{"id":2885,"date":"2017-12-18T18:32:00","date_gmt":"2017-12-18T18:32:00","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/josuabok-6-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:00","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:00","slug":"josuabok-6-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/josuabok-6-kafli\/","title":{"rendered":"J\u00f3s\u00faab\u00f3k 6. kafli"},"content":{"rendered":"<p>VI.<\/p>\n<p>En Jer\u00edk\u00f3 var l\u00e6st og rammbyggilega byrg\u00f0 fyrir \u00cdsraelissonum so a\u00f0 enginn m\u00e1tti \u00fear komast \u00fat n\u00e9 inn. <span class=\"athugasemd\" title=\"Jer\u00edk\u00f3 \/ J\u00f3s\u00faa 24\">[<\/span> Og Drottinn sag\u00f0i til J\u00f3s\u00faa: &#8222;Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, eg hefi gefi\u00f0 Jer\u00edk\u00f3 me\u00f0 hennar k\u00f3ngi og \u00f6llum her \u00ed \u00fe\u00ednar hendur. L\u00e1t allan \u00feinn her ganga \u00ed kringum sta\u00f0inn einu sinni \u00e1 degi og gj\u00f6r so \u00ed sex daga. En \u00e1 \u00feeim sj\u00f6unda degi \u00fe\u00e1 l\u00e1t prestana taka \u00fe\u00e1 sj\u00f6 fagna\u00f0ar\u00e1rsl\u00fa\u00f0ra fyrir \u00f6rkinni og gangi \u00e1 \u00feeim sj\u00f6unda degi sj\u00f6 sinnum \u00ed kringum sta\u00f0inn og l\u00e1t prestana \u00feeyta l\u00fa\u00f0rana. Og \u00fe\u00e1 bl\u00e1si\u00f0 er \u00ed fagna\u00f0ar\u00e1rshornin og \u00fe\u00e9r heyri\u00f0 dyninn \u00fe\u00e1 skal allt f\u00f3lki\u00f0 gj\u00f6ra eitt miki\u00f0 her\u00f3p. \u00de\u00e1 munu sta\u00f0arins m\u00farveggir hrynja ni\u00f0ur og f\u00f3lki\u00f0 skal falla inn \u00ed sta\u00f0inn, s\u00e9rhver \u00fear strax sem hann er staddur.&#8220;<\/p>\n<p>\tS\u00ed\u00f0an kalla\u00f0i J\u00f3s\u00faa prestana og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Beri\u00f0 s\u00e1ttm\u00e1ls\u00f6rkina og skikki\u00f0 sj\u00f6 presta til a\u00f0 bera sj\u00f6 fagna\u00f0ar\u00e1rsl\u00fa\u00f0rana undan \u00f6rk Drottins.&#8220; Og hann sag\u00f0i til f\u00f3lksins: &#8222;Fari\u00f0 og gangi\u00f0 \u00ed kringum sta\u00f0inn og s\u00e1 hver sem vopna\u00f0ur er gangi hann fram undan \u00f6rk Drottins.&#8220; Og sem J\u00f3s\u00faa haf\u00f0i sagt \u00feetta til f\u00f3lksins \u00fe\u00e1 b\u00e1ru \u00feeir sj\u00f6 prestar \u00fe\u00e1 sj\u00f6 fagna\u00f0ar\u00e1rsins l\u00fa\u00f0ra fyrir \u00f6rk Drottins, gengu og \u00feeyttu l\u00fa\u00f0rana, og s\u00e1ttm\u00e1ls\u00f6rk Drottins fylgdi eftir. Og \u00feeir sem herkl\u00e6ddir voru gengu undan prestunum \u00feeim sem l\u00fa\u00f0rana \u00feeyttu en \u00f6ll al\u00fe\u00fd\u00f0a \u00f6nnur eftirfylgdi \u00f6rkinni og bl\u00e9su \u00ed s\u00ednar b\u00e1s\u00fanur. En J\u00f3s\u00faa bau\u00f0 f\u00f3lkinu og sag\u00f0i: &#8222;\u00de\u00e9r skulu\u00f0 ekki gj\u00f6ra nokku\u00f0 h\u00e1reysti og l\u00e1ti\u00f0 ekki heyra til y\u00f0ar og ekki eitt or\u00f0 af y\u00f0ar munni fyrr en \u00e1 \u00feeim degi a\u00f0 eg segi til y\u00f0ar: \u00c6pi\u00f0 eitt her\u00f3p, so skulu \u00fe\u00e9r \u00e6pa eitt almennt her\u00f3p.