{"id":2911,"date":"2017-12-18T18:32:04","date_gmt":"2017-12-18T18:32:04","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/domarabokin-8-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:04","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:04","slug":"domarabokin-8-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/domarabokin-8-kafli\/","title":{"rendered":"D\u00f3marab\u00f3kin 8. kafli"},"content":{"rendered":"<p>VIII.<\/p>\n<p>Og \u00feeir menn af Efra\u00edm s\u00f6g\u00f0u til hans: &#8222;\u00dev\u00ed gj\u00f6r\u00f0ir \u00fe\u00fa svo a\u00f0 \u00fe\u00fa vildir ekki kalla oss \u00fe\u00e1 \u00fe\u00fa f\u00f3rst \u00ed \u00feetta str\u00ed\u00f0 \u00ed m\u00f3t \u00feeim Madianitis?&#8220; Og \u00feeir \u00fer\u00e1ttu\u00f0u har\u00f0lega vi\u00f0 hann. \u00de\u00e1 sag\u00f0i hann til \u00feeirra: &#8222;Hva\u00f0 hefi eg \u00feess gj\u00f6rt sem jafnast m\u00e1 vi\u00f0 y\u00f0ar gj\u00f6rninga? Er ekki einn v\u00ednkvistur betri af Efra\u00edm heldur en \u00f6ll v\u00ednyrkja Ab\u00edeser? Drottinn hefur gefi\u00f0 h\u00f6f\u00f0ingja \u00feeirra Madianitis, \u00d3reb og Seb, \u00ed y\u00f0ar hendur. Hvernin m\u00e1tta eg gj\u00f6ra \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 gj\u00f6rt?&#8220; Og \u00fe\u00e1 hann haf\u00f0i \u00fea\u00f0 tala\u00f0 stilltist \u00feeirra rei\u00f0i.<\/p>\n<p>\tEn \u00feegar a\u00f0 Gideon kom til J\u00f3rdanar f\u00f3r hann yfir um me\u00f0 \u00feau \u00ferj\u00fa hundru\u00f0 manns sem voru me\u00f0 h\u00f6num og \u00feeir \u00fereyttust a\u00f0 reka herfl\u00f3ttann. Og hann sag\u00f0i til \u00feeirra innbygjara \u00ed S\u00fak\u00f3t: &#8222;Eg bi\u00f0 y\u00f0ur, gefi\u00f0 \u00feeim m\u00f6nnum sem me\u00f0 m\u00e9r eru nokku\u00f0 brau\u00f0 \u00fev\u00ed \u00feeir eru \u00fereyttir so eg megi s\u00e6kja eftir \u00feeim Seba og Salm\u00fana Madianiters k\u00f3ngum.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"S\u00fak\u00f3t \/ Sebat \/ Salm\u00fana\">[<\/span> En \u00feeir yppustu \u00ed S\u00fak\u00f3t sv\u00f6ru\u00f0u: &#8222;Eru hnefar \u00feeirra Seba og Salm\u00fana alla rei\u00f0u \u00ed \u00fe\u00ednum h\u00f6ndum svo v\u00e9r skulum gefa \u00fe\u00ednum herm\u00f6nnum brau\u00f0?&#8220; Gideon svara\u00f0i: &#8222;N\u00fa vel, \u00fe\u00e1 Drottinn gefur Seba og Salm\u00f3na \u00ed m\u00edna h\u00f6nd \u00fe\u00e1 vil eg \u00ed sundur\u00fereskja y\u00f0art hold me\u00f0 \u00feyrnum af ey\u00f0im\u00f6rku og \u00feistlum.&#8220; Og hann reisti \u00fea\u00f0an og upp til Pn\u00fael og tala\u00f0i eins til \u00feeirra. <span class=\"athugasemd\" title=\"Pn\u00fael\">[<\/span> Og \u00feeir menn \u00ed Pn\u00fael g\u00e1fu honum eins svar og hinir sem voru \u00ed S\u00fak\u00f3t. Og hann sag\u00f0i eins til \u00feeirra \u00ed Pn\u00fael: &#8222;Ef eg kem aftur \u00ed fri\u00f0i \u00fe\u00e1 vil eg og ni\u00f0ur brj\u00f3ta \u00feennan kastala.