{"id":2901,"date":"2017-12-18T18:32:04","date_gmt":"2017-12-18T18:32:04","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/josuabok-22-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:04","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:04","slug":"josuabok-22-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/josuabok-22-kafli\/","title":{"rendered":"J\u00f3s\u00faab\u00f3k 22. kafli"},"content":{"rendered":"<p>XXII.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 kalla\u00f0i J\u00f3s\u00faa \u00fe\u00e1 sonu R\u00faben og \u00fe\u00e1 sonu Ga\u00f0 og h\u00e1lfan kyn\u00fe\u00e1tt Manasse\u00e6ttar og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;\u00de\u00e9r hafi\u00f0 haldi\u00f0 allt \u00fea\u00f0 sem M\u00f3ses Gu\u00f0s \u00fe\u00e9nari bau\u00f0 y\u00f0ur og hafi\u00f0 hl\u00fdtt m\u00ednum or\u00f0um \u00ed \u00f6llu \u00fev\u00ed sem eg hefi bo\u00f0i\u00f0 y\u00f0ur. <span class=\"athugasemd\" title=\"Num. 32 \/ Deut. 5 \/ J\u00f3s\u00fa. 12\">[<\/span> \u00de\u00e9r hafi\u00f0 og ekki yfirgefi\u00f0 y\u00f0ar br\u00e6\u00f0ur \u00ed langan t\u00edma, allt til \u00feessa dags, og hafi\u00f0 skikka\u00f0 y\u00f0ur eftir Drottins y\u00f0ars Gu\u00f0s bo\u00f0i. Og n\u00fa s\u00f6kum \u00feess a\u00f0 Drottinn y\u00f0ar Gu\u00f0 hefur gefi\u00f0 y\u00f0rum br\u00e6\u00f0rum hv\u00edld sem hann \u00feeim lofa\u00f0i \u00fe\u00e1 hverfi\u00f0 aftur til y\u00f0ra tjaldb\u00fa\u00f0a \u00ed y\u00f0ar erf\u00f0alandi sem M\u00f3ses Gu\u00f0s \u00fe\u00e9nari gaf y\u00f0ur hinumegin J\u00f3rdanar.<\/p>\n<p>\tEn alleinasta haldi\u00f0 \u00fea\u00f0 me\u00f0 allri g\u00e6tni a\u00f0 \u00fe\u00e9r gj\u00f6ri\u00f0 eftir \u00feeim bo\u00f0or\u00f0um og l\u00f6gum sem M\u00f3ses Drottins \u00fe\u00e9nari bau\u00f0 y\u00f0ur a\u00f0 \u00fe\u00e9r elski\u00f0 Drottin y\u00f0ar Gu\u00f0 og gangi\u00f0 \u00ed hans vegum, geymi\u00f0 hans bo\u00f0or\u00f0 og haldi\u00f0 y\u00f0ur a\u00f0 honum af \u00f6llu hjarta og af allri s\u00e1lu.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Deut. 10\">[<\/span> Svo blessa\u00f0i J\u00f3s\u00faa \u00fe\u00e1 og l\u00e9t \u00fe\u00e1 fara. Og \u00feeir f\u00f3ru \u00ed burtu til sinna tjaldb\u00fa\u00f0a.<\/p>\n<p>\tM\u00f3ses haf\u00f0i gefi\u00f0 h\u00e1lfum kyn\u00fe\u00e6tti Manasses\u00e6ttar til eignar Basan. \u00deeim \u00f6\u00f0rum helmingi gaf J\u00f3s\u00faa \u00feessumegin J\u00f3rdanar \u00ed vestur \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra br\u00e6\u00f0ra. <span class=\"athugasemd\" title=\"Num. 32 \/ J\u00f3s\u00fa. 13 \/ I. Reg. 30\">[<\/span> \u00de\u00e1 hann l\u00e9t \u00fe\u00e1 fara til sinna tjaldb\u00fa\u00f0a og haf\u00f0i blessa\u00f0 \u00fe\u00e1 sag\u00f0i hann til \u00feeirra: &#8222;\u00de\u00e9r komi\u00f0 n\u00fa heim aftur til y\u00f0ra tjaldb\u00fa\u00f0a me\u00f0 miklum au\u00f0\u00e6fum, me\u00f0 miki\u00f0 f\u00e9; silfur, gull, kopar, j\u00e1rn og kl\u00e6\u00f0i. So \u00fatskipti\u00f0 n\u00fa \u00feessu hinu sama y\u00f0ar \u00f3vina herfangi me\u00f0 y\u00f0rum br\u00e6\u00f0rum.