{"id":2852,"date":"2017-12-18T18:31:54","date_gmt":"2017-12-18T18:31:54","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-7-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:54","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:54","slug":"fimmta-mosebok-7-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-7-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 7. kafli"},"content":{"rendered":"<p>N\u00e6r e\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn innlei\u00f0ir \u00feig \u00ed landi\u00f0 \u00ed hvert a\u00f0 \u00fe\u00fa skalt inn koma a\u00f0 eignast \u00fea\u00f0 og \u00fat dr\u00edfur fyrir \u00fe\u00e9r margar \u00fej\u00f3\u00f0ir sem eru \u00feeir Het\u00edter, G\u00edrg\u00f3s\u00edter, Amor\u00edter, Kanan\u00edter, Peres\u00edter, Hev\u00edter og Jeb\u00fas\u00edter, sj\u00f6 \u00fej\u00f3\u00f0ir sem eru st\u00e6rri og sterkari en \u00fe\u00fa ert, og n\u00e6r e\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn ofurgefur \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e6r so a\u00f0 \u00fe\u00fa sl\u00e1ir \u00fe\u00e6r \u00fe\u00e1 skalt \u00fe\u00fa forey\u00f0a \u00feeim a\u00f0 \u00fe\u00fa gj\u00f6rir \u00f6ngvan s\u00e1ttm\u00e1la vi\u00f0 \u00fe\u00e6r, eigi heldur au\u00f0s\u00fdnir \u00feeim nokkra n\u00e1\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Exod. 23 \/ Num. 21 \/ J\u00f3s. 24 \/ Exod. 15; 25\">[<\/span> \u00de\u00fa skalt \u00f6ngvar m\u00e6g\u00f0ir gj\u00f6ra vi\u00f0 \u00fe\u00e6r. <span class=\"athugasemd\" title=\"Skurgo\u00f0ad\u00fdrkan fyrirbo\u00f0in\">[<\/span> \u00de\u00fa skalt ekki gefa \u00feeirra sonum y\u00f0rar d\u00e6tur og \u00feeirra d\u00e6tur skulu \u00fe\u00e9r ekki taka til handa y\u00f0rum sonum. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e6r koma y\u00f0rum sonum til a\u00f0 falla fr\u00e1 m\u00e9r a\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00fej\u00f3ni annarlegum gu\u00f0um so a\u00f0 \u00fe\u00e1 bl\u00edfi rei\u00f0i Drottins upphv\u00f6tt yfir y\u00f0ur og afm\u00e1i y\u00f0ur flj\u00f3tlegana.<\/p>\n<p>\tHeldur skulu \u00fe\u00e9r gj\u00f6ra so vi\u00f0ur \u00fe\u00e1: \u00deeirra <span class=\"athugasemd\" title=\"sword Stalla\">[<\/span> altari skulu \u00fe\u00e9r ni\u00f0urbrj\u00f3ta, \u00feeirra sto\u00f0ir \u00ed sundur sl\u00e1, \u00feeirra lunda afh\u00f6ggva og \u00feeirra sk\u00fargo\u00f0 \u00ed eldi brenna. <span class=\"athugasemd\" title=\"Exod. 19\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa ert Drottni \u00fe\u00ednum Gu\u00f0i eitt heilagt f\u00f3lk. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00cdsrael \u00fatvalinn eignarl\u00fd\u00f0ur\">[<\/span> Og Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefur \u00fatvali\u00f0 \u00feig til f\u00f3lks s\u00edns eigind\u00f3ms \u00fat af \u00f6llu f\u00f3lki \u00fev\u00ed sem er \u00e1 j\u00f6r\u00f0u. Ekki hefur Drottinn me\u00f0teki\u00f0 og \u00fatvali\u00f0 y\u00f0ur fyrir \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00e9r v\u00e6ru\u00f0 meirih\u00e1ttar en allar a\u00f0rar \u00fej\u00f3\u00f0ir \u00fev\u00ed \u00fe\u00fa ert hin minnsta me\u00f0al allra \u00fej\u00f3\u00f0a, heldur af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann hefur elska\u00f0 y\u00f0ur og \u00fea\u00f0 hann h\u00e9ldi sinn ei\u00f0 sem hann haf\u00f0i svari\u00f0 y\u00f0ar forfe\u00f0rum, \u00fe\u00e1 hefur hann \u00fatleitt y\u00f0ur me\u00f0 voldugri h\u00f6nd og frelsa\u00f0 \u00feig \u00fat af \u00fev\u00ed \u00fer\u00e6ld\u00f3msh\u00fasi, af fara\u00f3nis h\u00fasi k\u00f3ngsins af Egyptalandi.