{"id":2854,"date":"2017-12-18T18:31:57","date_gmt":"2017-12-18T18:31:57","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-9-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:57","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:57","slug":"fimmta-mosebok-9-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-9-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 9. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Heyr \u00fe\u00fa, \u00cdsrael, \u00fe\u00fa munt \u00ed dag ganga yfir um J\u00f3rdan so a\u00f0 \u00fe\u00fa kunnir inn a\u00f0 koma og undir \u00feig a\u00f0 leggja \u00fe\u00e6r \u00fej\u00f3\u00f0ir sem a\u00f0 eru st\u00e6rri og sterkari en \u00fe\u00fa, st\u00f3ra sta\u00f0i, h\u00e1tt uppm\u00fara\u00f0a allt \u00ed himininn, eitt risavaxi\u00f0 f\u00f3lk, sonu Enak\u00edm, hverja e\u00f0 \u00fe\u00fa hefur \u00feekkt og heyrt geti\u00f0: &#8222;Hver kann a\u00f0 standa \u00ed m\u00f3ti sonum Enak?&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00c1minning M\u00f3ses til \u00cdsraels l\u00fd\u00f0s\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tSo skaltu vita \u00ed dag a\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn gengur fyrir \u00fe\u00e9r, einn forey\u00f0andi eldur. Hann mun forey\u00f0a \u00feeim og undirleggja \u00fe\u00e1 fyrir \u00fe\u00e9r og hann mun \u00ed burtdr\u00edfa \u00fe\u00e1 og fyrirkoma \u00feeim snarlega so sem \u00fea\u00f0 Drottinn hefur tilsagt \u00fe\u00e9r.<\/p>\n<p>\tN\u00e6r e\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefur n\u00fa \u00fatdrifi\u00f0 \u00fe\u00e1 fyrir \u00fe\u00e9r so seg \u00fe\u00fa ekki \u00ed \u00fe\u00ednu hjarta: &#8222;Drottinn hefur innleitt mig til a\u00f0 eignast \u00feetta land fyrir m\u00edns r\u00e9ttl\u00e6tis sakir&#8220; \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn \u00ed burt dr\u00edfur \u00feessa hei\u00f0ingja fyrir \u00fe\u00e9r fyrir sakir \u00feeirra \u00f3gu\u00f0legs ath\u00e6fis. <span class=\"athugasemd\" title=\"Eigi fyrir f\u00f3lksins r\u00e9ttl\u00e6tis sakir heldur af n\u00e1\u00f0inni og vegna fyrirheitsins ver\u00f0ur \u00fea\u00f0 land f\u00f3lkinu gefi\u00f0\">[<\/span> \u00de\u00fa kemur \u00fear ekki inn til a\u00f0 eignast \u00feeirra land vegna \u00fe\u00edns r\u00e9ttl\u00e6tis og ekki fyrir \u00fe\u00edns hjartans r\u00e9ttv\u00edsi sakir, heldur \u00fatdr\u00edfur Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn \u00feessa hei\u00f0ingja fyrir \u00fe\u00e9r vegna \u00feeirra sj\u00e1lfs illskusamlegs ath\u00e6fis, so \u00fea\u00f0 Drottinn vildi halda \u00feau or\u00f0 sem hann s\u00f3r \u00fe\u00ednum forfe\u00f0rum Abraham, \u00cdsak og Jakob.