{"id":2904,"date":"2017-12-18T18:32:04","date_gmt":"2017-12-18T18:32:04","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/domarabokin-1-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:04","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:04","slug":"domarabokin-1-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/domarabokin-1-kafli\/","title":{"rendered":"D\u00f3marab\u00f3kin 1. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Liber Judicum<\/p>\n<p>D\u00f3maranna b\u00f3k<\/p>\n<p>I. <\/p>\n<p>Eftir andl\u00e1t J\u00f3s\u00faa leitu\u00f0u \u00cdsraelssynir r\u00e1\u00f0s til Drottins og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Hver \u00e1 me\u00f0al vor skal vera vor hersh\u00f6f\u00f0ingi \u00e1 m\u00f3ti \u00feeim Cananeis?&#8220; Drottinn svara\u00f0i: &#8222;Hann skal J\u00fada vera. Sj\u00e1i\u00f0, eg hefi gefi\u00f0 landi\u00f0 \u00ed hans hendur.&#8220; \u00de\u00e1 sag\u00f0i J\u00fada til s\u00edns br\u00f3\u00f0urs S\u00edmeon: &#8222;Far upp me\u00f0 m\u00e9r \u00ed mitt hlutskipti og brejunst vi\u00f0 Cananeum. S\u00ed\u00f0an vil eg reisa me\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00ed \u00feitt hlutskipti.&#8220; Og S\u00edmeon f\u00f3r me\u00f0 honum.<\/p>\n<p>\tOg sem J\u00fada f\u00f3r upp \u00fe\u00e1 gaf Drottinn \u00fe\u00e1 Cananiter og Pheresiter \u00ed \u00feeirra hendur og \u00feeir sl\u00f3gu \u00ed Besek t\u00edu \u00fe\u00fasund manns. Og \u00feeir fundu Ad\u00f3m Besek \u00ed \u00feeim sta\u00f0 sem kalla\u00f0ist Besek og b\u00f6r\u00f0ust vi\u00f0 hann og sl\u00f3gu \u00fe\u00e1 Cananiter og Pheresiter. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ad\u00f3n\u00ed Besek\">[<\/span> En Ad\u00f3n\u00ed Besek fl\u00fd\u00f0i og \u00feeir s\u00f3ttu eftir honum. Og \u00fe\u00e1 \u00feeir n\u00e1\u00f0u honum hjuggu \u00feeir af honum hans \u00feumalfingur og \u00feumalt\u00e6r, af h\u00f6ndum og f\u00f3tum. \u00de\u00e1 sag\u00f0i Ad\u00f3n\u00ed Besek: &#8222;Sj\u00f6t\u00edgi k\u00f3ngar me\u00f0 afh\u00f6ggnum \u00feumalt\u00e1m \u00e1 h\u00f6ndum og f\u00f3tum hafa samanlesi\u00f0 matleifar undir m\u00ednu bor\u00f0i. L\u00edka sem eg hefi gj\u00f6rt \u00f6\u00f0rum svo hefur Gu\u00f0 l\u00e1ti\u00f0 endurgjalda m\u00e9r.&#8220; Og \u00feeir fluttu hann til Jer\u00fasalem. \u00dear anda\u00f0ist hann.<\/p>\n<p>\tEn J\u00fadasynir str\u00edddu \u00e1 Jer\u00fasalem og unnu hana og sl\u00f3gu hennar innbyggjara me\u00f0 sver\u00f0seggjum og settu eld \u00ed borgina. <span class=\"athugasemd\" title=\"Jer\u00fasalem\">[<\/span> Og eftir \u00fea\u00f0 fer\u00f0u\u00f0ust J\u00fadasynir ofan og b\u00f6r\u00f0ust vi\u00f0 \u00fe\u00e1 Cananiter sem bjuggu \u00e1 fjallbygg\u00f0um og \u00ed su\u00f0ur\u00e1tt og einnin \u00ed dall\u00f6ndunum.<\/p>\n<p>\tOg J\u00fada dr\u00f3 \u00ed m\u00f3t \u00feeim Cananitis sem bjuggu \u00ed Hebron (en Hebron kalla\u00f0ist \u00ed fyrri t\u00ed\u00f0 Kirjat Arba) og sl\u00f3 Sesa\u00ed og Ah\u00ednam og Talma\u00ed. Og hann fer\u00f0a\u00f0ist \u00fea\u00f0an m\u00f3t \u00feeim innbyggjurunum \u00ed Deb\u00edr (en Deb\u00edr kalla\u00f0ist for\u00f0um Kirjat Sefer). Og Kaleb sag\u00f0i: &#8222;Hver s\u00e1 sem sl\u00e6r og vinnur Kirjat Sefer, \u00feeim skal eg gefa m\u00edna d\u00f3ttir Aksa til eiginkvinnu.