{"id":2828,"date":"2017-12-18T18:31:50","date_gmt":"2017-12-18T18:31:50","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fjorda-mosebok-19-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:50","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:50","slug":"fjorda-mosebok-19-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fjorda-mosebok-19-kafli\/","title":{"rendered":"Fj\u00f3r\u00f0a M\u00f3seb\u00f3k 19. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Og Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og Aron og sag\u00f0i: &#8222;\u00deessi skikkan skal vera eitt l\u00f6gm\u00e1l sem Drottinn hefur bo\u00f0i\u00f0 og sagt: Seg til \u00cdsraelssona a\u00f0 \u00feeir lei\u00f0i eina rau\u00f0a k\u00fa til \u00fe\u00edn \u00e1n l\u00fdta, sem \u00f6ngvan vanka hefur \u00e1 s\u00e9r og s\u00fa sem enn hefur ekkert ok bori\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ebre. 9\">[<\/span> Og f\u00e1i\u00f0 prestinum Eleasar hana \u00ed hendur, hann skal f\u00e6ra hana \u00fat fyrir herb\u00fa\u00f0irnar og l\u00e1ti sl\u00e1tra henni \u00fear fyrir s\u00e9r.<\/p>\n<p>\tOg presturinn Eleasar skal taka af hennar bl\u00f3\u00f0i me\u00f0 s\u00ednum fingri og st\u00f6kkva \u00fev\u00ed strax sj\u00f6 sinnum m\u00f3t vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0 og l\u00e1ta uppbrenna k\u00fana fyrir s\u00e9r, b\u00e6\u00f0i hennar h\u00fa\u00f0 og hold og so hennar bl\u00f3\u00f0 og myki. Og presturinn skal taka sedrustr\u00e9 og \u00eds\u00f3p og purpuraull og kasta \u00fev\u00ed \u00ed logann \u00fe\u00e1 k\u00fdrin brennur. Og hann skal \u00fevo s\u00edn kl\u00e6\u00f0i og ba\u00f0a sinn l\u00edkama \u00ed vatni og fara so inn \u00ed herb\u00fa\u00f0irnar og vera \u00f3hreinn til kvelds. Og s\u00e1 sem hana brenndi skal og \u00fevo s\u00edn f\u00f6t \u00ed vatni og ba\u00f0a sinn l\u00edkama \u00ed vatni og vera \u00f3hrein til kvelds.<\/p>\n<p>\tOg einn ma\u00f0ur s\u00e1 sem hann er hreinn skal samansafna \u00f6skunni af k\u00fanni og hella henni \u00fat fyrir herb\u00fa\u00f0irnar \u00e1 hreinan sta\u00f0 svo h\u00fan megi vera \u00fear geymd fyrir alm\u00fagann af \u00cdsraelissonum til eins \u00e1dreifingarvats, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er eitt syndaoffur. Og s\u00e1 sami sem \u00f6skunni safna\u00f0i af k\u00fanni skal \u00fevo s\u00edn kl\u00e6\u00f0i og vera \u00f3hreinn til kvelds. \u00deetta skal vera ein eil\u00edf skikkan fyrir \u00cdsraelssonu og fyrir \u00fe\u00e1 \u00fatlendu sem b\u00faa \u00e1 millum y\u00f0ar.<\/p>\n<p>\tHver sem kemur vi\u00f0 nokkurn dau\u00f0an mann s\u00e1 skal vera \u00f3hreinn \u00ed sj\u00f6 daga. Hann skal me\u00f0 \u00feessu (vatni) yfirst\u00f6kkvast \u00feann \u00feri\u00f0ja dag og \u00feann sj\u00f6unda dag, so er hann hreinn. En ef hann ver\u00f0ur ekki yfirst\u00f6kktur \u00feann \u00feri\u00f0ja dag og \u00feann sj\u00f6unda dag \u00fe\u00e1 bl\u00edfur hann ekki hreinn. En ef nokkur snertir dau\u00f0an mann og vill ekki l\u00e1ta yfirst\u00f6kkva sig, s\u00e1 gj\u00f6rir Drottins tjaldb\u00fa\u00f0 \u00f3hreina og svoddan s\u00e1l skal afm\u00e1st af \u00cdsrael, \u00fev\u00ed a\u00f0 dreifingarvatni er ekki st\u00f6kkt \u00e1 hann. So er hann \u00f3hreinn svo lengi sem hann l\u00e6tur sig ekki hreinsa \u00fear af.