{"id":2878,"date":"2017-12-18T18:32:00","date_gmt":"2017-12-18T18:32:00","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-33-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:00","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:00","slug":"fimmta-mosebok-33-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-33-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 33. kafli"},"content":{"rendered":"<p>\u00deessi er s\u00fa blessan me\u00f0 hverri a\u00f0 M\u00f3ses gu\u00f0sma\u00f0ur blessa\u00f0i \u00cdsraelsb\u00f6rn \u00e1\u00f0ur en hann dey\u00f0i, og sag\u00f0i: Drottinn er kominn af S\u00edna\u00ed og hann er \u00feeim af Se\u00edr upprunninn. Hann birtist af fjallinu Param og kom me\u00f0 margar \u00fe\u00fasundir heilagra. Til hans h\u00e6gri handar er eitt gl\u00f3andi l\u00f6gm\u00e1l til \u00feeirra. Hann elska\u00f0i f\u00f3lki\u00f0, allir hans heilagir eru \u00ed \u00feinn hendi, \u00feeir munu setja sig hj\u00e1 \u00fe\u00ednum f\u00f3tum og munu l\u00e6ra af \u00fe\u00ednum or\u00f0um. M\u00f3ses bau\u00f0 oss l\u00f6gm\u00e1li\u00f0, \u00feeirri arfleif\u00f0inni mannfj\u00f6ldans Jakobs. Og hann stj\u00f3rna\u00f0i so sem \u00fati einu konunglegu emb\u00e6tti og h\u00e9lt \u00feeim \u00e6\u00f0stu m\u00f6nnum f\u00f3lksins til samans og \u00feeim kynkv\u00edslum \u00cdsraels.<\/p>\n<p>\tR\u00faben skal lifa og ekki deyja og hans al\u00fe\u00fd\u00f0a skal f\u00e1 vera. <span class=\"athugasemd\" title=\"R\u00faben\">[<\/span><\/p>\n<p>\t\u00deessi er s\u00fa blessan J\u00fada og hann sag\u00f0i: Drottinn heyri raustina J\u00fada, l\u00e1ttu hann stj\u00f3rna s\u00ednu f\u00f3lki, l\u00e1ttu hans magt mikla vera og l\u00e1t hann f\u00e1 hj\u00e1lp \u00e1 m\u00f3ti s\u00ednum \u00f3vinum.<\/p>\n<p>\tOg hann sag\u00f0i til Lev\u00ed: \u00deinn r\u00e9ttur og \u00feitt lj\u00f3s skal vera hj\u00e1 \u00fe\u00ednum heilaga manni sem \u00fe\u00fa freista\u00f0ir \u00ed Massa, \u00fear e\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00fer\u00e1ttu\u00f0u\u00f0 hj\u00e1 M\u00f3tm\u00e6lisvatninu. <span class=\"athugasemd\" title=\"Lev\u00ed\">[<\/span> Hann segir til s\u00edns f\u00f6\u00f0urs og til sinnar m\u00f3\u00f0ur: \u00c9g s\u00e9 hann ekki, og til s\u00edns br\u00f3\u00f0urs: \u00c9g \u00feekki hann ekki, og til s\u00edns sonar: \u00c9g veit ekki af honum. \u00deeir h\u00e9ldu \u00fe\u00edn or\u00f0 og var\u00f0veittu \u00feinn s\u00e1ttm\u00e1la. \u00deeir munu l\u00e6ra Jakob \u00fe\u00edn r\u00e9ttindi og \u00cdsrael \u00feitt l\u00f6gm\u00e1l. \u00deeir skulu bera \u00fea\u00f0 reykelsi fyrir \u00fe\u00edn vit og algj\u00f6rt offur upp \u00e1 \u00feitt altari. Drottinn blessi hans megn, l\u00e1t \u00fe\u00e9r \u00fe\u00f3knast hans handaverk. Sundur sl\u00e1 \u00fe\u00fa \u00feeirra hrygg sem setja sig upp \u00e1 m\u00f3ti honum og \u00e1 \u00feeim sem hata hann so a\u00f0 \u00feeir reisi sig ekki upp. <\/p>\n<p>\tOg til Benjam\u00edns