{"id":2844,"date":"2017-12-18T18:31:54","date_gmt":"2017-12-18T18:31:54","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fjorda-mosebok-35-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:54","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:54","slug":"fjorda-mosebok-35-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fjorda-mosebok-35-kafli\/","title":{"rendered":"Fj\u00f3r\u00f0a M\u00f3seb\u00f3k 35. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Og Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen \u00e1 M\u00f3ab\u00edtis v\u00f6llum hj\u00e1 J\u00f3rdan gagnvart Jer\u00edk\u00f3 og sag\u00f0i: &#8222;Bj\u00f3\u00f0 \u00fe\u00fa \u00cdsraelissonum a\u00f0 \u00feeir gegi Lev\u00edtunum borgir af \u00feeirra arfag\u00f3ssi til a\u00f0 b\u00faa \u00ed. <span class=\"athugasemd\" title=\"Lev\u00edtanna borgir\">[<\/span> \u00dear til skulu \u00fe\u00e9r og gefa Lev\u00edtunum undirborgar sem kringum borgirnar liggja svo \u00feeir sj\u00e1lfir megi b\u00faa \u00ed borgunum en hafa \u00feeirra kvikf\u00e9, g\u00f3ss og allrahanda d\u00fdr \u00ed undirborgunum.<\/p>\n<p>\tEn \u00fe\u00e6r s\u00f6mu undirborgir sem \u00feeir skulu gefa Lev\u00edtunum skulu vera \u00fe\u00fasund \u00e1lna \u00fat fr\u00e1 sta\u00f0arm\u00farunum r\u00e9tt umhverfis. So skulu \u00fe\u00e9r n\u00fa m\u00e6la utan fyrir sta\u00f0num fr\u00e1 \u00fev\u00ed horni \u00ed austur tv\u00f6 \u00fe\u00fasund \u00e1lna og fr\u00e1 \u00fev\u00ed sy\u00f0ra horninu tv\u00f6 \u00fe\u00fasund \u00e1lna og fr\u00e1 horninu \u00ed vestur tv\u00f6 \u00fe\u00fasund \u00e1lna og fr\u00e1 \u00fev\u00ed horninu vi\u00f0 nor\u00f0urs\u00ed\u00f0u tv\u00f6 \u00fe\u00fasund \u00e1lna so a\u00f0 borgin sj\u00e1lf s\u00e9 r\u00e9tt \u00ed mi\u00f0ju. \u00dea\u00f0 skulu vera \u00feeirra <span class=\"athugasemd\" title=\"sword undirborgir\">[<\/span> forsta\u00f0ir.<\/p>\n<p>\tOg me\u00f0al \u00feeirra sta\u00f0a sem \u00fe\u00e9r gefi\u00f0 Lev\u00edtunum skulu \u00fe\u00e9r gefa sex frelsissta\u00f0i a\u00f0 \u00feanga\u00f0 megi fl\u00fdja s\u00e1 sem manni hefur a\u00f0 ska\u00f0a or\u00f0i\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Fr\u00edsta\u00f0ir \/ Deut. 4 \/ J\u00f3s\u00faa 20\">[<\/span> A\u00f0 auk \u00feessara \u00fe\u00e1 skulu \u00fe\u00e9r gefa tvo og fj\u00f6rutygi sta\u00f0i a\u00f0 allir sta\u00f0ir \u00feeir \u00fe\u00e9r gefi\u00f0 Lev\u00edtunum ver\u00f0i \u00e1tta og fj\u00f6rutygi me\u00f0 \u00feeirra forst\u00f6\u00f0um. Og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 gefa \u00feeim af \u00cdsraelissona eign meira fr\u00e1 \u00feeim sem meira hefur en minna fr\u00e1 \u00feeim sem minna hefur. S\u00e9rhver skal gefa Lev\u00edtunum sta\u00f0i eftir sinni erf\u00f0 sem honum hlotnast hefur.