{"id":2841,"date":"2017-12-18T18:31:54","date_gmt":"2017-12-18T18:31:54","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fjorda-mosebok-32-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:54","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:54","slug":"fjorda-mosebok-32-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fjorda-mosebok-32-kafli\/","title":{"rendered":"Fj\u00f3r\u00f0a M\u00f3seb\u00f3k 32. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Synir R\u00faben og synir Ga\u00f0 h\u00f6f\u00f0u mj\u00f6g mikla merg\u00f0 kvikfj\u00e1r og s\u00e1u a\u00f0 landi\u00f0 Jaeser og G\u00edlea\u00f0 var kostgott fyrir kvikf\u00e9. <span class=\"athugasemd\" title=\"Synir R\u00faben og Ga\u00f0 bi\u00f0ja um land G\u00edlea\u00f0\">[<\/span> Og \u00feeir komu til M\u00f3sen og prestsins Eleasar og til h\u00f6f\u00f0ingjanna f\u00f3lksins: &#8222;\u00dea\u00f0 land Atr\u00f3t, D\u00edbon, Jaeser, N\u00edmor, Hesbon, Eleale, Seban og Be\u00f3n, sem Drottinn hefur slegi\u00f0 fyrir \u00cdsraels alm\u00faga er kostgott fyrir kvikf\u00e9 og v\u00e9r \u00fe\u00ednir \u00fe\u00e9narar h\u00f6fum au\u00f0 fj\u00e1r.&#8220; Og \u00feeir s\u00f6g\u00f0u enn framar: &#8222;Ef v\u00e9r h\u00f6fum fundi\u00f0 n\u00e1\u00f0 fyrir \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 gef \u00fe\u00ednum \u00fe\u00e9n\u00f6rum \u00fea\u00f0 land til eignar. So viljum v\u00e9r ekki fara yfir J\u00f3rdan.&#8220;<\/p>\n<p>\tM\u00f3ses sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Skulu \u00fe\u00e1 y\u00f0ur br\u00e6\u00f0ur draga \u00ed str\u00ed\u00f0 og \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 bl\u00edfa h\u00e9r? \u00dev\u00ed sn\u00fai \u00fe\u00e9r hj\u00f6rtum \u00cdsraelssona so \u00feeir dragi ekki h\u00e9r yfir um \u00ed \u00fea\u00f0 land sem Drottinn mun gefa \u00feeim? <span class=\"athugasemd\" title=\"Num. 13\">[<\/span> Svo gj\u00f6r\u00f0u og y\u00f0ar fe\u00f0ur \u00fe\u00e1 \u00e9g \u00fatsendi \u00fe\u00e1 af Kades Barnea a\u00f0 sko\u00f0a landi\u00f0. Og sem \u00feeir komu upp a\u00f0 l\u00e6knum Elsk\u00f3l og s\u00e1u landi\u00f0 \u00fe\u00e1 fr\u00e1sneru \u00feeir hj\u00f6rtum \u00cdsraelssona so \u00feeir vildu ekki fara \u00ed landi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem Drottinn vildi gefa \u00feeim.<\/p>\n<p>\tOg Drottins rei\u00f0i gramdist \u00e1 \u00feeim t\u00edma og s\u00f3r og sag\u00f0i: \u00deessi l\u00fd\u00f0ur sem \u00fat er farinn af Egyptalandi, tv\u00edtugir menn og \u00fea\u00f0an af eldri, skulu ekki sj\u00e1 \u00fea\u00f0 land sem \u00e9g hefi svari\u00f0 Abraham, \u00cdsak og Jakob, s\u00f6kum \u00feess a\u00f0 \u00feeir hafa ekki tr\u00falega eftirfylgt m\u00e9r, a\u00f0 fr\u00e1teknum Kaleb Jef\u00fannesyni, Ken\u00edsei sona \u00e6ttar, og J\u00f3s\u00faa syni N\u00fan, \u00fev\u00ed \u00feeir hafa tr\u00falega eftirfylgt Drottni. <span class=\"athugasemd\" title=\"Num. 13\">[<\/span> <span class=\"athugasemd\" title=\"Kaleb \/ J\u00f3s\u00faa\">[<\/span> \u00de\u00e1 gramdist Gu\u00f0s rei\u00f0i \u00cdsrael so hann l\u00e9t \u00fe\u00e1 fara aftur og fram um ey\u00f0im\u00f6rku \u00ed fj\u00f6rutygu \u00e1r, so lengi sem \u00fea\u00f0 kyn foreyddist sem illa gj\u00f6r\u00f0i fyrir Drottni.