{"id":2875,"date":"2017-12-18T18:32:00","date_gmt":"2017-12-18T18:32:00","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-30-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:00","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:00","slug":"fimmta-mosebok-30-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-30-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 30. kafli"},"content":{"rendered":"<p>N\u00e6r e\u00f0 allt \u00feetta kemur n\u00fa yfir \u00feig, anna\u00f0 hvert blessanin e\u00f0a b\u00f6lvanin sem eg hefi fyrir \u00feig lagt og \u00fe\u00fa inngengur til \u00fe\u00edns eiginlegs hjarta, hvar sem \u00fe\u00fa ert \u00e1 me\u00f0al hei\u00f0ingjanna \u00feanga\u00f0 sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefur \u00feig \u00ed burt drifi\u00f0, og \u00fe\u00fa sn\u00fdr \u00fe\u00e9r til Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns aftur svo a\u00f0 \u00fe\u00fa hl\u00fd\u00f0ir hans raust, \u00fe\u00fa og \u00fe\u00edn b\u00f6rn, af \u00f6llu hjarta, af allri s\u00e1lu, \u00ed \u00f6llu \u00fev\u00ed sem eg b\u00fd\u00f0 \u00fe\u00e9r h\u00e9r \u00ed dag, \u00fe\u00e1 mun Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn umsn\u00faa \u00feinni herlei\u00f0ingu og vera \u00fe\u00e9r miskunnsamur og samansafna \u00fe\u00e9r \u00ed burt aftur fr\u00e1 \u00f6llu \u00fev\u00ed f\u00f3lki sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefur \u00ed sundurdreift \u00fe\u00e9r \u00e1 me\u00f0al. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00deeir e\u00f0 sn\u00faast til Gu\u00f0s \u00f6\u00f0last n\u00e1\u00f0\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00de\u00f3 e\u00f0 \u00fe\u00fa v\u00e6rir enn \u00ed burt drifinn allt til himinsins enda \u00fe\u00e1 mun Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn samansafna \u00fe\u00e9r og flytja \u00feig \u00fea\u00f0an \u00ed fr\u00e1. Og hann mun flytja \u00feig \u00ed \u00fea\u00f0 landi\u00f0 sem \u00fe\u00ednir fe\u00f0ur hafa \u00e1tt, a\u00f0 \u00fe\u00fa skulir eignast \u00fea\u00f0 og hann mun gj\u00f6ra vel \u00ed m\u00f3ti \u00fe\u00e9r og fj\u00f6lga \u00feig fram yfir fe\u00f0ur \u00fe\u00edna. Og Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn mun umskera \u00feitt hjarta og hjarta\u00f0 \u00fe\u00edns s\u00e6\u00f0is so a\u00f0 \u00fe\u00fa skulir elska Drottin Gu\u00f0 \u00feinn af \u00f6llu \u00fe\u00ednu hjarta og af allri s\u00e1lu so \u00fe\u00fa megir lifa. En Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn mun leggja allar \u00feessar b\u00f6lvanir \u00e1 \u00f3vini \u00fe\u00edna og \u00e1 \u00fe\u00e1 sem \u00feig hata og \u00fe\u00e9r ofs\u00f3kn veita. <span class=\"athugasemd\" title=\"R\u00f3m 2 \/ Jerem. 4\">[<\/span><\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00fa munt sn\u00faast og hl\u00fd\u00f0a raustinni Drottins so a\u00f0 \u00fe\u00fa gj\u00f6rir \u00f6ll hans bo\u00f0or\u00f0 sem \u00e9g b\u00fd\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00ed dag. Og Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn mun l\u00e1ta \u00feig lukkusamlegan vera \u00ed \u00f6llum \u00fe\u00ednum handaverkum, \u00e1 \u00feeim \u00e1vextinum \u00fe\u00edns kvi\u00f0ar, af \u00feeim \u00e1vextinum \u00feinnar hjar\u00f0ar og \u00e1 \u00fe\u00ednum jar\u00f0ar\u00e1vexti, so a\u00f0 \u00fea\u00f0 skuli \u00fe\u00e9r vel vegna. Drottinn mun umvenda s\u00e9r og gle\u00f0ja sig yfir \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e9r til g\u00f3\u00f0a, l\u00edka sem hann gladdi sig yfir \u00fe\u00ednum forfe\u00f0rum, af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa hl\u00fd\u00f0ir raustinni Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns og heldur hans bo\u00f0or\u00f0 og r\u00e9ttindi sem skrifu\u00f0 standa \u00ed \u00feessari l\u00f6gm\u00e1lsb\u00f3k, ef a\u00f0 \u00fe\u00fa sn\u00fdr \u00fe\u00e9r til Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns af \u00f6llu hjarta og af allri s\u00e1lu.<\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 bo\u00f0or\u00f0 sem \u00e9g b\u00fd\u00f0 \u00fe\u00e9r er ekki huli\u00f0 fyrir \u00fe\u00e9r og ekki mj\u00f6g fjarl\u00e6gt \u00fe\u00e9r, eigi heldur uppi yfir \u00fe\u00e9r \u00ed himninum svo a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00feurfir a\u00f0 segja: &#8222;Hver vill uppfara fyrir oss \u00ed himininn og s\u00e6kja oss \u00fea\u00f0 sama, so a\u00f0 v\u00e9r kunnum a\u00f0 heyra \u00fea\u00f0 og gj\u00f6ra \u00fear eftir?