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og sag\u00f0i: &#8222;Tala \u00fe\u00fa vi\u00f0 \u00cdsraelssonu og seg til \u00feeirra: N\u00e6r \u00fe\u00e9r komi\u00f0 yfir J\u00f3rdan \u00e1 Kanaanj\u00f6r\u00f0 \u00fe\u00e1 skulu \u00fe\u00e9r \u00fatvelja sta\u00f0i sem vera skulu frelsissta\u00f0ir til hverra a\u00f0 \u00feeir megi fl\u00fda sem \u00f3fyrirsynju sl\u00e1 nokkurn \u00ed hel. Og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 hafa \u00feessa frelsissta\u00f0i fyrir skuld eftirm\u00e1ls mannsins so a\u00f0 hann hlj\u00f3ti ekki a\u00f0 deyja sem nokku\u00f0 manndr\u00e1p hefur gj\u00f6rt fyrr en hann hefur sta\u00f0i\u00f0 r\u00e9tt fyrir alm\u00faganum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Mannslag \u00f3fyrirsynju\">[<\/span> Og \u00feeir sta\u00f0ir sem \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 gefa skulu vera sex frelsissta\u00f0ir. \u00derj\u00e1 skulu \u00fe\u00e9r gefa \u00e1 \u00feessa s\u00ed\u00f0u J\u00f3rdanar og \u00fer\u00edr \u00ed Kanaanslandi. \u00deessir eru \u00feeir sex frelsissta\u00f0ir, b\u00e6\u00f0i fyrir \u00cdsraelssonu og framandi og so fyrir innbyggjarana millum y\u00f0ar, a\u00f0 s\u00e1 fl\u00fdi \u00feanga\u00f0 sem sl\u00e6r nokkurn til dau\u00f0s me\u00f0 \u00f3viljahendi.<\/p>\n<p>\tHver sem sl\u00e6r nokkurn mann j\u00e1rni so hann deyr hann er einn manndr\u00e1pari og skal sannlega deyja. En sl\u00e1i hann me\u00f0 einum steini sem nokkur megi sl\u00e1st \u00ed hel me\u00f0 og hann deyr \u00fear af \u00fe\u00e1 er hann einn manndr\u00e1pari og skal sannlega deyja. En sl\u00e1i hann me\u00f0 nokkursh\u00e1ttar tr\u00e9 \u00fev\u00ed sem nokkur m\u00e1 sl\u00e1st \u00ed hel me\u00f0 so a\u00f0 hann deyr \u00fe\u00e1 er hann einn manndr\u00e1pari og skal sannlega deyja. Eftirm\u00e1lsma\u00f0urinn bl\u00f3\u00f0sins skal l\u00e1ta dey\u00f0a \u00feann manndr\u00e1para. L\u00edka sem hann hefur slegi\u00f0 so skal hann og sl\u00e1st. Hrindi hann honum af hatri e\u00f0a kastar nokkru \u00e1 hann sviksamlega so hann deyr e\u00f0ur sl\u00e6r hann til dau\u00f0s af heift me\u00f0 sinni hendi so hann deyr \u00fe\u00e1 skal s\u00e1 sem hann sl\u00f3 vissulega deyja \u00fev\u00ed hann er einn manndr\u00e1pari. Eftirm\u00e1lsma\u00f0urinn skal l\u00e1ta drepa hann.<\/p>\n<p>\tEn ef hann hrindir honum \u00f3forvarandis fyrir utan \u00f3vin\u00e1ttu e\u00f0a kastar nokkru \u00e1 hann \u00f3varlega e\u00f0a kastar einum steini \u00e1 hann (a\u00f0 s\u00e9r \u00f3vitanda \u00fea\u00f0 honum m\u00e1 til bana ver\u00f0a) so a\u00f0 hann deyr og hann er ekki hans \u00f3vin og eigi vildi hann honum vont \u00fe\u00e1 skal alm\u00faginn d\u00e6ma \u00ed millum \u00feess er sl\u00f3 og eftirm\u00e1lsmannsins \u00ed \u00feessum d\u00f3mi. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00d3viljandi manndr\u00e1p\">[<\/span> Og alm\u00faginn skal frelsa manndr\u00e1parann af eftirm\u00e1lsmannsins h\u00f6nd og skal l\u00e1ta hann koma aftur til \u00feess frelsissta\u00f0ar sem hann fl\u00fd\u00f0i til og hann skal vera \u00fear \u00fear til s\u00e1 yppasti prestur deyr s\u00e1 smur\u00f0ur er me\u00f0 \u00fev\u00ed heilaga oleo.