{"id":2864,"date":"2017-12-18T18:31:57","date_gmt":"2017-12-18T18:31:57","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-19-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:57","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:57","slug":"fimmta-mosebok-19-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-19-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 19. kafli"},"content":{"rendered":"<p>N\u00e6r e\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefur n\u00fa \u00ed ey\u00f0ilagt f\u00f3lki\u00f0 hverra land \u00fea\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn mun gefa \u00fe\u00e9r svo a\u00f0 \u00fe\u00fa eignist \u00fea\u00f0 og b\u00fair \u00ed \u00feeirra borgum og h\u00fasum \u00fe\u00e1 skaltu fr\u00e1skilja \u00ferj\u00e1r borgir \u00ed landinu \u00fev\u00ed sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn mun gefa \u00fe\u00e9r a\u00f0 eignast. <span class=\"athugasemd\" title=\"Deut. 4 \/ J\u00f3s\u00fa. 20 \/ Num. 35\">[<\/span> Og \u00fe\u00fa skalt \u00fatvelja hagkv\u00e6milega sta\u00f0i og \u00fe\u00fa skalt \u00ed sundurskipta landamerkjunum \u00ed \u00fev\u00ed landinu sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn gefur \u00fe\u00e9r til arft\u00f6ku \u00ed \u00ferj\u00e1r hlutdeildir a\u00f0 hver sem manni hefur a\u00f0 ska\u00f0a or\u00f0i\u00f0 megi fl\u00fdja \u00feanga\u00f0. Og \u00fea\u00f0 skal s\u00f6kin vera a\u00f0 hann sem drepi\u00f0 hefur mann megi fl\u00fdja \u00feanga\u00f0 so a\u00f0 hann megi halda l\u00edfinu.<\/p>\n<p>\tN\u00e6r e\u00f0 einhver sl\u00e6r sinn n\u00e1unga \u00ed hel \u00f3forvarandi og hafi hann ekki \u00e1\u00f0ur haft fyrri neitt hatur \u00e1 honum heldur so sem \u00fe\u00e1 n\u00e6r e\u00f0 nokkur fer \u00ed sk\u00f3g me\u00f0 s\u00ednum n\u00e1unga til a\u00f0 h\u00f6ggva vi\u00f0 og hann \u00fatr\u00e9ttir h\u00f6ndina me\u00f0 \u00f6xinni til a\u00f0 h\u00f6ggva tr\u00e9\u00f0 og \u00f6xin hr\u00fdtur af skaftinu og kemur \u00e1 hans n\u00e1unga so a\u00f0 hann deyr \u00fear af, \u00fe\u00e1 skal hann fl\u00fdja til einhvers \u00feessara sta\u00f0a so hann haldi l\u00edfinu so a\u00f0 <span class=\"athugasemd\" title=\"sword Eftirm\u00e1lsma\u00f0urinn\">[<\/span> bl\u00f3\u00f0hefnarinn veiti ekki eftirf\u00f6r mannslagaranum \u00e1 me\u00f0an hans hjarta er svo heitt og n\u00e1i honum me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vegurinn er svo fjarl\u00e6gur og sl\u00e1i honum hans s\u00e1lu \u00ed hel \u00fe\u00f3 a\u00f0 engin dau\u00f0as\u00f6k v\u00e6ri me\u00f0 honum af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur fyrri ekki neitt hatur til hans haft. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00d3viljamannslag\">[<\/span> \u00dear fyrir b\u00fd\u00f0 eg \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00ed fr\u00e1skiljir \u00fe\u00e6r \u00ferj\u00e1r borgir.<\/p>\n<p>\tOg \u00fear sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn gj\u00f6rir enn v\u00ed\u00f0ari \u00fe\u00edn landamerki svo sem \u00fea\u00f0 hann hefur svari\u00f0 \u00fe\u00ednum forfe\u00f0rum og gefur \u00fe\u00e9r allt \u00feetta land sem hann hefur til sagt \u00fe\u00ednum forfe\u00f0rum (so framt a\u00f0 \u00fe\u00fa heldur \u00f6ll \u00feessi bo\u00f0or\u00f0 so a\u00f0 \u00fe\u00fa gj\u00f6rir \u00fear eftir sem \u00e9g b\u00fd\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00ed dag, \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fa elskir Drottin Gu\u00f0 \u00feinn og gangir \u00e1 hans vegum alla \u00fe\u00edn l\u00edfdaga) \u00fe\u00e1 skalt \u00fe\u00fa enn leggja \u00ferj\u00e1r borgir til \u00feessara \u00feriggja so a\u00f0 ekki ver\u00f0i \u00fathellt saklausu bl\u00f3\u00f0i \u00ed \u00fe\u00ednu landi sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn gefur \u00fe\u00e9r til arft\u00f6ku so a\u00f0 \u00fe\u00fa ver\u00f0ir ekki sekur \u00ed svoddan bl\u00f3\u00f0i. <span class=\"athugasemd\" title=\"A\u00f0rir \u00fer\u00edr frelsissta\u00f0ir (JHS: ne\u00f0arlega \u00ed setningunni, \u00fear sem h\u00fan byrjar: \u00fe\u00e1 skaltu\">[<\/span><\/p>\n<p>\tEn ef a\u00f0 nokkur hefur heift \u00e1 s\u00ednum n\u00e1unga og situr um hann og veitir honum ofr\u00edki