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Caleb\">[<\/span> En Atn\u00edel sonur Kenas, Kaleb yngsti br\u00f3\u00f0ir, yfirvann borgina og hann gaf honum s\u00edna d\u00f3ttir Aksa til eiginkvinnu. <span class=\"athugasemd\" title=\"Aksa \/ Atn\u00edel\">[<\/span> Og \u00fea\u00f0 ske\u00f0i so \u00fe\u00e1 h\u00fan fer\u00f0a\u00f0ist heim var henni r\u00e1\u00f0lagt a\u00f0 h\u00fan skyldi bi\u00f0ja eins akurlendis af s\u00ednum f\u00f6\u00f0ur. Og h\u00fan f\u00e9ll af asnanum. Kaleb hennar fa\u00f0ir sag\u00f0i \u00fe\u00e1 til hennar: &#8222;Hva\u00f0 brestur \u00feig?&#8220; H\u00fan svara\u00f0i: &#8222;Gef m\u00e9r eina blessan \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur gefi\u00f0 m\u00e9r eitt \u00feurrlendi. Gef m\u00e9r og v\u00f6kva\u00f0a j\u00f6r\u00f0.&#8220; \u00de\u00e1 gaf hann henni v\u00f6kva\u00f0a j\u00f6r\u00f0 b\u00e6\u00f0i ofarlega og ne\u00f0arlega.<\/p>\n<p>\tOg \u00feeir Keniter synir sem var m\u00e1gur M\u00f3ses dr\u00f3gu upp fr\u00e1 p\u00e1lmast\u00f6\u00f0unum me\u00f0 sonum J\u00fada til J\u00fadaey\u00f0imerkur sem liggur \u00ed su\u00f0ur, m\u00f3ts vi\u00f0 sta\u00f0inn Arad, og f\u00f3ru \u00feanga\u00f0 og bjuggu hj\u00e1 \u00fev\u00ed f\u00f3lki. <span class=\"athugasemd\" title=\"Num. 10 \/ Exod. 18\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tEn J\u00fada fer\u00f0a\u00f0ist me\u00f0 s\u00ednum br\u00f3\u00f0ur Simeone og \u00feeir sl\u00f3gu \u00fe\u00e1 Cananiter \u00ed Sefat og foreyddu \u00feeim og k\u00f6llu\u00f0u sta\u00f0ina Harma. H\u00e9r me\u00f0 vann J\u00fada Gassa me\u00f0 \u00fev\u00ed sem henni fylgdi og Asklon me\u00f0 \u00fev\u00ed sem henni tilheyrir og Ekron me\u00f0 \u00fev\u00ed sem henni tilheyr\u00f0i. Og Drottinn var me\u00f0 J\u00fada so a\u00f0 hann eigna\u00f0ist allar fjallbygg\u00f0ir. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e1 gat hann ekki yfirunni\u00f0 sem \u00ed d\u00f6lunum bjuggu \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u j\u00e1rnvagna. Kaleb g\u00e1fu \u00feeir Ekron sem M\u00f3ses haf\u00f0i sagt og hann \u00fatr\u00fdmdi \u00fea\u00f0an \u00ferj\u00e1 sonu Enak\u00edm.<\/p>\n<p>\tEn synir Benjam\u00edn \u00fatdrifu ekki \u00fe\u00e1 Jebusiter sem a\u00f0 bjuggu \u00ed Jer\u00fasalem heldur bjuggu Jebusiter \u00ed Jer\u00fasalem hj\u00e1 Benjam\u00edn allt til \u00feessa dags.<\/p>\n<p>\tSo og f\u00f3ru synir J\u00f3sef upp til Betel og Drottinn var me\u00f0 \u00feeim. Og \u00feeir af J\u00f3sefs h\u00fasi nj\u00f3snu\u00f0u um Betel (hver a\u00f0 kalla\u00f0ist \u00ed fyrri t\u00ed\u00f0 L\u00fas) og var\u00f0haldsmennirnir fundu einn mann af sta\u00f0num ganganda og s\u00f6g\u00f0u til hans: &#8222;V\u00edsa \u00fe\u00fa oss hvar v\u00e9r megum komast \u00ed borgina, \u00fe\u00e1 viljum v\u00e9r s\u00fdna \u00fe\u00e9r miskunn.&#8220; En sem hann haf\u00f0i v\u00edsa\u00f0 \u00feeim \u00fear \u00feeir m\u00e1ttu \u00ed sta\u00f0inn koma \u00fe\u00e1 sl\u00f3gu \u00feeir sta\u00f0arins innbyggjara me\u00f0 sver\u00f0seggjum, utan \u00feennan mann me\u00f0 sinni \u00e6tt l\u00e9tu \u00feeir frj\u00e1lsan fara. Og s\u00e1 hinn sami ma\u00f0ur f\u00f3r \u00ed land \u00feeirra Hetiters og bygg\u00f0i \u00fear einn sta\u00f0 og kalla\u00f0i hann L\u00fas. Svo kallast hann allt til \u00feessa dags.