<\/p>\n<p>\tEn gangi manndr\u00e1parinn \u00fat af landamerkjum \u00feess frelsissta\u00f0ar sem hann fl\u00fd\u00f0i til og eftirm\u00e1lsma\u00f0urinn finnur hann fyrir utan \u00feess frelsissta\u00f0ar landmark og sl\u00e6r hann \u00ed hel \u00fe\u00e1 skal hann ekki vera saka\u00f0ur \u00ed hans bl\u00f3\u00f0i. \u00dev\u00ed hann \u00e1tti a\u00f0 bl\u00edfa \u00ed sinum frelsissta\u00f0 til \u00feess yppasta prests dau\u00f0a og eftir \u00feess yppasta prests dau\u00f0a skyldi hann koma til s\u00edns lands aftur \u00fear hann haf\u00f0i sitt erf\u00f0ag\u00f3ss. \u00deetta skal vera y\u00f0ur eitt l\u00f6gm\u00e1l hj\u00e1 y\u00f0ar eftirkomendum hvar helst \u00feeir b\u00faa. <\/p>\n<p>\tEinn manndr\u00e1para skal sl\u00e1 \u00ed hel eftir tveggja manna vitnisbur\u00f0i. Eitt vitni skal ekki duga til nokkurs manns dau\u00f0a. <span class=\"athugasemd\" title=\"Deut. 17\">[<\/span> Og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 \u00f6ngva forl\u00edkun taka af nokkrum manndr\u00e1para \u00fev\u00ed hann hefur for\u00fe\u00e9nt a\u00f0 deyja og hann skal vissulega deyja. Og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 \u00f6ngva forl\u00edkun taka fyrir \u00feann sem fl\u00fdr \u00ed frelsissta\u00f0inn a\u00f0 hann skuli koma aftur og b\u00faa \u00ed landinu fyrr en presturinn deyr.<\/p>\n<p>\tOg saurgi\u00f0 ekki landi\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e9r b\u00fai\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed hver sem bl\u00f3\u00f0s sekur er hann saurgar landi\u00f0 og landi\u00f0 m\u00e1 ekki forl\u00edkast fyrir \u00fea\u00f0 bl\u00f3\u00f0 sem \u00fat er hellt nema me\u00f0 \u00feess bl\u00f3\u00f0i sem \u00fev\u00ed \u00fathellti. <span class=\"athugasemd\" title=\"Bl\u00f3\u00f0s\u00fathelling saurgar landi\u00f0\">[<\/span> Saurgi\u00f0 eigi landi\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e9r b\u00fai\u00f0, \u00ed hverju og \u00e9g b\u00fd. \u00dev\u00ed \u00e9g er Drottinn, hann sem b\u00fdr \u00e1 millum \u00cdsraelissona.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Og Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen \u00e1 M\u00f3ab\u00edtis v\u00f6llum hj\u00e1 J\u00f3rdan gagnvart Jer\u00edk\u00f3 og sag\u00f0i: &#8222;Bj\u00f3\u00f0 \u00fe\u00fa \u00cdsraelissonum a\u00f0 \u00feeir gegi Lev\u00edtunum borgir af \u00feeirra arfag\u00f3ssi til a\u00f0 b\u00faa \u00ed. [ \u00dear til skulu \u00fe\u00e9r og gefa Lev\u00edtunum undirborgar sem kringum borgirnar liggja svo \u00feeir sj\u00e1lfir megi b\u00faa \u00ed borgunum en hafa \u00feeirra kvikf\u00e9, g\u00f3ss og allrahanda d\u00fdr \u00ed undirborgunum. En \u00fe\u00e6r s\u00f6mu undirborgir sem \u00feeir skulu gefa Lev\u00edtunum skulu vera \u00fe\u00fasund \u00e1lna \u00fat fr\u00e1 sta\u00f0arm\u00farunum r\u00e9tt umhverfis. So skulu \u00fe\u00e9r n\u00fa m\u00e6la utan fyrir sta\u00f0num fr\u00e1 \u00fev\u00ed horni \u00ed austur tv\u00f6 \u00fe\u00fasund \u00e1lna og fr\u00e1 \u00fev\u00ed sy\u00f0ra horninu tv\u00f6 \u00fe\u00fasund <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fjorda-mosebok-35-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2844","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2844","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2844"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2844\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2844"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}