<\/p>\n<p>\tSo skaltu n\u00fa vita a\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn gefur \u00fe\u00e9r ekki \u00feetta g\u00f3\u00f0a landi\u00f0 a\u00f0 eignast fyrir \u00fe\u00edns r\u00e9ttl\u00e6tis sakir, af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa ert eitt har\u00f0sv\u00edra\u00f0 f\u00f3lk. Huglei\u00f0 \u00fe\u00fa \u00fea\u00f0 og gleym \u00fev\u00ed ekki hvernin a\u00f0 \u00fe\u00fa reittir Drottin Gu\u00f0 \u00feinn til rei\u00f0i \u00e1 ey\u00f0im\u00f6rkinni. \u00cd fr\u00e1 \u00feeim degi e\u00f0 \u00fe\u00fa dr\u00f3gst \u00fat af Egyptalandi allt til \u00feess er \u00fe\u00e9r komu\u00f0 hinga\u00f0 til \u00feessa sta\u00f0ar \u00fe\u00e1 hafi \u00fe\u00e9r veri\u00f0 Drottni \u00f3hl\u00fd\u00f0ugir. <span class=\"athugasemd\" title=\"M\u00f3ses \u00e1minnir l\u00fd\u00f0inn um hans \u00f3hl\u00fd\u00f0ni \/ Exod. 17; 19; 31\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00ed H\u00f3reb reittu \u00fe\u00e9r Drottin so mj\u00f6g a\u00f0 hann \u00ed rei\u00f0i vildi \u00fe\u00e1 \u00ed ey\u00f0i hafa lagt y\u00f0ur \u00fe\u00e1 \u00e9g var uppgenginn \u00e1 fjalli\u00f0 a\u00f0 me\u00f0taka \u00feau steinspj\u00f6ldin, \u00fe\u00e6r s\u00e1ttm\u00e1lans t\u00f6flur sem Drotitnn gj\u00f6r\u00f0i vi\u00f0 y\u00f0ur, og \u00e9g var \u00fear \u00e1 fjallinu \u00ed fj\u00f6rutygi daga og fj\u00f6rutygi n\u00e6tur og \u00e9t \u00e1t ekki brau\u00f0 og drakk ekki vatn. Og Drottinn gaf m\u00e9r tv\u00e6r steint\u00f6flur sem voru skrifa\u00f0ar me\u00f0 Gu\u00f0s fingri og \u00fear \u00e1 \u00f6ll \u00feau or\u00f0 sem Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 y\u00f0ur \u00e1 fjallinu af eldinum \u00e1 \u00feeim degi sem \u00fe\u00e9r voru\u00f0 \u00fear til samans komnir.<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00e1 e\u00f0 \u00feeir fj\u00f6rutygi dagar og fj\u00f6rutygi n\u00e6tur voru li\u00f0nar \u00fe\u00e1 gaf Drottinn m\u00e9r tv\u00f6 steinspj\u00f6ld s\u00e1ttm\u00e1lans og sag\u00f0i til m\u00edn: &#8222;Statt upp, far \u00fe\u00fa snarlega ofan h\u00e9\u00f0an \u00fea\u00f0 \u00feitt f\u00f3lk sem \u00fe\u00fa \u00fatleiddir af Egyptalandi hefur snarlega misgj\u00f6rt. \u00deeir eru \u00feegar afgengnir \u00feeim vegi sem \u00e9g bau\u00f0 \u00feeim. \u00deeir hafa gj\u00f6rt s\u00e9r eitt steypt l\u00edkneski.&#8220; Og Drottinn sag\u00f0i til m\u00edn: &#8222;\u00c9g s\u00e9 a\u00f0 \u00feetta f\u00f3lk er eitt har\u00f0sv\u00edra\u00f0 f\u00f3lk. L\u00e1ttu mig vera so a\u00f0 \u00e9g forey\u00f0i \u00feeim og afm\u00e1i \u00feeirra n\u00f6fn undir himninum. \u00c9g vil gj\u00f6ra eitt st\u00e6rra og sterkara f\u00f3lk \u00fat af \u00fe\u00e9r en \u00feetta er.