{"id":2883,"date":"2017-12-18T18:32:00","date_gmt":"2017-12-18T18:32:00","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/josuabok-4-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:00","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:00","slug":"josuabok-4-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/josuabok-4-kafli\/","title":{"rendered":"J\u00f3s\u00faab\u00f3k 4. kafli"},"content":{"rendered":"<p>IIII.<\/p>\n<p>Og Drottinn sag\u00f0i til J\u00f3s\u00faa: &#8222;\u00datvelji\u00f0 t\u00f3lf menn, einn af hverri \u00e6ttkv\u00edsl, og bj\u00f3\u00f0i\u00f0 \u00feeim og segi\u00f0: Taki\u00f0 upp t\u00f3lf steina af J\u00f3rdan \u00far \u00feeim sama sta\u00f0 sem prestarnir standa \u00e1 og beri\u00f0 \u00fe\u00e1 steina yfir um me\u00f0 y\u00f0ur og beri\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00ed \u00feann sta\u00f0 sem \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 vera \u00feessa n\u00f3tt.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"T\u00f3lf steinar uppreistir til minningar \/ Deut. 27\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 kalla\u00f0i J\u00f3s\u00faa t\u00f3lf menn sem til voru skikka\u00f0ir af \u00cdsraelssonum, sinn af hverri \u00e6ttkv\u00edsl, og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Gangi\u00f0 yfir um fyrir Drottins \u00f6rk mitt \u00ed J\u00f3rdan og taki sinn stein hver y\u00f0ar \u00e1 s\u00ednar axlir eftir \u00e6ttart\u00f6lu \u00cdsraelssona so \u00feeir s\u00e9 til merkis \u00e1 millum y\u00f0ar. \u00de\u00e1 y\u00f0ar b\u00f6rn spyrja s\u00edna fe\u00f0ur h\u00e9r a\u00f0 og segja: Hva\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0a \u00feessir steinar h\u00e9r? a\u00f0 \u00fe\u00e9r megi\u00f0 \u00fe\u00e1 segja \u00feeim hversu \u00e1in J\u00f3rdan skildist a\u00f0 fyrir Gu\u00f0s s\u00e1ttm\u00e1ls\u00f6rk \u00fe\u00e1 \u00feeir gengu \u00feurrum f\u00f3tum yfir um J\u00f3rdan, a\u00f0 \u00feessir steinar s\u00e9 \u00cdsraelssonum til \u00e6vinlegrar minningar.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 gj\u00f6r\u00f0u \u00cdsraelssynir sem J\u00f3s\u00faa bau\u00f0 \u00feeim og b\u00e1ru \u00fe\u00e1 t\u00f3lf steina mitt \u00far J\u00f3rdan so sem Drottinn sag\u00f0i til J\u00f3s\u00faa, eftir \u00e6ttkv\u00edslat\u00f6lu \u00cdsraelssona, og b\u00e1ru \u00fe\u00e1 me\u00f0 s\u00e9r yfir um allt til \u00feess sta\u00f0ar sem \u00feeir l\u00e1gu um n\u00f3ttina og l\u00e9tu \u00fe\u00e1 \u00fear vera. Og J\u00f3s\u00faa uppreisti t\u00f3lf steina mitt \u00ed J\u00f3rdanar farveg \u00fear sem prestanna f\u00e6tur st\u00f3\u00f0u sem b\u00e1ru s\u00e1ttm\u00e1lans \u00f6rkina og \u00feeir eru \u00fear enn n\u00fa \u00e1 \u00feessum degi. \u00dev\u00ed a\u00f0 kennimennirnir \u00feeir sem b\u00e1ru \u00f6rkina st\u00f3\u00f0u mitt \u00ed J\u00f3rdan \u00fear til a\u00f0 \u00fea\u00f0 var allt fullkomna\u00f0 sem Drottinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 J\u00f3s\u00faa a\u00f0 segja til f\u00f3lksins, svo sem M\u00f3ses haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur b\u00edfala\u00f0 J\u00f3s\u00faa. Og f\u00f3lki\u00f0 hra\u00f0a\u00f0i s\u00e9r og gekk yfir um.<\/p>\n<p>\tEn \u00feegar f\u00f3lki\u00f0 var n\u00fa allt saman yfir um komi\u00f0 \u00fe\u00e1 f\u00f3r og \u00f6rk Drottins yfir um og prestarnir undan f\u00f3lkinu. <span class=\"athugasemd\" title=\"Num. 32\">[<\/span> En \u00feeir synir R\u00faben og Ga\u00f0 og helftin af Manasses kyni gengu vopna\u00f0ir fyrir \u00cdsraelssonum, so sem M\u00f3ses haf\u00f0i sagt til \u00feeirra, n\u00e6r fj\u00f6rut\u00edgi \u00fe\u00fasundir b\u00fanir til bardaga, og \u00feeir gengu fyrir Drottni til a\u00f0 str\u00ed\u00f0a \u00e1 v\u00f6llum Jer\u00edk\u00f3. Og \u00e1 \u00feeim degi gj\u00f6r\u00f0i Drottinn J\u00f3s\u00faa vegsamlegan fyrir \u00f6llum \u00cdsrael og \u00feeir \u00f3ttu\u00f0ust hann so sem \u00feeir \u00f3ttu\u00f0ust M\u00f3sen alla hans daga.