{"id":2906,"date":"2017-12-18T18:32:04","date_gmt":"2017-12-18T18:32:04","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/domarabokin-3-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:04","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:04","slug":"domarabokin-3-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/domarabokin-3-kafli\/","title":{"rendered":"D\u00f3marab\u00f3kin 3. kafli"},"content":{"rendered":"<p>II.<\/p>\n<p>\u00deessir eru \u00feeir hei\u00f0ingjar sem Drottinn l\u00e9t eftir vera a\u00f0 reyna me\u00f0 \u00cdsrael sem ekki par vissu af Kanaans bard\u00f6gum og a\u00f0 \u00cdsraelssona \u00e6ttkv\u00edslir l\u00e6r\u00f0u a\u00f0 berjast \u00feeir sem \u00e1\u00f0ur vissu \u00fear ekki af, sem er \u00feeir fimm Philisteis h\u00f6f\u00f0ingjar og allir Cananiter og Sidoniter og Heviter sem bjuggu hj\u00e1 fjallinu L\u00edbanon fr\u00e1 \u00fev\u00ed fjalli Baal Hermon og all til \u00feess a\u00f0 komi\u00f0 er a\u00f0 Hemat. <span class=\"athugasemd\" title=\"Hei\u00f0ingjar sem eftir ur\u00f0u \u00e1 me\u00f0al \u00cdsrael \/ Num. 33 \/ Deut. 7\">[<\/span> \u00deessir s\u00f6mu voru eftir so a\u00f0 \u00cdsrael skyldi reynast me\u00f0 \u00feeim so \u00fea\u00f0 m\u00e6tti opinbert ver\u00f0a hvort \u00feeir vildu hl\u00fd\u00f0a bo\u00f0or\u00f0um Drottins sem hann haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 \u00feeirra forfe\u00f0rum fyrir Mosen.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 \u00cdsraelssynir bjuggu so \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra Cananiter, Hetiter, Amoriter, Pheresiter, Heviter og Jebusiter \u00fe\u00e1 t\u00f3ku \u00feeir \u00feeirra d\u00e6tur s\u00e9r til eiginkvenna og g\u00e1fu \u00feeirra sonum s\u00ednar d\u00e6tur og \u00fej\u00f3nu\u00f0u \u00feeirra afgu\u00f0um og gj\u00f6r\u00f0u \u00fea\u00f0 sem Drottni misl\u00edka\u00f0i og gleymdu Drottni \u00feeirra Gu\u00f0i og \u00fej\u00f3nu\u00f0u Baal\u00edm og Astar\u00f3t og uppkveiktu so Gu\u00f0s rei\u00f0i yfir \u00cdsrael og hann felldi \u00fe\u00e1 undir K\u00fasan R\u00edsata\u00edm k\u00f3ng \u00ed Mesopotamia. <span class=\"athugasemd\" title=\"Syndir \u00cdsraels \/ Deut. 7; 13\">[<\/span> <span class=\"athugasemd\" title=\"K\u00fasan R\u00edsata\u00edm\">[<\/span> Og \u00cdsraelssynir \u00fej\u00f3nu\u00f0u K\u00fasan R\u00edsata\u00edm \u00ed \u00e1tta \u00e1r.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 kalla\u00f0i \u00cdsrael til Drottins og Drottinn uppvakti \u00feeim einn hj\u00e1lparmann sem \u00fe\u00e1 frelsa\u00f0i, Atn\u00edel son Kenas, hver a\u00f0 var Kalebs yngsti br\u00f3\u00f0ir. <span class=\"athugasemd\" title=\"Atn\u00edel d\u00f3mari \u00ed \u00cdsrael xl \u00e1r\">[<\/span> Og Gu\u00f0s andi var me\u00f0 honum og hann var d\u00f3mari \u00ed \u00cdsrael. Hann reisti \u00fat a\u00f0 str\u00ed\u00f0a og Gu\u00f0 gaf K\u00fasan R\u00edsata\u00edm k\u00f3nginn af Siria \u00ed hans h\u00f6nd og hans h\u00f6nd var\u00f0 honum yfirsterkari. So var landi\u00f0 um kyrrt \u00ed fj\u00f6rut\u00edgi \u00e1r. Og Atn\u00edel son Kenas dey\u00f0i.