{"id":2869,"date":"2017-12-18T18:31:57","date_gmt":"2017-12-18T18:31:57","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-24-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:57","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:57","slug":"fimmta-mosebok-24-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-24-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 24. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Ef a\u00f0 einhver f\u00e6r s\u00e9r konu og gj\u00f6rir eiginor\u00f0 vi\u00f0 hana og h\u00fan finnur ekki s\u00ed\u00f0an seinna meir n\u00e1\u00f0 fyrir hans augum fyrir einhvers \u00f3\u00feokka sakir \u00fe\u00e1 skal hann skrifa eitt skilna\u00f0arbr\u00e9f og f\u00e1 \u00fea\u00f0 \u00ed hennar h\u00f6nd og l\u00e1ta \u00ed burt fara af s\u00ednu heimili. <span class=\"athugasemd\" title=\"Skilna\u00f0arskr\u00e1in \/ Matt. 5; 19 \/ Mat. 10\">[<\/span> N\u00e6r e\u00f0 h\u00fan er so \u00fatfarin af hans h\u00fasi og gengur \u00ed burt og ver\u00f0ur eins annars manns eiginkona og s\u00e1 hinn annar ma\u00f0urinn f\u00e6r og einnin stygg\u00f0 til hennar og skrifar eitt skilna\u00f0arbr\u00e9f og f\u00e6r \u00fea\u00f0 \u00ed hennar h\u00f6nd og l\u00e6tur hana \u00ed burt fara af s\u00ednu heimili, elligar so ef a\u00f0 s\u00e1 hinn annar ma\u00f0urinn deyr sem hana t\u00f3k s\u00e9r seinna til eiginnarkvinnu, \u00fe\u00e1 m\u00e1 ekki hennar s\u00e1 hinn fyrsti ma\u00f0urinn sem hana l\u00e9t \u00ed burt fara fr\u00e1 s\u00e9r taka hana aftur til eiginkonu af \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan er or\u00f0in \u00f3hrein, \u00fev\u00ed a\u00f0 sl\u00edkt er sm\u00e1n fyrir Drottni, svo a\u00f0 \u00fe\u00fa skulir ekki gj\u00f6ra \u00fea\u00f0 land syndugt sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn mun gefa \u00fe\u00e9r til eignar.<\/p>\n<p>\tN\u00e6r e\u00f0 nokkur hefur teki\u00f0 n\u00fa n\u00fdlega s\u00e9r eiginkonu, s\u00e1 skal ekki \u00fatdraga \u00ed str\u00ed\u00f0 og engin \u00feyngsl skulu honum \u00e1leggjast heldur skal hann vera fr\u00ed \u00ed s\u00ednu heimili eitt \u00e1r um kring og s\u00e9 gla\u00f0ur me\u00f0 sinni eiginkonu sem hann hefur teki\u00f0 s\u00e9r. <span class=\"athugasemd\" title=\"Deut. 20\">[<\/span><\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt ekki taka \u00ed pant \u00fe\u00e1 undirkvernina n\u00e9 yfirkvernina \u00fev\u00ed a\u00f0 hann setur \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 s\u00e1lina til panta.<\/p>\n<p>\tEf a\u00f0 s\u00e1 finnst nokkur sem \u00ed burt stelur einni s\u00e1lu fr\u00e1 s\u00ednum br\u00e6\u00f0rum \u00cdsraelssonum og setur hana \u00fat e\u00f0ur selur hana, \u00fe\u00e1 skal s\u00e1 sami \u00fej\u00f3fur deyja a\u00f0 \u00fe\u00fa so \u00ed burt takir hi\u00f0 vonda fr\u00e1 \u00fe\u00e9r. <span class=\"athugasemd\" title=\"Exod. 21 \/ 1 Tim. 1\">[<\/span><\/p>\n<p>\tVara \u00feig vi\u00f0 spitelskri s\u00f3ttarpl\u00e1gu a\u00f0 \u00fe\u00fa haldir og gj\u00f6rir me\u00f0 athygli allt \u00fea\u00f0 sem prestarnir og Lev\u00edtarnir kenna \u00fe\u00e9r, \u00fea\u00f0 skulu \u00fe\u00e9r halda og gj\u00f6ra sem \u00feeir bj\u00f3\u00f0a y\u00f0ur. <span class=\"athugasemd\" title=\"L\u00edk\u00fer\u00e1 \/ Levit. 13; 14 \/ Num. 12\">[<\/span> Huglei\u00f0 \u00fe\u00fa hva\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn gj\u00f6r\u00f0i vi\u00f0 Mar\u00edam \u00e1 veginum \u00fe\u00e1 e\u00f0 \u00fe\u00e9r f\u00f3ru\u00f0 af Egyptalandi.  <\/p>\n<p>\tN\u00e6r e\u00f0 n\u00e1ungi \u00feinn er skyldugur \u00fe\u00e9r um nokku\u00f0 \u00fe\u00e1 skalt \u00fe\u00fa ekki fara inn \u00ed hans h\u00fas til a\u00f0 pantsetja af honum neitt heldur skalt \u00fe\u00fa standa \u00fear \u00fati fyrir og hann sem \u00fe\u00fa hefur l\u00e1na\u00f0 nokku\u00f0 skal bera sinn pant \u00fat til \u00fe\u00edn. En ef hann er \u00feurfandi \u00fe\u00e1 skalt \u00fe\u00fa ekki leggja til svefns me\u00f0 hans pant heldur skalt \u00fe\u00fa f\u00e1 honum sinn pant aftur n\u00e6r e\u00f0 s\u00f3lin gengur undir so a\u00f0 hann megi sofa \u00ed s\u00ednum s\u00e6ngarkl\u00e6\u00f0um og velsigna \u00feig. <span class=\"athugasemd\" title=\"Pantur\">[<\/span> Og \u00fea\u00f0 mun \u00fe\u00e9r fyrir Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum vera til r\u00e9ttl\u00e6tis.