sag\u00f0i hann: \u00dea\u00f0 hi\u00f0 <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (Elskulega) \/ \u00dea\u00f0 er, musteri\u00f0 og Jer\u00fasalem og k\u00f3ngsetri\u00f0 var \u00ed Benjam\u00edns landseign\">[<\/span> elskulega Drottins skal b\u00faa tryggilega og hann skal allt\u00ed\u00f0 hl\u00edfa honum og han skal b\u00faa \u00e1 millum hans her\u00f0a. <span class=\"athugasemd\" title=\"Benjam\u00edn\">[<\/span><\/p>\n<p>\tOg til J\u00f3sef sag\u00f0i hann: Hans land liggur \u00ed blessan Drottins. <span class=\"athugasemd\" title=\"Efra\u00edm\">[<\/span> \u00dear eru e\u00f0la \u00e1vextir af himni, af d\u00f6gginni og af \u00feeim dj\u00fapunum sem \u00fear liggja undir ni\u00f0ri. \u00dear eru e\u00f0la \u00e1vextir af s\u00f3lunni og e\u00f0la fullgr\u00f3inn \u00e1v\u00f6xtur af tunglinu og af \u00feeim h\u00e1fj\u00f6llunum m\u00f3t austrinu og af \u00feeim sm\u00e1h\u00e6\u00f0unum \u00e6vinlegana og e\u00f0la \u00e1v\u00f6xtur af j\u00f6r\u00f0unni og hva\u00f0 sem \u00ed henni er. Hans blessan sem birtist \u00ed rj\u00f3\u00f0rinu komi yfir J\u00f3sefs h\u00f6fu\u00f0 og yfir hvirfil \u00feess Nasarei \u00e1 me\u00f0al hans br\u00e6\u00f0ra. <span class=\"athugasemd\" title=\"Manasse\">[<\/span> Hans fegur\u00f0arpr\u00fd\u00f0ing er l\u00edka sem eins frumgetins uxa og hans horn eru sem eins einhyrnings horn. Me\u00f0ur \u00feeim s\u00f6mu skal hann steyta f\u00f3lki\u00f0 til samans og allt til landsins enda. \u00dea\u00f0 eru \u00fe\u00fasundir Efra\u00edm og \u00fe\u00e6r \u00fe\u00fasundir Manasse.<\/p>\n<p>\tOg til Seb\u00falon sag\u00f0i hann: Gle\u00f0 \u00feig \u00fe\u00fa Seb\u00falon \u00ed \u00fe\u00ednum \u00fatgangi og \u00fe\u00fa \u00cdsaskar gle\u00f0 \u00feig \u00ed \u00fe\u00ednum landtj\u00f6ldum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Seb\u00falon \/ \u00cdsaskar\">[<\/span> \u00deeir skulu kalla f\u00f3lki\u00f0 upp \u00e1 fjalli\u00f0 og offra \u00fear \u00fev\u00ed r\u00e9ttl\u00e6tisins offri \u00fev\u00ed \u00feeir skulu sj\u00faga \u00fe\u00f3 yfirflj\u00f3tanlega gn\u00e6g\u00f0 sj\u00e1varhafsins og \u00fe\u00e1 ni\u00f0urs\u00f6kktu  f\u00e9sj\u00f3\u00f0una \u00ed sandinum.<\/p>\n<p>\tOg til Ga\u00f0 sag\u00f0i hann: Blessa\u00f0ur veri Gu\u00f0 sem \u00fatbrei\u00f0ir Ga\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ga\u00f0\">[<\/span> Hann liggur sem eitt le\u00f3n og r\u00e6nir armlegginn og h\u00f6fu\u00f0skelina. Og hann s\u00e1 a\u00f0 honum var gefi\u00f0 eitt h\u00f6fu\u00f0 og einn l\u00e6rifa\u00f0ir sem a\u00f0 hulinn er, s\u00e1 e\u00f0 kom me\u00f0 f\u00f3lksins h\u00f6f\u00f0ingjum \u00fatvega\u00f0i Drottins r\u00e9ttv\u00edsi og hans r\u00e9ttd\u00e6mi \u00ed \u00cdsrael. <\/p>\n<p>\tOg til Dan sag\u00f0i hann: Dan er eitt ungt le\u00f3n, hann mun flj\u00f3ta af Basan. <span class=\"athugasemd\" title=\"Dan\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tOg til Neftal\u00ed sag\u00f0i hann: Neftal\u00ed skal hafa gn\u00e6g\u00f0 hva\u00f0 honum vel l\u00edkar og mun saddur vera af blessan Drottins. <span class=\"athugasemd\" title=\"Neftal\u00ed\">[<\/span> \u00c1 m\u00f3t vestrinu og su\u00f0rinu skal hans eign vera.