{"id":2858,"date":"2017-12-18T18:31:57","date_gmt":"2017-12-18T18:31:57","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-13-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:57","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:57","slug":"fimmta-mosebok-13-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-13-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 13. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Ef a\u00f0 nokkur sp\u00e1m\u00f0ur elligar draumspekingur r\u00eds upp \u00e1 me\u00f0al y\u00f0ar og segir fyrir eitthva\u00f0 teikn e\u00f0a st\u00f3rmerki og \u00fea\u00f0 teikn e\u00f0ur st\u00f3rmerki framkemur sem hann sag\u00f0i \u00fe\u00e9r fyrir og hann segir: &#8222;L\u00e1tum oss eftirfylgja <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (Annarlegum) \/ \u00deessi sp\u00e1ma\u00f0ur kennir \u00ed m\u00f3ti gamallri sta\u00f0fastri kenningu og vill (\u00fear hann nefnir h\u00e9r annarlega gu\u00f0i) ekki n\u00e6gjst me\u00f0 gamla l\u00e6rd\u00f3minn. \u00deessum skal ekki tr\u00faa \u00fe\u00f3 hann gj\u00f6ri jarteiknir. En ??? Xviy. Kap. D\u00e6mist s\u00e1 sp\u00e1ma\u00f0ur sem ekki kennir \u00ed gegn \u00feeim fyrsta l\u00e6rd\u00f3mi heldur kemur me\u00f0 n\u00fdjan l\u00e6rd\u00f3m. \u00deessum ber a\u00f0 sta\u00f0festa sinn l\u00e6rd\u00f3m me\u00f0 jarteiknum e\u00f0a hitt hann heyrist ekki\">[<\/span> annarlegum gu\u00f0um sem \u00fe\u00e9r \u00feekki\u00f0 ekki og \u00fej\u00f3na \u00feeim&#8220; \u00fe\u00e1 skalt \u00fe\u00fa ekki hl\u00fd\u00f0a \u00feeim or\u00f0um \u00feess sama sp\u00e1manns e\u00f0a draumspekings. <span class=\"athugasemd\" title=\"Gu\u00f0s or\u00f0i skulu menn b\u00edhalda\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 Drottinn y\u00f0ar Gu\u00f0 hann freistar y\u00f0ar a\u00f0 hann vill reyna hvert \u00fe\u00e9r elski\u00f0 hann af \u00f6llu hjarta og af allri s\u00e1lu. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 eftirfylgja Drottni Gu\u00f0i y\u00f0ar og \u00f3ttast hann og var\u00f0veita hans bo\u00f0or\u00f0 og hl\u00fd\u00f0a hans raust og \u00fej\u00f3na honum og hyllast hann a\u00f0. En s\u00e1 sp\u00e1ma\u00f0ur e\u00f0ur draumspekingur skal deyja, af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann vill burt sn\u00faa y\u00f0ur \u00ed fr\u00e1 Drottni Gu\u00f0i y\u00f0ar sem \u00fatleiddi y\u00f0ur af Egyptalandi og frelsa\u00f0i y\u00f0ur af \u00fev\u00ed \u00fer\u00e6ld\u00f3msh\u00fasinu, og \u00fea\u00f0 hann hefur villt \u00feig af \u00feeim veginum sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefur bo\u00f0i\u00f0 \u00fe\u00e9r a\u00f0 ganga \u00e1, so a\u00f0 \u00fe\u00fa kunnir a\u00f0 skilja fr\u00e1 \u00fe\u00e9r \u00fea\u00f0 hi\u00f0 vonda.<\/p>\n<p>\tN\u00e6r e\u00f0 \u00feinn br\u00f3\u00f0ir, sonur \u00feinnar m\u00f3\u00f0ur, elliegar sonur \u00feinn e\u00f0a d\u00f3ttir \u00fe\u00edn, elligar \u00fe\u00edn h\u00fasfreyja \u00ed fa\u00f0mi \u00fe\u00ednum e\u00f0a vinur \u00feinn, \u00feann \u00fe\u00fa elskar sem \u00feitt hjarta, r\u00e6\u00f0ur \u00fe\u00e9r heimuglega og segir: &#8222;L\u00e1tum oss fara og \u00fej\u00f3na annarlegum gu\u00f0um&#8220; (sem hverki \u00feekkir \u00fe\u00fa n\u00e9 \u00fe\u00ednir forfe\u00f0ur) sem eru \u00e1 me\u00f0al \u00feess f\u00f3lksins sem \u00ed kringum y\u00f0ur er, hvert a\u00f0 \u00feeir eru heldur n\u00e6rri \u00fe\u00e9r e\u00f0ur fjarri, \u00ed fr\u00e1 einum jar\u00f0arendanum allt til ins annars, \u00fe\u00e1 sam\u00feykk \u00fea\u00f0 ekki me\u00f0 honum og hl\u00fd\u00f0 honum ekki a\u00f0. Og \u00feitt auga skal ekki v\u00e6gja honum og \u00fe\u00fa skalt ekki honum miskunnsamur vera e\u00f0ur sk\u00fdla honum, heldur skalt \u00fe\u00fa drepa hann, \u00fe\u00edn h\u00f6nd skal vera hin fyrsta yfir honum til a\u00f0 l\u00edfl\u00e1ta hann og s\u00ed\u00f0an \u00fear n\u00e6st h\u00f6ndin alls alm\u00fagans. Me\u00f0ur grj\u00f3ti skal hann gr\u00fdttur vera til dau\u00f0a \u00fev\u00ed a\u00f0 hann vildi \u00ed burt villa \u00feig fr\u00e1 Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum sem \u00fatleiddi \u00feig af Egyptalandi, af \u00fer\u00e6ld\u00f3msh\u00fasinu, so \u00fea\u00f0 allur \u00cdsrael megi \u00fea\u00f0 heyra og \u00f3ttast \u00fea\u00f0 og \u00e1stunda ekki framar a\u00f0 gj\u00f6ra svoddan illskuverk \u00e1 me\u00f0al y\u00f0ar.