{"id":2889,"date":"2017-12-18T18:32:00","date_gmt":"2017-12-18T18:32:00","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/josuabok-10-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:00","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:00","slug":"josuabok-10-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/josuabok-10-kafli\/","title":{"rendered":"J\u00f3s\u00faab\u00f3k 10. kafli"},"content":{"rendered":"<p>X.<\/p>\n<p>\u00deegar a\u00f0 Ad\u00f3n\u00edsedek k\u00f3ngurinn af Jer\u00fasalem heyr\u00f0i a\u00f0 J\u00f3s\u00faa haf\u00f0i unni\u00f0 A\u00ed og foreytt hana og gj\u00f6rt vi\u00f0 A\u00ed og henar k\u00f3ng sem hann haf\u00f0i gj\u00f6rt vi\u00f0 Jer\u00edk\u00f3 og k\u00f3ng hennar og a\u00f0 \u00feeir af G\u00edbeon h\u00f6f\u00f0u gj\u00f6rt fri\u00f0 vi\u00f0 \u00cdsraels og voru n\u00fa komnir me\u00f0al \u00feeirra, \u00fe\u00e1 sl\u00f3 yfir \u00fe\u00e1 mikilli hr\u00e6\u00f0slu og \u00f3tta (\u00fev\u00ed G\u00edbeon var einn megtugur sta\u00f0ur, eins svo sem konungleg borg og st\u00e6rri en A\u00ed og allir borgarar voru g\u00f3\u00f0ir str\u00ed\u00f0smenn). <span class=\"athugasemd\" title=\"Jer\u00fasalem\">[<\/span> \u00dev\u00ed sendi hann bo\u00f0 til H\u00f3ham k\u00f3ngsins \u00ed Hebron og til P\u00edream k\u00f3ngsins af Jarm\u00fat og til Jaf\u00eda k\u00f3ngsins af Lak\u00eds og til Deb\u00edr k\u00f3ngsins af Eglon og l\u00e9t segja \u00feeim: &#8222;Komi\u00f0 h\u00e9r upp til m\u00edn og veiti\u00f0 m\u00e9r styrk so v\u00e9r m\u00e6ttum sl\u00e1 G\u00edbeon \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir \u00ed G\u00edbeon hafa gj\u00f6rt fri\u00f0 me\u00f0 J\u00f3s\u00faa og \u00cdsraelsl\u00fd\u00f0.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Adon\u00edxedek leitar styrkst \u00ed m\u00f3t Gibeonitis\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 komu \u00feessir fimm k\u00f3ngar Amoritis til samans: K\u00f3ngur Hebron, k\u00f3ngur Jarm\u00fat, k\u00f3ngur Lak\u00eds og k\u00f3ngur Eglon me\u00f0 k\u00f3nginum af Jer\u00fasalem me\u00f0 allan \u00feeirra her og settust um G\u00edbeon og str\u00edddu fast \u00e1 hana. En \u00feeir af G\u00edbeon sendu til J\u00f3s\u00faa \u00ed herb\u00fa\u00f0irnar \u00ed Gilgal og l\u00e9tu segja honum: &#8222;Sn\u00fa ekki \u00feinni h\u00f6nd fr\u00e1 \u00fe\u00ednum \u00fe\u00e9nurum. Kom \u00fe\u00fa sem fyrst upp hinga\u00f0 til vor a\u00f0 frelsa og hj\u00e1lpa oss. \u00dev\u00ed a\u00f0 allir k\u00f3ngar Amoritarum sem b\u00faa upp \u00e1 fjallbygg\u00f0um hafa samansafnast \u00e1 m\u00f3ti oss.