{"id":2908,"date":"2017-12-18T18:32:04","date_gmt":"2017-12-18T18:32:04","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/domarabokin-5-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:04","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:04","slug":"domarabokin-5-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/domarabokin-5-kafli\/","title":{"rendered":"D\u00f3marab\u00f3kin 5. kafli"},"content":{"rendered":"<p>V.<\/p>\n<p>&#8222;Lofi\u00f0 Drottin a\u00f0 \u00cdsrael er frelsa\u00f0ur aftur og a\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 var so velviljugt \u00fear til.<\/p>\n<p>\tHeyri\u00f0 til \u00fe\u00e9r k\u00f3ngar og g\u00e6ti\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00e9r h\u00f6f\u00f0ingjar. Eg vil syngja Drottni, j\u00e1, \u00cdsraels Gu\u00f0i vil eg syngja lofi.<\/p>\n<p>\tDrottinn, \u00fe\u00e1 \u00fe\u00fa reistir \u00fat af Se\u00edr og gekkst fr\u00e1 Ed\u00f3msv\u00f6llum \u00fe\u00e1 bifa\u00f0ist j\u00f6r\u00f0in, himnarnir og sk\u00fdin drupu me\u00f0 vatni.<\/p>\n<p>\tFj\u00f6llinn runnu fyrir Drottni, sj\u00e1lft S\u00edna\u00ed fyrir Drottni \u00cdsraels Gu\u00f0i.<\/p>\n<p>\t\u00c1 t\u00edma Samgar sonar Amat, \u00ed Jael t\u00edma, forgengu vegirnir og \u00feeir sem ganga skyldu \u00e1 r\u00e9ttum stigum \u00feeir gengu kr\u00f3k\u00f3tta vegu.<\/p>\n<p>\t\u00dear \u00feraut, \u00fear \u00feraut b\u00e6ndur \u00ed \u00cdsrael \u00fear til eg Deb\u00f3ra uppkom, \u00fear til eg uppkom ein m\u00f3\u00f0ir \u00ed \u00cdsrael.<\/p>\n<p>\tGu\u00f0 hefur \u00fatvali\u00f0 eitt n\u00fdtt, hann hefur borgarhli\u00f0in innteki\u00f0, \u00fear var hverki skj\u00f6ldur n\u00e9 spj\u00f3t \u00e1 millum fj\u00f6rut\u00edgi \u00fe\u00fasunda \u00ed \u00cdsrael.<\/p>\n<p>\tMitt hjarta hefur lyst til \u00cdsraels stj\u00f3rnara sem voru viljugir \u00e1 me\u00f0al f\u00f3lksins.<\/p>\n<p>\tLofi\u00f0 Drottin \u00fe\u00e9r sem r\u00ed\u00f0i\u00f0 f\u00f6grum \u00f6snum, \u00fe\u00e9r sem sitji\u00f0 \u00ed d\u00f3minum, og syngi\u00f0 \u00fe\u00e9r sem gangi\u00f0 \u00e1 veginum.<\/p>\n<p>\t\u00dear sem bogmennirnir hr\u00f3pa \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra e\u00f0 vatni\u00f0 ausa, \u00fear segja menn af Drottins r\u00e9ttl\u00e6ti, af hans b\u00e6nda r\u00e9ttl\u00e6ti \u00ed \u00cdsrael. \u00de\u00e1 fer\u00f0a\u00f0ist Gu\u00f0s f\u00f3lk ni\u00f0ur til portanna.<\/p>\n<p>\tUpp, upp Deb\u00f3ra, upp, upp, og syng eina v\u00edsu. Tak \u00feig upp Barak og fanga \u00fe\u00fa \u00fe\u00e1 sem \u00feig vildu fanga, \u00fe\u00fa son Ab\u00edn\u00f3am.