{"id":2825,"date":"2017-12-18T18:31:50","date_gmt":"2017-12-18T18:31:50","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fjorda-mosebok-16-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:50","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:50","slug":"fjorda-mosebok-16-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fjorda-mosebok-16-kafli\/","title":{"rendered":"Fj\u00f3r\u00f0a M\u00f3seb\u00f3k 16. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Og K\u00f3ra son Jesehar, sonar Kahat, sonar Lev\u00ed, og Datan og Ab\u00edram synir El\u00edab, og \u00d3n son Pelet sem var af sonum R\u00faben, \u00feessir settu sig upp \u00ed m\u00f3t M\u00f3se me\u00f0 nokkrum \u00f6\u00f0rum m\u00f6nnum af \u00cdsraelissonum, tv\u00f6 hundru\u00f0 og fimmtygi betur af \u00feeim ypp\u00f6stum me\u00f0al alm\u00fagans, r\u00e1\u00f0menn og nafnkunnugir menn. <span class=\"athugasemd\" title=\"K\u00f3ra og hans selskapur gj\u00f6ra uppsteyt \u00e1 m\u00f3ti M\u00f3se og Aron\">[<\/span> Og \u00feeir t\u00f3ku sig saman \u00ed m\u00f3t M\u00f3se og Aron og s\u00f6g\u00f0u til \u00feeirra: &#8222;\u00dei\u00f0 hafi\u00f0 ofmiki\u00f0 vi\u00f0, \u00fev\u00ed s\u00e1 alm\u00fagi er allur saman heilagur og Drottinn er \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra. \u00dev\u00ed upphefi \u00fe\u00e9r y\u00f0ur yfir Gu\u00f0s alm\u00faga?&#8220;<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00e1 M\u00f3ses heyr\u00f0i \u00fea\u00f0 f\u00e9ll hann fram \u00e1 sitt andlit og sag\u00f0i til K\u00f3ra og alls hans selskapar: &#8222;\u00c1 morgun skal drottinn s\u00fdna hv\u00f6r hans er, hv\u00f6r heilagur er og hv\u00f6r honum skal offur f\u00e6ra. Hv\u00f6rn hann \u00fatvelur, s\u00e1 skal f\u00e6ra honum offur. Gj\u00f6ri\u00f0 so: Taki\u00f0 y\u00f0ar gl\u00f3\u00f0arker, K\u00f3ra og allur hans selskapur, og leggi\u00f0 eld \u00fear \u00fat\u00ed og leggi\u00f0 reykelsi \u00fear \u00e1, \u00e1 morgun fyrir Drottni, og hv\u00f6rn Drottinn \u00fatvelur s\u00e1 veri heilagur. \u00de\u00e9r hafi\u00f0 ofmiki\u00f0 vi\u00f0, \u00fe\u00e9r synir Lev\u00ed.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg M\u00f3ses sag\u00f0i til K\u00f3ra: &#8222;Heyri\u00f0 \u00fe\u00f3 \u00fe\u00e9r synir Lev\u00ed: \u00deykir y\u00f0ur \u00fea\u00f0 svo l\u00edtils vert a\u00f0 \u00cdsraels Gu\u00f0 hefur skili\u00f0 y\u00f0ur fr\u00e1 \u00cdsraels alm\u00faga a\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 offra honum og a\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00fej\u00f3ni\u00f0 \u00fat\u00ed Drottins tjaldb\u00fa\u00f0ar emb\u00e6tti og gangi\u00f0 fram fyrir alm\u00faganum og \u00fej\u00f3ni\u00f0 honum? Hann hefur me\u00f0teki\u00f0 \u00feig og alla \u00fe\u00edna br\u00e6\u00f0ur sonu Lev\u00ed til s\u00edn. Og \u00fe\u00e9r girnist n\u00fa og svo prestanna emb\u00e6tti\u00f0. En \u00fe\u00fa og allur \u00feinn selskapur gj\u00f6rir einn m\u00f3tbl\u00e1stur \u00ed m\u00f3ti Drottni. Hva\u00f0 er Aron a\u00f0 \u00fe\u00e9r m\u00f6gli\u00f0 \u00ed m\u00f3ti honum?