&#8220; Svo sneru \u00feeir Rubenitae, Gadditae, h\u00e1lf Manasse\u00e6tt aftur og skildu vi\u00f0 \u00cdsraelssonu \u00ed S\u00edl\u00f3 hver a\u00f0 liggur \u00ed Kanaanlandi og f\u00f3ru \u00ed land G\u00edlea\u00f0 til s\u00edns erf\u00f0alands hvert \u00feeir h\u00f6f\u00f0u fengi\u00f0 a\u00f0 erf\u00f0 eftir Drottins b\u00edfalningu fyrir Mosen.<\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00e1 \u00feeir komu til \u00feeirra steinh\u00e6\u00f0a hj\u00e1 J\u00f3rdan sem liggja \u00ed Kanaanlandi \u00fe\u00e1 bygg\u00f0u \u00feeir inu s\u00f6mu Rubenitae, Gadditae og h\u00e1lf Manasse\u00e6tt \u00fear hj\u00e1 J\u00f3rdan eitt miki\u00f0 pr\u00fd\u00f0ilegt altari. En \u00fe\u00e1 \u00cdsraelssynir \u00fea\u00f0 heyr\u00f0u s\u00f6g\u00f0u \u00feeir: &#8222;Sj\u00e1i\u00f0, synir R\u00faben, synir Ga\u00f0 og h\u00e1lf Manasse\u00e6tt hafa byggt eitt altari gagnvart Kanaanlandi hj\u00e1 \u00feeim steinhr\u00fagum vi\u00f0 J\u00f3rdan \u00e1 \u00feessa s\u00ed\u00f0u vi\u00f0 \u00cdsraelssonu.&#8220; S\u00ed\u00f0an s\u00f6fnu\u00f0ust \u00feeir saman \u00ed S\u00edl\u00f3 me\u00f0 \u00f6llum alm\u00faganum svo a\u00f0 \u00feeir fari upp \u00ed m\u00f3ti \u00feeim me\u00f0 her og sendu til \u00feeirra \u00ed G\u00edlea\u00f0land P\u00edneas son Eleasar kennimanns og me\u00f0 honum t\u00edu af \u00feeim \u00e6\u00f0stum h\u00f6f\u00f0ingjum af \u00feeirra f\u00f6\u00f0urs h\u00fasi, einn af hverju \u00cdsraelskyni. <span class=\"athugasemd\" title=\"P\u00edneas\">[<\/span> Og sem \u00feeir fundu \u00fe\u00e1 \u00ed G\u00edlea\u00f0landi t\u00f6lu\u00f0u \u00feeir til \u00feeirra og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Allur Drottins alm\u00fagi l\u00e6tur svo segja y\u00f0ur:<\/p>\n<p>\tHvar fyrir hafi \u00fe\u00e9r syndgast \u00ed m\u00f3ti \u00cdsraels Gu\u00f0i a\u00f0 \u00fe\u00e9r sneru\u00f0 y\u00f0ur \u00ed dag fr\u00e1 y\u00f0rum Drottni me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r bygg\u00f0u\u00f0 y\u00f0ur eitt altari og f\u00e9llu\u00f0 so fr\u00e1 Drottni? <span class=\"athugasemd\" title=\"Num. 25\">[<\/span> E\u00f0a eru Pe\u00f3r misgj\u00f6r\u00f0ir oss of litlar af hverjum v\u00e9r erum ekki enn hreinsa\u00f0ir \u00e1 \u00feessum degi og \u00fear kom ein pl\u00e1ga yfir Gu\u00f0s alm\u00faga? Og \u00fe\u00e9r sn\u00fai\u00f0 y\u00f0ur \u00ed dag fr\u00e1 vegi Drottins og eru\u00f0 fallnir \u00e1 \u00feessum degi fr\u00e1 y\u00f0rum Gu\u00f0i so a\u00f0 hann \u00ed dag e\u00f0ur \u00e1 morgun er rei\u00f0ur upp \u00e1 allan \u00cdsraelss\u00f6fnu\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00f3s\u00fa. 7\">[<\/span> Ef y\u00f0ur \u00feykir a\u00f0 y\u00f0art eigi\u00f0 land s\u00e9 \u00f3hreint \u00fe\u00e1 komi\u00f0 yfir \u00ed \u00feetta land Drottins \u00fear sem Gu\u00f0s tjaldb\u00fa\u00f0y stendur og taki\u00f0 y\u00f0arn erf\u00f0arpart \u00e1 me\u00f0al vor og falli\u00f0 hverki fr\u00e1 Drottni n\u00e9 fr\u00e1 oss so a\u00f0 \u00fe\u00e9r byggi\u00f0 y\u00f0ur eitt altari, ana\u00f0 heldur en Drottins vors Gu\u00f0s altari. Syndga\u00f0ist ekki Akan son Serha \u00e1 \u00fev\u00ed bannf\u00e6r\u00f0a og \u00fev\u00ed kom Gu\u00f0s rei\u00f0i yfir allan Israeliss\u00f6fnu\u00f0 svo hann galt ekki alleina s\u00edns misgj\u00f6rnings?