&#8220;<\/p>\n<p>\tSo gekk n\u00fa \u00f6rk Drottins einu sinni \u00ed kringum borgina og kom aftur \u00ed herb\u00fa\u00f0irnar og var \u00fear. \u00dev\u00ed J\u00f3s\u00faa plaga\u00f0i a\u00f0 vera \u00e1rla uppi \u00e1 morna og prestarnir b\u00e1ru aurk Drottins. Og \u00feeir sj\u00f6 prestar b\u00e1ru \u00fe\u00e1 sj\u00f6 fagna\u00f0ar\u00e1rsl\u00fa\u00f0ra undan aurkinni og gengu so \u00feeytandi l\u00fa\u00f0rana. En \u00feeir sem vopna\u00f0ir voru gengu fyrir \u00feeim en al\u00fe\u00fd\u00f0an \u00f6ll gekk eftir aurk Drottins og bl\u00e9su \u00ed s\u00edna l\u00fa\u00f0ra. \u00deeir gengu og so \u00feann annan dag eitt sinn um sta\u00f0inn og komu \u00ed herb\u00fa\u00f0irnar aftur. So gj\u00f6r\u00f0u \u00feeir \u00ed sex daga.<\/p>\n<p>\tEn \u00feann sj\u00f6unda dag st\u00f3\u00f0u \u00feeir \u00e1rla upp \u00ed d\u00f6gun og gengu \u00ed kringum sta\u00f0inn sj\u00f6 sinnum eftir sama h\u00e6tti sem \u00e1\u00f0ur, so \u00feeir gengu sj\u00f6 sinnum \u00e1 \u00feessum einum degi \u00ed kringum sta\u00f0inn. <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00f3s. 2\">[<\/span> Og \u00e1 \u00feeirri sj\u00f6undu reisu sem prestarnir bl\u00e9su \u00ed s\u00ednar b\u00e1s\u00fanur, \u00fe\u00e1 sag\u00f0i J\u00f3s\u00faa til f\u00f3lksins: &#8222;\u00c6pi\u00f0 eitt her\u00f3p \u00fev\u00ed Drottinn hefur gefi\u00f0 y\u00f0ur sta\u00f0inn. En \u00feessi sta\u00f0ur og allt \u00fea\u00f0 sem er \u00ed honum skal vera bannf\u00e6rt fyrir Drottni. <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00f3s. 7\">[<\/span> Sk\u00e6kjan Rahab skal alleina s\u00ednu l\u00edfi halda og allir \u00feeir sem eru \u00ed hennar h\u00fasi \u00fev\u00ed h\u00fan fal \u00fe\u00e1 sendimenn sem \u00fat voru sendir af oss. En einskostar vakti\u00f0 y\u00f0ur fyrir \u00fev\u00ed bannf\u00e6r\u00f0a so \u00fe\u00e9r bannf\u00e6ri\u00f0 ekki y\u00f0ur sj\u00e1lfa ef \u00fe\u00e9r taki\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed nokkru sem b\u00f6lva\u00f0 er, \u00fe\u00e1 bannf\u00e6rast \u00cdsraels herb\u00fa\u00f0ir \u00fear me\u00f0 og koma \u00ed \u00f3lukku. En allt \u00fea\u00f0 silfur og gull, so og l\u00edka koparker og j\u00e1rnker, \u00fea\u00f0 skal vera heilagt fyrir Drottni so \u00fea\u00f0 megi vera herrans f\u00e9sj\u00f3\u00f0ur.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg f\u00f3lki\u00f0 \u00e6pti eitt miki\u00f0 her\u00f3p og bl\u00e9su \u00ed l\u00fa\u00f0rana. En sem allt f\u00f3lki\u00f0 heyr\u00f0i l\u00fa\u00f0rana gjalla \u00fe\u00e1 gj\u00f6r\u00f0i alm\u00faginn eitt miki\u00f0 her\u00f3p og m\u00farveggirnir um sta\u00f0inn hrundu ni\u00f0ur allt um kring so f\u00f3lki\u00f0 m\u00e1tti ganga \u00ed sta\u00f0inn \u00fea\u00f0 gegnsta sem hver var staddur. <span class=\"athugasemd\" title=\"M\u00farveggir Jer\u00edk\u00f3 hrynja ni\u00f0ur\">[<\/span> Og me\u00f0 \u00fev\u00edl\u00edkum h\u00e6tti unnu \u00feeir sta\u00f0inn og foreyddu \u00f6llu \u00fev\u00ed sem \u00ed sta\u00f0num var me\u00f0 sver\u00f0seggjum, b\u00e6\u00f0i m\u00f6nnum og konum, ungum og g\u00f6mlum, h\u00e9r me\u00f0 nautum og sau\u00f0um og \u00f6snum.<\/p>\n<p>\tS\u00ed\u00f0an sag\u00f0i J\u00f3s\u00faa til \u00feeirra tveggja manna sem sendir voru a\u00f0 nj\u00f3sna um landi\u00f0: &#8222;Fari\u00f0 \u00ed h\u00fas \u00feeirra lausakonu og lei\u00f0i\u00f0 hana \u00fat \u00fea\u00f0an me\u00f0 \u00f6llu \u00fev\u00ed sem henni tilkemur so sem \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 me\u00f0 ei\u00f0i lofa\u00f0.