&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"R\u00f3m. 10\">[<\/span> \u00dea\u00f0 er ekki heldur hinumegin hafsins so a\u00f0 \u00fe\u00fa megir segja: &#8222;Hver mun vilja fara yfir um hafi\u00f0 og s\u00e6kja oss \u00fea\u00f0 so a\u00f0 v\u00e9r megum heyra \u00fea\u00f0 og gj\u00f6ra \u00fea\u00f0 sama?&#8220; \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 sama or\u00f0i\u00f0 er mj\u00f6g n\u00e6rri \u00fe\u00e9r, \u00ed \u00fe\u00ednum munni og \u00ed \u00fe\u00ednu hjarta, so a\u00f0 \u00fe\u00fa skulir gj\u00f6ra \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>\tSj\u00e1 \u00fe\u00fa, \u00e9g hefi \u00ed dag lagt \u00fe\u00e9r fyrir l\u00edfi\u00f0 og \u00fea\u00f0 hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a, dau\u00f0ann og \u00fea\u00f0 hi\u00f0 vonda, \u00ed \u00fev\u00ed sem \u00e9g b\u00fd\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00ed dag, a\u00f0 \u00fe\u00fa skulir elska Drottin Gu\u00f0 \u00feinn og ganga \u00ed hans vegum og var\u00f0veita hans bo\u00f0or\u00f0, l\u00f6gm\u00e1l og r\u00e9ttindi, so a\u00f0 \u00fe\u00fa megir lifa og fj\u00f6lgast og \u00fea\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn blessi \u00feig \u00ed \u00fev\u00ed landinu sem \u00fe\u00fa fer n\u00fa til a\u00f0 eignast.<\/p>\n<p>\tEn ef \u00fe\u00fa fr\u00e1sn\u00fdr \u00fe\u00ednu hjarta og hl\u00fd\u00f0ir ekki \u00feessu heldur l\u00e6tur \u00fe\u00fa villa \u00feig so a\u00f0 \u00fe\u00fa tilbi\u00f0ur annarlega gu\u00f0i og \u00fej\u00f3nar \u00feeim \u00fe\u00e1 kunngj\u00f6ri \u00e9g y\u00f0ur \u00ed dag a\u00f0 \u00fe\u00e9r munu\u00f0 fyrirfarast og ekki lengi vera \u00ed \u00fev\u00ed landinu sem \u00fe\u00fa dregur n\u00fa til yfir um J\u00f3rdan a\u00f0 eignast \u00fea\u00f0.<\/p>\n<p>\t\u00c9g tek \u00ed dag himin og j\u00f6r\u00f0 til vitnis yfir y\u00f0ur: \u00c9g hefi lagt fyri y\u00f0ur l\u00edfi\u00f0 og dau\u00f0ann, blessanina og b\u00f6lvanina, so a\u00f0 \u00fe\u00fa megir \u00fatvelja l\u00edfi\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00fa og \u00feitt s\u00e6\u00f0i megi lifa, a\u00f0 \u00fe\u00e9r elski\u00f0 Drottin Gu\u00f0 y\u00f0ar og hl\u00fd\u00f0i\u00f0 hans raust og n\u00e1l\u00e6gi\u00f0 y\u00f0ur so a\u00f0 honum. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fear er \u00feitt l\u00edf undirkomi\u00f0 og \u00feinn langg\u00e6\u00f0legur aldur so a\u00f0 \u00fe\u00fa megir b\u00faa \u00ed \u00fev\u00ed landinu sem Drottinn hefur svari\u00f0 \u00fe\u00ednum forfe\u00f0rum Abraham, \u00cdsak og Jakob, a\u00f0 gefa \u00feeim \u00fea\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>N\u00e6r e\u00f0 allt \u00feetta kemur n\u00fa yfir \u00feig, anna\u00f0 hvert blessanin e\u00f0a b\u00f6lvanin sem eg hefi fyrir \u00feig lagt og \u00fe\u00fa inngengur til \u00fe\u00edns eiginlegs hjarta, hvar sem \u00fe\u00fa ert \u00e1 me\u00f0al hei\u00f0ingjanna \u00feanga\u00f0 sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefur \u00feig \u00ed burt drifi\u00f0, og \u00fe\u00fa sn\u00fdr \u00fe\u00e9r til Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns aftur svo a\u00f0 \u00fe\u00fa hl\u00fd\u00f0ir hans raust, \u00fe\u00fa og \u00fe\u00edn b\u00f6rn, af \u00f6llu hjarta, af allri s\u00e1lu, \u00ed \u00f6llu \u00fev\u00ed sem eg b\u00fd\u00f0 \u00fe\u00e9r h\u00e9r \u00ed dag, \u00fe\u00e1 mun Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn umsn\u00faa \u00feinni herlei\u00f0ingu og vera \u00fe\u00e9r miskunnsamur og samansafna \u00fe\u00e9r \u00ed burt aftur fr\u00e1 \u00f6llu \u00fev\u00ed f\u00f3lki <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-30-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2875","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2875","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2875"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2875\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2875"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}