{"id":2859,"date":"2017-12-18T18:31:57","date_gmt":"2017-12-18T18:31:57","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-14-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:57","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:57","slug":"fimmta-mosebok-14-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-14-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 14. kafli"},"content":{"rendered":"<p>\u00de\u00e9r eru\u00f0 b\u00f6rn Drottins Gu\u00f0s y\u00f0ars. <span class=\"athugasemd\" title=\"Exod. 19 \/ Levit. 19\">[<\/span> \u00de\u00e9r skulu\u00f0 ekki vekja y\u00f0ur benjar e\u00f0a gj\u00f6ra y\u00f0ur sk\u00f6ll\u00f3tta fyrir ofan augun eftir n\u00f6kkrun framli\u00f0inn. \u00dev\u00ed \u00fe\u00fa ert eitt heilagt f\u00f3lk Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns. Og Drottinn hefur \u00fatvali\u00f0 \u00feig a\u00f0 \u00fe\u00fa skulir vera hans eigind\u00f3mur, \u00fat af \u00f6llu \u00fev\u00ed f\u00f3lki sem er \u00e1 j\u00f6r\u00f0u.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt ekki eta neitt sv\u00edvir\u00f0ilegt. <span class=\"athugasemd\" title=\"Hrein og \u00f3hrein d\u00fdr\">[<\/span> \u00deessi eru \u00feau d\u00fdr sem \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 eta: Naut, sau\u00f0ir, geitf\u00e9, hj\u00f6rtur, hind, hrein, steingeitin, einhyrningur, \u00faruxinn, elgsd\u00fdri\u00f0 og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 eta allt \u00fea\u00f0 kvikf\u00e9 sem klaufir hefur og j\u00f3rtrar. En \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 ekki eta \u00fea\u00f0 sem j\u00f3rtrar og ekki hefur klaufir: \u00dalfaldann, h\u00e9rann og k\u00fan\u00edsi\u00f0. \u00deessi j\u00f3rtra og hafa \u00fe\u00f3 ekki klaufir. \u00deau skulu vera y\u00f0ur \u00f3hrein. En sv\u00edni\u00f0, \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi klaufir, \u00fe\u00f3 \u00fear fyrir a\u00f0 \u00fea\u00f0 j\u00f3rtrar ekki, \u00fe\u00e1 skal \u00fea\u00f0 vera y\u00f0ur \u00f3hreint. \u00de\u00e9r skulu\u00f0 ekki eta sl\u00e1tri\u00f0 af \u00feeim og \u00feeirra hr\u00e6 skulu \u00fe\u00e9r ekki heldur snerta.<\/p>\n<p>\t\u00deetta er \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 eta af \u00f6llu \u00fev\u00ed sem \u00ed vatninu er: Allt \u00fea\u00f0 sem hefur sundugga og hreistur, \u00fea\u00f0 skulu \u00fe\u00e9r eta. <span class=\"athugasemd\" title=\"Fiskar\">[<\/span> En \u00fea\u00f0 allt sem ekki hefur sundugga og hreistur, \u00fea\u00f0 skulu \u00fe\u00e9r ekki eta \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er y\u00f0ur \u00f3hreint.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e9r megi\u00f0 eta alla hreina fugla. <span class=\"athugasemd\" title=\"\">[<\/span> En \u00feessir eru \u00feeir sem \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 ekki eta: \u00d6rninn, haukurinn, kj\u00f3inn, langv\u00edinn, gamminn, valurinn me\u00f0 sinni tegund, og alla hrafna me\u00f0 \u00feeirra tegund, str\u00fassinn, uglan, gaukurinn, smyrillinn me\u00f0 sinni tegund, n\u00e1ttuglan, hornuglan, fl\u00e6\u00f0arm\u00fasin, m\u00fasarbr\u00f3\u00f0urinn, skj\u00f3rinn, tranan, orrinn, hegrinn me\u00f0 sinni tegund, akurh\u00e6nsnin og sv\u00f6luna og allt \u00fea\u00f0 fuglakyn sem skr\u00ed\u00f0ur, \u00fea skal fyrir y\u00f0ur \u00f3hreint vera og \u00fe\u00e1 skulu \u00fe\u00e9r ekki eta. En \u00fe\u00e1 hina hreinu fuglana skulu \u00fe\u00e9r eta.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e9r skulu\u00f0 ekki neitt hr\u00e6 eta. \u00deeim hinum framanda innan \u00feinna borgarhli\u00f0a m\u00e1ttu \u00fea\u00f0 gefa a\u00f0 hann eti \u00fea\u00f0, elligar \u00fe\u00fa sel \u00fea\u00f0 einhverjum framanda. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa ert eitt heilagt f\u00f3lk Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns. \u00de\u00fa skalt ekki sj\u00f3\u00f0a ki\u00f0i\u00f0 \u00e1 me\u00f0an \u00fea\u00f0 s\u00fdgur s\u00edna m\u00f3\u00f0ur.