{"id":2872,"date":"2017-12-18T18:31:57","date_gmt":"2017-12-18T18:31:57","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-27-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:57","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:57","slug":"fimmta-mosebok-27-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-27-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 27. kafli"},"content":{"rendered":"<p>M\u00f3ses \u00e1samt \u00f6llum \u00f6ldungunum af \u00cdsrael bau\u00f0 f\u00f3lkinu og sag\u00f0i: &#8222;Haldi\u00f0 \u00f6ll \u00feessi bo\u00f0or\u00f0 sem \u00e9g b\u00fd\u00f0 y\u00f0ur \u00ed dag. Og \u00e1 \u00feeim t\u00edma n\u00e6r e\u00f0 \u00fe\u00e9r gangi\u00f0 yfir um J\u00f3rdan \u00ed \u00fea\u00f0 landi\u00f0 sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn mun gefa \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 skalt \u00fe\u00fa reisa upp st\u00f3ra steina og hv\u00edtf\u00e1ga \u00fe\u00e1 utan me\u00f0 kalkl\u00edmi og skrifa \u00e1 \u00feeim \u00f6ll \u00feessi l\u00f6gm\u00e1lsins or\u00f0 n\u00e6r e\u00f0 \u00fe\u00fa kemur \u00fear yfir um, so a\u00f0 \u00fe\u00fa innkomir \u00ed \u00fea\u00f0 landi\u00f0 sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn mun gefa \u00fe\u00e9r, eitt land \u00fear e\u00f0 mj\u00f3lk og hunang fl\u00fdtur \u00fati, svo sem Drottinn Gu\u00f0 fe\u00f0ra \u00feinna hefur sagt \u00fe\u00e9r.<\/p>\n<p>\tN\u00e6r e\u00f0 \u00fe\u00e9r gangi\u00f0 n\u00fa yfir um J\u00f3rdan \u00fe\u00e1 skulu \u00fe\u00e9r reisa upp \u00fe\u00e1 s\u00f6mu steina \u00e1 fjallinu Ebal (so sem a\u00f0 \u00e9g b\u00fd\u00f0 y\u00f0ur \u00ed dag) og hv\u00edtf\u00e1ga \u00fe\u00e1 me\u00f0 kalkl\u00edmi. <span class=\"athugasemd\" title=\"Minnissteinar \u00e1 fjalli Ebal \/ Exo. 20 \/ J\u00f3s\u00fa. 8\">[<\/span> Og \u00fe\u00fa skalt uppbyggja \u00fear Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum eitt altari af steinum, \u00fea\u00f0 sem ekki neitt j\u00e1rn kemur yfir. \u00de\u00fa skalt byggja \u00fea\u00f0 sama Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns altari af heilum steinum og offra Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum brennioffur \u00fear upp \u00e1. \u00de\u00fa skalt og offra \u00feakkargj\u00f6r\u00f0aroffri og neyta \u00feess \u00fear og gj\u00f6ra \u00feig gla\u00f0an fyrir Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum. Og \u00fe\u00fa skalt skrifa \u00f6ll or\u00f0in \u00feessa l\u00f6gm\u00e1ls kl\u00e1rlega og sk\u00fdrlega \u00e1 \u00fe\u00e1 s\u00f6mu steina.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg M\u00f3ses og prestarnir og Lev\u00edtarnir t\u00f6lu\u00f0u vi\u00f0 allan \u00cdsrael og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;Hygg a\u00f0 og heyr \u00fe\u00fa til, \u00cdsrael. \u00de\u00fa ert or\u00f0inn \u00ed dag Gu\u00f0s \u00fe\u00edns f\u00f3lk a\u00f0 \u00fe\u00fa skulir hl\u00fd\u00f0a Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns raust og gj\u00f6ra eftir hans bo\u00f0or\u00f0um og r\u00e9ttindum sem \u00e9g b\u00fd\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00ed dag.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg M\u00f3ses bau\u00f0 f\u00f3lkinu \u00feann sama dag og sag\u00f0i: &#8222;\u00deessir skulu standa upp \u00e1 fjallinu Gr\u00eds\u00edm til a\u00f0 blessa f\u00f3lki\u00f0 n\u00e6r e\u00f0 \u00fe\u00e9r eru\u00f0 komnir yfir um J\u00f3rdan: S\u00edmeon, Lev\u00ed, J\u00fada, \u00cdsaskar, J\u00f3sef, Benjam\u00edn. Og \u00feessir skulu standa upp \u00e1 fjallinu Ebal til a\u00f0 b\u00f6lva: R\u00faben, Ga\u00f0, Asser, Seb\u00falon, Dan og Neftal\u00ed. <span class=\"athugasemd\" title=\"Grisem \/ Ebal\">[<\/span> Og Lev\u00edtarnir skulu upphefja og segja til hvers manns af \u00cdsrael me\u00f0 h\u00e1rri raust:<\/p>\n<p>\tB\u00f6lva\u00f0ur veri s\u00e1 sem gj\u00f6rir einn afgu\u00f0 elligar eina sm\u00ed\u00f0a\u00f0a l\u00edkneskju hver a\u00f0 er ein sv\u00edvir\u00f0ing fyrir Drottni, eins hags manns handaverk, og setur hana \u00ed leyni. <span class=\"athugasemd\" title=\"B\u00f6lvan yfir yfirtro\u00f0slum\u00f6nnum l\u00f6gm\u00e1lsins\">[<\/span> Og allt f\u00f3lki\u00f0 skal svara og segja: Amen.