{"id":2861,"date":"2017-12-18T18:31:57","date_gmt":"2017-12-18T18:31:57","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-16-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:57","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:57","slug":"fimmta-mosebok-16-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-16-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 16. kafli"},"content":{"rendered":"<p>\u00de\u00fa skalt hyggja a\u00f0 \u00feeim m\u00e1na\u00f0inum ab\u00edb a\u00f0 \u00fe\u00fa haldir \u00fe\u00e1 Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum p\u00e1ska. <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ P\u00e1skar \/ Exod. 12; 23 \/ Levit. 23 \/ Num. 9; 28\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e1 \u00feeim m\u00e1na\u00f0i ab\u00edb \u00fatleiddi \u00feig Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn af Egyptalandi \u00e1 n\u00e1ttart\u00edma. Og \u00fe\u00fa skalt f\u00e6ra Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum p\u00e1skaoffur, naut og sau\u00f0i, \u00ed \u00feeim sta\u00f0 sem Drottinn \u00fatvelur a\u00f0 hans nafn skuli \u00fear b\u00faa. \u00de\u00fa skalt ekki s\u00fardeig eta \u00e1 samri h\u00e1t\u00ed\u00f0 heldur skalt \u00fe\u00fa eta \u00f3s\u00fdrt brau\u00f0 \u00fatleg\u00f0arinnar \u00ed sj\u00f6 daga \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa fl\u00fd\u00f0ir af Egyptalandi me\u00f0 hr\u00e6\u00f0slu, a\u00f0 \u00fe\u00fa skulir so minnast \u00e1 \u00feann dag sem \u00fe\u00fa \u00fatf\u00f3rst af Egyptalandi um alla \u00fe\u00edna l\u00edfdaga. \u00dear skal ekki neitt s\u00fardeig sj\u00e1st \u00e1 \u00feeim sj\u00f6 d\u00f6gum innan allra \u00feinna landamerkja. Og \u00fear skal ekki neitt eftirskiljast, af \u00fev\u00ed kj\u00f6tinu sem a\u00f0 kveldi \u00feess fyrsta dagsins sl\u00e1tra\u00f0 er, til morgunsins.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa m\u00e1tt ekki offra \u00fea\u00f0 p\u00e1skaoffri\u00f0 innan nokkra \u00feinna sta\u00f0ardyra sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefur gefi\u00f0 \u00fe\u00e9r, <span class=\"athugasemd\" title=\"2 Para. 35\">[<\/span> heldur \u00ed \u00feeim sta\u00f0 sem Drottinn mun \u00fatvelja a\u00f0 hans nafn skuli \u00fear b\u00faa, \u00fear skalt \u00fe\u00fa offra p\u00e1skaoffri\u00f0 a\u00f0 kveldi dags \u00fe\u00e1 e\u00f0 s\u00f3lin gengur undir, \u00e1 \u00feeim t\u00edma sem \u00fe\u00fa \u00fatdr\u00f3gst af Egyptalandi. Og \u00fe\u00fa skalt steikja og eta \u00fea\u00f0 \u00ed \u00feeim sta\u00f0 sem Drottinn mun \u00fatvelja. Og \u00fear eftir \u00e1 a\u00f0 morni sn\u00fa \u00fe\u00fa heim til \u00fe\u00edns heimilis. Sex daga skaltu eta \u00f3s\u00fdrt brau\u00f0, s\u00e1 sj\u00f6undi dagurinn er samkomufundur Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns, \u00fe\u00e1 skaltu ekki neitt erfi\u00f0a.<\/p>\n<p>\tSj\u00f6 vikur skalt \u00fe\u00fa reikna og upphefja a\u00f0 telja n\u00e6r e\u00f0 tilteki\u00f0 ver\u00f0ur me\u00f0 sig\u00f0inum \u00ed korni\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Hv\u00edtasunna\">[<\/span> Og \u00fe\u00fa skalt \u00fe\u00e1 halda Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum eina vikuh\u00e1t\u00ed\u00f0 og gef honum sj\u00e1lfviljugar gjafir af \u00feinni hendi eftir \u00fev\u00ed sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefur blessa\u00f0 \u00feig. Og \u00fe\u00fa skalt vera gla\u00f0ur fyrir Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum Drottni, \u00fe\u00fa og \u00feinn sonur og \u00fe\u00edn d\u00f3ttir, \u00feinn \u00fej\u00f3nustuma\u00f0ur, \u00fe\u00edn \u00fej\u00f3nustukvinna og Lev\u00edtinn sem er innan \u00feinna portdyra, s\u00e1 hinn framandi, hinn f\u00f6\u00f0urlausi og ekkjan sem a\u00f0 er hj\u00e1 \u00fe\u00e9r, \u00ed \u00feeim sta\u00f0 sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefur \u00fatvali\u00f0 \u00fea\u00f0 hans nafn skuli \u00fear b\u00faa. Og huglei\u00f0 \u00fe\u00fa \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur og veri\u00f0 einn \u00fer\u00e6ll \u00ed Egyptalandi, a\u00f0 \u00fe\u00fa haldir og gj\u00f6rir eftir \u00feessum bo\u00f0or\u00f0um.