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Rahab\">[<\/span> Og \u00feeir s\u00f6mu nj\u00f3snarmenn gengu strax \u00feanga\u00f0 og leiddu Rahab \u00fat og so hennar f\u00f6\u00f0ur og m\u00f3\u00f0ur, hennar br\u00e6\u00f0ur og allt \u00fea\u00f0 sem henni tilkom me\u00f0 allri sinni \u00e6tt og l\u00e9tu hana vera fyrir utan \u00cdsraels herb\u00fa\u00f0ir.<\/p>\n<p>\tEn borgina alla uppbrenndu \u00feeir me\u00f0 eldi og allt \u00fea\u00f0 sem \u00ed henni var utan silfur og gull, kopar og j\u00e1rn, \u00fea\u00f0 l\u00f6g\u00f0u \u00feeir \u00ed f\u00e9sj\u00f3\u00f0inn \u00ed h\u00fas Drottins. En J\u00f3s\u00faa l\u00e9t Rahab \u00fe\u00e1 portkonu og hennar f\u00f6\u00f0urh\u00fas lifa og allt \u00fea\u00f0 henni tilheyr\u00f0i. <span class=\"athugasemd\" title=\"Rahab b\u00fdr me\u00f0al \u00cdsrael\">[<\/span> Og h\u00fan bj\u00f3 \u00e1 millum \u00cdsraels inn til \u00feessa dags \u00fear fyrir a\u00f0 h\u00fan fal \u00fe\u00e1 sendibo\u00f0a sem J\u00f3s\u00faa haf\u00f0i \u00fatsent a\u00f0 nj\u00f3sna um landi\u00f0.<\/p>\n<p>\tOg \u00e1 \u00feeim sama t\u00edma s\u00f3r J\u00f3s\u00faa og sag\u00f0i: &#8222;B\u00f6lva\u00f0ur s\u00e9 s\u00e1 ma\u00f0ur fyrir Drottni sem uppreisir og byggir \u00feennan sta\u00f0 Jer\u00edk\u00f3. <span class=\"athugasemd\" title=\"3 Reg. 16\">[<\/span> \u00deegar hann leggur hans grundv\u00f6ll \u00fe\u00e1 gildi \u00fea\u00f0 hans frumgetna son en \u00feegar hann setur hans port \u00fe\u00e1 kosti \u00fea\u00f0 hans yngsta son.&#8220; So var n\u00fa Gu\u00f0 me\u00f0 J\u00f3s\u00faa og um \u00f6ll l\u00f6nd barst hans rykti.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>VI. En Jer\u00edk\u00f3 var l\u00e6st og rammbyggilega byrg\u00f0 fyrir \u00cdsraelissonum so a\u00f0 enginn m\u00e1tti \u00fear komast \u00fat n\u00e9 inn. [ Og Drottinn sag\u00f0i til J\u00f3s\u00faa: &#8222;Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, eg hefi gefi\u00f0 Jer\u00edk\u00f3 me\u00f0 hennar k\u00f3ngi og \u00f6llum her \u00ed \u00fe\u00ednar hendur. L\u00e1t allan \u00feinn her ganga \u00ed kringum sta\u00f0inn einu sinni \u00e1 degi og gj\u00f6r so \u00ed sex daga. En \u00e1 \u00feeim sj\u00f6unda degi \u00fe\u00e1 l\u00e1t prestana taka \u00fe\u00e1 sj\u00f6 fagna\u00f0ar\u00e1rsl\u00fa\u00f0ra fyrir \u00f6rkinni og gangi \u00e1 \u00feeim sj\u00f6unda degi sj\u00f6 sinnum \u00ed kringum sta\u00f0inn og l\u00e1t prestana \u00feeyta l\u00fa\u00f0rana. Og \u00fe\u00e1 bl\u00e1si\u00f0 er \u00ed fagna\u00f0ar\u00e1rshornin og \u00fe\u00e9r heyri\u00f0 dyninn \u00fe\u00e1 skal <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/josuabok-6-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2885","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2885","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2885"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2885\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2885"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}