<\/p>\n<p>\tB\u00f6lva\u00f0ur veri s\u00e1 sem bl\u00f3tar f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum og m\u00f3\u00f0ir. Og allt f\u00f3lki\u00f0 skal segja: Amen.<\/p>\n<p>\tB\u00f6lva\u00f0ur veri s\u00e1 sem saman f\u00e6rir landamerki s\u00edns n\u00e1unga. Og allt f\u00f3lki\u00f0 skal segja: Amen.<\/p>\n<p>\tB\u00f6lva\u00f0ur veri s\u00e1 sem l\u00e6tur hinn blinda villast \u00e1 veginum. Og allt f\u00f3lki\u00f0 skal segja: Amen.<\/p>\n<p>\tB\u00f6lva\u00f0ur s\u00e9 s\u00e1 sem hallar r\u00e9tti hins framanda, hins f\u00f6\u00f0urlausa og ekkjunnar. Og allt f\u00f3lki\u00f0 skal segja: Amen.<\/p>\n<p>\tB\u00f6lva\u00f0ur veri s\u00e1 sem liggur \u00ed hj\u00e1 s\u00edns f\u00f6\u00f0urs h\u00fasfreyju, a\u00f0 hann upplyftir so s\u00edns f\u00f6\u00f0urs faldi. <span class=\"athugasemd\" title=\"Fyrirbo\u00f0nir li\u00f0ir \/ Levit. 18; 26\">[<\/span> Og allt f\u00f3lki\u00f0 segi: Amen.<\/p>\n<p>\tB\u00f6lva\u00f0ur veri s\u00e1 sem liggur hj\u00e1 nokkurs konar f\u00e9na\u00f0i. Og allt f\u00f3lki\u00f0 skal segja: Amen.<\/p>\n<p>\tB\u00f6lva\u00f0ur veri s\u00e1 sem liggur me\u00f0 systur sinni sem a\u00f0 er d\u00f3ttir hans f\u00f6\u00f0urs e\u00f0ur hans m\u00f3\u00f0ur. Og allt f\u00f3lki\u00f0 skal segja: Amen.<\/p>\n<p>\tB\u00f6lva\u00f0ur veri s\u00e1 sem liggur hj\u00e1 m\u00f3\u00f0ur h\u00fasfreyju sinnar. Og allt f\u00f3lki\u00f0 skal segja: Amen.<\/p>\n<p>\tB\u00f6lva\u00f0ur veri s\u00e1 sem sl\u00e6r sinn n\u00e1unga leynilegana. Og allt f\u00f3lki\u00f0 skal segja: Amen.<\/p>\n<p>\tB\u00f6lva\u00f0ur veri s\u00e1 sem tekur gjafir til \u00feess a\u00f0 sl\u00e1 s\u00e1lina hins saklausa bl\u00f3\u00f0sins. Og allt f\u00f3lki\u00f0 skal segja: Amen.<\/p>\n<p>\tB\u00f6lva\u00f0ur veri s\u00e1 sem ekki fullkomnar \u00f6ll or\u00f0in \u00ed \u00feessu l\u00f6gm\u00e1li so a\u00f0 hann gj\u00f6rir \u00fear eftir. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gal. 3\">[<\/span> Og allt f\u00f3lki\u00f0 skal segja: Amen.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>M\u00f3ses \u00e1samt \u00f6llum \u00f6ldungunum af \u00cdsrael bau\u00f0 f\u00f3lkinu og sag\u00f0i: &#8222;Haldi\u00f0 \u00f6ll \u00feessi bo\u00f0or\u00f0 sem \u00e9g b\u00fd\u00f0 y\u00f0ur \u00ed dag. Og \u00e1 \u00feeim t\u00edma n\u00e6r e\u00f0 \u00fe\u00e9r gangi\u00f0 yfir um J\u00f3rdan \u00ed \u00fea\u00f0 landi\u00f0 sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn mun gefa \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 skalt \u00fe\u00fa reisa upp st\u00f3ra steina og hv\u00edtf\u00e1ga \u00fe\u00e1 utan me\u00f0 kalkl\u00edmi og skrifa \u00e1 \u00feeim \u00f6ll \u00feessi l\u00f6gm\u00e1lsins or\u00f0 n\u00e6r e\u00f0 \u00fe\u00fa kemur \u00fear yfir um, so a\u00f0 \u00fe\u00fa innkomir \u00ed \u00fea\u00f0 landi\u00f0 sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn mun gefa \u00fe\u00e9r, eitt land \u00fear e\u00f0 mj\u00f3lk og hunang fl\u00fdtur \u00fati, svo sem Drottinn Gu\u00f0 fe\u00f0ra \u00feinna hefur sagt <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-27-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2872","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2872","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2872"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2872\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2872"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}