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 J\u00f3s\u00faa f\u00e9kk \u00feessa or\u00f0sending \u00fe\u00e1 br\u00e1 hann strax vi\u00f0 og f\u00f3r fr\u00e1 Gilgal og allt hans str\u00ed\u00f0sf\u00f3lk me\u00f0 honum og allir inu bestu bardagamenn. Og Drottinn sag\u00f0i til J\u00f3s\u00faa: &#8222;Eigi skaltu \u00f3ttast \u00fe\u00e1 \u00fev\u00ed eg hefi gefi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00ed \u00fe\u00ednar hendur. Enginn af \u00feeim skal standast fyrir \u00fe\u00e9r.&#8220; So kom J\u00f3s\u00faa \u00e1 \u00fe\u00e1 \u00f3vara me\u00f0 br\u00e1\u00f0um bardaga \u00fev\u00ed a\u00f0 alla n\u00f3ttina \u00ed gegnum var hann \u00e1 fer\u00f0 fr\u00e1 Gilgal. En Drottinn l\u00e9t eina hr\u00e6\u00f0slu koma yfir \u00fe\u00e1 fyrir \u00cdsrael so a\u00f0 hann veitti \u00feeim miki\u00f0 slag \u00ed G\u00edbeon og rak \u00fe\u00e1 \u00e1 fl\u00f3tta \u00e1 \u00feann veg sem liggur til Bet H\u00f3ron og felldi \u00fe\u00e1 allt til Aseka og Makeda. <\/p>\n<p>\tEn sem \u00feeir h\u00e9ldu \u00e1 fl\u00f3tta undan \u00cdsrael og fl\u00fd\u00f0u \u00e1 \u00feann veg sem liggur ofan til Bet H\u00f3ron \u00fe\u00e1 l\u00e9t Drottinn st\u00f3ra haglsteina falla ofan af himninum yfir \u00fe\u00e1 allt til Aseka so a\u00f0 \u00fear af fengu menn bana. <span class=\"athugasemd\" title=\"St\u00f3rt hagl\">[<\/span> Og miklu fleiri d\u00f3u af \u00fev\u00ed sama hagli heldur en \u00cdsraelssynir felldu me\u00f0 sver\u00f0i.<\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00feessum sama degi \u00fe\u00e1 Drottinn haf\u00f0i gefi\u00f0 \u00fe\u00e1 Amoriter undir \u00cdsrael \u00fe\u00e1 tala\u00f0i J\u00f3s\u00faa til Drottins og sag\u00f0i a\u00f0 \u00e1heyranda \u00f6llum \u00cdsrael: &#8222;S\u00f3l, statt \u00fe\u00fa kyrr \u00ed G\u00edbeon og tungli\u00f0 \u00ed dalnum Ajalon.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"S\u00f3lin stendur kyrr \/ S\u00edrak 36 \/ Esa. 38\">[<\/span> \u00de\u00e1 st\u00f3\u00f0 s\u00f3lin og tungli\u00f0 kyrr \u00fear til a\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 haf\u00f0i hefnt s\u00edn \u00e1 s\u00ednum \u00f3vinum. Mun \u00fea\u00f0 ekki skrifa\u00f0 \u00ed B\u00f3k hins r\u00e9ttl\u00e1ta? So st\u00f3\u00f0 s\u00f3lin mitt \u00e1 himninum svo a\u00f0 h\u00fan gekk ekki \u00feann allan dag. Og \u00fear var enginn dagur \u00feessum l\u00edkur, hverki \u00e1\u00f0ur n\u00e9 s\u00ed\u00f0an, \u00fe\u00e1 Drottinn hl\u00fdddi svo eins manns raust. \u00dev\u00ed a\u00f0 Drottinn bar\u00f0ist fyrir \u00cdsrael.<\/p>\n<p>\tEftir \u00feetta dr\u00f3 J\u00f3s\u00faa aftur til sinna herb\u00fa\u00f0a \u00ed Gilgal og allur \u00cdsrael me\u00f0 honum. En \u00feeir fimm k\u00f3ngar fl\u00fd\u00f0u og f\u00f6ldu sig \u00ed einum hellir hj\u00e1 Makkeda. \u00de\u00e1 fr\u00e9tti J\u00f3s\u00faa \u00fea\u00f0 a\u00f0 fundist hef\u00f0i \u00feeir fimm k\u00f3ngar faldir \u00ed einum hellir hj\u00e1 Makkeda. J\u00f3s\u00faa sag\u00f0i: &#8222;Fari\u00f0 og velti\u00f0 st\u00f3rum steinum fyrir hellismunnann og setji\u00f0 menn til a\u00f0 var\u00f0veita \u00fe\u00e1. En \u00fe\u00e9r veri\u00f0 ekki kyrrir heldur s\u00e6ki\u00f0 eftir y\u00f0rum \u00f3vinum og sl\u00e1i\u00f0 \u00fe\u00e1 sem seinastir eru og l\u00e1ti\u00f0 \u00fe\u00e1 ekki komast inn \u00ed s\u00ednar borgir \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn y\u00f0ar Gu\u00f0 hefur gefi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00ed y\u00f0ar hendur.