&#8220; <\/p>\n<p>\tEn Seba og Salm\u00fana voru \u00ed Kark\u00f3r me\u00f0 s\u00ednum her sem var n\u00e6r fimmt\u00e1n \u00fe\u00fasundir og \u00feessir voru eftir or\u00f0nir af \u00feeim \u00f6llum her \u00far austurlandi. En \u00fea\u00f0 herli\u00f0 sem falli\u00f0 var var hundra\u00f0 og tuttugu \u00fe\u00fasundir manna sem vopnf\u00e6rir voru. <span class=\"athugasemd\" title=\"120000 manns fallnir\">[<\/span> Og Gideon fer\u00f0a\u00f0ist upp \u00e1 \u00feann veg \u00fear menn bjuggu \u00ed tjaldb\u00fa\u00f0um austur fr\u00e1 N\u00f3ba og Jagbeha og sl\u00f3 \u00feann her \u00fev\u00ed s\u00e1 her \u00f3tta\u00f0ist ekki a\u00f0 s\u00e9r. Og Seba og Salm\u00fana fl\u00fd\u00f0u en hann rak fl\u00f3ttann eftir \u00feeim og handt\u00f3k b\u00e1\u00f0a Madianitis k\u00f3nga, Seba og Salm\u00fana, en hr\u00e6ddi allan herinn.<\/p>\n<p>\tEn sem Gideon son J\u00f3as kom aftur \u00far \u00feessum bardaga fyrir s\u00f3laruppruna \u00fe\u00e1 handt\u00f3k hann einn mann af \u00fev\u00ed f\u00f3lki \u00ed S\u00fak\u00f3t og a\u00f0spur\u00f0i hann. Hann skrifa\u00f0i honum upp \u00fe\u00e1 yppustu \u00ed S\u00fak\u00f3t og \u00feeirra \u00f6ldunga, sj\u00f6 og stj\u00f6t\u00edgi menn. Og hann kom til \u00feeirra \u00ed S\u00fak\u00f3t og sag\u00f0i: &#8222;Sj\u00e1i\u00f0, h\u00e9r er Seba og Salm\u00fana um hverja \u00fe\u00e9r h\u00e6ddu\u00f0 mig og s\u00f6g\u00f0u\u00f0: Er \u00fe\u00e1 Seba og Salm\u00fana hnefar me\u00f0 \u00f6llu \u00fe\u00e9r \u00ed h\u00f6ndum a\u00f0 v\u00e9r skulum gefa brau\u00f0 \u00fe\u00ednu f\u00f3lki sem \u00fereytt er?&#8220; Og hann t\u00f3k \u00fe\u00e1 hina elstu \u00ed sta\u00f0num og \u00feyrna og \u00feistla \u00ed ey\u00f0im\u00f6rku og l\u00e9t f\u00f3lki\u00f0 \u00ed S\u00fak\u00f3t kenna \u00e1 \u00feeim. Og \u00feann kastala \u00ed Pn\u00fael braut hann ni\u00f0ur en drap f\u00f3lki\u00f0 \u00ed sta\u00f0num.<\/p>\n<p>\tEftir \u00feetta sag\u00f0i hann til Seba og Salm\u00fana: &#8222;Hvernin voru \u00feeir menn \u00ed h\u00e1tt sem \u00fe\u00e9r \u00ed hel sl\u00f3gu\u00f0 \u00ed Tabor?&#8220; \u00deeir sv\u00f6ru\u00f0u: &#8222;\u00deeir voru \u00fe\u00e9r l\u00edkir og hver \u00feeirra so pr\u00fd\u00f0ilegur sem k\u00f3ngson v\u00e6ri.&#8220; Hann sag\u00f0i: &#8222;\u00dea\u00f0 voru m\u00ednir br\u00e6\u00f0ur, synir minnar m\u00f3\u00f0ur. Svo sannlega sem Drottinn lifir: Hef\u00f0u\u00f0 \u00fe\u00e9r l\u00e1ti\u00f0 \u00fe\u00e1 lifa \u00fe\u00e1 skylda eg ekki hafa slegi\u00f0 ykkur \u00ed hel.&#8220; Og hann sag\u00f0i til s\u00edns frumgetins sonar Jeter: &#8222;Statt upp og drep \u00fe\u00e1.