&#8220;<\/p>\n<p>\tOg M\u00f3ses sendi bo\u00f0 \u00feanga\u00f0 og l\u00e9t kalla Datan og Ab\u00edram sonu El\u00edab. En \u00feeir sv\u00f6ru\u00f0u: &#8222;Eigi viljum vi\u00f0 koma upp \u00feanga\u00f0. Er \u00fea\u00f0 svo l\u00edti\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur f\u00e6rt oss af \u00fev\u00ed landi sem mj\u00f3lk og hunang fl\u00fdtur \u00fat\u00ed, til a\u00f0 sl\u00e1 oss \u00ed hel h\u00e9r \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkunni? \u00de\u00fa vilt enn og svo drottna yfir oss. Hv\u00f6rsu s\u00fdnlega\u00fe\u00e1 hefur \u00fe\u00fa f\u00e6rst oss inn \u00ed \u00fea\u00f0 land sem fl\u00fdtur \u00ed mj\u00f3lk og hunangi? Og gefi\u00f0 oss akra og v\u00edngar\u00f0a til eignar? Viltu og sl\u00edta augun \u00fat \u00e1 f\u00f3lkinu. Ekki komum v\u00e9r upp \u00feanga\u00f0.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 var\u00f0 M\u00f3ses afar rei\u00f0ur og sag\u00f0i til Drottins: &#8222;Sn\u00fa \u00fe\u00e9r ekki til \u00feeirra matoffurs. \u00c9g hefi ekki teki\u00f0 einn asna fr\u00e1 \u00feeim og \u00f6ngvum hefi \u00e9g vont gj\u00f6rt \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra.&#8220; Og hann sag\u00f0i til K\u00f3ra: &#8222;\u00de\u00fa og allur \u00feinn selskapur skulu\u00f0 vera \u00e1 morgun fyrir Drottni, \u00fe\u00fa, \u00feeir og so og Aron. So skal hv\u00f6r af y\u00f0ur taka sitt gl\u00f3\u00f0arker, \u00fea\u00f0 eru tv\u00f6 hundru\u00f0 og fimmtygu gl\u00f3\u00f0arker.&#8220; Og hv\u00f6r t\u00f3k sitt gl\u00f3\u00f0arker og l\u00f6g\u00f0u eld \u00fear \u00fat\u00ed og reykelsi \u00fear yfir og gengu fram fyrir vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0ardyr og M\u00f3ses svo og Aron. Og K\u00f3ra samansafna\u00f0i \u00f6llum alm\u00faganum \u00ed gegn \u00feeim utan fyrir vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0ardyrum.<\/p>\n<p>\tOg Drottins d\u00fdr\u00f0 opinbera\u00f0ist fyrir \u00f6llum alm\u00faganum. Og Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og Aron og sag\u00f0i: &#8222;Skilji\u00f0 y\u00f0ur fr\u00e1 \u00feeim alm\u00faga so \u00e9g megi skyndilega ey\u00f0ileggja hann.&#8220; En \u00feeir f\u00e9llu fram \u00e1 s\u00ednar \u00e1sj\u00f3nur og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;\u00d3 Gu\u00f0, \u00fe\u00fa sem er eirn Gu\u00f0 andanna alls holds, \u00fe\u00f3 a\u00f0 einn ma\u00f0ur hafi syndgast viltu \u00fear fyrir l\u00e1ta grimmd \u00fe\u00edna ganga yfir allan alm\u00fagann?&#8220;<\/p>\n<p>\tOg Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og sag\u00f0i: &#8222;Tala til alm\u00fagans og seg\u00f0u: V\u00edki\u00f0 fr\u00e1 tj\u00f6ldum \u00feeirra K\u00f3ra, Datan og Ab\u00edram, allt um kring.&#8220; Og M\u00f3ses st\u00f3\u00f0 upp og gekk til Datan og Ab\u00edram og \u00feeir inu elstu af \u00cdsrael fylgdu honum eftir. Og hann tala\u00f0i vi\u00f0 s\u00f6fnu\u00f0inn og sag\u00f0i: &#8222;V\u00edki\u00f0 fr\u00e1 \u00feessum \u00f3gu\u00f0legra manna tj\u00f6ldum og snerti\u00f0 ekki neitt af \u00fev\u00ed sem \u00feeim heyrir til, svo \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 ekki (ef ske m\u00e6tti) fyrirfarast \u00ed \u00feeirra syndum.&#8220; Og \u00feeir viku fr\u00e1 tj\u00f6ldum K\u00f3ra, Datan og Ab\u00edram. En Datan og Ab\u00edram gengu \u00fat og st\u00f3\u00f0u \u00ed s\u00ednum tjalddyrum me\u00f0 s\u00ednum kvinnum, sonum og d\u00e6trum.