\u00f6rtu hneig\u00f0ust til Ab\u00edmelek \u00fev\u00ed \u00feeir hugsu\u00f0u me\u00f0 s\u00e9r: &#8222;Hann er vor br\u00f3\u00f0ir.&#8220; Og \u00feeir g\u00e1fu honum sj\u00f6t\u00edgi silfurpeninga af h\u00fasi Baal Berit og Ab\u00edmelek leig\u00f0i s\u00e9r me\u00f0 \u00feessu f\u00e9 umhleypingsmenn sem honum eftirfylgdu. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ab\u00edmelek drepur s\u00edna lxx br\u00e6\u00f0ur\">[<\/span> Og hann kom \u00ed s\u00edns f\u00f6\u00f0urs h\u00fas \u00ed Ofra og drap s\u00edna br\u00e6\u00f0ur, syni Jer\u00fabbaal, sj\u00f6t\u00edgi menn yfir einum steini. En J\u00f3tam, yngsti son Jer\u00fabbaal, komst undan \u00fev\u00ed hann var geymdur. <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00f3tam\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tEn allir menn af Sik\u00edm og allur alm\u00fagi af Mill\u00f3 h\u00fasi s\u00f6fnu\u00f0ust saman, f\u00f3ru til og hylltu Ab\u00edmelek til k\u00f3ngs hj\u00e1 \u00feeirri st\u00f3ru eik sem st\u00f3\u00f0 \u00ed Sik\u00edm.<\/p>\n<p>\tSem J\u00f3tam fr\u00e9tti \u00feetta gekk hann burt og f\u00f3r upp \u00e1 h\u00e6sta hvirfil fjallsins Gr\u00eds\u00edm, upph\u00f3f s\u00edna raust, hr\u00f3pa\u00f0i og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;\u00de\u00e9r menn \u00ed Sik\u00edm, heyri\u00f0 mig og mun Gu\u00f0 heyra y\u00f0ur. Sk\u00f3gartr\u00e9n f\u00f3ru a\u00f0 v\u00edgja einn k\u00f3ng yfir sig og \u00feau s\u00f6g\u00f0u til vi\u00f0smj\u00f6rstr\u00e9sins: Vert \u00fe\u00fa vor k\u00f3ngur. Vi\u00f0smj\u00f6rstr\u00e9\u00f0 svara\u00f0i: Skal eg yfirgefa minn feitleika sem b\u00e6\u00f0i Gu\u00f0ir og menn hei\u00f0ra \u00ed m\u00e9r og fara a\u00f0 eg sveimi upp yfir sk\u00f3gartrj\u00e1m? \u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u tr\u00e9n til f\u00edkjutr\u00e9sins: Kom \u00fe\u00fa og tak r\u00edki yfir oss. En f\u00edkjutr\u00e9\u00f0 svara\u00f0i \u00feeim: Skal eg yfirgefa minn s\u00e6tleika og minn g\u00f3\u00f0a \u00e1v\u00f6xt og fara og hr\u00e6ra mig yfir tr\u00e9n? \u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u tr\u00e9n til v\u00ednvi\u00f0arins: Kom \u00fe\u00fa og bj\u00f3\u00f0 yfir oss. V\u00ednvi\u00f0urinn svara\u00f0i \u00feeim: Skal eg fyrirl\u00e1ta mitt v\u00edn sem gle\u00f0ur b\u00e6\u00f0i Gu\u00f0i og menn og fara til a\u00f0 upphefja mig yfir sk\u00f3gtr\u00e9? \u00de\u00e1 s\u00f6g\u00f0u \u00f6ll tr\u00e9n til \u00feyrnitr\u00e9sins: Kom \u00fe\u00fa og vert vor yfirk\u00f3ngur. Og \u00feyrnibuskurinn svara\u00f0i trj\u00e1num: Er \u00fea\u00f0 v\u00edst a\u00f0 \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 v\u00edgja mig til k\u00f3ngs yfir y\u00f0ur? Svo komi\u00f0 hinga\u00f0 og hafi\u00f0 traust undir m\u00ednum skugga. Vilji \u00fe\u00e9r ekki \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 komi eldur af \u00feyrnibuskinum og ey\u00f0i \u00feeim sedrusvi\u00f0um \u00ed L\u00edbanon.