{"id":2813,"date":"2017-12-18T18:31:50","date_gmt":"2017-12-18T18:31:50","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fjorda-mosebok-4-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:50","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:50","slug":"fjorda-mosebok-4-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fjorda-mosebok-4-kafli\/","title":{"rendered":"Fj\u00f3r\u00f0a M\u00f3seb\u00f3k 4. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Og Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og Aron og sag\u00f0i: &#8222;Tel \u00fe\u00fa alla sonu Kahat s\u00e9r \u00ed lagi fr\u00e1 sonum Lev\u00ed, eftir \u00feeirra kynkv\u00edslum og fe\u00f0ra h\u00fasum, \u00fe\u00e1 sem eru \u00ferj\u00e1tygi \u00e1ra og \u00fea\u00f0an af eldri til fimmtugs aldurs, alla \u00fe\u00e1 sem duganlegir eru a\u00f0 draga \u00ed str\u00ed\u00f0, a\u00f0 \u00feeir \u00fej\u00f3ni \u00ed vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0. \u00deetta skal vera emb\u00e6tti sona Kahat \u00ed vitnisbur\u00f0arb\u00fa\u00f0inni, sem er \u00fea\u00f0 allra helgasta.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 herinn sviptir herb\u00fa\u00f0unum \u00fe\u00e1 skal Aron og hans synir ganga inn og ofan taka fortjaldi\u00f0 og vefja \u00ed \u00fev\u00ed \u00f6rkina vitnisbur\u00f0arins og leggja \u00fear yfir feld af greifingsskinnum og brei\u00f0a eitt gult kl\u00e6\u00f0i \u00fear ofan \u00e1 og leggja stengurnar \u00fear til. <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ Arons og hans sona emb\u00e6tti\">[<\/span> Og \u00feeir skulu og so brei\u00f0a eitt gult kl\u00e6\u00f0i yfir sko\u00f0unarbor\u00f0i\u00f0 og leggja \u00fear til f\u00f6tin, skei\u00f0irnar, sk\u00e1lirnar og k\u00f6nnurnar til a\u00f0 skenkja af og \u00e1 og \u00fea\u00f0 hv\u00f6rsdaglega brau\u00f0 skal liggja \u00fear \u00e1. Og \u00feeir skulu brei\u00f0a \u00fear yfir eitt dreyrrautt kl\u00e6\u00f0i og \u00feekja \u00fea\u00f0 sama me\u00f0 einu \u00feaki af greifingjaskinni og setja stengurnar \u00fear til.<\/p>\n<p>\tSo skulu \u00feeir taka eitt gult kl\u00e6\u00f0i og sveipa \u00fear \u00ed kertistikuna og lampana, lj\u00f3sas\u00f6xin, skaraklofana til a\u00f0 sl\u00f6kkva lj\u00f3sin og \u00f6ll vi\u00f0smj\u00f6rskerin sem heyra til \u00fej\u00f3nustugj\u00f6r\u00f0inni, og sveipa \u00fear \u00ed kringum allt saman greifingjaskinni og leggja \u00fea\u00f0 upp\u00e1 b\u00f6rurnar. So skulu \u00feeir og brei\u00f0a eitt gult kl\u00e6\u00f0i yfir gullaltari\u00f0 og hylja \u00fea\u00f0 me\u00f0 einu \u00feaki af greifingjaskinni og setja stengurnar \u00fear til. \u00deeir skulu og sveipa \u00f6ll \u00feau ker sem \u00feeir hafa til \u00fej\u00f3nustunnar \u00ed helgid\u00f3minum \u00ed einu gulu kl\u00e6\u00f0i og hylja \u00fear yfir me\u00f0 greifingjaskinni og leggja \u00fea\u00f0 \u00e1 b\u00f6rurnar. \u00deeir skulu svo kl\u00e1ra \u00f6skuna af altarinu og brei\u00f0a eitt skarlatskl\u00e6\u00f0i \u00fear yfir og l\u00e1ta kerin \u00fear til sem a\u00f0 heyra til \u00feeirri \u00fej\u00f3nustunni, eldp\u00f6nnur, matkr\u00f3ka, ausur, munnl\u00f6gar, me\u00f0 \u00f6llum altarisins kerum. Og \u00feeir skulu brei\u00f0a eitt \u00feak \u00fear yfir af greifingjaskinni og setja stengurnar \u00fear til.