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 drottnu\u00f0u \u00feeir fyrirlitnu yfir \u00fea\u00f0 megtuga f\u00f3lk, Drottinn hefur stj\u00f3rna\u00f0 fyrir mig yfir \u00fe\u00e1 voldugu.<\/p>\n<p>\tAf Efra\u00edm var \u00feeirra r\u00f3t \u00ed m\u00f3t Amalek og eftir \u00feig Benjam\u00edn \u00ed \u00fe\u00ednu f\u00f3lki.<\/p>\n<p>\tAf Mak\u00edr eru komnir stj\u00f3rnendur og af Seb\u00falon \u00feeir e\u00f0 drottna fyrir skriffja\u00f0rir.<\/p>\n<p>\tOg h\u00f6f\u00f0ingjar af \u00cdsaskar voru me\u00f0 Deb\u00f3ra og \u00cdsaskar var sem Barak \u00ed l\u00e6g\u00f0irnar \u00fatsendur me\u00f0 s\u00ednum f\u00f3tg\u00f6ngurum, R\u00faben h\u00e9lt miki\u00f0 af s\u00e9r og skildi sig fr\u00e1 oss.<\/p>\n<p>\tHvar fyrir ert \u00fe\u00fa \u00e1 millum sau\u00f0ah\u00fasanna a\u00f0 heyra jarm hjar\u00f0arinnar og \u00fe\u00fa h\u00e9lst miki\u00f0 af \u00fe\u00e9r og skildir \u00feig fr\u00e1 oss? <\/p>\n<p>\tG\u00edlea\u00f0 var hinumegin J\u00f3rdanar og \u00fev\u00ed bj\u00f3 Dan \u00e1 millum skipanna? Asser sat vi\u00f0 sj\u00e1varh\u00f6fn og var \u00ed s\u00ednum ni\u00f0urbrotnum \u00feorpum.<\/p>\n<p>\tEn f\u00f3lk Seb\u00falon h\u00e6tti s\u00ednum s\u00e1lum \u00ed dau\u00f0a og Neftal\u00ed \u00e1 \u00feeim h\u00e6\u00f0um \u00ed m\u00f6rkinni.<\/p>\n<p>\tK\u00f3ngarnir komu og herju\u00f0u, \u00fe\u00e1 herju\u00f0u og \u00feeir Cananiterk\u00f3ngar \u00ed Tahanak hj\u00e1 Meg\u00eddd\u00f3vatni en \u00feeir unnu \u00fear \u00f6ngvan sigur.<\/p>\n<p>\tAf himinum var barist \u00ed m\u00f3ti \u00feeim, stj\u00f6rnurnar \u00ed sinni r\u00e1s str\u00edddu \u00ed m\u00f3t S\u00edssera.<\/p>\n<p>\t\u00deeir l\u00e6kir \u00ed K\u00edson umveltu \u00feeim, l\u00e6kurinn Ked\u00fam\u00edn, l\u00e6kurinn K\u00edson.<\/p>\n<p>\tM\u00edn s\u00e1l st\u00e9 yfir \u00fe\u00e1 styrku, \u00fe\u00e1 bifu\u00f0ust hestaf\u00e6turnir af mistrausti \u00feeirra sterkra riddara.<\/p>\n<p>\tB\u00f6lvi\u00f0 \u00feeim sta\u00f0 Mer\u00f3s sag\u00f0i Gu\u00f0s engill, b\u00f6lvi\u00f0 hans borgurum, \u00fev\u00ed \u00feeir komu ekki Drottni til hj\u00e1lpar, j\u00e1, Drottni til hj\u00e1lpar \u00ed m\u00f3ti risunum.<\/p>\n<p>\tBlessu\u00f0 veri Jael \u00e1 me\u00f0al kvennanna, kona Heber \u00feess Cheniter, blessu\u00f0 s\u00e9 h\u00fan \u00ed tjaldb\u00fa\u00f0unum \u00e1 me\u00f0al kvennanna.<\/p>\n<p>\tH\u00fan gaf mj\u00f3lk \u00fe\u00e1 hann ba\u00f0 um vatn og bar smj\u00f6r fram \u00ed einnri fordildarlegri sk\u00e1l.<\/p>\n<p>\tH\u00fan t\u00f3k naglann \u00ed s\u00edna h\u00f6nd og smi\u00f0shamarinn me\u00f0 sinni h\u00e6gri h\u00f6nd<\/p>\n<p>\tog sl\u00f3 S\u00edssera \u00ed gegnum sitt h\u00f6fu\u00f0, h\u00fan leita\u00f0i h\u00f6ggsta\u00f0ar og \u00ed gegnum bora\u00f0i hans gagnaugu.