og sl\u00e6r honum hans s\u00e1lu til dau\u00f0a og fl\u00fdr so \u00ed burtu til einhvers \u00feessa sta\u00f0ar \u00fe\u00e1 skulu \u00f6ldungarnir hans sta\u00f0ar senda \u00feanga\u00f0 og l\u00e1ta hafa hann \u00ed burtu \u00fea\u00f0an og selja hann \u00ed bl\u00f3\u00f0hefnarans hendur so a\u00f0 hann s\u00e9 drepinn. <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Manndr\u00e1p me\u00f0 tilsettu r\u00e1\u00f0i \/ Num. 35\">[<\/span> \u00de\u00edn augu skulu eigi v\u00e6gja honum og \u00fe\u00fa skalt \u00ed burt taka \u00fea\u00f0 saklausa bl\u00f3\u00f0i\u00f0 fr\u00e1 \u00cdsrael so a\u00f0 \u00fe\u00e9r megi vel vegna. <\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt ekki til samans f\u00e6ra landamerkin \u00fe\u00edns n\u00e1unga sem a\u00f0 \u00feeir e\u00f0 fyrir \u00fe\u00e9r voru hafa sett \u00ed \u00feinni \u00e6ttleif\u00f0 sem a\u00f0 \u00fe\u00fa erfir \u00ed \u00fev\u00ed landinu sem a\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefur gefi\u00f0 \u00fe\u00e9r til eignar. <span class=\"athugasemd\" title=\"Prov. 22\">[<\/span><\/p>\n<p>\t\u00dear skal ekki eitt vitni framganga a\u00f0 vitna \u00e1 m\u00f3ti nokkrum yfir nokkurs h\u00e1ttar misgj\u00f6rningi, e\u00f0a gl\u00e6p, hva\u00f0 helst gl\u00e6p sem \u00fea\u00f0 er a\u00f0 ma\u00f0ur kann a\u00f0 gj\u00f6ra. Helst skal hver s\u00f6k standa \u00ed tveggja e\u00f0a \u00feriggja votta munni. Ef a\u00f0 eitthvert lj\u00fagvitni gengur fram a\u00f0 vitna \u00e1 m\u00f3ti nokkrum til a\u00f0 votta yfir hann einhvern misgj\u00f6rning. <span class=\"athugasemd\" title=\"Eitt vitni ekkert vitni \/ Deut. 17 \/ Matt. 18\">[<\/span> \u00de\u00e1 skulu \u00feeir b\u00e1\u00f0ir menn sem k\u00e6rum\u00e1li\u00f0 eiga til samans standa fyrir Drottni, frammi fyrir prest\u00f6num og d\u00f3murunum sem \u00fe\u00e1 eru \u00ed \u00feann t\u00edma. Og d\u00f3mararnir skulu innvir\u00f0ulega rannsaka \u00fea\u00f0 sama. Hafi hann \u00fe\u00e1 bori\u00f0 falskan vitnisbur\u00f0 \u00ed m\u00f3ti s\u00ednum br\u00f3\u00f0ir \u00fe\u00e1 skulu \u00fe\u00e9r gj\u00f6ra svo vi\u00f0 hann sem hann haf\u00f0i hugsa\u00f0 a\u00f0 gj\u00f6ra vi\u00f0 sinn br\u00f3\u00f0ur so a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00ed burt takir \u00feann hinn vonda fr\u00e1 \u00fe\u00e9r, a\u00f0 \u00feeir hinir a\u00f0rir sem \u00fea\u00f0 heyra megi hr\u00e6\u00f0ast fyrir \u00fev\u00ed hinu sama og \u00e1setja s\u00e9r ekki framar a\u00f0 gj\u00f6ra svoddan illt verk \u00e1 me\u00f0al y\u00f0ar. <span class=\"athugasemd\" title=\"Falsvitni \/ Exo. 21 \/ Levit. 24 \/ Matt. 5\">[<\/span> \u00deitt auga skal ekki v\u00e6gja honum: L\u00edf fyrir l\u00edf, auga fyrir auga, t\u00f6nn fyrir t\u00f6nn, h\u00f6nd fyrir h\u00f6nd, f\u00f3t fyrir f\u00f3t.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>N\u00e6r e\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefur n\u00fa \u00ed ey\u00f0ilagt f\u00f3lki\u00f0 hverra land \u00fea\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn mun gefa \u00fe\u00e9r svo a\u00f0 \u00fe\u00fa eignist \u00fea\u00f0 og b\u00fair \u00ed \u00feeirra borgum og h\u00fasum \u00fe\u00e1 skaltu fr\u00e1skilja \u00ferj\u00e1r borgir \u00ed landinu \u00fev\u00ed sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn mun gefa \u00fe\u00e9r a\u00f0 eignast. [ Og \u00fe\u00fa skalt \u00fatvelja hagkv\u00e6milega sta\u00f0i og \u00fe\u00fa skalt \u00ed sundurskipta landamerkjunum \u00ed \u00fev\u00ed landinu sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn gefur \u00fe\u00e9r til arft\u00f6ku \u00ed \u00ferj\u00e1r hlutdeildir a\u00f0 hver sem manni hefur a\u00f0 ska\u00f0a or\u00f0i\u00f0 megi fl\u00fdja \u00feanga\u00f0. Og \u00fea\u00f0 skal s\u00f6kin vera a\u00f0 hann sem drepi\u00f0 hefur mann megi fl\u00fdja \u00feanga\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-19-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2864","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2864","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2864"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2864\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2864"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}