&#8220; En sveinninn dr\u00f3 ei sitt sver\u00f0 \u00fat \u00fev\u00ed hann \u00f3tta\u00f0ist s\u00f6kum \u00feess a\u00f0 hann var enn\u00fe\u00e1 barn a\u00f0 aldri. Seba og Salm\u00fana s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Statt \u00fe\u00fa upp og vinn \u00e1 okkur \u00fev\u00ed a\u00f0 afl fylgir aldri mannsins.&#8220; \u00de\u00e1 st\u00f3\u00f0 Gideon upp og sl\u00f3 Seba og Salm\u00fana b\u00e1\u00f0a \u00ed hel og t\u00f3k \u00fe\u00e6r spangir sem voru um h\u00e1ls \u00feeirra \u00falfalda.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 t\u00f6lu\u00f0u nokkrir af \u00cdsrael til Gideon: &#8222;Vert \u00fe\u00fa herra yfir oss, \u00fe\u00fa og \u00feinn son og \u00feinn sonarson, s\u00f6kum \u00fees a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur frelsa\u00f0 oss af h\u00f6ndum \u00feeirra Madianiter. En Gideon svara\u00f0i \u00feeim: &#8222;Eigi vil eg vera herra y\u00f0ar, minn son skal og enginn herra yfir y\u00f0ur vera, heldur Drottinn, hann skal vera herra yfir y\u00f0ur.&#8220;<\/p>\n<p>\tGideon sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Eins hlutar bei\u00f0unst eg af y\u00f0ur a\u00f0 hver y\u00f0ar einn gefi m\u00e9r \u00fe\u00e6r ennisspengur sem hann hefur a\u00f0 herfangi fengi\u00f0.&#8220; \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feeir \u00cdsmael\u00edtar h\u00f6f\u00f0u gullhla\u00f0ir um enni. \u00deeir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;\u00de\u00e6r viljum v\u00e9r gefa \u00fe\u00e9r.&#8220; Og \u00feeir breiddu ni\u00f0ur eitt kl\u00e6\u00f0i og lag\u00f0i hver einn og einn \u00fear upp \u00e1 \u00fe\u00e6r ennisspengur sem hann haf\u00f0i fengi\u00f0. En \u00feessar ennisspengur sem hann eftirba\u00f0st v\u00f3gu eftir r\u00e9ttri vigt \u00fe\u00fasundru\u00f0 og sj\u00f6 hundru\u00f0 secel gulls fyrir utan \u00fe\u00e6r spangir og ke\u00f0jur og skarlatskl\u00e6\u00f0i sem \u00feeir Madianiter k\u00f3ngar b\u00e1ru og so \u00e1n \u00feeirra h\u00e1lsbanda sem \u00feeirra rei\u00f0skj\u00f3tar b\u00e1ru. Og af \u00feessu gj\u00f6r\u00f0i Gideon einn l\u00edfkyrtil og setti hann \u00ed sinn sta\u00f0 til Ofra. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gedeonis l\u00edfkyrtill \u00ed Ofra\">[<\/span> Og allur \u00cdsrael framdi h\u00f3r \u00fear me\u00f0 og \u00fea\u00f0 var\u00f0 Gideoni og hans h\u00fasi til <span class=\"athugasemd\" title=\"sword Falls\">[<\/span> hneykslunar.<\/p>\n<p>\tSo l\u00e6g\u00f0ist ofstopi \u00feeirra Madianitis fyrir \u00cdsraelssonum svo \u00feeir h\u00f3fu ekki meir upp sitt h\u00f6fu\u00f0. Og landi\u00f0 var kyrrt um fj\u00f6rut\u00edgi \u00e1r, svo lengi sem Gideon lif\u00f0i.