&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 sv\u00f6ru\u00f0u synir R\u00faben og synir Ga\u00f0 og h\u00e1lf Manassekynkv\u00edsl og s\u00f6g\u00f0u til h\u00f6f\u00f0anna og h\u00f6f\u00f0ingja \u00cdsrael: &#8222;Drottinn, s\u00e1 sterki Gu\u00f0, Drottinn, s\u00e1 sterki Gu\u00f0 veit \u00fea\u00f0, svo veit \u00fea\u00f0 \u00cdsrael: Ef f\u00f6llum v\u00e9r fr\u00e1 e\u00f0a misgj\u00f6rum v\u00e9r \u00ed m\u00f3t Drottni \u00fe\u00e1 hj\u00e1lpi hann oss ekki \u00e1 \u00feessum degi. Ef v\u00e9r bygg\u00f0um \u00fea\u00f0 altari \u00fear fyrir a\u00f0 v\u00e9r vildum sn\u00faa oss fr\u00e1 Drottni a\u00f0 offra brennioffri e\u00f0a matoffri \u00fear yfir e\u00f0a a\u00f0 f\u00e6ra \u00feakkl\u00e6tisoffur \u00fear \u00e1 fyrir Drottni, \u00fe\u00e1 \u00fatkrefji hann \u00feess. Og h\u00f6fum v\u00e9r ekki heldur \u00fea\u00f0 gj\u00f6rt fyrir umhyggjusakir, segjandi: Y\u00f0ar synir mega segja til vorra sona \u00ed dag e\u00f0ur \u00e1 morgun: Hva\u00f0 hafi \u00fe\u00e9r a\u00f0 gj\u00f6ra me\u00f0 Drottin Israelis Gu\u00f0? \u00dev\u00ed a\u00f0 Drottinn hefur sett J\u00f3rdan til landamerkja \u00e1 me\u00f0al vor og y\u00f0ar sona R\u00faben og Ga\u00f0, \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 ekkert hlutskipti \u00ed Drottni. \u00dear me\u00f0 m\u00e6ttu y\u00f0ar synir v\u00edsa vorum sonum fr\u00e1 \u00f3tta Drottins.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed s\u00f6g\u00f0um v\u00e9r: L\u00e1tum oss byggja eitt altari, ekki til offurs, eigi heldur til brennif\u00f3rna, heldur a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 einn vitnisbur\u00f0ur \u00e1 millum y\u00f0ar og vor og vorra eftirkomenda a\u00f0 v\u00e9r megum gj\u00f6ra Gu\u00f0s \u00fej\u00f3nustu fyrir honum me\u00f0 vorum brennif\u00f3rnum, \u00feakkaroffri og \u00f6\u00f0rum f\u00f3rnf\u00e6ringum so y\u00f0ar synir \u00feurfa ekki a\u00f0 segja til vorra sona \u00ed dag e\u00f0ur \u00e1 morgun: \u00de\u00e9r hafi\u00f0 ekkert hlutskipti \u00ed Drottni. <span class=\"athugasemd\" title=\"Vitnisbur\u00f0araltari\">[<\/span> N\u00e6r \u00feeir vilja svo segja til vor e\u00f0a til vorra eftirkomenda \u00ed dag e\u00f0ur \u00e1 morgun \u00fe\u00e1 mega \u00feeir segja: Sj\u00e1i\u00f0 l\u00edking Drottins altaris sem vorir forfe\u00f0ur gj\u00f6r\u00f0u, eigi til offurs n\u00e9 til brennif\u00f3rnar, heldur til eins vitnisbur\u00f0ar \u00e1 millum vor og y\u00f0ar. \u00dea\u00f0 s\u00e9 langt fr\u00e1 oss a\u00f0 v\u00e9r skyldum falla fr\u00e1 Drottni a\u00f0 v\u00e9r vildum sn\u00faa oss \u00ed dag fr\u00e1 honum og uppbyggja oss eitt altari til brennif\u00f3rnar og til matoffurs og til annarra f\u00f3rna fyrir utan Drotins vors Gu\u00f0s altari hvert a\u00f0 stendur fyrir hans tjaldb\u00fa\u00f0.