{"id":2850,"date":"2017-12-18T18:31:54","date_gmt":"2017-12-18T18:31:54","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-5-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:54","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:54","slug":"fimmta-mosebok-5-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-5-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 5. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Og M\u00f3ses kalla\u00f0i allan \u00cdsraels l\u00fd\u00f0 og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Heyr \u00fe\u00fa \u00cdsrael \u00feau bo\u00f0or\u00f0 og r\u00e9ttindi sem \u00e9g tala \u00ed dag fyrir y\u00f0ar eyrum. L\u00e6ri\u00f0 \u00feau og haldi\u00f0 \u00feau so a\u00f0 \u00fe\u00e9r gj\u00f6ri\u00f0 \u00fear eftir. Drottinn Gu\u00f0 vor gj\u00f6r\u00f0i eirn s\u00e1ttm\u00e1la vi\u00f0 oss \u00ed H\u00f3reb og hann haf\u00f0i ekki gj\u00f6rt \u00feennan s\u00e1ttm\u00e1la vi\u00f0 vora forfe\u00f0ur heldur vi\u00f0 oss sem h\u00e9r erum allir lifandi til \u00e1 \u00feessum degi. <span class=\"athugasemd\" title=\"Exod. 19\">[<\/span> Hann tala\u00f0i vi\u00f0 oss fr\u00e1 augliti til auglitis \u00far eldinum upp\u00e1 fjallinu. \u00c9g st\u00f3\u00f0 \u00feann sama t\u00edma \u00e1 millum Drottins og y\u00f0ar a\u00f0 \u00e9g skylda kunngj\u00f6ra y\u00f0ur or\u00f0 Drottins \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r voru\u00f0 hr\u00e6ddir fyrir eldinum og gengu\u00f0 ekki upp\u00e1 fjalli\u00f0. Og hann sag\u00f0i: <\/p>\n<p>\t&#8222;\u00c9g er Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn sem \u00fatleiddi \u00feig af Egyptalandi, af \u00fer\u00e6ld\u00f3msh\u00fasinu. <span class=\"athugasemd\" title=\"X bo\u00f0or\u00f0in \/ Exod. 20 \/ Levit. 26\">[<\/span> \u00de\u00fa skalt ekki hafa annarlega gu\u00f0i fyrir m\u00e9r. \u00de\u00fa skalt \u00f6ngva l\u00edkneskju gj\u00f6ra \u00fe\u00e9r eftir neinni mynd, hverki \u00e1 himnum uppi n\u00e9 \u00e1 j\u00f6r\u00f0\u00fa ni\u00f0ri, eigi heldur \u00ed vatninu undir j\u00f6r\u00f0unni. \u00de\u00fa skalt hverki tilbi\u00f0ja \u00fea\u00f0 og eigi d\u00fdrka \u00fea\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn, einn vandl\u00e1tur Gu\u00f0, vitjandi rangl\u00e6tis fe\u00f0ranna \u00e1 sonunum \u00ed \u00feann \u00feri\u00f0ja og fj\u00f3r\u00f0a \u00e6ttlegg \u00feeirra sem mig hata og \u00e9g au\u00f0s\u00fdni miskunnsemi vi\u00f0 margar \u00fe\u00fasundir \u00feeim sem mig elska og m\u00edn bo\u00f0or\u00f0 var\u00f0veita. <\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt ekki leggja nafn Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns vi\u00f0 h\u00e9g\u00f3ma \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn mun ekki \u00feann \u00f3hegndan l\u00e1ta sem hans nafn leggur vi\u00f0 h\u00e9g\u00f3ma. <span class=\"athugasemd\" title=\"Exod. 20 \/ Levit. 19 \/ Mat. 5 \/ Gen. 12\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt halda \u00fevottdaginn so \u00fe\u00fa helgir hann so sem \u00fea\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefur bo\u00f0i\u00f0 \u00fe\u00e9r. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ebre. 4 \/ Exod. 20\">[<\/span> Sex daga skalt \u00fe\u00fa erfi\u00f0a og gj\u00f6ra allan \u00feinn verkna\u00f0 en s\u00e1 sj\u00f6undi dagurinn er Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns \u00fevottdagur. \u00de\u00e1 skaltu ekki neitt erfi\u00f0i fremja, ekki heldur sonur \u00feinn, eigi heldur d\u00f3ttir \u00fe\u00edn, ekki heldur \u00feinn \u00fej\u00f3nustuma\u00f0ur og eigi \u00fe\u00edn \u00fej\u00f3nustukvinna, eigi \u00feinn uxi og eigi \u00feinn asni og eigi heldur nokkur af \u00fe\u00ednum gripum og eigi heldur hinn framandi sem a\u00f0 er innan \u00feinnan borgarhli\u00f0a, so a\u00f0 \u00feinn \u00fej\u00f3nustuma\u00f0ur og \u00fe\u00edn amb\u00e1tt megi hv\u00edla sig l\u00edka sem \u00fe\u00fa. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r skal til hugar koma a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur og veri\u00f0 einn \u00fej\u00f3nustuma\u00f0ur \u00ed Egyptalandi og Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn leiddi \u00feig \u00fat \u00fea\u00f0an me\u00f0 voldugri h\u00f6nd og \u00fatr\u00e9ttum armlegg. \u00dear fyrir hefur Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn bo\u00f0i\u00f0 \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00fe\u00fa skyldir halda \u00fevottdaginn.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt hei\u00f0ra f\u00f6\u00f0ur \u00feinn og m\u00f3\u00f0ur \u00fe\u00edna so sem \u00fea\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefur bo\u00f0i\u00f0 \u00fe\u00e9r so a\u00f0 \u00fe\u00fa skulir lengi lifa og a\u00f0 \u00fea\u00f0 megi \u00fe\u00e9r vel ganga \u00ed landinu \u00fev\u00ed sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn mun gefa \u00fe\u00e9r. <span class=\"athugasemd\" title=\"Exod. 30 \/ Mat. 5 \/ Efe. 6 \/ Mat. 5\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt ekki \u00ed hel sl\u00e1.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt ekki h\u00f3rd\u00f3m dr\u00fdgja.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt ekki stela.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt ekki lj\u00fagvitni m\u00e6la \u00e1 m\u00f3ti n\u00e1unga \u00fe\u00ednum.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt ekki girnast \u00e1 h\u00fasfreyju n\u00e1unga \u00fe\u00edns.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt ekki girnast \u00e1 \u00fe\u00edns n\u00e1unga h\u00fas, akur, \u00fej\u00f3nustumann, \u00fej\u00f3nustukvinnu, uxa, asna, n\u00e9 neitt \u00fea\u00f0 sem hann \u00e1.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"R\u00f3m. 7; 13\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00deessi eru \u00feau or\u00f0 sem Drottinn tala\u00f0i til alls mannfj\u00f6lda y\u00f0vars \u00e1 fjallinu \u00far eldinum, sk\u00fdinu og myrkrinu me\u00f0 h\u00e1rri raust og j\u00f3k \u00fear engu vi\u00f0 og skrifa\u00f0i \u00feau \u00e1 tv\u00e6r steint\u00f6flur og f\u00e9kk m\u00e9r \u00fe\u00e6r.<\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00e1 \u00fe\u00e9r heyr\u00f0u\u00f0 r\u00f6ddina af dimmunni og fjalli\u00f0 brann \u00ed eldsloga gengu \u00fe\u00e9r til m\u00edn, allir \u00feeir inu \u00e6\u00f0stu menn y\u00f0vara kynkv\u00edsla og y\u00f0rir \u00f6ldungar, og s\u00f6g\u00f0u\u00f0: &#8222;Sj\u00e1 \u00fe\u00fa, Drottinn Gu\u00f0 vor hefur l\u00e1ti\u00f0 oss sj\u00e1 s\u00edna d\u00fdr\u00f0 og sitt tignarveldi og v\u00e9r heyr\u00f0um hans raust af eldinum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Exod. 20\">[<\/span> V\u00e9r s\u00e1um \u00ed dag a\u00f0 Gu\u00f0 talar vi\u00f0 mennina og \u00feeir halda \u00fe\u00f3 l\u00edfinu. Og hvar fyrir skulum v\u00e9r n\u00fa deyja so \u00fea\u00f0 \u00feessi hinn mikli eldur skuli n\u00fa forey\u00f0a oss? <span class=\"athugasemd\" title=\"Gu\u00f0s raudd hr\u00e6\u00f0ileg\">[<\/span> Ef a\u00f0 v\u00e9r heyrum