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt halda laufsk\u00e1lah\u00e1t\u00ed\u00f0 sj\u00f6 daga \u00ed samt n\u00e6r e\u00f0 \u00fe\u00fa hefur innsafna\u00f0 af \u00feinni kornhl\u00f6\u00f0u og af \u00feinni v\u00edn\u00fer\u00fagu. <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ Laufsk\u00e1lah\u00e1t\u00ed\u00f0\">[<\/span> Og \u00fe\u00fa skalt vera gla\u00f0ur \u00e1 \u00feeirri h\u00e1t\u00ed\u00f0, \u00fe\u00fa og \u00feinn sonur, \u00fe\u00edn d\u00f3ttir, \u00feinn \u00fej\u00f3nustuma\u00f0ur, \u00fe\u00edn amb\u00e1tt, Lev\u00edtinn, s\u00e1 hinn framandi og hinn f\u00f6\u00f0urlausi og ekkjan sem er innan \u00feinna sta\u00f0ardyra. Sj\u00f6 daga skaltu halda Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum \u00feessa h\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed \u00feeim sta\u00f0 sem Drottinn mun \u00fatvelja. \u00dev\u00ed a\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn mun blessa \u00feig \u00ed allri \u00feinni inntekt og \u00ed \u00f6llum \u00fe\u00ednum handaverkum. \u00dear fyrir skaltu vera gla\u00f0ur.<\/p>\n<p>\t\u00derisvar sinnum \u00e1 \u00e1rinu skal allt hva\u00f0 kallkyns er hj\u00e1 \u00fe\u00e9r augl\u00fdsast fyrir Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum \u00ed \u00feeim sta\u00f0 sem Drottinn mun \u00fatvelja: <span class=\"athugasemd\" title=\"Exod. 23; 24 \/ Levit. 23\">[<\/span> \u00c1 \u00feeirra \u00f3s\u00fdr\u00f0ra brau\u00f0a h\u00e1t\u00ed\u00f0inni og \u00e1 \u00feeirri vikuhaldsh\u00e1t\u00ed\u00f0inni og \u00e1 \u00feeirri laufsk\u00e1lah\u00e1t\u00ed\u00f0inni. En enginn skal \u00fear t\u00f3mum h\u00f6ndum augl\u00fdsast fyrir Drottni, hver eftir gj\u00f6f sinnar handar, eftir \u00feeirri blessan sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefur gefi\u00f0 \u00fe\u00e9r.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00de\u00fa skalt hyggja a\u00f0 \u00feeim m\u00e1na\u00f0inum ab\u00edb a\u00f0 \u00fe\u00fa haldir \u00fe\u00e1 Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum p\u00e1ska. [ \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e1 \u00feeim m\u00e1na\u00f0i ab\u00edb \u00fatleiddi \u00feig Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn af Egyptalandi \u00e1 n\u00e1ttart\u00edma. Og \u00fe\u00fa skalt f\u00e6ra Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum p\u00e1skaoffur, naut og sau\u00f0i, \u00ed \u00feeim sta\u00f0 sem Drottinn \u00fatvelur a\u00f0 hans nafn skuli \u00fear b\u00faa. \u00de\u00fa skalt ekki s\u00fardeig eta \u00e1 samri h\u00e1t\u00ed\u00f0 heldur skalt \u00fe\u00fa eta \u00f3s\u00fdrt brau\u00f0 \u00fatleg\u00f0arinnar \u00ed sj\u00f6 daga \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa fl\u00fd\u00f0ir af Egyptalandi me\u00f0 hr\u00e6\u00f0slu, a\u00f0 \u00fe\u00fa skulir so minnast \u00e1 \u00feann dag sem \u00fe\u00fa \u00fatf\u00f3rst af Egyptalandi um alla \u00fe\u00edna l\u00edfdaga. \u00dear skal ekki <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-16-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2861","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2861","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2861"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2861\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2861"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}