<\/p>\n<p>\t\u00deetta er l\u00f6gm\u00e1l \u00fe\u00e1 nokkur ma\u00f0ur deyr \u00ed tjaldb\u00fa\u00f0um. Hver sem gengur inn \u00ed sama tjald og allt \u00fea\u00f0 sem er \u00ed tjaldinu skal vera \u00f3hreint \u00ed sj\u00f6 daga. Og hvert opi\u00f0 ker sem ekki er lok yfir e\u00f0a bundi\u00f0 yfir, \u00fea\u00f0 er \u00f3hreint. Og hver sem hr\u00e6rir vi\u00f0 nokkurn sem sleginn er til dau\u00f0s \u00fat \u00e1 m\u00f6rkinni me\u00f0 sver\u00f0i e\u00f0a vi\u00f0 nokkurn annan sem \u00f6\u00f0ruv\u00eds liggur dau\u00f0ur e\u00f0a vi\u00f0 manns bein e\u00f0a gr\u00f6f, hann er \u00f3hreinn \u00ed sj\u00f6 daga.<\/p>\n<p>\tSvo skulu \u00feeir n\u00fa taka fyrir \u00feann inn \u00f3hreina af \u00feeirri brenndu syndaoffurs \u00f6sku og l\u00e1ta rennandi vatn \u00fear \u00fatyfir \u00ed eitt ker. Og einn hreinn ma\u00f0ur skal taka \u00eds\u00f3p og drepa \u00ed vatni\u00f0 og st\u00f6kkva \u00e1 tjaldb\u00fa\u00f0ina og \u00f6ll ker og allar s\u00e1lir sem \u00fear inni eru og l\u00edka \u00feann sem komi\u00f0 hefur vi\u00f0 \u00feess dau\u00f0a manns bein e\u00f0a \u00ed hel slegna e\u00f0a vi\u00f0 framli\u00f0ins gr\u00f6f, \u00fe\u00e1 skal s\u00e1 hreini st\u00f6kkva \u00e1 \u00feann \u00f3hreina \u00e1 \u00feri\u00f0ja degi og \u00e1 sj\u00f6unda degi. Og \u00e1 sj\u00f6unda degi skal hann leysa hann og hann skal \u00fevo s\u00edn kl\u00e6\u00f0i og lauga sig \u00ed vatni, \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur hann hreinn um kveldi\u00f0.<\/p>\n<p>\tHver sem ver\u00f0ur \u00f3hreinn og vill ekki l\u00e1ta sig afleysa, \u00feess s\u00e1l skal afm\u00e1\u00f0 ver\u00f0a fr\u00e1 alm\u00faganum. \u00dev\u00ed hann hefur gj\u00f6rt Drottins helgid\u00f3m \u00f3hreinan og er ekki \u00e1dreif\u00f0ur me\u00f0 dreifingarvatninu, \u00fear fyrir er hann \u00f3hreinn. Og \u00feetta skal vera \u00feeim ein eil\u00edf skikkan. Og s\u00e1 sem st\u00f6kkvir dreifingarvatninu hann skal og \u00fevo s\u00edn kl\u00e6\u00f0i og hver sem snertur dreifingarvatni\u00f0 s\u00e1 skal vera \u00f3hreinn til kvelds og allt \u00fea\u00f0 hann kemur vi\u00f0 ver\u00f0ur \u00f3hreint. Og hver s\u00e1l sem snertir hann s\u00fa skal vera \u00f3hrein til kvelds.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Og Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og Aron og sag\u00f0i: &#8222;\u00deessi skikkan skal vera eitt l\u00f6gm\u00e1l sem Drottinn hefur bo\u00f0i\u00f0 og sagt: Seg til \u00cdsraelssona a\u00f0 \u00feeir lei\u00f0i eina rau\u00f0a k\u00fa til \u00fe\u00edn \u00e1n l\u00fdta, sem \u00f6ngvan vanka hefur \u00e1 s\u00e9r og s\u00fa sem enn hefur ekkert ok bori\u00f0. [ Og f\u00e1i\u00f0 prestinum Eleasar hana \u00ed hendur, hann skal f\u00e6ra hana \u00fat fyrir herb\u00fa\u00f0irnar og l\u00e1ti sl\u00e1tra henni \u00fear fyrir s\u00e9r. Og presturinn Eleasar skal taka af hennar bl\u00f3\u00f0i me\u00f0 s\u00ednum fingri og st\u00f6kkva \u00fev\u00ed strax sj\u00f6 sinnum m\u00f3t vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0 og l\u00e1ta uppbrenna k\u00fana fyrir s\u00e9r, b\u00e6\u00f0i hennar h\u00fa\u00f0 og <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fjorda-mosebok-19-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2828","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2828","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2828"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2828\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2828"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}