<\/p>\n<p>\tSem Arons og hans synir hafa \u00feetta fullgj\u00f6rt og \u00feaki\u00f0 helgid\u00f3minn og allan hans umb\u00fana\u00f0 \u00feegar herinn sviftir herb\u00fa\u00f0um, eftir \u00fea\u00f0 skulu synir Kahat ganga inn og bera \u00fea\u00f0. Og \u00feeir skulu ekki snerta helgid\u00f3minn so \u00feeir deyi ekki. <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Kahat\u00edtanna emb\u00e6tti\">[<\/span> \u00deessar eru byr\u00f0ir sona Kahat \u00ed vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0. Og Eleasar son Arons prests skal hafa \u00fea\u00f0 emb\u00e6tti a\u00f0 skikka oleum til lj\u00f3sanna og jurtir til reykelsis og \u00fea\u00f0 daglega matoffur og smurningaroleum, a\u00f0 hann sj\u00e1i fyrir allri tjaldb\u00fa\u00f0inni og \u00f6llu \u00fev\u00ed sem \u00fear er inni \u00ed helgid\u00f3minum og fyrir helgid\u00f3msins kerum.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ Eleaser emb\u00e6tti\">[<\/span><\/p>\n<p>\tOg Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og Aron og sag\u00f0i: &#8222;\u00de\u00e9r skulu\u00f0 ekki l\u00e1ta kyn\u00fe\u00e1tt Kahat\u00edtanna \u00e6ttar fordjarfa sig \u00e1 me\u00f0al Lev\u00edtanna. En \u00feetta skulu \u00fe\u00e9r gj\u00f6ra \u00feeim so \u00feeir megi lifa en ekki deyja, ef \u00feeir annars snerta \u00fea\u00f0 allra helgasta. Aron og hans synir skulu ganga inn og setja hv\u00f6rn til s\u00edns emb\u00e6ttis og byr\u00f0ar. En \u00feeir skulu ekki ganga inn a\u00f0 sko\u00f0a helgid\u00f3minn \u00fe\u00e1 \u00feeir \u00feekja hann so \u00feeir deyi ekki.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og sag\u00f0i: &#8222;Tak \u00fe\u00fa manntal sona Gerson, eftir \u00feeirra fe\u00f0ra h\u00fasi og kyn\u00fe\u00e1ttum, \u00fe\u00e1 sem eru \u00ferj\u00e1tygi \u00e1ra og \u00fea\u00f0an af eldri allt til fimmtugasta \u00e1rs, og skikka \u00feeim \u00f6llum sem duganlegir eru a\u00f0 draga \u00ed str\u00ed\u00f0 a\u00f0 \u00feeir \u00fej\u00f3ni \u00ed vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0. En \u00feetta skal vera emb\u00e6tti \u00feeirra Gerson\u00edtis \u00e6ttar a\u00f0 \u00fej\u00f3na og bera: \u00deeir skulu bera tj\u00f6ldin tjaldb\u00fa\u00f0arinnar og vitnisbur\u00f0arb\u00fa\u00f0arinnar og hennar \u00feak og \u00fe\u00f6kin af greifingjaskinnunum sem \u00fear er utan um og fortjaldi\u00f0 \u00ed vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0ardyrum og langtj\u00f6ldin tjaldb\u00fa\u00f0argar\u00f0sins og fortjaldi\u00f0 \u00ed inng\u00f6ngu tjaldb\u00fa\u00f0argar\u00f0sins, \u00feess sem er \u00ed kringum tjaldb\u00fa\u00f0ina og altari\u00f0 og \u00feeirra st\u00f6g og \u00f6ll \u00feeirra emb\u00e6ttisverkf\u00e6ri og allt \u00fea\u00f0 sem heyrir til \u00feeirra emb\u00e6tti. <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ Gerson\u00edta emb\u00e6tti\">[<\/span> Synir Gerson skulu gj\u00f6ra s\u00edn emb\u00e6tti eftir Arons og hans sona or\u00f0um, me\u00f0 \u00f6llu \u00fev\u00ed sem \u00feeir skulu bera og gj\u00f6ra. Og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 sj\u00e1 til a\u00f0 \u00feeir taki vara \u00e1 \u00f6llum s\u00ednum byr\u00f0um. Og \u00feetta skal vera sona Gersonis og kyn\u00fe\u00e1ttar emb\u00e6tti \u00ed vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0. Og \u00feeirra var\u00f0hald skal vera undir hendi \u00cdtamar sonar Arons prests.