<\/p>\n<p>\tHafi \u00fe\u00e9r n\u00fa r\u00e9ttilega og \u00e6rlega gj\u00f6rt a\u00f0 \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 hyllt og til k\u00f3ngs teki\u00f0 Ab\u00edmelek og hafi \u00fe\u00e9r n\u00fa og vel gj\u00f6rt vi\u00f0 Jer\u00fabbaal og hans h\u00fas og hafi \u00fe\u00e9r n\u00fa goldi\u00f0 honum maklega umb\u00f6n fyrir s\u00edna g\u00f3\u00f0gj\u00f6rninga a\u00f0 minn fa\u00f0ir bar\u00f0ist fyrir y\u00f0ur og lag\u00f0i sitt l\u00edf \u00ed h\u00e1ska fyrir y\u00f0ur a\u00f0 hann frelsti y\u00f0ur af valdi \u00feeirra Madianitis? Og \u00fe\u00e9r setji\u00f0 y\u00f0ur n\u00fa upp \u00ed dag \u00e1 m\u00f3ti m\u00edns f\u00f6\u00f0urs h\u00fasi og dr\u00e1pu\u00f0 hans eigin sonu, sj\u00f6t\u00edgi menn \u00e1 einum steini, en t\u00f3ku\u00f0 y\u00f0ur til k\u00f3ngs \u00feann Ab\u00edmelek sem a\u00f0 var hans amb\u00e1ttarsonur yfir \u00fe\u00e1 menn \u00ed S\u00edkem af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann er y\u00f0ar br\u00f3\u00f0ir.<\/p>\n<p>\tN\u00fa, ef \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 gj\u00f6rt r\u00e9ttilega og \u00e6rlega vi\u00f0 Jer\u00fabbaal og vi\u00f0 hans h\u00fas \u00e1 \u00feessum degi \u00fe\u00e1 fagni\u00f0 me\u00f0 Ab\u00edmelek og s\u00e9 hann og gla\u00f0ur me\u00f0 y\u00f0ur. En hafi \u00fe\u00e9r \u00feetta rangt gj\u00f6rt \u00fe\u00e1 (m\u00e6li eg um) komi eldur af Ab\u00edmelek og uppbrenni byggendur S\u00edkem og Mill\u00f3, s\u00ed\u00f0an komi og eldur af Sik\u00edm og Mill\u00f3 og uppbrenni Ab\u00edmelek.&#8220; Eftir \u00feetta fl\u00fd\u00f0i J\u00f3tam og veik s\u00e9r afvega og gekk til Ber og bj\u00f3 \u00fear s\u00f6kum s\u00edns br\u00f3\u00f0urs Ab\u00edmelek.<\/p>\n<p>\tEn sem Ab\u00edmelek haf\u00f0i r\u00edkt yfir \u00cdsrael \u00ed \u00ferj\u00fa \u00e1r \u00fe\u00e1 sendi Gu\u00f0 einn sundur\u00feykkisanda \u00e1 millum Ab\u00edmelek og bygg\u00f0armanna \u00ed S\u00edkem. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ab\u00edmelek\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feeir \u00ed S\u00edkem \u00e1t\u00f6ldu Ab\u00edmelek og brug\u00f0u honum um hans illsku og vanart sem hann haf\u00f0i frami\u00f0 \u00ed m\u00f3ti \u00feeim sj\u00f6t\u00edgi sonum Jer\u00fabbaal og l\u00f6g\u00f0u Ab\u00edmelek til hans br\u00e6\u00f0ra bl\u00f3\u00f0 hverja hann haf\u00f0i drepi\u00f0 og \u00feeir menn \u00ed S\u00edkem, \u00feeir sem hans h\u00f6nd h\u00f6f\u00f0u tilstyrkt a\u00f0 hann drap svo s\u00edna br\u00e6\u00f0ur. Og \u00feeir af S\u00edkem gj\u00f6r\u00f0u s\u00e9r eitt fyrirs\u00e1tur \u00e1 fjallinu og r\u00e6ntu \u00fe\u00e1 alla sem fer\u00f0u\u00f0ust \u00feann veg hj\u00e1 \u00feeim. Og \u00feetta var undirv\u00edsa\u00f0 Ab\u00edmelek.<\/p>\n<p>\t\u00dear var einn mann sem h\u00e9tt Gaal son Ebed, hann kom me\u00f0 s\u00ednum br\u00e6\u00f0rum og dr\u00f3 \u00ed S\u00edkem. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gaal\">[<\/span> En \u00feeir bygg\u00f0armenn \u00ed S\u00edkem treystu \u00e1 hann og dr\u00f3gu \u00fat \u00e1 akrana, brutu ni\u00f0ur v\u00edngar\u00f0a, tr\u00e1\u00f0u undir f\u00f3tum v\u00edn\u00fer\u00fagur og sl\u00f3gu upp dans og gengu inn \u00ed s\u00edns Gu\u00f0s h\u00fas, \u00e1tu og drukku og form\u00e6ltu Ab\u00edmelek. En Gaal son Ebed sag\u00f0i: &#8222;Hver er Ab\u00edmelek og hva\u00f0 er S\u00edkem a\u00f0 v\u00e9r skulum \u00fej\u00f3na honum? Er hann ekki son Jer\u00fabbaal og hefur sett sinn \u00fe\u00e9nara Seb\u00fal h\u00e9r yfir Hemor f\u00f6\u00f0ur S\u00edkem? \u00dev\u00ed skulu v\u00e9r \u00fej\u00f3na honum? Gu\u00f0 g\u00e6fi a\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 v\u00e6ri undir minni h\u00f6nd so a\u00f0 eg m\u00e6tti \u00fatdr\u00edfa \u00feennan Ab\u00edmelek.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg nokkur sag\u00f0i til Ab\u00edmelek: &#8222;Safna li\u00f0i a\u00f0 \u00fe\u00e9r og drag \u00fat.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Seb\u00fal\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 Seb\u00fal h\u00f6f\u00f0ingi \u00ed sta\u00f0num, \u00fe\u00e1 hann heyr\u00f0i or\u00f0 Gaal sonar Ebed \u00fe\u00e1 uppkveiktist hann af rei\u00f0i og sendi Ab\u00edmelek bo\u00f0 \u00e1 laun og l\u00e9t segja honum: &#8222;Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, Gaal son Ebed og hans br\u00e6\u00f0ur eru komnir \u00ed S\u00edkem og hafa gj\u00f6rt sta\u00f0inn \u00fe\u00e9r m\u00f3tsn\u00fainn. So tak \u00feig upp n\u00fa strax \u00e1 \u00feessari n\u00f3tt og \u00fea\u00f0 f\u00f3lk sem hj\u00e1 \u00fe\u00e9r er og gj\u00f6r \u00fe\u00e9r eitt leynis\u00e1tur \u00ed m\u00f6rkinni. Og a\u00f0 morni \u00feegar s\u00f3l gengur upp \u00fe\u00e1 rei\u00f0 \u00feig til snemmindis og fall yfir sta\u00f0inn. En ef Gaal og \u00fea\u00f0 f\u00f3lk sem me\u00f0 honum er fer \u00fat til \u00fe\u00edn \u00fe\u00e1 gj\u00f6r vi\u00f0 hann sem \u00fe\u00edn h\u00f6nd orkar.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Upphlaup \u00ed m\u00f3ti Ab\u00edmelek\">[<\/span><\/p>\n<p>\tAb\u00edmelek st\u00f3\u00f0 upp snemma um n\u00f3ttina og allt \u00fea\u00f0 f\u00f3lk sem me\u00f0 honum var og settust um S\u00edkem me\u00f0 fj\u00f3rum fylkingum. Og Gaal son Ebed dr\u00f3 \u00fat og gekk \u00ed sta\u00f0arporti\u00f0. En Ab\u00edmelek t\u00f3k sig upp \u00far launs\u00e1trinu og \u00fea\u00f0 f\u00f3lk sem hj\u00e1 honum var. En sem Gaal s\u00e1 f\u00f3lki\u00f0 sag\u00f0i hann til Seb\u00fal: &#8222;Sj\u00e1, \u00fear kemur f\u00f3lk ofan af h\u00e6\u00f0 fjallsins.&#8220; \u00de\u00e1 svara\u00f0i Seb\u00fal: &#8222;\u00de\u00fa reiknar skugga fjallanna fyrir f\u00f3lk.&#8220; Gaal tala\u00f0i enn framar og sag\u00f0i: &#8222;Sj\u00e1, \u00fear kemur eitt f\u00f3lk ni\u00f0ur mitt af landinu og einn flokkur kemur af \u00feeim vegi sem liggur hj\u00e1 \u00feeirri t\u00f6fraeik.