<\/p>\n<p>\tOg M\u00f3ses sag\u00f0i: &#8222;\u00dear af skulu \u00fe\u00e9r merkja a\u00f0 Drottinn hefur sent mig, a\u00f0 \u00e9g skyldi gj\u00f6ra \u00f6ll \u00feessi verk, en ekki af m\u00ednu hjarta. S\u00e9 \u00fea\u00f0 so a\u00f0 \u00feessir deyi svo sem allir menn deyja e\u00f0a s\u00e9 \u00feeirra heim vitja\u00f0 so sem allra annarra manna ver\u00f0ur vitja\u00f0, \u00fe\u00e1 hefur ekki Drottinn \u00fatsent mig. <span class=\"athugasemd\" title=\"Num. 26 \/ Psal. 106 \/ Deut. 11\">[<\/span> En gj\u00f6ri Drottinn nokku\u00f0 n\u00fdtt, so a\u00f0 j\u00f6r\u00f0in uppl\u00e1ti sinn munn og uppsvelgi \u00fe\u00e1 me\u00f0 \u00f6llu \u00fev\u00ed sem \u00feeir hafa, so a\u00f0 \u00feeir fari lifandi ofan \u00ed helv\u00edti, \u00fe\u00e1 skulu \u00fe\u00e9r vita a\u00f0 \u00feessir menn hafa lasta\u00f0 Drottinn.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00e1 hann haf\u00f0i \u00fat tala\u00f0 \u00f6ll \u00feessi or\u00f0 sprakk j\u00f6r\u00f0in undir \u00feeim og uppl\u00e9t sinn munn og uppsvelgdi \u00fe\u00e1 me\u00f0 \u00feeirra h\u00fasum og me\u00f0 \u00f6llum \u00feeim m\u00f6nnum sem voru me\u00f0 K\u00f3ra, me\u00f0 \u00f6llum \u00feeirra fj\u00e1rhlutum, og \u00feeir f\u00f3ru lifandi ofan \u00ed helv\u00edti me\u00f0 \u00f6llu \u00fev\u00ed sem \u00feeim kom til og j\u00f6r\u00f0in huldi \u00fe\u00e1 og \u00feeir fyrirf\u00f3rust so fr\u00e1 alm\u00faganum. <span class=\"athugasemd\" title=\"K\u00f3ra og hans selskapur fyrirferst\">[<\/span> Og allt \u00cdsraels f\u00f3lk sem var \u00ed kringum \u00fe\u00e1 fl\u00fd\u00f0u fyrir \u00feeirra h\u00e1reysti, \u00fev\u00ed \u00feeir s\u00f6g\u00f0u: &#8222;L\u00e1ti\u00f0 Gu\u00f0 j\u00f6r\u00f0ina og ekki eirnin svelgja oss upp.&#8220; \u00dear a\u00f0 auk f\u00f3r og eirn eldur \u00fat fr\u00e1 Drottni og uppbrenndi \u00feau tv\u00f6 hundru\u00f0 og fimmtygi manna sem offru\u00f0u reykelsi.<\/p>\n<p>\tOg Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og sag\u00f0i: &#8222;Seg Eleasar syni Arons prests a\u00f0 hann taki gl\u00f3\u00f0arkerin upp \u00far eldinum og dreifi eldinum hinga\u00f0 og \u00feanga\u00f0, \u00fev\u00ed a\u00f0 gl\u00f3\u00f0arker \u00feessara syndugra eru helgu\u00f0 fyrir \u00feeirra s\u00e1lir, og \u00feau skulu sl\u00e1st \u00ed brei\u00f0ar sk\u00edfur og hengjast \u00ed kringum altari\u00f0. \u00dev\u00ed \u00feau eru offru\u00f0 fyrir Drottni og heil\u00f6g gj\u00f6r\u00f0. Og \u00feau skulu vera \u00cdsraelssonum til eins teikns.<\/p>\n<p>\tSo t\u00f3k presturinn Eleasar \u00feau gl\u00f3\u00f0arker af kopar sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u offra\u00f0 me\u00f0 sem brunnu og sl\u00f3 \u00feau \u00fat \u00ed sk\u00edfur a\u00f0 hengja um altari\u00f0, \u00cdsraelssonum til eirnrar minningar, a\u00f0 enginn framandi sem ekki er af Arons s\u00e6\u00f0i skyldi ganga til a\u00f0 offra reykelsi fyrir Drottni, so a\u00f0 \u00fea\u00f0 gangi ekki \u00feeim hinum sama so sem a\u00f0 gekk til me\u00f0 K\u00f3ra og hans selskap, sem Drottinn haf\u00f0i sagt honum fyrir M\u00f3sen.<\/p>\n<p>\tAnnars dags eftir m\u00f6gla\u00f0i allur alm\u00faginn \u00cdsraelssona \u00ed gegn M\u00f3se og Aron og s\u00f6g\u00f0u: &#8222;\u00de\u00e9r hafi\u00f0 slegi\u00f0 Drottins f\u00f3lk \u00ed hel.