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00fa skalt og skikka Merar\u00ed sonum, eftir \u00feeirra kyn\u00fe\u00e1ttum og fe\u00f0ra h\u00fasi, fr\u00e1 \u00ferj\u00e1tygi \u00e1rum og \u00fea\u00f0an af til fimmtygi \u00e1ra, \u00f6llum \u00feeim sem duganlegir eru a\u00f0 draga \u00ed str\u00ed\u00f0, a\u00f0 \u00feeir hafi eitt emb\u00e6tti \u00ed vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ Merar\u00edtanna emb\u00e6tti\">[<\/span> En \u00feetat eru \u00feeirra byr\u00f0ar eftir \u00f6llu \u00feeirra emb\u00e6tti \u00ed s\u00e1ttm\u00e1lans tjaldb\u00fa\u00f0: \u00deeir skulu bera fjalirnar, stengurnar og st\u00f3lpana og f\u00e6turnar til tjaldb\u00fa\u00f0arinnar, so og st\u00f3lpana til tjaldb\u00fa\u00f0argar\u00f0sins allt um kring og so fpturnar og h\u00e6lana og st\u00f6gin me\u00f0 \u00f6llum s\u00ednum umb\u00fana\u00f0i eftir \u00f6llu \u00feeirra emb\u00e6tti. \u00de\u00e9r skulu\u00f0 skipa til hv\u00f6rjum sinn part af byr\u00f0unum til a\u00f0 taka vara upp\u00e1. \u00deetta skal vera emb\u00e6tti Merar\u00ed sona \u00e6ttar, allt \u00fea\u00f0 sem \u00feeir skulu gj\u00f6ra \u00ed vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0 undir hendi \u00cdtamar sonar Arons prests.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg M\u00f3ses og Aron og h\u00f6f\u00f0ingjar alm\u00fagans t\u00f6ldu \u00fe\u00e1 sonu Kahat\u00edtanna eftir \u00feeirra kyn\u00fe\u00e1ttum og fe\u00f0ra h\u00fasi, \u00fer\u00edtuga og \u00fea\u00f0an af eldri inn til fimmtygi \u00e1ra, allir \u00feeir sem duganlegir voru a\u00f0 draga \u00ed str\u00ed\u00f0, a\u00f0 \u00feeir skyldu \u00fej\u00f3na \u00ed s\u00e1ttm\u00e1lans tjaldb\u00fa\u00f0 og \u00feeir voru a\u00f0 t\u00f6lu tv\u00e6r \u00fe\u00fasundir sj\u00f6 hundru\u00f0 og fimmtygi. <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ Manntal Kahat\u00edtanna kyn\u00fe\u00e1ttar\">[<\/span> \u00deetta er manntal Kahat\u00edtanna \u00e6ttar sem h\u00f6f\u00f0u allir nokku\u00f0 a\u00f0 \u00fej\u00f3na \u00ed vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0, hv\u00f6rja M\u00f3ses og Aron t\u00f6ldu eftir Drottins or\u00f0i fyrir M\u00f3sen.<\/p>\n<p>\tSynir Gerson voru og so taldir eftir \u00feeirra kynkv\u00edslum og fe\u00f0ra h\u00fasi, fr\u00e1 \u00ferj\u00e1tygu \u00e1ra g\u00f6mlum og \u00fear eftir til fimmtugs aldurs, allir \u00feeir sem duganlegir voru \u00ed str\u00ed\u00f0, a\u00f0 \u00feeir skyldu \u00fej\u00f3na \u00ed vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0, og \u00feeirra manntal var tv\u00e6r \u00fe\u00fasundir sex hundru\u00f0 og \u00ferj\u00e1tygi. <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Gerson\u00edtar\">[<\/span> \u00dea\u00f0 er talan \u00e1 \u00e6tt sona Gerson, hv\u00f6rjir allir nokku\u00f0 h\u00f6f\u00f0u a\u00f0 \u00fej\u00f3na \u00ed vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0inni, hv\u00f6rja M\u00f3ses og Aron t\u00f6ldu eftir or\u00f0i Drottins.