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sag\u00f0i Seb\u00fal til hans: &#8222;Hvar er n\u00fa \u00feinn munnur sem a\u00f0 so sag\u00f0i: Hver er Ab\u00edmelek a\u00f0 v\u00e9r skyldum \u00fej\u00f3na honum? Er \u00fea\u00f0 ekki \u00fea\u00f0 f\u00f3lk sem \u00fe\u00fa forsm\u00e1\u00f0ir? Far n\u00fa \u00fat og halt bardaga vi\u00f0 hann.&#8220; Gaal f\u00f3r \u00fat fyrir borgarm\u00f6nnum S\u00edkem og h\u00e9lt bardaga me\u00f0 Ab\u00edmelek. En Ab\u00edmelek var\u00f0 honum yfirsterkari svo a\u00f0 Gaal h\u00e9lt \u00e1 fl\u00f3tta undan honum. Og margt af f\u00f3lkinu f\u00e9ll \u00ed hel slegi\u00f0 allt a\u00f0 borgarhli\u00f0i. Og Ab\u00edmelek var \u00ed Ar\u00f3ma. En Seb\u00fal \u00fatr\u00fdmdi Gaal og hans br\u00e6\u00f0ur so \u00feeir m\u00e1ttu ekki vera \u00ed S\u00edkem.<\/p>\n<p>\tA\u00f0 morni gekk f\u00f3lki\u00f0 \u00fat \u00ed m\u00f6rkina af S\u00edkem. Og sem \u00fea\u00f0 var undirv\u00edsa\u00f0 Ab\u00edmelek \u00fe\u00e1 t\u00f3k hann sitt f\u00f3lk til samans og skipti \u00fev\u00ed \u00ed \u00ferj\u00e1 flokka og gj\u00f6r\u00f0i eitt launs\u00e1tur \u00ed m\u00f6rkinni. En sem hann s\u00e1 n\u00fa a\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 gekk \u00fat af sta\u00f0num \u00fe\u00e1 f\u00e9ll hann yfir \u00fe\u00e1 og sl\u00f3 \u00fe\u00e1. En Ab\u00edmelek og \u00feeir flokkar sem voru me\u00f0 honum yfirf\u00e9llu \u00fe\u00e1 og f\u00f3ru allt a\u00f0 borgarhli\u00f0i. En \u00feeir tveir flokkar yfirf\u00e9llu \u00fe\u00e1 alla sem \u00fati voru \u00ed m\u00f6rkinni og sl\u00f3gu \u00fe\u00e1. S\u00ed\u00f0an str\u00edddi Ab\u00edmelek \u00e1 sta\u00f0inn allan \u00feann dag og vann hann en drap allt \u00fea\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 sem \u00ed sta\u00f0num var, ni\u00f0urbraut sta\u00f0inn og s\u00e1\u00f0i salti \u00fear yfir.<\/p>\n<p>\tEn sem \u00feeir menn sem voru \u00ed turninum S\u00edkem heyr\u00f0u \u00fea\u00f0 gengu \u00feeir inn \u00ed kastala s\u00edns afgu\u00f0s, h\u00fas Berit. <span class=\"athugasemd\" title=\"Berit\">[<\/span> Og sem Ab\u00edmelek heyr\u00f0i \u00fea\u00f0 a\u00f0 allir menn \u00ed turninum \u00ed S\u00edkem h\u00f6f\u00f0u samansafnast \u00fe\u00e1 gekk hann upp \u00e1 fjalli\u00f0 Salm\u00f3n me\u00f0 allan sinn her, \u00feeim sem me\u00f0 honum var, og hann t\u00f3k eina \u00f6xi \u00ed s\u00edna h\u00f6nd og hj\u00f3 kvistu af trj\u00e1num og lag\u00f0i s\u00e9r \u00e1 her\u00f0ar og sag\u00f0i til alls \u00feess f\u00f3lks sem var me\u00f0 honum:<\/p>\n<p>\t&#8222;Hva\u00f0 \u00fe\u00e9r sj\u00e1i\u00f0 mig gj\u00f6ra \u00fe\u00e1 gj\u00f6ri\u00f0 strax \u00fea\u00f0 sama.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"S\u00edkem uppbrennd\">[<\/span> \u00de\u00e1 hj\u00f3 hver ma\u00f0ur kvistu af trj\u00e1num og fylgdu Ab\u00edmelek og b\u00e1ru \u00feetta a\u00f0 kastalanum \u00feanga\u00f0 sem f\u00f3lki\u00f0 var fl\u00fai\u00f0 og kveiktu eld \u00fear \u00ed so a\u00f0 allir \u00feeir menn sem voru \u00ed turninum \u00ed S\u00edkem dr\u00e1pust, n\u00e6r \u00fe\u00fasundir kallmenn og konur. <\/p>\n<p>\tS\u00ed\u00f0an dr\u00f3 Ab\u00edmelek til Tebes og