{"id":2853,"date":"2017-12-18T18:31:57","date_gmt":"2017-12-18T18:31:57","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-8-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:57","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:57","slug":"fimmta-mosebok-8-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-8-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 8. kafli"},"content":{"rendered":"<p>\u00de\u00e9r skulu\u00f0 halda \u00f6ll \u00feau bo\u00f0or\u00f0 sem \u00e9g b\u00fd\u00f0 y\u00f0ur \u00ed dag so a\u00f0 \u00fe\u00e9r gj\u00f6ri\u00f0 \u00fear eftir, upp\u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00e9r megi\u00f0 lifa og fleiri ver\u00f0a og innkoma a\u00f0 eignast \u00fea\u00f0 landi\u00f0 sem Drottinn hefur svari\u00f0 y\u00f0ar forfe\u00f0rum. Og \u00fe\u00e9r skal til hugar koma allur s\u00e1 vegur sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefur leitt \u00feig \u00ed gegnum \u00e1 \u00feessum fj\u00f6rutygi \u00e1rum \u00fat \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkunni, a\u00f0 hann vildi au\u00f0m\u00fdkja \u00feig og reyna \u00feig, so a\u00f0 \u00fea\u00f0 yr\u00f0i auglj\u00f3st hva\u00f0 \u00fat\u00ed \u00fe\u00ednu hjarta v\u00e6ri, hvort \u00fe\u00fa mundir halda hans bo\u00f0or\u00f0 e\u00f0ur ei. Hann au\u00f0m\u00fdkti \u00feig og l\u00e9t \u00feig hungra og gaf \u00fe\u00e9r man a\u00f0 eta sem hverki \u00fe\u00fa e\u00f0ur \u00fe\u00ednir forfe\u00f0ur \u00feekktu, so a\u00f0 hann vildi l\u00e1ta \u00feig vita \u00fea\u00f0 ma\u00f0urinn lifi ekki alleinasta af brau\u00f0inu, heldur af \u00f6llu \u00fev\u00ed sem \u00fatgengur af munni Drottins. <span class=\"athugasemd\" title=\"Exod. 16 \/ Num. 11 \/ Matt. 4 \/ Deut. 26\">[<\/span> \u00de\u00edn kl\u00e6\u00f0i hafa ekki af aldri slitist \u00e1 \u00fe\u00e9r og \u00fe\u00ednir f\u00e6tur hafa ekki \u00fer\u00fatna\u00f0 \u00ed \u00feessi fj\u00f6rutygi \u00e1r. So kanntu n\u00fa a\u00f0 vi\u00f0urkenna \u00ed \u00fe\u00ednu hjarta a\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefur uppf\u00e6tt \u00feig, l\u00edka sem \u00fea\u00f0 a\u00f0 einn ma\u00f0ur uppf\u00e6\u00f0ir sinn son.<\/p>\n<p>\tSo var\u00f0veit \u00fe\u00fa n\u00fa bo\u00f0or\u00f0in Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns a\u00f0 \u00fe\u00fa gangir \u00e1 hans vegum og \u00f3ttist hann \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn innlei\u00f0ir \u00feig \u00ed eitt gott land, \u00ed \u00fea\u00f0 landi\u00f0 sem l\u00e6kir, vei\u00f0iv\u00f6tn og uppsprettubrunnar inni eru, sem framflj\u00f3ta \u00ed hj\u00e1 \u00feeim hj\u00e1 fj\u00f6llunum og \u00ed \u00feeim d\u00f6lunum, eitt land \u00fear e\u00f0 hveiti, bygg, v\u00ednvi\u00f0ir, f\u00edkjutr\u00e9 og granataepli inni eru, eitt land \u00fear e\u00f0 vi\u00f0smj\u00f6rstr\u00e9n og hunang vaxa \u00fati, eitt land \u00fear \u00fe\u00fa inni hefur n\u00f3g brau\u00f0 a\u00f0 eta og \u00feig \u00fer\u00fdtur ekki neitt, eitt land hvers steinar a\u00f0 eru j\u00e1rn \u00fear e\u00f0 \u00fe\u00fa kannt a\u00f0 h\u00f6ggva m\u00e1lm \u00far fj\u00f6llunum, og n\u00e6r \u00fe\u00fa hefur matar neytt og ert mettur a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00fe\u00e1 lofir Drottin Gu\u00f0 \u00feinn fyrir \u00fea\u00f0 g\u00f3\u00f0a landi\u00f0 sem hann hefur gefi\u00f0 \u00fe\u00e9r. <span class=\"athugasemd\" title=\"Landg\u00e6\u00f0i landsins\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tSo vara \u00feig n\u00fa vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa forgleymir ekki Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa var\u00f0veitir ekki hans bo\u00f0or\u00f0, r\u00e9ttindi og lagasetninga sem \u00e9g b\u00fd\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00ed dag a\u00f0 \u00fe\u00e1 n\u00e6r e\u00f0 \u00fe\u00fa hefur n\u00fa eti\u00f0 og ert mettur og \u00fe\u00e1 \u00fe\u00fa hefur uppbyggt pr\u00fd\u00f0ilegt h\u00fas og \u00fe\u00fa b\u00fdr \u00ed \u00fev\u00ed, \u00fe\u00ednir gripir og \u00fe\u00ednir sau\u00f0ir, silfur og gull, og allt \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fa hefur \u00fe\u00e1 \u00e1vaxtar sig, a\u00f0 \u00feitt hjarta st\u00e6ri sig \u00fe\u00e1 ekki og forgleymi Drottni \u00fe\u00ednum Gu\u00f0i sem \u00fatleiddi \u00feig af Egyptalandi, af \u00fer\u00e6ld\u00f3msh\u00fasinu, og leiddi \u00feig \u00ed gegnum \u00fe\u00e1 hinu miklu og hr\u00e6\u00f0ilegu ey\u00f0im\u00f6rk \u00fear sem a\u00f0 voru brennandi h\u00f6ggormar og scorpiones og ekki utan \u00feurra hrj\u00f3stur og vatsleysur og hann l\u00e9t vatn uppspretta af h\u00f6r\u00f0um steini til handa \u00fe\u00e9r og f\u00e6ddi \u00feig me\u00f0 man af hverju \u00fe\u00ednir forfe\u00f0ur vissu ekki neitt a\u00f0 segja, a\u00f0 hann so au\u00f0m\u00fdkti og reyndi \u00feig a\u00f0 hann gj\u00f6r\u00f0i \u00fe\u00e9r svo \u00fear eftir\u00e1 til g\u00f3\u00f0a. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ein \u00e1minning til \u00feakkl\u00e6tis \/ Exod. 16; 17 (JHS: Exod. 16; 17 \u00e1 a\u00f0 vera vi\u00f0: og leiddi \u00feig \u00ed gegnum...\">[<\/span> \u00de\u00fa hef\u00f0ir elligar m\u00e1tt segja \u00ed \u00fe\u00ednu hjarta: &#8222;M\u00edn magt sj\u00e1lfs og sterkleikur minna handa hefur orka\u00f0 m\u00e9r \u00feessa&#8220; heldur a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fa minnist \u00e1 Drottin Gu\u00f0 \u00feinn, \u00fev\u00ed a\u00f0 hann er s\u00e1 sem \u00fe\u00e9r gefur kraft til a\u00f0 gj\u00f6ra svo mikilsh\u00e1ttar gj\u00f6rninga, upp\u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 hann vildi halda sinn s\u00e1ttm\u00e1la sem hann hefur svari\u00f0 \u00fe\u00ednum forfe\u00f0rum, so sem \u00fea\u00f0 gengur n\u00fa til \u00e1 \u00feessum degi.<\/p>\n<p>\tEn forgleymir \u00fe\u00fa Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum og eftirfylgir annarlegum gu\u00f0um og \u00fej\u00f3nar \u00feeim og tilbi\u00f0ur \u00fe\u00e1, \u00fe\u00e1 vitna \u00e9g yfir y\u00f0ur \u00ed dag a\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 ey\u00f0ileggjast. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00d3gnarh\u00f3tan\">[<\/span> L\u00edka sem \u00feeir hei\u00f0ingjarnir hverjum e\u00f0 Drottinn foreyddi fyrir y\u00f0ar augs\u00fdn, svo l\u00edka skulu \u00fe\u00e9r og eirnin fyrirfarast af \u00fev\u00ed \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 ekki hl\u00fd\u00f0ugir veri\u00f0 raustinni Drottins Gu\u00f0s y\u00f0ars.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00de\u00e9r skulu\u00f0 halda \u00f6ll \u00feau bo\u00f0or\u00f0 sem \u00e9g b\u00fd\u00f0 y\u00f0ur \u00ed dag so a\u00f0 \u00fe\u00e9r gj\u00f6ri\u00f0 \u00fear eftir, upp\u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00e9r megi\u00f0 lifa og fleiri ver\u00f0a og innkoma a\u00f0 eignast \u00fea\u00f0 landi\u00f0 sem Drottinn hefur svari\u00f0 y\u00f0ar forfe\u00f0rum. Og \u00fe\u00e9r skal til hugar koma allur s\u00e1 vegur sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefur leitt \u00feig \u00ed gegnum \u00e1 \u00feessum fj\u00f6rutygi \u00e1rum \u00fat \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkunni, a\u00f0 hann vildi au\u00f0m\u00fdkja \u00feig og reyna \u00feig, so a\u00f0 \u00fea\u00f0 yr\u00f0i auglj\u00f3st hva\u00f0 \u00fat\u00ed \u00fe\u00ednu hjarta v\u00e6ri, hvort \u00fe\u00fa mundir halda hans bo\u00f0or\u00f0 e\u00f0ur ei. Hann au\u00f0m\u00fdkti \u00feig og l\u00e9t \u00feig hungra og gaf \u00fe\u00e9r <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-8-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2853","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2853","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2853"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2853\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2853"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}