<\/p>\n<p>\tOg Jer\u00fabbaal son J\u00f3as f\u00f3r og bj\u00f3 \u00ed s\u00ednu h\u00fasi. Og Gideon haf\u00f0i sj\u00f6t\u00edgi sonu sem komnir voru af hans lendum \u00fev\u00ed hann \u00e1tti margar konur. <span class=\"athugasemd\" title=\"70 synir Gideons\">[<\/span> Og hans frilla sem hann haf\u00f0i \u00ed S\u00edkem f\u00e6ddi honum einn son og kalla\u00f0i hann Ab\u00edmelek. Og Gideon son J\u00f3as anda\u00f0ist \u00ed g\u00f3\u00f0ri elli og var jar\u00f0a\u00f0ur \u00ed s\u00edns f\u00f6\u00f0urs gr\u00f6f, J\u00f3as \u00ed Ofra, sem heyr\u00f0i til \u00feeirra fau\u00f0ur Efriter. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gideon andast\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tEftir fr\u00e1fall Gedeonis \u00fe\u00e1 sneru s\u00e9r \u00cdsraelssynir og fr\u00f6mdu h\u00f3ranir eftir Baal\u00edm og gj\u00f6r\u00f0u s\u00e9r Baal Berit til eins afgu\u00f0s. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00d3\u00feakkl\u00e6ti f\u00f3lksins\">[<\/span> Og \u00cdsraelssynir minntust ekki \u00e1 Drottin sinn Gu\u00f0 \u00feann sem \u00fe\u00e1 haf\u00f0i frelsa\u00f0 af alra \u00feeirra \u00f3vina hendi allt um kring og \u00feeir veittu \u00f6ngva miskunn Jer\u00fabbaal Gideons h\u00fasi so sem hann haf\u00f0i \u00fe\u00f3 allt gott gj\u00f6rt Israelis h\u00fasi.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>VIII. Og \u00feeir menn af Efra\u00edm s\u00f6g\u00f0u til hans: &#8222;\u00dev\u00ed gj\u00f6r\u00f0ir \u00fe\u00fa svo a\u00f0 \u00fe\u00fa vildir ekki kalla oss \u00fe\u00e1 \u00fe\u00fa f\u00f3rst \u00ed \u00feetta str\u00ed\u00f0 \u00ed m\u00f3t \u00feeim Madianitis?&#8220; Og \u00feeir \u00fer\u00e1ttu\u00f0u har\u00f0lega vi\u00f0 hann. \u00de\u00e1 sag\u00f0i hann til \u00feeirra: &#8222;Hva\u00f0 hefi eg \u00feess gj\u00f6rt sem jafnast m\u00e1 vi\u00f0 y\u00f0ar gj\u00f6rninga? Er ekki einn v\u00ednkvistur betri af Efra\u00edm heldur en \u00f6ll v\u00ednyrkja Ab\u00edeser? Drottinn hefur gefi\u00f0 h\u00f6f\u00f0ingja \u00feeirra Madianitis, \u00d3reb og Seb, \u00ed y\u00f0ar hendur. Hvernin m\u00e1tta eg gj\u00f6ra \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 gj\u00f6rt?&#8220; Og \u00fe\u00e1 hann haf\u00f0i \u00fea\u00f0 tala\u00f0 stilltist \u00feeirra rei\u00f0i. En \u00feegar a\u00f0 Gideon kom til J\u00f3rdanar <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/domarabokin-8-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2911","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2911","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2911"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2911\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2911"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}