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg sem \u00e9g sneri m\u00e9r og gekk ofan af fjallinu sem loga\u00f0i me\u00f0 eldi og haf\u00f0i \u00feau tv\u00f6 s\u00e1ttm\u00e1lsspj\u00f6ldin \u00ed m\u00ednum h\u00f6ndum \u00fe\u00e1 leit \u00e9g vi\u00f0 og sj\u00e1, \u00fe\u00e1 h\u00f6f\u00f0u \u00fe\u00e9r misgj\u00f6rt vi\u00f0 Drottin Gu\u00f0 y\u00f0arn \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r gj\u00f6r\u00f0u\u00f0 y\u00f0ur einn steyptan k\u00e1lf og voru\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feegar afgengnir af \u00feeim veginum sem Drottinn bau\u00f0 y\u00f0ur. <span class=\"athugasemd\" title=\"Synd og misgj\u00f6r\u00f0 l\u00fd\u00f0sins\">[<\/span> \u00de\u00e1 greip \u00e9g b\u00e6\u00f0i spj\u00f6ldin og fleyg\u00f0a \u00e9g \u00feeim af b\u00e1\u00f0um h\u00f6ndum og \u00ed sundurbraut \u00feau fyrir y\u00f0ar augum. Og \u00e9g f\u00e9ll fram fyrir Drottin so sem \u00ed fyrstu fj\u00f6rugyti daga og fj\u00f6rutygi n\u00e6tur og \u00e1t ekki brau\u00f0 og drakk ekki vatn fyrir allra y\u00f0vara synda sakir sem \u00fe\u00e9r h\u00f6f\u00f0u\u00f0 misgj\u00f6rt \u00fear \u00fe\u00e9r gj\u00f6r\u00f0u\u00f0 svoddan illskugj\u00f6rning fyrir Drottni a\u00f0 reita hann svo til rei\u00f0i. <span class=\"athugasemd\" title=\"Steyptur k\u00e1lfur\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e9g var hr\u00e6ddur fyrir \u00feeirri rei\u00f0i og heiftarbr\u00e6\u00f0i me\u00f0 hverri a\u00f0 hann var til rei\u00f0i egndur yfir y\u00f0ur so a\u00f0 hann vildi afm\u00e1 y\u00f0ur. En Drottinn b\u00e6nheyr\u00f0i mig og so \u00ed \u00fea\u00f0 sama sinn.<\/p>\n<p>\tOg Drottinn var mj\u00f6g rei\u00f0ur vi\u00f0 Aron so a\u00f0 hann vildi afm\u00e1 hann. <span class=\"athugasemd\" title=\"Arons synd \/ Exod. 32\">[<\/span> En \u00e9g ba\u00f0 \u00feann sama t\u00edma fyrir Aron. En y\u00f0ar synd, \u00feann k\u00e1lfinn sem \u00fe\u00e9r h\u00f6f\u00f0u\u00f0 gj\u00f6rt, t\u00f3k \u00e9g og brennda hann upp \u00ed eldi og \u00ed sundurbraut hann og \u00e9g mola\u00f0i hann \u00ed sundur \u00ed sm\u00e1tt \u00feanga\u00f0 til a\u00f0 hann var\u00f0 a\u00f0 dufti og \u00e9g kasta\u00f0i \u00fev\u00ed duftinu \u00ed \u00feann l\u00e6k sem \u00fear rann ofan af fjallinu.<\/p>\n<p>\tL\u00edka so gj\u00f6r\u00f0u \u00fe\u00e9r Drottin rei\u00f0an \u00ed Tabera og Massa og \u00ed hj\u00e1 Girndargr\u00f6funum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Exod. 17 \/ Num. 11; 21\">[<\/span> Og \u00fe\u00e1 e\u00f0 hann sendi y\u00f0ur \u00fat af Kades Barnea og sag\u00f0i: &#8222;Fari\u00f0 upp og eignist \u00fea\u00f0 landi\u00f0 sem \u00e9g hefi gefi\u00f0 y\u00f0ur&#8220; \u00fe\u00e1 voru\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00f3hl\u00fd\u00f0ugir munni Drottins Gu\u00f0s y\u00f0ars og tr\u00fa\u00f0u\u00f0 ekki \u00e1 hann og hl\u00fdddu\u00f0 ekki hans raust. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 veri\u00f0 Drottni \u00f3hl\u00fd\u00f0ugir so lengi sem \u00fea\u00f0 \u00e9g hefi \u00feekkt y\u00f0ur.