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00e1 P\u00edneas kennima\u00f0ur og \u00feeir \u00e6\u00f0stu alm\u00fagans h\u00f6f\u00f0ingjar \u00ed \u00cdsrael sem voru me\u00f0 honum heyr\u00f0u \u00feessi or\u00f0 sem synir R\u00faben og Ga\u00f0 og Manasse s\u00f6g\u00f0u \u00fe\u00e1 l\u00edka\u00f0i \u00feeim \u00fea\u00f0 vel. Og P\u00edneas son Eleasar kennimanns sag\u00f0i til sona R\u00faben, Ga\u00f0 og Manasses: &#8222;\u00cd dag merkjum v\u00e9r a\u00f0 Drottinn er \u00e1 me\u00f0al vor a\u00f0 \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 ekki syndga\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti Gu\u00f0i \u00ed \u00feessum misgj\u00f6rningi. N\u00fa hafi \u00fe\u00e9r frelsa\u00f0 Israelissonu af hendi Drottins.&#8220;<\/p>\n<p>\tSo fer\u00f0a\u00f0ist P\u00edneas son Eleasar kennimanns og \u00feeir ypp\u00f6stu af landi G\u00edlea\u00f0 fr\u00e1 sonum R\u00faben og Ga\u00f0 yfir um aftur \u00ed Kanaanland til \u00cdsraelssona og kunngj\u00f6r\u00f0u \u00feeim allt \u00feetta. En \u00cdsraelssonum \u00fe\u00f3kna\u00f0ist \u00fea\u00f0 vel og lofu\u00f0u Gu\u00f0 \u00cdsrael og s\u00f6g\u00f0ust ekki meir vilja draga upp \u00ed m\u00f3t \u00feeim me\u00f0 herli\u00f0 til a\u00f0 fordjarfa \u00fea\u00f0 land sem synir R\u00faben og Ga\u00f0 bjuggu \u00fati. Og synir R\u00faben og Ga\u00f0 k\u00f6llu\u00f0u \u00fea\u00f0 altari: &#8222;\u00dea\u00f0 s\u00e9 vitnisbur\u00f0ur \u00e1 millum vor og a\u00f0 Drottinn er Gu\u00f0.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Vitnisbur\u00f0araltari\">[<\/span><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>XXII. \u00de\u00e1 kalla\u00f0i J\u00f3s\u00faa \u00fe\u00e1 sonu R\u00faben og \u00fe\u00e1 sonu Ga\u00f0 og h\u00e1lfan kyn\u00fe\u00e1tt Manasse\u00e6ttar og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;\u00de\u00e9r hafi\u00f0 haldi\u00f0 allt \u00fea\u00f0 sem M\u00f3ses Gu\u00f0s \u00fe\u00e9nari bau\u00f0 y\u00f0ur og hafi\u00f0 hl\u00fdtt m\u00ednum or\u00f0um \u00ed \u00f6llu \u00fev\u00ed sem eg hefi bo\u00f0i\u00f0 y\u00f0ur. [ \u00de\u00e9r hafi\u00f0 og ekki yfirgefi\u00f0 y\u00f0ar br\u00e6\u00f0ur \u00ed langan t\u00edma, allt til \u00feessa dags, og hafi\u00f0 skikka\u00f0 y\u00f0ur eftir Drottins y\u00f0ars Gu\u00f0s bo\u00f0i. Og n\u00fa s\u00f6kum \u00feess a\u00f0 Drottinn y\u00f0ar Gu\u00f0 hefur gefi\u00f0 y\u00f0rum br\u00e6\u00f0rum hv\u00edld sem hann \u00feeim lofa\u00f0i \u00fe\u00e1 hverfi\u00f0 aftur til y\u00f0ra tjaldb\u00fa\u00f0a \u00ed y\u00f0ar erf\u00f0alandi sem M\u00f3ses Gu\u00f0s \u00fe\u00e9nari gaf y\u00f0ur hinumegin <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/josuabok-22-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2901","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2901","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2901"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2901\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2901"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}