<\/p>\n<p>\tEn \u00cdsraelssynir gj\u00f6r\u00f0u enn illa hluti \u00ed augliti Drottins so a\u00f0 Drottinn gaf styrk Eglon sem a\u00f0 var k\u00f3ngur \u00ed M\u00f3ab \u00ed m\u00f3t \u00cdsrael fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir gj\u00f6r\u00f0u \u00fea\u00f0sem Drottni misl\u00edka\u00f0i. <span class=\"athugasemd\" title=\"Eglon\">[<\/span> Og hann safna\u00f0i sonum Am\u00f3n til s\u00edn og \u00feeim Amalechitis og hann fer\u00f0a\u00f0ist af sta\u00f0 og sl\u00f3 \u00cdsrael og t\u00f3k \u00feann p\u00e1lmasta\u00f0 fr\u00e1 \u00feeim. Og \u00feeir \u00cdsraelssynir \u00fej\u00f3nu\u00f0u Eglon M\u00f3absk\u00f3ngi \u00ed \u00e1tj\u00e1n \u00e1r. \u00de\u00e1 hr\u00f3pu\u00f0u \u00feeir til Drottins og Drottinn uppvakti \u00feeim einn frelsara sem h\u00e9t Eh\u00fa\u00f0 son Gera, sonar Jem\u00edn\u00ed; hann var \u00f6rvhentur.  <\/p>\n<p>\tOg \u00fea\u00f0 ske\u00f0i svo a\u00f0 \u00cdsraelssynir sendu Eglon M\u00f3absk\u00f3ngi g\u00e1fur me\u00f0 honum. En Eh\u00fa\u00f0 l\u00e9t sm\u00ed\u00f0a s\u00e9r eitt tv\u00edeggja\u00f0 sver\u00f0, einnrar \u00e1lnar langt, og batt \u00fea\u00f0 undir sitt yfirkl\u00e6\u00f0i \u00e1 \u00fev\u00ed h\u00e6gra l\u00e6ri og f\u00e6r\u00f0i so k\u00f3nginum \u00feessar skenkingar. En Eglon var mj\u00f6g feitur ma\u00f0ur.<\/p>\n<p>\tOg sem hann haf\u00f0i afhent k\u00f3nginum \u00feessar g\u00e1fur \u00fe\u00e1 l\u00e9t hann f\u00f3lki\u00f0 fr\u00e1 s\u00e9r sem g\u00e1furnar h\u00f6f\u00f0u bori\u00f0 og sneri s\u00e9r fr\u00e1 Gilgal \u00fear e\u00f0 afgu\u00f0inn var aftur til k\u00f3ngsins og l\u00e9t segja honum: &#8222;Eg hefi, k\u00f3ngur, nokku\u00f0 heimuglegt a\u00f0 segja \u00fe\u00e9r.&#8220; En hann ba\u00f0 a\u00f0 gefa hlj\u00f3\u00f0 og \u00feeir allir gengu \u00fat fr\u00e1 honum sem \u00ed kringum hann st\u00f3\u00f0u.\t<\/p>\n<p>\tOg Eh\u00fa\u00f0 kom inn til k\u00f3ngsins en hann sat \u00ed s\u00ednum sumarsal. Og Eh\u00fa\u00f0 sag\u00f0i: &#8222;Eg hefi Gu\u00f0s or\u00f0 til \u00fe\u00edn.&#8220; \u00de\u00e1 st\u00f3\u00f0 k\u00f3ngurinn upp \u00far s\u00ednu s\u00e6ti. En Eh\u00fa\u00f0 \u00fatr\u00e9tti s\u00edna vinstri h\u00f6nd og greip sver\u00f0i\u00f0 sem h\u00e9kk \u00e1 hans h\u00e6gra l\u00e6ri og lag\u00f0i framan \u00ed kvi\u00f0 k\u00f3ngi so \u00fea\u00f0 gekk allt upp yfir hj\u00f6ltun og \u00edsturin huldu hj\u00f6ltin (\u00fev\u00ed hann dr\u00f3 ekki sver\u00f0i\u00f0 aftur af hans kvi\u00f0i) og saurinn spr\u00e6ndi fram af kvi\u00f0num. En Eh\u00fa\u00f0 gekk \u00fat af salnum og l\u00e9t aftur dyrnar eftir s\u00e9r og sl\u00f3 \u00feeim \u00ed l\u00e1s.<\/p>\n<p>\tOg sem hann var \u00fatgenginn \u00fe\u00e1 komu k\u00f3ngsins \u00fe\u00e9narar inn og s\u00e1u a\u00f0 dyrnar \u00e1 sumarsalnum voru afturluktar og s\u00f6g\u00f0u hver til annars: &#8222;Ske m\u00e1 a\u00f0 k\u00f3ngurinn s\u00e9 genginn til nau\u00f0synjaerinda sinna \u00ed n\u00e1\u00f0h\u00fasi\u00f0 hj\u00e1 sumarsalnum.