<\/p>\n<p>\tSo skalt \u00fe\u00fa n\u00fa vita \u00fea\u00f0 Drotitnn Gu\u00f0 \u00feinn er einn Gu\u00f0, einn tr\u00fafastur Gu\u00f0, sem heldur s\u00e1ttm\u00e1la og miskunnsemi \u00ed \u00fe\u00fasund li\u00f0u vi\u00f0ur \u00fe\u00e1 sem hann elska og hans bo\u00f0or\u00f0 var\u00f0veita og endurgeldur \u00feeim sem hann hata fyrir s\u00ednu augliti so a\u00f0 hann fyrirfari \u00feeim og hann fors\u00f3mar ekki a\u00f0 endurgjalda \u00feeim fyrir s\u00ednu augliti sem hann a\u00f0 hatri hafa. <span class=\"athugasemd\" title=\"Fyrirheit \/ Exod. 20; 34 \/ Deut. 4\">[<\/span> So var\u00f0veittu n\u00fa \u00feau bo\u00f0or\u00f0in, \u00fe\u00e1 lagasetninga og r\u00e9ttindi sem \u00e9g b\u00fd\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00ed dag a\u00f0 \u00fe\u00fa gj\u00f6rir \u00fear eftir.<\/p>\n<p>\tOg n\u00e6r e\u00f0 \u00fe\u00e9r heyri\u00f0 \u00feessa l\u00f6gm\u00e1ls setningana og haldi\u00f0 \u00fe\u00e1 og gj\u00f6ri\u00f0 \u00fear eftir \u00fe\u00e1 mun og Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn halda \u00feann s\u00e1ttm\u00e1la og miskunnsemi sem hann hefur svari\u00f0 \u00fe\u00ednum forfe\u00f0rum og hann mun elska, blessa og margfalda \u00feig. Og hann mun blessa \u00feinn l\u00edfsins \u00e1v\u00f6xt og \u00feann \u00e1v\u00f6xtinn \u00fe\u00edns lands, \u00feitt korn, \u00feitt v\u00edn og vi\u00f0smj\u00f6r, \u00e1v\u00f6xtinn \u00feinna k\u00faa og \u00feann \u00e1v\u00f6xtinn af \u00fe\u00ednu kvikf\u00e9, \u00ed \u00fev\u00ed landinu sem hann hefur svari\u00f0 forfe\u00f0rum \u00fe\u00ednum a\u00f0 gefa \u00fe\u00e9r. \u00de\u00fa munt blessa\u00f0ur vera yfir allt f\u00f3lk. \u00dear skal enginn vera \u00f3frj\u00f3samlegur \u00e1 me\u00f0al \u00fe\u00edn og eigi heldur \u00e1 me\u00f0al \u00fe\u00edns f\u00e9na\u00f0ar. Drottinn mun \u00ed burt taka fr\u00e1 \u00fe\u00e9r allan sj\u00fakd\u00f3m og leggja \u00f6ngvan vondan egypskan krankleika \u00e1 \u00feig sem a\u00f0 \u00fe\u00fa veist vel og hann mun leggja hann upp\u00e1 alla \u00fe\u00edna hatursmenn. \u00de\u00fa skalt uppsvelgja allt \u00fea\u00f0 f\u00f3lk sem Drotitnn Gu\u00f0 \u00feinn mun gefa \u00fe\u00e9r. \u00de\u00fa skalt ekki v\u00e6gja \u00fev\u00ed og ekki \u00fej\u00f3na \u00feeirra gu\u00f0um \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 mun \u00fe\u00e9r ver\u00f0a til einnrar t\u00e1lsn\u00f6ru.<\/p>\n<p>\tEn ef a\u00f0 \u00fe\u00fa segir \u00ed \u00fe\u00ednu hjarta: &#8222;\u00deetta f\u00f3lk er fleira en \u00e9g er. Hvernin kann \u00e9g a\u00f0 \u00fatdr\u00edfa \u00fea\u00f0?&#8220; \u00fe\u00e1 vert ekki hr\u00e6ddur fyrir \u00feeim. Hugsa \u00fe\u00fa hva\u00f0 Gu\u00f0 \u00feinn hefur gj\u00f6rt fara\u00f3 og \u00f6llum Egyptalandsm\u00f6nnum fyrir \u00fe\u00e6r miklu freistanir sem \u00fe\u00fa s\u00e1st me\u00f0 augunum og fyrir \u00feau t\u00e1kn og st\u00f3rmerki hvernin \u00fea\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn \u00fatleiddi \u00feig me\u00f0 voldugri h\u00f6nd og \u00fatr\u00e9ttum armlegg. So mun og Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn gj\u00f6ra \u00f6llu \u00fev\u00ed f\u00f3lki sem \u00fe\u00fa ert hr\u00e6ddur vi\u00f0.