&#8220; En \u00fe\u00e1 J\u00f3s\u00faa og \u00cdsraelssynir h\u00f6f\u00f0u enda\u00f0 \u00feann mikla bardaga \u00e1 \u00feeim og slegi\u00f0 \u00fe\u00e1 me\u00f0 \u00f6llu \u00fe\u00e1 komu \u00feeir sem fl\u00fa\u00f0i h\u00f6f\u00f0u af \u00feeim \u00ed s\u00edna fasta sta\u00f0i.<\/p>\n<p>\tEftir \u00feetta kom allt f\u00f3lki\u00f0 aftur til herb\u00fa\u00f0a til J\u00f3s\u00faa hj\u00e1 Makkeda me\u00f0 fri\u00f0i og enginn \u00feor\u00f0i a\u00f0 hr\u00e6ra s\u00edna tungu fyrir \u00cdsraelssonum. En J\u00f3s\u00faa sag\u00f0i: &#8222;Opni\u00f0 \u00feann hellismunnann og lei\u00f0i\u00f0 \u00fe\u00e1 fimm k\u00f3nga til m\u00edn.&#8220; \u00deeir gj\u00f6r\u00f0u svo og leiddu \u00feessa fimm k\u00f3nga til hans \u00far hellirnum, k\u00f3nginn af Jer\u00fasalem, k\u00f3nginn af Hebron, k\u00f3nginn af Jarm\u00fat, k\u00f3nginn af Lak\u00eds og k\u00f3nginn af Eglon.<\/p>\n<p>\tEn sem \u00feessir fimm k\u00f3ngar voru leiddir til J\u00f3s\u00faa \u00fe\u00e1 kalla\u00f0i hann saman allan \u00cdsraeliss\u00f6fnu\u00f0 og sag\u00f0i til h\u00f6f\u00f0ingjanna sem settir voru yfir str\u00ed\u00f0sf\u00f3lki\u00f0 \u00fea\u00f0 sem var me\u00f0 honum: &#8222;Komi\u00f0 hinga\u00f0 og fortro\u00f0i\u00f0 \u00feessa k\u00f3nga og gangi\u00f0 \u00e1 \u00feeirra h\u00e1lsa.&#8220; En \u00feeir gengu fram og stigu \u00e1 \u00feeirra h\u00e1lsa og f\u00f3ttr\u00e1\u00f0u \u00fe\u00e1. S\u00ed\u00f0an sag\u00f0i J\u00f3s\u00faa til \u00feeirra: &#8222;\u00d3ttist ekki og veri\u00f0 \u00f3hr\u00e6ddir, veri\u00f0 hughraustir og \u00f3efa\u00f0ir \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn skal so gj\u00f6ra vi\u00f0 alla y\u00f0ar \u00f3vini sem \u00fe\u00e9r berjist \u00ed m\u00f3ti.&#8220;<\/p>\n<p>\tS\u00ed\u00f0an sl\u00f3 J\u00f3s\u00faa \u00fe\u00e1 og l\u00e9t drepa \u00fe\u00e1 og hengdi \u00fe\u00e1 upp \u00e1 fimm eikur. Og \u00feeir h\u00e9ngu \u00ed eikunum allt til kvelds. <span class=\"athugasemd\" title=\"Fimm k\u00f3ngar hengdir af J\u00f3s\u00faa\">[<\/span> En a\u00f0 s\u00f3larfalli bau\u00f0 J\u00f3s\u00faa a\u00f0 taka \u00fe\u00e1 ni\u00f0ur af eikunum og kasta \u00feeim \u00ed \u00feann hellir sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u fali\u00f0 sig \u00ed og svo var gj\u00f6rt og \u00feeir b\u00e1ru st\u00f3ra steina fyrir hellismunnann og eru \u00feeir \u00fear enn n\u00fa \u00e1 \u00feessum degi. <\/p>\n<p>\tJ\u00f3s\u00faa vann og \u00feennan sama dag Makkeda og sl\u00f3 hennar innbyggjara me\u00f0 sver\u00f0seggjum, hann sl\u00f3 og hennar k\u00f3ng og allar s\u00e1lir sem \u00ed henni voru og l\u00e9t ekki mannsbarn eftir lifa. <span class=\"athugasemd\" title=\"Makkeda\">[<\/span> Og eins gj\u00f6r\u00f0i hann vi\u00f0 k\u00f3nginn af Makkeda sem hann haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur gj\u00f6rt vi\u00f0 k\u00f3nginn af Jer\u00edk\u00f3. <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00f3s\u00fa. 6\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tS\u00ed\u00f0an dr\u00f3 J\u00f3s\u00faa og allt Israelisf\u00f3lk me\u00f0 honum fr\u00e1 Makkeda til L\u00edbna og str\u00edddi \u00e1 hana. <span class=\"athugasemd\" title=\"L\u00edbna\">[<\/span> Og Drottinn gaf hana \u00ed \u00cdsraels hendur og so hennar k\u00f3ng. Og hann sl\u00f3 hana me\u00f0 sver\u00f0seggjum og allar s\u00e1lir sem \u00fear inni voru so \u00fe\u00e1 h\u00e9lt ekkert mannsbarn s\u00ednu l\u00edfi. Og hann gj\u00f6r\u00f0i eins vi\u00f0 \u00feennan k\u00f3ng sem hann gj\u00f6r\u00f0i vi\u00f0 k\u00f3nginn \u00ed Jer\u00edk\u00f3.<\/p>\n<p>\tS\u00ed\u00f0an dr\u00f3 J\u00f3s\u00faa og allur \u00cdsrael me\u00f0 honum fr\u00e1 L\u00edbna til Lak\u00eds, sl\u00f3 hervirki um hana og str\u00edddi \u00e1 hana. <span class=\"athugasemd\" title=\"Lak\u00eds\">[<\/span> Drottinn gaf og Lak\u00eds \u00ed \u00cdsraels hendur og \u00feeir unnu hana strax annars dags. Og \u00feeir sl\u00f3gu sta\u00f0arins innbyggjara me\u00f0 hv\u00f6ssu sver\u00f0i og allar s\u00e1lir sem \u00fear inni voru eins og hann haf\u00f0i gj\u00f6rt L\u00edbna. <\/p>\n<p>\t\u00c1 \u00feessum sama t\u00edma dr\u00f3 H\u00f3ram k\u00f3ngur af Geser upp til a\u00f0 hj\u00e1lpa Lak\u00eds. <span class=\"athugasemd\" title=\"H\u00f3ram\">[<\/span> En J\u00f3s\u00faa sl\u00f3 hann og allt hans f\u00f3lk so a\u00f0 \u00fear lif\u00f0i enginn eftir.<\/p>\n<p>\tS\u00ed\u00f0an dr\u00f3 J\u00f3s\u00faa fr\u00e1 Lak\u00eds me\u00f0 allan \u00cdsraelsher til Eglon og settist um hana og str\u00edddi \u00e1 hana og vann hana \u00e1 sama degi og sl\u00f3 hana me\u00f0 sver\u00f0seggjum og drap allar \u00fe\u00e6r s\u00e1lir sem \u00fear inni voru \u00feann sama dag eins og hann haf\u00f0i gj\u00f6rt Lak\u00eds. <span class=\"athugasemd\" title=\"Eglon\">[<\/span><\/p>\n<p>\tEftir \u00feetta f\u00f3r J\u00f3s\u00faa me\u00f0 allan Israelisher fr\u00e1 Eglon til Hebron og str\u00edddi \u00e1 hana og vann hana og sl\u00f3 hana me\u00f0 sver\u00f0seggjum, hennar k\u00f3ng og alla hennar sta\u00f0i og \u00fe\u00e6r allar s\u00e1lir sem \u00ed \u00feeim voru so ekki ein var\u00f0 eftir, eins og hann gj\u00f6r\u00f0i me\u00f0 Eglon, og foreyddu borgina og allar \u00fe\u00e6r s\u00e1lir sem \u00fear inni voru. <span class=\"athugasemd\" title=\"Hebron\">[<\/span><\/p>\n<p>\tOg