{"id":2874,"date":"2017-12-18T18:32:00","date_gmt":"2017-12-18T18:32:00","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-29-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:32:00","modified_gmt":"2017-12-18T18:32:00","slug":"fimmta-mosebok-29-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-29-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 29. kafli"},"content":{"rendered":"<p>\u00deessi eru \u00feau s\u00e1ttm\u00e1lans or\u00f0 sem Drottinn bau\u00f0 M\u00f3se a\u00f0 gj\u00f6ra vi\u00f0 \u00cdsraels b\u00f6rn \u00ed Moabitis landi \u00ed anna\u00f0 sinn eftir \u00fea\u00f0 hann gj\u00f6r\u00f0i \u00feann sama vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00ed H\u00f3reb. Og M\u00f3ses kalla\u00f0i allan \u00cdsraelsl\u00fd\u00f0 til samans og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;\u00de\u00e9r hafi\u00f0 s\u00e9\u00f0 allt \u00fea\u00f0 sem Drottinn gj\u00f6r\u00f0i \u00ed Egyptalandi fyrir y\u00f0ar augum, b\u00e6\u00f0i vi\u00f0 fara\u00f3 og alla hans \u00fe\u00e9nara og vi\u00f0 allt hans land, \u00fe\u00e6r hinar miklu freistingar sem \u00fe\u00edn augu hafa s\u00e9\u00f0 a\u00f0 \u00fear ske\u00f0u st\u00f3rmerki og hr\u00e6\u00f0ileg undur. Og Drottinn hann hefur enn n\u00fa ekki allt til \u00feessa dags gefi\u00f0 y\u00f0ur eitt skilningsfullt hjarta e\u00f0ur augu a\u00f0 sj\u00e1 e\u00f0ur eyrun a\u00f0 heyra me\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Esa. 6\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tFj\u00f6rut\u00edgi \u00e1r hefur hann l\u00e1ti\u00f0 y\u00f0ur ganga \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni. Y\u00f0ar kl\u00e6\u00f0i \u00feau hafa ekki slitist \u00e1 y\u00f0ur og \u00fe\u00ednir sk\u00f3r hafa ekki slitist \u00e1 \u00fe\u00ednum f\u00f3tum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Deut. 3\">[<\/span> \u00de\u00e9r hafi\u00f0 ekki eti\u00f0 brau\u00f0 og eigi heldur drukki\u00f0 v\u00edn n\u00e9 nokkurn \u00e1fengan drykk so a\u00f0 \u00fe\u00fa skyldir vita a\u00f0 eg er Drottinn y\u00f0ar Gu\u00f0.<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00e1 \u00fe\u00e9r komu\u00f0 \u00ed \u00feennan sta\u00f0 dr\u00f3 \u00fat S\u00edhon k\u00f3ngurinn af Hesbon og \u00d3g k\u00f3ngurinn af Basan til a\u00f0 berjast vi\u00f0 oss. Og v\u00e9r h\u00f6fum slegi\u00f0 \u00fe\u00e1 og eignast \u00feeirra land og gefi\u00f0 \u00fea\u00f0 R\u00faben og Ga\u00f0 og \u00feeirri h\u00e1lfri kynkv\u00edsl Manasses til arft\u00f6ku. <span class=\"athugasemd\" title=\"Deut. 3 \/ Num. 21\">[<\/span> So haldi\u00f0 n\u00fa \u00feessi s\u00e1ttm\u00e1lans or\u00f0 og gj\u00f6ri\u00f0 \u00fear eftir so a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 forsj\u00e1lir \u00ed \u00f6llu \u00fev\u00ed sem \u00fe\u00e9r gj\u00f6ri\u00f0.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e9r standi\u00f0 \u00ed dag allir saman fyrir Drottni Gu\u00f0i y\u00f0ar, hinir \u00e6\u00f0stu menn y\u00f0ra kynkv\u00edsla, y\u00f0rir \u00f6ldungar, y\u00f0rir emb\u00e6ttismenn, hver einn ma\u00f0ur \u00ed \u00cdsrael, y\u00f0ar b\u00f6rn, y\u00f0ar h\u00fasfreyjur, \u00fe\u00ednir framandi sem eru \u00ed \u00fe\u00ednum landtj\u00f6ldum, b\u00e6\u00f0i hann s\u00e1 er \u00feinn vi\u00f0h\u00f6ggur og hinn s\u00e1 e\u00f0 \u00feitt vatn dregur, so a\u00f0 \u00fe\u00fa skulir ganga \u00ed s\u00e1ttm\u00e1la Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns og \u00ed \u00feeim svardaga sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn gj\u00f6rir vi\u00f0 y\u00f0ur \u00ed dag, a\u00f0 hann megi so uppreisa \u00feig \u00ed dag s\u00e9r til eins f\u00f3lks og hann skuli vera \u00feinn Gu\u00f0, so sem hann hefur til sagt \u00fe\u00e9r og so sem hann hefur svari\u00f0 \u00fe\u00ednum forfe\u00f0rum Abraham, \u00cdsak og Jakob. <span class=\"athugasemd\" title=\"S\u00e1ttm\u00e1linn Drottins\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e9g gj\u00f6ri ekki \u00feennan s\u00e1ttm\u00e1la og \u00feennan svardaga alleinasta vi\u00f0 y\u00f0ur heldur b\u00e6\u00f0i vi\u00f0 y\u00f0ur sem h\u00e9r eru\u00f0 \u00ed dag og standi\u00f0 me\u00f0 offur fyrir Drottni Gu\u00f0i vorum og vi\u00f0 \u00fe\u00e1 sem h\u00e9r eru ekki \u00ed dag me\u00f0 oss. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r viti\u00f0 hvernin a\u00f0 v\u00e9r bjuggum \u00ed Egyptalandi og f\u00f3ru mitt um \u00feann hei\u00f0ind\u00f3minn sem \u00fe\u00e9r dr\u00f3gu\u00f0 \u00ed gegnum og s\u00e1u\u00f0 \u00feeirra sv\u00edvir\u00f0ingar og \u00feeirra afgu\u00f0i, stokka og steina, silfur og gull, sem voru hj\u00e1 \u00feeim.<\/p>\n<p>\tSo a\u00f0 \u00fear s\u00e9 ekki (m\u00e1 vera nokkur) s\u00e1 karl e\u00f0ur kvinna e\u00f0ur \u00fej\u00f3nustuf\u00f3lk e\u00f0ur einhver s\u00fa kynkv\u00edsl \u00e1 me\u00f0al y\u00f0ar hvers hjarta a\u00f0 hafi \u00ed burt sn\u00fai\u00f0 s\u00e9r \u00ed dag fr\u00e1 Drottni Gu\u00f0i vorum til a\u00f0 ganga \u00ed burt og \u00fej\u00f3na gu\u00f0unum \u00feessa f\u00f3lks og kann vera a\u00f0 so ver\u00f0i ein s\u00fa r\u00f3t \u00e1 me\u00f0al y\u00f0ar sem ber gall og beiskar jurtir. Og \u00fe\u00f3 a\u00f0 hann heyri or\u00f0in \u00feessarar b\u00f6lvanar \u00fe\u00e1 velsignir hann sig \u00fe\u00f3 l\u00edka samt \u00ed s\u00ednu hjarta og segir: &#8222;\u00dear vegnar m\u00e9r vel \u00e1 me\u00f0an \u00e9g geng sem a\u00f0 m\u00ednu hjarta vel \u00fe\u00f3knast&#8220; so \u00fea\u00f0 hinir fordrukknu skulu og \u00ed burt fara \u00e1samt me\u00f0 \u00feeim sem a\u00f0 \u00feyrstir eru. <span class=\"athugasemd\" title=\"Act. 8 \/ Ebre. 12\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00de\u00f3 vill Drottinn og ekki vera \u00feeim miskunnsamur heldur mun s\u00fa hin mikla hefnd og rei\u00f0i Drottins rj\u00faka yfir \u00feeim manni svo a\u00f0 allar \u00feessar b\u00f6lvanir sem h\u00e9r standa skrifa\u00f0ar \u00ed \u00feessari b\u00f3k \u00fe\u00e1 skulu leggjast \u00e1 hann. Og Drottinn mun afm\u00e1 hans nafn undir himninum og hann mun \u00ed burt skilja hann fr\u00e1 allri \u00cdsrael til \u00f3lukku eftir \u00f6llum \u00feessa s\u00e1ttm\u00e1lans b\u00f6lvanaror\u00f0um sem skrifu\u00f0 standa \u00ed \u00feessari l\u00f6gm\u00e1lsb\u00f3k. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gen. 19\">[<\/span><\/p>\n<p>\tSo munu \u00fe\u00e1 segja \u00feeir eftirkomendur y\u00f0vara barna, \u00feeir sem upp munu koma eftir y\u00f0ur, og hinir \u00fatlensku sem koma \u00far fjarl\u00e6gum l\u00f6ndum, n\u00e6r e\u00f0 \u00feeir sj\u00e1 \u00fe\u00e6r hefndarpl\u00e1gur sem ganga yfir \u00feetta land og \u00feau krankd\u00e6mi sem Drottinn sl\u00e6r \u00fe\u00e1 me\u00f0, a\u00f0 hann uppbrennir allt \u00feeirra land me\u00f0 brennisteini og salti so a\u00f0 \u00fear ver\u00f0ur ekki s\u00e1\u00f0 og eigi heldur kann \u00fear nokku\u00f0 upp a\u00f0 vaxa n\u00e9 neinar jurtir upp a\u00f0 spretta, heldur eru \u00feeir sem um koll kasta\u00f0ir, l\u00edka sem S\u00f3d\u00f3ma og G\u00f3morra, Adama og Seb\u00f3\u00edm, hverjum a\u00f0 Drottinn umturna\u00f0i \u00ed sinni rei\u00f0i og hefndarbr\u00e6\u00f0i. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ors\u00f6k str\u00f6ffunarinnar \/ Gen. 9\">[<\/span>  <\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 munu og allar \u00fej\u00f3\u00f0ir segja: &#8222;Hvar fyrir hefur Drottinn gj\u00f6rt so vi\u00f0 \u00feetta land? Hva\u00f0 er \u00feetta fyrir so mikla rei\u00f0i?&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Hvar fyrir Gu\u00f0 hann straffar\">[<\/span> \u00de\u00e1 munu menn segja: &#8222;\u00dear fyrir a\u00f0 \u00feeir hafa yfirgefi\u00f0 s\u00e1ttm\u00e1lann Drottins Gu\u00f0s fe\u00f0ra \u00feeirra sem hann gj\u00f6r\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feann t\u00ed\u00f0 hann \u00fatleiddi \u00fe\u00e1 af Egyptalandi. Og \u00feeir gengu \u00ed burt og \u00fej\u00f3nu\u00f0u annarlegum gu\u00f0um og tilb\u00e1\u00f0u \u00fe\u00e1, svoddan gu\u00f0i \u00fe\u00f3 sem \u00feeir b\u00e1ru \u00f6ngva kennslu \u00e1 og ekki neitt h\u00f6f\u00f0u veitt \u00feeim. \u00dear fyrir hefur so rei\u00f0i Drottins or\u00f0i\u00f0 svo br\u00e1\u00f0heit vi\u00f0 \u00feetta land a\u00f0 hann hefur l\u00e1ti\u00f0 allar \u00fe\u00e6r b\u00f6lvanir koma yfir \u00fe\u00e1 sem skrifa\u00f0ar standa \u00ed \u00feessari b\u00f3k. Og Drottinn hefur \u00fatreki\u00f0 \u00fe\u00e1 af \u00feeirra landi \u00ed mikilli rei\u00f0i, grimmd og hefndarbr\u00e6\u00f0i og \u00ed burtfleygt \u00feeim \u00ed eitt annarlegt land so sem a\u00f0 \u00fea\u00f0 tilstendur \u00feennan dag. <span class=\"athugasemd\" title=\"3 Reg. 9 \/ Jerem. 12\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tDrottinn Gu\u00f0s vors leyndir d\u00f3mar eru yfir oss og vorum b\u00f6rnum opinbera\u00f0ir eil\u00edflegana, svo a\u00f0 v\u00e9r skulum gj\u00f6ra \u00f6ll \u00feessi l\u00f6gm\u00e1lsins or\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deessi eru \u00feau s\u00e1ttm\u00e1lans or\u00f0 sem Drottinn bau\u00f0 M\u00f3se a\u00f0 gj\u00f6ra vi\u00f0 \u00cdsraels b\u00f6rn \u00ed Moabitis landi \u00ed anna\u00f0 sinn eftir \u00fea\u00f0 hann gj\u00f6r\u00f0i \u00feann sama vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00ed H\u00f3reb. Og M\u00f3ses kalla\u00f0i allan \u00cdsraelsl\u00fd\u00f0 til samans og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;\u00de\u00e9r hafi\u00f0 s\u00e9\u00f0 allt \u00fea\u00f0 sem Drottinn gj\u00f6r\u00f0i \u00ed Egyptalandi fyrir y\u00f0ar augum, b\u00e6\u00f0i vi\u00f0 fara\u00f3 og alla hans \u00fe\u00e9nara og vi\u00f0 allt hans land, \u00fe\u00e6r hinar miklu freistingar sem \u00fe\u00edn augu hafa s\u00e9\u00f0 a\u00f0 \u00fear ske\u00f0u st\u00f3rmerki og hr\u00e6\u00f0ileg undur. Og Drottinn hann hefur enn n\u00fa ekki allt til \u00feessa dags gefi\u00f0 y\u00f0ur eitt skilningsfullt hjarta e\u00f0ur augu <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-29-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2874","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2874","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2874"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2874\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2874"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}