<\/p>\n<p>\tSynir Merar\u00ed voru og so taldir eftir \u00feeirra kynkv\u00edslum og fe\u00f0ra h\u00fasi, fr\u00e1 \u00fer\u00edtugum og \u00fea\u00f0an af til fimmtugs aldurs, allir \u00feeir sem duganlegir voru til str\u00ed\u00f0s, a\u00f0 \u00feeir skyldu \u00fej\u00f3na \u00ed vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0, og \u00feeir voru a\u00f0 t\u00f6lu \u00ferj\u00e1r \u00fe\u00fasundir og tv\u00f6 hundru\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ Merar\u00edtar\">[<\/span> \u00deetta er talan \u00e1 Merar\u00ed sona \u00e6ttkv\u00edsl sem M\u00f3ses og Aron t\u00f6ldu eftir or\u00f0um Drottins fyrir M\u00f3sen.<\/p>\n<p>\tManntal allra Lev\u00edtanna sem M\u00f3ses og Aron og \u00cdsraels h\u00f6f\u00f0ingjar t\u00f6ldu, eftir \u00feeirra kyn\u00fe\u00e1ttum og fe\u00f0ra h\u00fasi, \u00feeir sem voru \u00ferj\u00e1tygi \u00e1ra og \u00fea\u00f0an af eldri inn til fimmtugs aldurs, sem allir gengu inn a\u00f0 \u00fej\u00f3na hv\u00f6r s\u00edna \u00fej\u00f3nustu og bera byr\u00f0ar \u00ed vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0, voru \u00e1tta \u00fe\u00fasundir fimm hundru\u00f0 og \u00e1ttatygi, hv\u00f6rjir taldir voru eftir Drottins or\u00f0um fyrir M\u00f3sen, hv\u00f6r til s\u00edns emb\u00e6ttis og byr\u00f0ar, sem Drottinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 M\u00f3se. <span class=\"athugasemd\" title=\"Summa allra Lev\u00edtanna\">[<\/span><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Og Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og Aron og sag\u00f0i: &#8222;Tel \u00fe\u00fa alla sonu Kahat s\u00e9r \u00ed lagi fr\u00e1 sonum Lev\u00ed, eftir \u00feeirra kynkv\u00edslum og fe\u00f0ra h\u00fasum, \u00fe\u00e1 sem eru \u00ferj\u00e1tygi \u00e1ra og \u00fea\u00f0an af eldri til fimmtugs aldurs, alla \u00fe\u00e1 sem duganlegir eru a\u00f0 draga \u00ed str\u00ed\u00f0, a\u00f0 \u00feeir \u00fej\u00f3ni \u00ed vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0. \u00deetta skal vera emb\u00e6tti sona Kahat \u00ed vitnisbur\u00f0arb\u00fa\u00f0inni, sem er \u00fea\u00f0 allra helgasta. \u00de\u00e1 herinn sviptir herb\u00fa\u00f0unum \u00fe\u00e1 skal Aron og hans synir ganga inn og ofan taka fortjaldi\u00f0 og vefja \u00ed \u00fev\u00ed \u00f6rkina vitnisbur\u00f0arins og leggja \u00fear yfir feld af greifingsskinnum og brei\u00f0a eitt gult kl\u00e6\u00f0i <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fjorda-mosebok-4-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2813","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2813","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2813"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2813\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2813"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}