<\/p>\n<p>\tOg til Asser sag\u00f0i hann: Asser skal velsignast me\u00f0 sonum, hann skal s\u00ednum br\u00e6\u00f0rum \u00feakkn\u00e6mur vera og d\u00fdfa s\u00ednum f\u00e6ti \u00ed vi\u00f0smj\u00f6r, j\u00e1rn og kopar skal vera \u00e1 hans sk\u00f3f\u00f6tum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Asser\">[<\/span> \u00de\u00edn elli skal vera l\u00edka sem \u00feinn \u00e6skualdur.<\/p>\n<p>\t\u00dear er enginn Gu\u00f0 so sem s\u00e1 Gu\u00f0 r\u00e9ttd\u00e6misins hver e\u00f0 situr \u00e1 himnum uppi, han veri \u00fe\u00edn hj\u00e1lp. Hans d\u00fdr\u00f0 er \u00ed sk\u00fdjunum, \u00fear e\u00f0 er Gu\u00f0s b\u00fasta\u00f0ur fr\u00e1 upphafinu og \u00e1 me\u00f0al armleggjanna eil\u00edflegana. Og hann mun \u00fatdr\u00edfa \u00fe\u00edna \u00f3vini fyrir \u00fe\u00e9r og segja: Veri\u00f0 ey\u00f0ilag\u00f0ir. \u00cdsrael hann skal ugglaus b\u00faa, brunnur Jakobs skal vera \u00e1 \u00fev\u00ed landinu sem korn og v\u00edn er, \u00fear til me\u00f0 skal hans himinn drj\u00fapa af d\u00f6gg. S\u00e6ll ertu \u00cdsrael, hver er \u00feinn l\u00edki? Og \u00fe\u00fa f\u00f3lk sem a\u00f0 frelsast fyrir Drottinn sem er \u00feinn hj\u00e1lparskj\u00f6ldur og \u00feitt sigurvinningarsver\u00f0, \u00fe\u00ednir \u00f3vinir skulu l\u00e6kkast en \u00fe\u00fa skalt frambruna \u00e1 \u00feeirra h\u00e6\u00f0um.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deessi er s\u00fa blessan me\u00f0 hverri a\u00f0 M\u00f3ses gu\u00f0sma\u00f0ur blessa\u00f0i \u00cdsraelsb\u00f6rn \u00e1\u00f0ur en hann dey\u00f0i, og sag\u00f0i: Drottinn er kominn af S\u00edna\u00ed og hann er \u00feeim af Se\u00edr upprunninn. Hann birtist af fjallinu Param og kom me\u00f0 margar \u00fe\u00fasundir heilagra. Til hans h\u00e6gri handar er eitt gl\u00f3andi l\u00f6gm\u00e1l til \u00feeirra. Hann elska\u00f0i f\u00f3lki\u00f0, allir hans heilagir eru \u00ed \u00feinn hendi, \u00feeir munu setja sig hj\u00e1 \u00fe\u00ednum f\u00f3tum og munu l\u00e6ra af \u00fe\u00ednum or\u00f0um. M\u00f3ses bau\u00f0 oss l\u00f6gm\u00e1li\u00f0, \u00feeirri arfleif\u00f0inni mannfj\u00f6ldans Jakobs. Og hann stj\u00f3rna\u00f0i so sem \u00fati einu konunglegu emb\u00e6tti og h\u00e9lt \u00feeim \u00e6\u00f0stu m\u00f6nnum f\u00f3lksins til samans og \u00feeim <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-33-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2878","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2878","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2878"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2878\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2878"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}