<\/p>\n<p>\tOg Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn mun senda <span class=\"athugasemd\" title=\"sword Crabrones\">[<\/span> meinkindur \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra \u00fear til a\u00f0 \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur allt \u00ed ey\u00f0ilagt sem eftir er or\u00f0i\u00f0 og sig hefur geymt fyrir \u00fe\u00e9r. Vert ekki hr\u00e6ddur vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn er me\u00f0 \u00fe\u00e9r, s\u00e1 hinn mikli og \u00f3gurlegi Gu\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Huggun\">[<\/span> Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn mun forey\u00f0a \u00feessu f\u00f3lki fyrir \u00fe\u00e9r, \u00fea\u00f0 eina eftir \u00fea\u00f0 anna\u00f0. \u00de\u00fa m\u00e1tt ekki so br\u00e1\u00f0lega \u00fatdr\u00edfa \u00fea\u00f0 so a\u00f0 sk\u00f3gd\u00fdrin ver\u00f0i ekki ofm\u00f6rg \u00ed m\u00f3ti \u00fe\u00e9r \u00ed landinu. <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00f3s. 11; 12\">[<\/span> Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn mun yfirgefa \u00fe\u00e1 fyrir \u00fe\u00e9r og mun sl\u00e1 \u00fe\u00e1 ni\u00f0ur me\u00f0 miklu mannslagi, allt \u00fear til er hann hefur foreytt \u00feeim. Og hann mun gefa \u00fe\u00e9r \u00feeirra konunga \u00ed \u00fe\u00ednar hendur og \u00fe\u00fa skalt forey\u00f0a \u00feeirra n\u00f6fnum undir himninu. \u00dear skal enginn kunna a\u00f0 standa \u00e1 m\u00f3ti \u00fe\u00e9r \u00fear til a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur foreytt \u00feeim.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt uppbrenna me\u00f0 eldi l\u00edkneskjurnar sk\u00fargo\u00f0a \u00feeirra og \u00fe\u00fa skalt ekki girnast \u00e1 \u00fea\u00f0 gull e\u00f0ur silfur sem \u00fear er \u00e1 elligar a\u00f0 taka til \u00fe\u00edn nokku\u00f0 \u00fear \u00fat af, so a\u00f0 \u00fe\u00fa misgr\u00edpir \u00feig ekki \u00fear \u00fat\u00ed. \u00dev\u00ed a\u00f0 soddan er fyrir Drottni Gu\u00f0 \u00fe\u00ednum ein sv\u00edvir\u00f0ing. \u00dear fyrir skaltu ekki bera \u00fe\u00e1 sv\u00edvir\u00f0ing inn \u00ed \u00feitt h\u00fas a\u00f0 \u00fe\u00fa ver\u00f0ir ekki b\u00f6lva\u00f0ur so sem a\u00f0 \u00fea\u00f0 sama er, heldur skaltu hafa einn vi\u00f0bj\u00f3\u00f0 og hrylling vi\u00f0ur \u00fev\u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er b\u00f6lva\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>N\u00e6r e\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn innlei\u00f0ir \u00feig \u00ed landi\u00f0 \u00ed hvert a\u00f0 \u00fe\u00fa skalt inn koma a\u00f0 eignast \u00fea\u00f0 og \u00fat dr\u00edfur fyrir \u00fe\u00e9r margar \u00fej\u00f3\u00f0ir sem eru \u00feeir Het\u00edter, G\u00edrg\u00f3s\u00edter, Amor\u00edter, Kanan\u00edter, Peres\u00edter, Hev\u00edter og Jeb\u00fas\u00edter, sj\u00f6 \u00fej\u00f3\u00f0ir sem eru st\u00e6rri og sterkari en \u00fe\u00fa ert, og n\u00e6r e\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn ofurgefur \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e6r so a\u00f0 \u00fe\u00fa sl\u00e1ir \u00fe\u00e6r \u00fe\u00e1 skalt \u00fe\u00fa forey\u00f0a \u00feeim a\u00f0 \u00fe\u00fa gj\u00f6rir \u00f6ngvan s\u00e1ttm\u00e1la vi\u00f0 \u00fe\u00e6r, eigi heldur au\u00f0s\u00fdnir \u00feeim nokkra n\u00e1\u00f0. [ \u00de\u00fa skalt \u00f6ngvar m\u00e6g\u00f0ir gj\u00f6ra vi\u00f0 \u00fe\u00e6r. [ \u00de\u00fa skalt ekki gefa \u00feeirra sonum y\u00f0rar d\u00e6tur og \u00feeirra d\u00e6tur skulu <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-7-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2852","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2852","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2852"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2852\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2852"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}