&#8220; Og \u00fe\u00e1 alm\u00faginn samansafna\u00f0ist \u00ed m\u00f3ti M\u00f3se og Aron sneru \u00feeir s\u00e9r til vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0ar og sj\u00e1, a\u00f0 sk\u00fdi\u00f0 huldi hana og d\u00fdr\u00f0 Drottins opinbera\u00f0ist. En M\u00f3ses og Aron gengu inn \u00ed vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0. Og Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og sag\u00f0i: &#8222;V\u00edki\u00f0 fr\u00e1 \u00feessum alm\u00faga. \u00c9g vil hastarlega ey\u00f0ileggja \u00fe\u00e1.&#8220; Og \u00feeir f\u00e9llu fram \u00e1 \u00feeirra andlit.<\/p>\n<p>\tOg M\u00f3ses sag\u00f0i til Arons: &#8222;Tak gl\u00f3\u00f0arkeri\u00f0 og legg eld \u00fear \u00ed af altarinu og legg reykelsi \u00fear upp\u00e1 og gakk \u00fe\u00fa flj\u00f3tlega \u00feanga\u00f0 til alm\u00fagans og bi\u00f0 fyrir \u00feeim, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fear er br\u00e6\u00f0in \u00fatgengin af Drottni og pl\u00e1gan er upphafin.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Hr\u00e6\u00f0ilegt straff og hefnd upphlaupsins\">[<\/span> Og Aron t\u00f3k sem M\u00f3ses haf\u00f0i b\u00edfala\u00f0 honum og hlj\u00f3p mitt \u00ed millum alm\u00fagans (og sj\u00e1, \u00fe\u00e1 var pl\u00e1gan uppkomin \u00e1 me\u00f0al f\u00f3lksins) og veifa\u00f0i reykelsi og gj\u00f6r\u00f0i eina forl\u00edkun fyrir f\u00f3lki\u00f0 og st\u00f3\u00f0 \u00ed millum \u00feeirra dau\u00f0u og hinna lifundu og so stilltist pl\u00e1gan. En \u00feeir sem d\u00f3u \u00ed \u00feeirri pl\u00e1gu voru fj\u00f3rt\u00e1n \u00fe\u00fasundir og sj\u00f6 hundru\u00f0, fyrir utan \u00fe\u00e1 sem d\u00f3u me\u00f0 K\u00f3ra. Og Aron kom til M\u00f3sen aftur utan fyrir vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0ardyrum og pl\u00e1gan stilltist.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Og K\u00f3ra son Jesehar, sonar Kahat, sonar Lev\u00ed, og Datan og Ab\u00edram synir El\u00edab, og \u00d3n son Pelet sem var af sonum R\u00faben, \u00feessir settu sig upp \u00ed m\u00f3t M\u00f3se me\u00f0 nokkrum \u00f6\u00f0rum m\u00f6nnum af \u00cdsraelissonum, tv\u00f6 hundru\u00f0 og fimmtygi betur af \u00feeim ypp\u00f6stum me\u00f0al alm\u00fagans, r\u00e1\u00f0menn og nafnkunnugir menn. [ Og \u00feeir t\u00f3ku sig saman \u00ed m\u00f3t M\u00f3se og Aron og s\u00f6g\u00f0u til \u00feeirra: &#8222;\u00dei\u00f0 hafi\u00f0 ofmiki\u00f0 vi\u00f0, \u00fev\u00ed s\u00e1 alm\u00fagi er allur saman heilagur og Drottinn er \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra. \u00dev\u00ed upphefi \u00fe\u00e9r y\u00f0ur yfir Gu\u00f0s alm\u00faga?&#8220; Og \u00fe\u00e1 M\u00f3ses heyr\u00f0i \u00fea\u00f0 f\u00e9ll hann fram \u00e1 sitt andlit <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fjorda-mosebok-16-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2825","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2825","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2825"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2825\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2825"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}