<\/p>\n<p>\tOg Manasse afm\u00e1\u00f0i ekki Bet Seam me\u00f0 s\u00ednum d\u00e6trum, eigi heldur Taenakk me\u00f0 s\u00ednum d\u00e6trum og eigi \u00fe\u00e1 sem bjuggu \u00ed D\u00f3r me\u00f0 hennar \u00feorpum, eigi heldur \u00fe\u00e1 innbyggjara \u00ed Jebleam me\u00f0 hennar \u00feorpum, eigi heldur \u00fe\u00e1 sem bjuggu \u00ed Meg\u00eddd\u00f3 me\u00f0 hennar \u00feorpum. Og Cananiter t\u00f3ku til a\u00f0 b\u00faa \u00ed landinu. En sem \u00cdsrael efldist a\u00f0 styrk \u00fe\u00e1 gj\u00f6r\u00f0u \u00feeir Cananita skattgilda undir sig og \u00fatdrifu \u00fe\u00e1 ekki.<\/p>\n<p>\tEfra\u00edm \u00fatdrifu eigi heldur \u00fe\u00e1 Cananeos sem bjuggu \u00ed Gaser heldur l\u00e9tu \u00fe\u00e1 b\u00faa hj\u00e1 s\u00e9r \u00ed Gaser. Seb\u00falon \u00fatdreif og ekki heldur \u00fe\u00e1 innbyggjara \u00ed Kitr\u00f3n og Nahal\u00f3\u00ed heldur bjuggu Cananiter hj\u00e1 \u00feeim og voru skattgildir.<\/p>\n<p>\tAsser \u00fatdreif eigi heldur \u00fe\u00e1 innbyggjara \u00ed Ak\u00f3, eigi heldur \u00fe\u00e1 innbyggjara \u00ed S\u00eddon, \u00ed Ahelab, \u00ed Aks\u00edb, \u00ed Helba, \u00ed Ap\u00edk og \u00ed Reh\u00f3b, heldur bjuggu synir Asser me\u00f0 \u00feeim Cananitum sem voru \u00ed landinu \u00fev\u00ed \u00feeir \u00fatr\u00fdmdu \u00fe\u00e1 ekki.<\/p>\n<p>\tNeftal\u00ed \u00fatr\u00fdmdi eigi heldur \u00fe\u00e1 innbyggjara \u00ed Bet Semes, ei heldur \u00fe\u00e1 \u00ed Bet Ana, heldur bjuggu \u00feeir me\u00f0 Cananitum sem voru \u00ed landinu. En \u00feeir \u00ed Bet Semes og \u00ed Bet Anat voru skattgildir.<\/p>\n<p>\tOg \u00feeir Amor\u00edtar \u00ferengdu sonum Dan \u00e1 h\u00e6\u00f0unum og leyf\u00f0u \u00feeim ekki a\u00f0 koma ofan \u00ed dallendi\u00f0. Og \u00feeir Amor\u00edtar t\u00f3ku til a\u00f0 b\u00faa \u00e1 \u00fev\u00ed fjalli sem kallast Heres \u00ed Ajalon og \u00ed Saalb\u00edm. \u00de\u00f3 ur\u00f0u \u00feeirra hendur af J\u00f3sefs h\u00fasi \u00feeim \u00feungar og skattgiltu \u00fe\u00e1. En landamerki \u00feeirra Amoritarum voru \u00fear sem uppliggur til Akrab\u00edm fr\u00e1 steininum og fr\u00e1 h\u00e6\u00f0inni.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Liber Judicum D\u00f3maranna b\u00f3k I. Eftir andl\u00e1t J\u00f3s\u00faa leitu\u00f0u \u00cdsraelssynir r\u00e1\u00f0s til Drottins og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Hver \u00e1 me\u00f0al vor skal vera vor hersh\u00f6f\u00f0ingi \u00e1 m\u00f3ti \u00feeim Cananeis?&#8220; Drottinn svara\u00f0i: &#8222;Hann skal J\u00fada vera. Sj\u00e1i\u00f0, eg hefi gefi\u00f0 landi\u00f0 \u00ed hans hendur.&#8220; \u00de\u00e1 sag\u00f0i J\u00fada til s\u00edns br\u00f3\u00f0urs S\u00edmeon: &#8222;Far upp me\u00f0 m\u00e9r \u00ed mitt hlutskipti og brejunst vi\u00f0 Cananeum. S\u00ed\u00f0an vil eg reisa me\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00ed \u00feitt hlutskipti.&#8220; Og S\u00edmeon f\u00f3r me\u00f0 honum. Og sem J\u00fada f\u00f3r upp \u00fe\u00e1 gaf Drottinn \u00fe\u00e1 Cananiter og Pheresiter \u00ed \u00feeirra hendur og \u00feeir sl\u00f3gu \u00ed Besek t\u00edu \u00fe\u00fasund manns. Og \u00feeir fundu Ad\u00f3m <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/domarabokin-1-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2904","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2904","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2904"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2904\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2904"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}