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt ekki halda inni hans kaupi hj\u00e1 \u00fe\u00e9r sem er nau\u00f0\u00feurftugur og f\u00e1t\u00e6kur, hvert hann er af \u00fe\u00ednum br\u00e6\u00f0rum e\u00f0ur \u00feeim \u00fatlendingum sem a\u00f0 eru \u00ed landinu hj\u00e1 \u00fe\u00e9r innan \u00feinna portdyra, heldur skalt \u00fe\u00fa gjalda honum sitt verkkaup \u00e1 bj\u00f6rtum degi fyrr en s\u00f3lin gengur undir. <span class=\"athugasemd\" title=\"Verkmannsins kaupi skal enginn inni halda\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 hann er f\u00e1t\u00e6kur og skal \u00fear me\u00f0 uppheldi veita sinni s\u00e1lu so a\u00f0 hann kalli ekki til Drottins \u00e1 m\u00f3ti \u00fe\u00e9r og \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00fe\u00e9r reikna\u00f0 fyrir synd.<\/p>\n<p>\tFe\u00f0urnir skulu ekki deyja fyrir barnanna sakir og b\u00f6rnin ekki fyrir fe\u00f0ranna sakir, heldur skal hver deyja fyrir s\u00edna sj\u00e1lfs misgj\u00f6r\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Esek. 18 \/ 4. Reg. 4\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt ekki halda r\u00e9ttinum hins framanda og hins f\u00f6\u00f0urlausa og \u00fe\u00fa skalt ekki taka neinn kl\u00e6\u00f0na\u00f0 ekkjunnar til panta. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ekkjurnar\">[<\/span> \u00dev\u00ed \u00fe\u00e9r skal til hugar koma a\u00f0 \u00fe\u00fa vart einn \u00fer\u00e6ll \u00e1 Egyptalandi og Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn frelsa\u00f0i \u00feig \u00fear \u00ed fr\u00e1, hvar fyrir a\u00f0 \u00e9g b\u00fd\u00f0 \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00fe\u00fa skulir so gj\u00f6ra.<\/p>\n<p>\tN\u00e6r e\u00f0 \u00fe\u00fa hefur uppunni\u00f0 \u00feinn akur og hefur forgleymt einu bindini \u00e1 akrinum \u00fe\u00e1 skalt \u00fe\u00fa ekki sn\u00faa \u00fe\u00e9r aftur til a\u00f0 s\u00e6kja \u00fea\u00f0 heldur l\u00e1t hinn framanda og hinn f\u00f6\u00f0urlausa og ekkjuna eiga \u00fea\u00f0 so \u00fea\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn blessi \u00feig \u00ed \u00f6llum handaverkum \u00fe\u00ednum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Afgangs\u00e1vextir heyra f\u00e1t\u00e6kum til\">[<\/span> N\u00e6r e\u00f0 \u00fe\u00fa hefur hrist \u00feitt vi\u00f0smj\u00f6rsvi\u00f0artr\u00e9 \u00fe\u00e1 skalt \u00fe\u00fa ekki hrista \u00fea\u00f0 oftar heldur skal s\u00e1 hinn framandi og hinn f\u00f6\u00f0urlausi og ekkjan eignast \u00fea\u00f0. <\/p>\n<p>\tN\u00e6r e\u00f0 \u00fe\u00fa hefur upp plokka\u00f0 \u00feinn v\u00edngar\u00f0 \u00fe\u00e1 skalt \u00fe\u00fa ekki upplesa \u00fear so naumlegana heldur skal s\u00e1 hinn framandi og hinn f\u00f6\u00f0urlausi og ekkjan eignast \u00fea\u00f0. Og \u00fe\u00e9r skal til hugar koma a\u00f0 \u00fe\u00fa vart einn \u00fer\u00e6ll \u00ed Egyptalandi. \u00dev\u00ed b\u00fd\u00f0 \u00e9g \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00fe\u00fa gj\u00f6rir \u00feetta.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Ef a\u00f0 einhver f\u00e6r s\u00e9r konu og gj\u00f6rir eiginor\u00f0 vi\u00f0 hana og h\u00fan finnur ekki s\u00ed\u00f0an seinna meir n\u00e1\u00f0 fyrir hans augum fyrir einhvers \u00f3\u00feokka sakir \u00fe\u00e1 skal hann skrifa eitt skilna\u00f0arbr\u00e9f og f\u00e1 \u00fea\u00f0 \u00ed hennar h\u00f6nd og l\u00e1ta \u00ed burt fara af s\u00ednu heimili. [ N\u00e6r e\u00f0 h\u00fan er so \u00fatfarin af hans h\u00fasi og gengur \u00ed burt og ver\u00f0ur eins annars manns eiginkona og s\u00e1 hinn annar ma\u00f0urinn f\u00e6r og einnin stygg\u00f0 til hennar og skrifar eitt skilna\u00f0arbr\u00e9f og f\u00e6r \u00fea\u00f0 \u00ed hennar h\u00f6nd og l\u00e6tur hana \u00ed burt fara af s\u00ednu heimili, elligar so ef a\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-24-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2869","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2869","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2869"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2869\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2869"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}