eftir \u00feetta sneri J\u00f3s\u00faa aftur me\u00f0 \u00f6llum \u00cdsrael til Deb\u00edr og str\u00edddi \u00e1 hana og yfirvann hana og hennar k\u00f3ng og alla hennar sta\u00f0i og sl\u00f3 hana me\u00f0 bitru sver\u00f0i og foreyddi \u00fe\u00e6r allar s\u00e1lir sem \u00fear voru inni og l\u00e9t \u00f6ngvan eftir lifa. <span class=\"athugasemd\" title=\"Deb\u00edr\">[<\/span> Eins og hann gj\u00f6r\u00f0i me\u00f0 Hebron so gj\u00f6r\u00f0i hann og me\u00f0 Deb\u00edr og hennar k\u00f3ng og sem hann gj\u00f6r\u00f0i vi\u00f0 L\u00edbna og hennar k\u00f3ng.<\/p>\n<p>\tSo vann J\u00f3s\u00faa undir sig allt landi\u00f0 hi\u00f0 efra me\u00f0 fjallbygg\u00f0inni og \u00ed m\u00f3t su\u00f0ri og \u00ed d\u00f6lunum og hj\u00e1 v\u00f6tnunum me\u00f0 \u00f6llum \u00feeim k\u00f3ngum sem \u00feau r\u00edki h\u00e9ldu og l\u00e9t \u00f6ngvan lifa og foreyddi \u00f6llu \u00fev\u00ed sem l\u00edfsanda haf\u00f0i so sem Drottinn \u00cdsraels Gu\u00f0 haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Deut. 20\">[<\/span> Og hann sl\u00f3 alla \u00fe\u00e1 fr\u00e1 Kades Barnea og allt til Gasa og allt landi\u00f0 G\u00f3sen inn til G\u00edbeon og yfirvann alla \u00feessa k\u00f3ng me\u00f0 \u00f6llum \u00feeirra l\u00f6ndum \u00e1 einum t\u00edma. \u00dev\u00ed a\u00f0 Drottinn Israelis Gu\u00f0 bar\u00f0ist fyrir \u00cdsrael. Eftir \u00feetta f\u00f3r J\u00f3s\u00faa til sinna herb\u00fa\u00f0a aftur \u00ed Gilgal me\u00f0 allan \u00cdsrael.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>X. \u00deegar a\u00f0 Ad\u00f3n\u00edsedek k\u00f3ngurinn af Jer\u00fasalem heyr\u00f0i a\u00f0 J\u00f3s\u00faa haf\u00f0i unni\u00f0 A\u00ed og foreytt hana og gj\u00f6rt vi\u00f0 A\u00ed og henar k\u00f3ng sem hann haf\u00f0i gj\u00f6rt vi\u00f0 Jer\u00edk\u00f3 og k\u00f3ng hennar og a\u00f0 \u00feeir af G\u00edbeon h\u00f6f\u00f0u gj\u00f6rt fri\u00f0 vi\u00f0 \u00cdsraels og voru n\u00fa komnir me\u00f0al \u00feeirra, \u00fe\u00e1 sl\u00f3 yfir \u00fe\u00e1 mikilli hr\u00e6\u00f0slu og \u00f3tta (\u00fev\u00ed G\u00edbeon var einn megtugur sta\u00f0ur, eins svo sem konungleg borg og st\u00e6rri en A\u00ed og allir borgarar voru g\u00f3\u00f0ir str\u00ed\u00f0smenn). [ \u00dev\u00ed sendi hann bo\u00f0 til H\u00f3ham k\u00f3ngsins \u00ed Hebron og til P\u00edream k\u00f3ngsins af Jarm\u00fat og til Jaf\u00eda k\u00f3ngsins af Lak\u00eds og <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/josuabok-10-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2889","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2889","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2889"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2889\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2889"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}