<\/p>\n<p>\tEf a\u00f0 \u00fe\u00fa heyrir \u00ed nokkrum af \u00fe\u00ednum st\u00f6\u00f0um sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefur gefi\u00f0 \u00fe\u00e9r a\u00f0 b\u00faa \u00fat\u00ed, \u00fea\u00f0 menn segja: &#8222;\u00dear eru nokkrir af Bel\u00edals b\u00f6rnum \u00fatgengnir \u00e1 me\u00f0al \u00fe\u00edn og hafa villt sta\u00f0arins innbyggjara og sagt: L\u00e1tum oss fara og \u00fej\u00f3na annarlegum gu\u00f0um sem \u00fe\u00e9r \u00feekki\u00f0 ekki til&#8220; \u00fe\u00e1 skalt \u00fe\u00fa innvir\u00f0ulega rannsaka og spyrjast um. Og ef \u00fea\u00f0 finnst \u00ed sannleika a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 so vissulegana a\u00f0 s\u00fa sv\u00edvir\u00f0ing s\u00e9 or\u00f0in \u00e1 me\u00f0al y\u00f0ar, \u00fe\u00e1 skaltu sl\u00e1 borgarmennina \u00ed \u00feeim sama sta\u00f0 me\u00f0 sver\u00f0seggjum og afm\u00e1 \u00fe\u00e1 me\u00f0 \u00f6llu \u00fev\u00ed sem \u00fear er inni og \u00feeirra f\u00e9na\u00f0 me\u00f0 sver\u00f0seggjum. Og \u00fe\u00fa skalt s\u00ed\u00f0an bera allt \u00feeirra herfang \u00e1 mitt str\u00e6ti\u00f0 og brenna \u00fea\u00f0 upp me\u00f0 eldi, b\u00e6\u00f0i sta\u00f0inn og allt \u00feeirra herfang me\u00f0ur \u00f6\u00f0ru fyrir Drottni \u00fe\u00ednum Gu\u00f0i, so a\u00f0 \u00fea\u00f0 bl\u00edfi \u00fear liggjandi \u00ed einni hr\u00fagu \u00e6vinlega og byggist s\u00ed\u00f0an aldrei upp aftur. Og l\u00e1t ekki neitt af \u00feeirri b\u00f6lvan lo\u00f0a \u00fe\u00e9r vi\u00f0 hendur so a\u00f0 Drottinn megi sn\u00faa s\u00e9r fr\u00e1 sinni heiftarrei\u00f0i og gefa \u00fe\u00e9r miskunnsemi og vera \u00fe\u00e9r l\u00edknsamur og margfalda \u00feig l\u00edka sem hann hefur svari\u00f0 \u00fe\u00ednum forfe\u00f0rum. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur heyrt raust Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns a\u00f0 halda \u00f6ll hans bo\u00f0or\u00f0 sem \u00e9g b\u00fd\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00ed dag svo a\u00f0 \u00fe\u00fa gj\u00f6rir \u00fea\u00f0 sem r\u00e9tt er fyrir Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns augs\u00fdn.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Ef a\u00f0 nokkur sp\u00e1m\u00f0ur elligar draumspekingur r\u00eds upp \u00e1 me\u00f0al y\u00f0ar og segir fyrir eitthva\u00f0 teikn e\u00f0a st\u00f3rmerki og \u00fea\u00f0 teikn e\u00f0ur st\u00f3rmerki framkemur sem hann sag\u00f0i \u00fe\u00e9r fyrir og hann segir: &#8222;L\u00e1tum oss eftirfylgja [ annarlegum gu\u00f0um sem \u00fe\u00e9r \u00feekki\u00f0 ekki og \u00fej\u00f3na \u00feeim&#8220; \u00fe\u00e1 skalt \u00fe\u00fa ekki hl\u00fd\u00f0a \u00feeim or\u00f0um \u00feess sama sp\u00e1manns e\u00f0a draumspekings. [ \u00dev\u00ed a\u00f0 Drottinn y\u00f0ar Gu\u00f0 hann freistar y\u00f0ar a\u00f0 hann vill reyna hvert \u00fe\u00e9r elski\u00f0 hann af \u00f6llu hjarta og af allri s\u00e1lu. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 eftirfylgja Drottni Gu\u00f0i y\u00f0ar og \u00f3ttast hann og var\u00f0veita hans bo\u00f0or\u00f0 og hl\u00fd\u00f0a hans raust <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-13-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2858","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2858","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2858"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2858\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2858"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}