<\/p>\n<p>\tFyrir hennar f\u00f3tum beyg\u00f0i hann sig, f\u00e9ll ni\u00f0ur og lag\u00f0i sig. Hann beyg\u00f0i sig og f\u00e9ll ni\u00f0ur fyrir hennar f\u00e6tur, l\u00edka sem hann beyg\u00f0i sig so l\u00e1 hann fallinn.<\/p>\n<p>\tS\u00edssera m\u00f3\u00f0ir s\u00e1 \u00fat um vinduga\u00f0 og gr\u00e9t \u00ed gegnum grindurnar: \u00dev\u00ed tefur hans vagn a\u00f0 hann kemur ekki? \u00dev\u00ed eru hj\u00f6lin hans vagna so sein? <\/p>\n<p>\t\u00de\u00e6r v\u00edsustu \u00e1 millum hans kvenna sv\u00f6ru\u00f0u \u00fe\u00e1 h\u00fan l\u00e9t ekki af a\u00f0 harma: Skulu \u00feeir ekki finna og herfanginu \u00fatskipta? S\u00e9rhverjum manni \u00fe\u00e1 v\u00e6nstu kvinnu eina e\u00f0a tv\u00e6r til b\u00fdtis og S\u00edssera mislitu\u00f0um st\u00f6ngu\u00f0um kl\u00e6\u00f0um til b\u00fdtis, st\u00f6ngu\u00f0um mislitum kl\u00e6\u00f0um um \u00feeirra h\u00e1ls til b\u00fdtis.<\/p>\n<p>\tSo skulu, Drottinn, allir \u00fe\u00ednir \u00f3vinir fyrirfarast. En \u00feeir sem elska \u00feig skulu vera l\u00edka sem s\u00f3laruppr\u00e1s \u00ed sinni magt.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg landi\u00f0 var kyrrt \u00ed fj\u00f6rut\u00edgi \u00e1r.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>V. &#8222;Lofi\u00f0 Drottin a\u00f0 \u00cdsrael er frelsa\u00f0ur aftur og a\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 var so velviljugt \u00fear til. Heyri\u00f0 til \u00fe\u00e9r k\u00f3ngar og g\u00e6ti\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00e9r h\u00f6f\u00f0ingjar. Eg vil syngja Drottni, j\u00e1, \u00cdsraels Gu\u00f0i vil eg syngja lofi. Drottinn, \u00fe\u00e1 \u00fe\u00fa reistir \u00fat af Se\u00edr og gekkst fr\u00e1 Ed\u00f3msv\u00f6llum \u00fe\u00e1 bifa\u00f0ist j\u00f6r\u00f0in, himnarnir og sk\u00fdin drupu me\u00f0 vatni. Fj\u00f6llinn runnu fyrir Drottni, sj\u00e1lft S\u00edna\u00ed fyrir Drottni \u00cdsraels Gu\u00f0i. \u00c1 t\u00edma Samgar sonar Amat, \u00ed Jael t\u00edma, forgengu vegirnir og \u00feeir sem ganga skyldu \u00e1 r\u00e9ttum stigum \u00feeir gengu kr\u00f3k\u00f3tta vegu. \u00dear \u00feraut, \u00fear \u00feraut b\u00e6ndur \u00ed \u00cdsrael \u00fear til eg Deb\u00f3ra uppkom, <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/domarabokin-5-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2908","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2908","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2908"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2908\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2908"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}