settist um hana og vann hana. En \u00fear var einn fastur turn mitt \u00ed borginni, \u00feanga\u00f0 fl\u00fa\u00f0u allir menn og kvinnur og allir \u00feeir borgarmenn sem \u00ed sta\u00f0num voru og luktu dyrnar eftir s\u00e9r og stigu s\u00ed\u00f0an upp \u00e1 h\u00fasa\u00feaki\u00f0 kastalans. \u00de\u00e1 lag\u00f0i Ab\u00edmelek a\u00f0 \u00feessum turni og str\u00edddi \u00e1 hann. Og hann gekk a\u00f0 dyrunum \u00e1 turninum til a\u00f0 uppbrenna turninn me\u00f0 eldi. En ein kvinna kasta\u00f0i einu kvernarsteinsbroti \u00ed Ab\u00edmelek h\u00f6fu\u00f0 og braut hans hausskel \u00ed sundur. \u00de\u00e1 kalla\u00f0i Ab\u00edmelek sem skj\u00f3tast sinn skjaldsvein og sag\u00f0i til hans: &#8222;Drag \u00fat \u00feitt sver\u00f0 og sl\u00e1 mig \u00ed hel so a\u00f0 eigi segist a\u00f0 ein kvinna hafi drepi\u00f0 mig.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Ab\u00edmelek f\u00e6r makleg laun\">[<\/span> Sveinninn gj\u00f6r\u00f0i sem hann ba\u00f0 og drap hann.  <\/p>\n<p>\tEn sem \u00feeir Israelite sem voru me\u00f0 honum s\u00e1u a\u00f0 Ab\u00edmelek var dau\u00f0ur \u00fe\u00e1 gekk hver til s\u00edns heimkynnis. Svo bitala\u00f0i Gu\u00f0 Ab\u00edmelek \u00fea\u00f0 i\u00f0 vonda sem hann haf\u00f0i gj\u00f6rt s\u00ednum f\u00f6\u00f0ur a\u00f0 hann drap s\u00edna sj\u00f6t\u00edgi br\u00e6\u00f0ur. S\u00f6mulei\u00f0is l\u00e9t Gu\u00f0 koma allt \u00fea\u00f0 hi\u00f0 vonda yfir S\u00edkemsmenn \u00fea\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u gj\u00f6rt. Og forb\u00e6nir J\u00f3tam sonar Jer\u00fabbaal komu yfir \u00fe\u00e1.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>IX. Og Ab\u00edmelek son Jer\u00fabbaal f\u00f3r til S\u00edkem til sinna m\u00f3\u00f0urbr\u00e6\u00f0ra og tala\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e1 og vi\u00f0 alla s\u00edna \u00e6ttmenn af s\u00edns m\u00f3\u00f0urf\u00f6\u00f0urs h\u00fasi og sag\u00f0i: [ &#8222;Eg bi\u00f0 y\u00f0ur a\u00f0 tala fyrir alm\u00fagans eyrum \u00ed Sik\u00edm: Hvert mun heldur betra vera fyrir y\u00f0ur a\u00f0 sj\u00f6t\u00edgi menn, allir synir Jer\u00fabbaal, s\u00e9 herrar yfir y\u00f0ur e\u00f0a a\u00f0 einn ma\u00f0ur ver\u00f0i y\u00f0ar herra? Hugsi\u00f0 og um \u00fea\u00f0 a\u00f0 eg er y\u00f0ar hold og bein.&#8220; \u00de\u00e1 t\u00f6lu\u00f0u hans m\u00f3\u00f0urbr\u00e6\u00f0ur \u00f6ll \u00feessi or\u00f0 um hann fyrir allra manna eyrum \u00ed Sik\u00edm. Og \u00feeirra hj\u00f6rtu hneig\u00f0ust til Ab\u00edmelek \u00fev\u00ed \u00feeir hugsu\u00f0u me\u00f0 s\u00e9r: &#8222;Hann er <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/domarabokin-9-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2912","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2912","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2912"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2912\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2912"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}