<\/p>\n<p>\tOg sj\u00e1i\u00f0, \u00fe\u00e9r gangi\u00f0 n\u00fa \u00ed y\u00f0ra fe\u00f0ra f\u00f3tspor so a\u00f0 syndirnar bl\u00edfi \u00feess meiri og \u00fe\u00e9r auki\u00f0 enn n\u00fa rei\u00f0i Drottins og gj\u00f6ri\u00f0 hans grimmd st\u00e6rri \u00ed gegn \u00cdsrael. \u00dev\u00ed ef \u00fe\u00e9r sn\u00fai\u00f0 y\u00f0ur fr\u00e1 honum \u00fe\u00e1 munu \u00fe\u00e9r enn lengur ganga \u00e1 \u00feessari ey\u00f0im\u00f6rku. Og me\u00f0 \u00feessu fordjarfi \u00fe\u00e9r allt \u00feetta f\u00f3lk.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 gengu \u00feeir n\u00e6r og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;V\u00e9r viljum ekki byggja nema f\u00e9h\u00fas handa voru kvikf\u00e9 og borgir fyrir vor b\u00f6rn. En v\u00e9r viljum standa fremst \u00ed fylkingum fyrir \u00cdsraelssonum \u00fear til v\u00e9r f\u00e6rum \u00fe\u00e1 til \u00feeirra sta\u00f0a. Vor b\u00f6rn skulu vera \u00ed \u00feeim sterkum borgum, s\u00f6kum innbyggjara landsins. Eigi viljum v\u00e9r fara heim aftur fyrr en \u00cdsraelssynir hafa me\u00f0teki\u00f0 s\u00e9rhver sinn arf. \u00dev\u00ed v\u00e9r viljum ekki taka arf me\u00f0 \u00feeim hinumegin J\u00f3rdanar heldur skal vor arfur fallinn vera \u00feessumegin J\u00f3rdanar \u00ed m\u00f3t austri.&#8220;<\/p>\n<p>\tM\u00f3ses sag\u00f0i: &#8222;Ef \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 \u00feetta gj\u00f6ra a\u00f0 \u00fe\u00e9r vilji\u00f0 herkl\u00e6\u00f0a y\u00f0ur til str\u00ed\u00f0s fyrir Drottni \u00fe\u00e1 fari\u00f0 yfir J\u00f3rdan fyrir Drottni, hver y\u00f0ar sem herkl\u00e6ddur er \u00e1 me\u00f0al y\u00f0ar, \u00fear til a\u00f0 hann rekur s\u00edna \u00f3vini fr\u00e1 sinni augsj\u00f3n og landi\u00f0 er or\u00f0i\u00f0 undirgefi\u00f0 fyrir \u00cdsrael. Og so skulu \u00fe\u00e9r hafa \u00feetta land til eignar fyrir Drottni. En vilji \u00fe\u00e9r ekki so gj\u00f6ra, sj\u00e1, \u00fe\u00e1 syndigst \u00fe\u00e9r \u00ed m\u00f3ti Drottni og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 ver\u00f0a varir vi\u00f0 y\u00f0ar synd \u00fe\u00e1 hann finnur y\u00f0ur. Svo byggi\u00f0 n\u00fa borgir fyrir y\u00f0ar b\u00f6rn og fj\u00e1rh\u00fas fyrir y\u00f0ar kvikf\u00e9 og gj\u00f6ri\u00f0 sem \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 sagt.&#8220;<\/p>\n<p>\tEn synir Ga\u00f0 og synir R\u00faben s\u00f6g\u00f0u til M\u00f3sen: &#8222;\u00deinir \u00fe\u00e9narar skulu gj\u00f6ra sem minn herra hefur b\u00edfala\u00f0. Vor b\u00f6rn, kvinnur, fj\u00e1rhlutir og allt vort kvikf\u00e9 skal vera eftir \u00ed st\u00f6\u00f0um G\u00edlea\u00f0 en v\u00e9r, \u00fe\u00ednir \u00fe\u00e9narar, viljum allir fara b\u00fanir til bardaga \u00ed str\u00ed\u00f0 fyrir Drottni sem minn herra hefur sagt.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"J\u00f3s\u00faa 4\">[<\/span> <\/p>\n<p>\tSo bau\u00f0 M\u00f3ses \u00feeirra vegna prestinum Eleasar og J\u00f3s\u00faa syni N\u00fan og \u00feeim ypp\u00f6stum fe\u00f0rum \u00cdsraelissona \u00e6ttar og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;\u00de\u00e1 synir Ga\u00f0 og synir R\u00faben draga yfir J\u00f3rdan, allir herkl\u00e6ddir til str\u00ed\u00f0s fyrir Drottni, og landi\u00f0 er y\u00f0ur undirgefi\u00f0 or\u00f0i\u00f0 \u00fe\u00e1 gefi\u00f0 \u00feeim \u00fea\u00f0 land G\u00edlea\u00f0 til eignar. En fari \u00feeir ekki herkl\u00e6ddir me\u00f0 y\u00f0ur \u00fe\u00e1 skulu \u00feeir taka arf me\u00f0 y\u00f0ur \u00ed Kanaanslandi.