<\/p>\n<p>\tHvert \u00e1r \u00fe\u00e1 skalt \u00fe\u00fa fr\u00e1skilja t\u00edunda partinn af \u00f6llu \u00fe\u00ednu korns\u00e6\u00f0i og jar\u00f0ar\u00e1vexti sem innkemur af \u00fe\u00ednum akurl\u00f6ndum. <span class=\"athugasemd\" title=\"T\u00edundir af \u00f6llum \u00e1vexti \/ Levit. 27\">[<\/span> Og \u00fe\u00fa skalt eta \u00fea\u00f0 fyrir Drottnim Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum \u00ed \u00feeim sta\u00f0 sem hann \u00fatvelur a\u00f0 hans nafni skuli b\u00faa \u00fear, sem er t\u00edundina af \u00fe\u00ednu korni, \u00ednu v\u00edni, \u00fe\u00ednu vi\u00f0smj\u00f6ri og frumbur\u00f0ina af \u00fe\u00ednum nautum og sau\u00f0f\u00e9, so a\u00f0 \u00fe\u00fa megir l\u00e6ra a\u00f0 \u00f3ttast Drottin Gu\u00f0 \u00feinn um alla \u00fe\u00edna l\u00edfdaga.<\/p>\n<p>\tEn n\u00e6r e\u00f0 s\u00e1 vegurinn er \u00fe\u00e9r oflangur a\u00f0 \u00fe\u00fa getur ekki bori\u00f0 svoddan \u00feanga\u00f0, \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00e1 sta\u00f0ur er so mj\u00f6g \u00ed fjarska vi\u00f0 \u00feig sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefur \u00fatvali\u00f0 a\u00f0 hans nafn skuli b\u00faa \u00fear (\u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefur blessa\u00f0 \u00feig), \u00fe\u00e1 sel \u00fea\u00f0 \u00fat fyrir peninga \u00ed \u00fe\u00edna h\u00f6nd og gakk til \u00feess sta\u00f0ar sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefur \u00fatvali\u00f0 og kaup \u00fear aftur fyrir \u00fe\u00e1 s\u00f6mu peninga hva\u00f0 \u00fe\u00edn s\u00e1la hefur lysting til og neyt \u00feess \u00ed \u00feeim sama sta\u00f0 fyrir Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum og vert gla\u00f0ur, \u00fe\u00fa og \u00feitt heimaf\u00f3lk og \u00feinn Lev\u00edti sem er fyrir innan \u00feinna portdyra. <span class=\"athugasemd\" title=\"Num. 18 \/ Kennimenn skulu ekki yfirgefast \/ Deut. 26\">[<\/span> \u00de\u00fa skalt ekki yfirgefa hann \u00fev\u00ed hann hefur \u00f6ngva hlutdeild e\u00f0ur arft\u00f6ku me\u00f0 \u00fe\u00e9r.<\/p>\n<p>\t\u00deri\u00f0ja hvert \u00e1r skaltu fr\u00e1skilja alla t\u00edund a\u00f0 \u00feinni inntekt \u00feess sama \u00e1rsins og \u00fea\u00f0 skaltu leggja innan \u00feinna portdyra. So skal Lev\u00edtinn sem \u00f6ngva arft\u00f6ku e\u00f0ur hlutdeild hefur me\u00f0 \u00fe\u00e9r og s\u00e1 hinn framandi og hinn f\u00f6\u00f0urlausi og ekkjan sem a\u00f0 er innan \u00feinna sta\u00f0ardyra koma \u00feanga\u00f0 og neyta \u00feess og eta sig metta so a\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn blessi \u00feig \u00ed \u00f6llum \u00fe\u00ednum handaverkum sem \u00fe\u00fa gj\u00f6rir.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00de\u00e9r eru\u00f0 b\u00f6rn Drottins Gu\u00f0s y\u00f0ars. [ \u00de\u00e9r skulu\u00f0 ekki vekja y\u00f0ur benjar e\u00f0a gj\u00f6ra y\u00f0ur sk\u00f6ll\u00f3tta fyrir ofan augun eftir n\u00f6kkrun framli\u00f0inn. \u00dev\u00ed \u00fe\u00fa ert eitt heilagt f\u00f3lk Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns. Og Drottinn hefur \u00fatvali\u00f0 \u00feig a\u00f0 \u00fe\u00fa skulir vera hans eigind\u00f3mur, \u00fat af \u00f6llu \u00fev\u00ed f\u00f3lki sem er \u00e1 j\u00f6r\u00f0u. \u00de\u00fa skalt ekki eta neitt sv\u00edvir\u00f0ilegt. [ \u00deessi eru \u00feau d\u00fdr sem \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 eta: Naut, sau\u00f0ir, geitf\u00e9, hj\u00f6rtur, hind, hrein, steingeitin, einhyrningur, \u00faruxinn, elgsd\u00fdri\u00f0 og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 eta allt \u00fea\u00f0 kvikf\u00e9 sem klaufir hefur og j\u00f3rtrar. En \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 ekki eta \u00fea\u00f0 sem j\u00f3rtrar og ekki hefur <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-14-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2859","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2859","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2859"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2859\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2859"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}