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 f\u00e9ll \u00e9g fram fyrir Drottin \u00ed fj\u00f6rutygi daga og fj\u00f6rutygi n\u00e6tur \u00e1 hverjum \u00e9g l\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn sag\u00f0i a\u00f0 hann vildi afm\u00e1 y\u00f0ur. <span class=\"athugasemd\" title=\"B\u00e6n M\u00f3ses\">[<\/span> En \u00e9g ba\u00f0 Drottin og sag\u00f0i: &#8222;Drottinn, Drottinn, fordjarfa ekki \u00feitt f\u00f3lk og \u00fe\u00edna arfleif\u00f0 sem \u00fe\u00fa frelsa\u00f0ir me\u00f0 \u00fe\u00ednum mikla krafti og \u00fatleiddir af Egyptalandi me\u00f0 voldugri h\u00f6nd. Minnst \u00fe\u00fa \u00e1 \u00fe\u00edna \u00fe\u00e9nara Abraham, \u00cdsak og Jakob. \u00c1l\u00edt \u00fe\u00fa ekki har\u00f0\u00fa\u00f0 og illskusamlegt ath\u00e6fi og misgj\u00f6r\u00f0 f\u00f3lks \u00feessa so a\u00f0 \u00fea\u00f0 land skuli ekki segja af hverju \u00fe\u00fa \u00fatleiddir oss: Drottinn gat ekki innleitt \u00fe\u00e1 \u00ed \u00fea\u00f0 landi\u00f0 sem hann lofa\u00f0i \u00feeim og hefur \u00fev\u00ed \u00fatleitt \u00fe\u00e1 a\u00f0 hann var\u00f0 \u00feeim rei\u00f0ur a\u00f0 hann so ni\u00f0urdrepi \u00fe\u00e1 \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni. <span class=\"athugasemd\" title=\"Exod. 32; 34 \/ Num. 14\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feeir eru \u00feitt f\u00f3lk og \u00fe\u00edn arfleif\u00f0 hvert e\u00f0 \u00fe\u00fa \u00fatleiddir me\u00f0 st\u00f3rum krafti og me\u00f0 \u00fe\u00ednum \u00fatr\u00e9ttum armlegg.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Heyr \u00fe\u00fa, \u00cdsrael, \u00fe\u00fa munt \u00ed dag ganga yfir um J\u00f3rdan so a\u00f0 \u00fe\u00fa kunnir inn a\u00f0 koma og undir \u00feig a\u00f0 leggja \u00fe\u00e6r \u00fej\u00f3\u00f0ir sem a\u00f0 eru st\u00e6rri og sterkari en \u00fe\u00fa, st\u00f3ra sta\u00f0i, h\u00e1tt uppm\u00fara\u00f0a allt \u00ed himininn, eitt risavaxi\u00f0 f\u00f3lk, sonu Enak\u00edm, hverja e\u00f0 \u00fe\u00fa hefur \u00feekkt og heyrt geti\u00f0: &#8222;Hver kann a\u00f0 standa \u00ed m\u00f3ti sonum Enak?&#8220; [ So skaltu vita \u00ed dag a\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn gengur fyrir \u00fe\u00e9r, einn forey\u00f0andi eldur. Hann mun forey\u00f0a \u00feeim og undirleggja \u00fe\u00e1 fyrir \u00fe\u00e9r og hann mun \u00ed burtdr\u00edfa \u00fe\u00e1 og fyrirkoma \u00feeim snarlega so sem \u00fea\u00f0 Drottinn <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-9-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2854","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2854","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2854"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2854\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2854"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}