&#8220; Synir Ga\u00f0 og synir R\u00faben sv\u00f6ru\u00f0u og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;So sem Drottinn hefur tala\u00f0 til \u00feinna \u00fe\u00e9nara so viljum v\u00e9r gj\u00f6ra. V\u00e9r viljum fara herkl\u00e6ddir fyrir Drottni \u00ed \u00fea\u00f0 land Kanaan og eignast vort erf\u00f0ag\u00f3ss \u00feessumegin J\u00f3rdanar.&#8220;<\/p>\n<p>\tSo gaf M\u00f3ses sonum Ga\u00f0 og sonum R\u00faben og h\u00e1lfum kyn\u00fe\u00e6tti Manasses sonar J\u00f3sef r\u00edki S\u00edhon k\u00f3ngs Amoreorum og r\u00edki \u00d3g k\u00f3ngs af Basan og landi\u00f0 me\u00f0 st\u00f6\u00f0unum me\u00f0 \u00f6llum lands\u00e1lfum allt umhverfis. <span class=\"athugasemd\" title=\"Deut. 3 \/ J\u00f3s. 13; 22\">[<\/span> So bygg\u00f0u synir Ga\u00f0 D\u00edbon, Atar\u00f3t, Ar\u00f3er, Atr\u00f3t, S\u00f3fan, Jaeser, Jegabeha, Betnimra og Betharan, sterkar borgir, og sau\u00f0ah\u00fas handa \u00feeirra kvikf\u00e9. En synir R\u00faben bygg\u00f0u Hesbon, Eleale, Kir\u00edata\u00edm, Neb\u00f3, Baal-meon og umskiptu n\u00f6fnunum og S\u00edbama og \u00feeir g\u00e1fu \u00feeim st\u00f6\u00f0um n\u00f6fn sem \u00feeir bygg\u00f0u.<\/p>\n<p>\tOg synir Mak\u00edr, sonar Manasse, gengu inn \u00ed G\u00edlea\u00f0 og unnu hana og \u00fatdrifu \u00fe\u00e1 Amoreos sem \u00fear voru. <span class=\"athugasemd\" title=\"Mak\u00edr\">[<\/span> \u00de\u00e1 gaf M\u00f3ses Mak\u00edr syni Manasse G\u00edlea\u00f0 og hann bj\u00f3 \u00fear. En Ja\u00edr son Manasses gekk burt og vann \u00feeirra sm\u00e1borgir og kalla\u00f0i \u00fe\u00e6r Hav\u00f3t Ja\u00edr. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ja\u00edr\">[<\/span> N\u00f3ba gekk burt og vann Knat og hennar \u00feorp og kalla\u00f0i hana N\u00f3ba eftir s\u00ednu nafni. <span class=\"athugasemd\" title=\"N\u00f3ba\">[<\/span><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Synir R\u00faben og synir Ga\u00f0 h\u00f6f\u00f0u mj\u00f6g mikla merg\u00f0 kvikfj\u00e1r og s\u00e1u a\u00f0 landi\u00f0 Jaeser og G\u00edlea\u00f0 var kostgott fyrir kvikf\u00e9. [ Og \u00feeir komu til M\u00f3sen og prestsins Eleasar og til h\u00f6f\u00f0ingjanna f\u00f3lksins: &#8222;\u00dea\u00f0 land Atr\u00f3t, D\u00edbon, Jaeser, N\u00edmor, Hesbon, Eleale, Seban og Be\u00f3n, sem Drottinn hefur slegi\u00f0 fyrir \u00cdsraels alm\u00faga er kostgott fyrir kvikf\u00e9 og v\u00e9r \u00fe\u00ednir \u00fe\u00e9narar h\u00f6fum au\u00f0 fj\u00e1r.&#8220; Og \u00feeir s\u00f6g\u00f0u enn framar: &#8222;Ef v\u00e9r h\u00f6fum fundi\u00f0 n\u00e1\u00f0 fyrir \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 gef \u00fe\u00ednum \u00fe\u00e9n\u00f6rum \u00fea\u00f0 land til eignar. So viljum v\u00e9r ekki fara yfir J\u00f3rdan.&#8220; M\u00f3ses sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Skulu \u00fe\u00e1 y\u00f0ur br\u00e6\u00f0ur draga \u00ed <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fjorda-mosebok-32-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2841","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2841","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2841"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2841\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2841"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}