<\/p>\n<p>\tOg Drottinn sag\u00f0i til J\u00f3s\u00faa: &#8222;Bj\u00f3\u00f0 \u00fe\u00fa prestunum, \u00feeir sem bera vitnisbur\u00f0ar\u00f6rkina, a\u00f0 \u00feeir st\u00edgi upp \u00far J\u00f3rdan.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00f3rdanar straumur kemur aftur \u00ed sinn farveg\">[<\/span> Og J\u00f3s\u00faa bau\u00f0 \u00feeim \u00fea\u00f0 og sag\u00f0i: &#8222;Gangi\u00f0 \u00far J\u00f3rdan.&#8220; Og \u00fe\u00e1 prestarnir sem b\u00e1ru Drottins \u00f6rk komu upp \u00far J\u00f3rdan og stigu \u00e1 \u00feurrt land s\u00ednum f\u00f3tum \u00fe\u00e1 f\u00e9ll \u00e1in jafnsnart aftur \u00ed sinn farveg og rann so full upp \u00e1 bakka sem \u00e1\u00f0ur. Og \u00feetta ske\u00f0i \u00feann t\u00edunda dag \u00ed \u00feeim fyrsta m\u00e1na\u00f0i a\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 st\u00e9 upp \u00far J\u00f3rdan og setti s\u00ednar herb\u00fa\u00f0ir \u00ed Gilgal fyrir austan borgina Jer\u00edk\u00f3.<\/p>\n<p>\tOg J\u00f3s\u00faa setti \u00fe\u00e1 t\u00f3lf steina upp \u00ed Gilgal sem \u00feeir t\u00f3ku \u00far J\u00f3rdan og sag\u00f0i til \u00cdsraelssona: &#8222;\u00de\u00e1 y\u00f0ar b\u00f6rn spyrja s\u00edna fe\u00f0ur s\u00ed\u00f0ar meir og segja: Hva\u00f0 merkja \u00feessir steinar? \u00fe\u00e1 skulu \u00fe\u00e9r kunngj\u00f6ra \u00feeim \u00fea\u00f0 og segja: \u00cdsraelssynir gengu \u00feurrum f\u00f3tum yfir um J\u00f3rdan \u00e1 \u00feeim t\u00edma \u00fe\u00e1 Drottinn y\u00f0ar Gu\u00f0 l\u00e9t \u00e1na J\u00f3rdan \u00feurrkast fyrir y\u00f0ur \u00fear til \u00fe\u00e9r komust yfir um, so sem Drottinn y\u00f0ar Gu\u00f0 gj\u00f6r\u00f0i \u00ed Rau\u00f0ahafi \u00fe\u00e1 hann \u00feurrka\u00f0i \u00fea\u00f0 og so fyrir oss, so lengi sem v\u00e9r gengum \u00fear yfir um, so a\u00f0 allt f\u00f3lk \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni megi vi\u00f0urkenna h\u00f6nd Drottins, hva\u00f0 megtug h\u00fan er, so a\u00f0 \u00fe\u00e9r alla t\u00edma \u00f3ttist Drottin y\u00f0ar Gu\u00f0.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00f3s\u00faa uppreisir t\u00f3lf steina til eil\u00edfrar minningar \/ Exod. 14\">[<\/span><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>IIII. Og Drottinn sag\u00f0i til J\u00f3s\u00faa: &#8222;\u00datvelji\u00f0 t\u00f3lf menn, einn af hverri \u00e6ttkv\u00edsl, og bj\u00f3\u00f0i\u00f0 \u00feeim og segi\u00f0: Taki\u00f0 upp t\u00f3lf steina af J\u00f3rdan \u00far \u00feeim sama sta\u00f0 sem prestarnir standa \u00e1 og beri\u00f0 \u00fe\u00e1 steina yfir um me\u00f0 y\u00f0ur og beri\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00ed \u00feann sta\u00f0 sem \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 vera \u00feessa n\u00f3tt.&#8220; [ \u00de\u00e1 kalla\u00f0i J\u00f3s\u00faa t\u00f3lf menn sem til voru skikka\u00f0ir af \u00cdsraelssonum, sinn af hverri \u00e6ttkv\u00edsl, og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Gangi\u00f0 yfir um fyrir Drottins \u00f6rk mitt \u00ed J\u00f3rdan og taki sinn stein hver y\u00f0ar \u00e1 s\u00ednar axlir eftir \u00e6ttart\u00f6lu \u00cdsraelssona so \u00feeir s\u00e9 til merkis \u00e1 millum <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/josuabok-4-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2883","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2883","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2883"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2883\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2883"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}