&#8220; En sem \u00feeir bi\u00f0u so lengi \u00fear til \u00feeim leiddist, \u00fev\u00ed enginn lauk upp dyrunum \u00e1 salnum, \u00fe\u00e1 t\u00f3ku \u00feeir lyklana og luku upp. Og sj\u00e1, \u00fe\u00e1 l\u00e1 \u00feeirra herra dau\u00f0ur \u00e1 g\u00f3lfinu. En Eh\u00fa\u00f0 komst undan \u00e1 me\u00f0an \u00feeir st\u00f6ldru\u00f0u og gekk framhj\u00e1 bl\u00f3th\u00fasinu og komst til Se\u00edrat.<\/p>\n<p>\tOg sem hann kom inn \u00feanga\u00f0 l\u00e9t hann kve\u00f0a vi\u00f0 l\u00fa\u00f0ra \u00e1 Efra\u00edmfjalli. Og \u00cdsraelsf\u00f3lk dreif til hans og fylgdu honum af fjallinu og hann f\u00f3r undan \u00feeim og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Fylgi\u00f0 m\u00e9r eftir \u00fev\u00ed Drottinn hefur gefi\u00f0 y\u00f0ur \u00fe\u00e1 Moabiter y\u00f0ar \u00f3vini \u00ed y\u00f0ar hendur.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Moabiter ver\u00f0a slegnir af \u00cdsrael\">[<\/span> Og \u00feeir fylgdu honum eftir og \u00feeir t\u00f3ku \u00f6ll v\u00f6\u00f0 \u00e1 J\u00f3rdan sem l\u00e1u til M\u00f3ab og l\u00e9tu \u00f6ngvan mann komast yfir um og sl\u00f3gu \u00fe\u00e1 Moabiter \u00e1 \u00feeim t\u00edma, n\u00e6r t\u00edu \u00fe\u00fasund menn, alla saman \u00fe\u00e1 inu bestu og hraustustu str\u00ed\u00f0smenn, so a\u00f0 \u00fear komst ekki einn undan. So ur\u00f0u M\u00f3abs innbyggjarar l\u00e6g\u00f0ir fyrir \u00cdsraelsf\u00f3lki \u00e1 \u00feeim t\u00edma. Og landi\u00f0 hv\u00edldist \u00ed \u00e1ttat\u00edgi \u00e1r.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed n\u00e6st var Samgar son Anat. <span class=\"athugasemd\" title=\"Samgar\">[<\/span> Hann sl\u00f3 sex hundru\u00f0 Philisteos me\u00f0 einu pl\u00f3gj\u00e1rni og hann frelsa\u00f0i einnin \u00cdsrael.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>II. \u00deessir eru \u00feeir hei\u00f0ingjar sem Drottinn l\u00e9t eftir vera a\u00f0 reyna me\u00f0 \u00cdsrael sem ekki par vissu af Kanaans bard\u00f6gum og a\u00f0 \u00cdsraelssona \u00e6ttkv\u00edslir l\u00e6r\u00f0u a\u00f0 berjast \u00feeir sem \u00e1\u00f0ur vissu \u00fear ekki af, sem er \u00feeir fimm Philisteis h\u00f6f\u00f0ingjar og allir Cananiter og Sidoniter og Heviter sem bjuggu hj\u00e1 fjallinu L\u00edbanon fr\u00e1 \u00fev\u00ed fjalli Baal Hermon og all til \u00feess a\u00f0 komi\u00f0 er a\u00f0 Hemat. [ \u00deessir s\u00f6mu voru eftir so a\u00f0 \u00cdsrael skyldi reynast me\u00f0 \u00feeim so \u00fea\u00f0 m\u00e6tti opinbert ver\u00f0a hvort \u00feeir vildu hl\u00fd\u00f0a bo\u00f0or\u00f0um Drottins sem hann haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 \u00feeirra forfe\u00f0rum fyrir Mosen. \u00de\u00e1 \u00cdsraelssynir <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/domarabokin-3-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2906","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2906","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2906"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2906\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2906"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}