n\u00fa lengur raustina Drottins Gu\u00f0s vors \u00fe\u00e1 deyjum v\u00e9r. \u00dev\u00ed hva\u00f0 er allt hold \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 kunni a\u00f0 heyra raust lifanda Gu\u00f0s tala af eldinum so sem v\u00e9r og halda \u00fe\u00f3 l\u00edfinu? Gakk \u00fe\u00fa fram og heyr allt hva\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 vor segir og seg \u00fe\u00fa oss \u00fea\u00f0, v\u00e9r viljum heyra og gj\u00f6ra \u00fea\u00f0 allt hva\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 vor talar vi\u00f0 \u00feig.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 Drottinn heyr\u00f0i y\u00f0ar or\u00f0 sem \u00fe\u00e9r t\u00f6lu\u00f0u\u00f0 vi\u00f0 mig sag\u00f0i hann til m\u00edn: &#8222;\u00c9g hefi heyrt or\u00f0 \u00feessa f\u00f3lks sem \u00fea\u00f0 tala\u00f0i til \u00fe\u00edn. \u00dea\u00f0 er allt gott hva\u00f0 \u00feeir hafa tala\u00f0. V\u00e6ri so vel a\u00f0 \u00feeir hef\u00f0u soddan hjarta til a\u00f0 \u00f3ttast mig og a\u00f0 var\u00f0veita \u00f6ll m\u00edn bo\u00f0or\u00f0 um alla \u00feeirra l\u00edfdaga so a\u00f0 \u00feeim m\u00e6tti \u00fea\u00f0 vel ganga og \u00feeirra b\u00f6rnum eil\u00edflegana! Gakk \u00fe\u00fa burt og seg \u00fe\u00fa \u00feeim: Gangi\u00f0 heim \u00ed y\u00f0ar landtj\u00f6ld. En \u00fe\u00fa skalt standa h\u00e9r fyrir m\u00e9r svo a\u00f0 \u00e9g segi \u00fe\u00e9r alla \u00fe\u00e1 lagasetninga, bo\u00f0or\u00f0 og r\u00e9ttindi sem \u00fe\u00fa skalt kenna \u00feeim svo a\u00f0 \u00feeir gj\u00f6ri \u00fear eftir \u00ed landinu sem \u00e9g mun gefa \u00feeim a\u00f0 eignast.&#8220;<\/p>\n<p>\tSo haldi\u00f0 \u00fea\u00f0 og gj\u00f6ri\u00f0 \u00fea\u00f0, l\u00edka sem Drottinn Gu\u00f0 y\u00f0ar hefur bo\u00f0i\u00f0 y\u00f0ur og v\u00edki\u00f0 hverki til h\u00e6gri n\u00e9 til vinstri handar, heldur gangi\u00f0 \u00ed \u00f6llum \u00feeim vegum sem Drottinn Gu\u00f0 y\u00f0ar hefur bo\u00f0i\u00f0 y\u00f0ur, svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r megi\u00f0 lifa og vel vegna og lifa lengi \u00ed \u00fev\u00ed landinu sem \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 eignast.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Og M\u00f3ses kalla\u00f0i allan \u00cdsraels l\u00fd\u00f0 og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Heyr \u00fe\u00fa \u00cdsrael \u00feau bo\u00f0or\u00f0 og r\u00e9ttindi sem \u00e9g tala \u00ed dag fyrir y\u00f0ar eyrum. L\u00e6ri\u00f0 \u00feau og haldi\u00f0 \u00feau so a\u00f0 \u00fe\u00e9r gj\u00f6ri\u00f0 \u00fear eftir. Drottinn Gu\u00f0 vor gj\u00f6r\u00f0i eirn s\u00e1ttm\u00e1la vi\u00f0 oss \u00ed H\u00f3reb og hann haf\u00f0i ekki gj\u00f6rt \u00feennan s\u00e1ttm\u00e1la vi\u00f0 vora forfe\u00f0ur heldur vi\u00f0 oss sem h\u00e9r erum allir lifandi til \u00e1 \u00feessum degi. [ Hann tala\u00f0i vi\u00f0 oss fr\u00e1 augliti til auglitis \u00far eldinum upp\u00e1 fjallinu. \u00c9g st\u00f3\u00f0 \u00feann sama t\u00edma \u00e1 millum Drottins og y\u00f0ar a\u00f0 \u00e9g skylda kunngj\u00f6ra y\u00f0ur or\u00f0 Drottins \u00fev\u00ed a\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fimmta-mosebok-5-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2850","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2850","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2850"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2850\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2850"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}