{"id":2812,"date":"2017-12-18T18:31:47","date_gmt":"2017-12-18T18:31:47","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fjorda-mosebok-3-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:47","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:47","slug":"fjorda-mosebok-3-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fjorda-mosebok-3-kafli\/","title":{"rendered":"Fj\u00f3r\u00f0a M\u00f3seb\u00f3k 3. kafli"},"content":{"rendered":"<p>\u00deessi er kyn\u00fe\u00e1ttur Arons og M\u00f3ses \u00e1 \u00feeim t\u00edma er Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen \u00e1 S\u00edna\u00edfjalli og \u00feessi eru n\u00f6fn Arons sona: S\u00e1 fyrsti var Nadab, hans frumgetinn son, \u00fear n\u00e6st Ab\u00edh\u00fa, Eleasar og \u00cdtamar. <span class=\"athugasemd\" title=\"Arons synir \/ Exod. 6 \/ Levi. 12 \/ 1 Parali. 24\">[<\/span> \u00deessi eru Arons sona n\u00f6fn sem smur\u00f0ir voru til kennimanna og \u00feeirra hendur voru fylldar til prestaemb\u00e6ttis. En Nadab og Ab\u00edh\u00fa d\u00f3u fyrir Drottni \u00fe\u00e1 \u00feeir offru\u00f0u annarlegum eldi fyrir Drottni \u00ed ey\u00f0im\u00f6rku S\u00edna\u00ed, og \u00feeir h\u00f6f\u00f0u \u00f6ngva syni. En Eleasar og \u00cdtamar fr\u00f6mdu prestemb\u00e6tti\u00f0 me\u00f0 \u00feeirra f\u00f6\u00f0ur Aron.<\/p>\n<p>\tOg Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og sag\u00f0i: &#8222;L\u00e1ttu Lev\u00ed \u00e6tt koma fram og skikka \u00fe\u00fa hana til prestsins Arons a\u00f0 \u00feeir \u00fej\u00f3ni honum og taki vara upp\u00e1 hans og alls alm\u00fagans \u00fej\u00f3nustu fyrir tjaldb\u00fa\u00f0 vitnisbur\u00f0arins og a\u00f0 \u00feeir taki vara \u00e1 \u00fej\u00f3nustunni \u00ed tjaldb\u00fa\u00f0inni og a\u00f0 g\u00e6ta alls umb\u00fana\u00f0ar \u00ed vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0 og hafi vakt \u00e1 \u00cdsraelissonum til a\u00f0 \u00fej\u00f3na \u00ed tjaldb\u00fa\u00f0arinnar \u00fej\u00f3nustu. Og \u00fe\u00fa skalt gefa Lev\u00edtana Aroni og sonum hans af \u00cdsraelissonum. En Aron og hans sonu skalt \u00fe\u00fa skikka til a\u00f0 \u00feeir vakti sitt kennimannlegt emb\u00e6tti. Ef \u00fear gengur framandi til, hann skal deyja.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og sag\u00f0i: &#8222;Sj\u00e1, \u00e9g hefi teki\u00f0 Lev\u00edtana me\u00f0al \u00cdsraelissona \u00ed sta\u00f0inn allra frumgetninga sem a\u00f0 opna sitt m\u00f3\u00f0url\u00edf \u00e1 me\u00f0al \u00cdsraelssona, svo a\u00f0 Lev\u00edtarnir skulu heyra m\u00e9r til. \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feeir fyrstu frumbur\u00f0ir eru m\u00ednir s\u00ed\u00f0an \u00e9g \u00ed hel sl\u00f3 alla frumbur\u00f0i \u00ed Egyptalandi, \u00fe\u00e1 helga\u00f0i \u00e9g m\u00e9r allan frumbur\u00f0 \u00ed \u00cdsrael, a\u00f0 \u00feeir skyldu heyra m\u00e9r til, b\u00e6\u00f0i af m\u00f6nnum og f\u00e9na\u00f0i. <span class=\"athugasemd\" title=\"Exod. 13\">[<\/span> \u00c9g Drottinn.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen \u00ed ey\u00f0im\u00f6rku S\u00edna\u00ed og sag\u00f0i:  Tel \u00fe\u00fa Lev\u00ed sonu eftir \u00feeirra fe\u00f0ra h\u00fasi og kyn\u00fe\u00e1ttum, alla \u00fe\u00e1 sem eru kallkyns, eins m\u00e1na\u00f0ar gamlir og \u00fea\u00f0an af.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Talan \u00e1 sonum Lev\u00ed \/ Exo. 6\">[<\/span> Og so taldi M\u00f3ses \u00fe\u00e1 eftir or\u00f0um Drottins, so sem hann haf\u00f0i b\u00edfala\u00f0. Og \u00feessi voru n\u00f6fn Lev\u00ed sona: Gerson, Kahat, Merar\u00ed. En Gersons sona n\u00f6fn \u00ed \u00feeirra kyn\u00fe\u00e1ttum voru Lipn\u00ed og S\u00edme\u00ed. Synir Kahat \u00ed \u00feeirra kyn\u00fe\u00e1ttum voru Amram, Jesear, Hebrom og \u00das\u00edel. Synir Merar\u00ed \u00ed s\u00ednum kyn\u00fe\u00e1ttum voru Mahel og M\u00fas\u00ed. \u00deetta eru Lev\u00edtanna kyn\u00fe\u00e6ttir eftir \u00feeirra fe\u00f0ra heimkynni.<\/p>\n<p>\t\u00deessir eru kyn\u00fe\u00e6ttir Gerson: L\u00edbn\u00edtar og S\u00edme\u00edtar. <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ Gerson\u00edtar\">[<\/span> \u00deeirra manntal sem taldir voru var sj\u00f6 \u00fe\u00fasundru\u00f0 og fimm hundru\u00f0, allir \u00feeir sem voru af kallkyni, eins m\u00e1na\u00f0ar gamlir og \u00fea\u00f0an af eldri. Og s\u00fa sama Gerson\u00edta \u00e6tt skal setja s\u00ednar herb\u00fa\u00f0ir bak vi\u00f0 tjaldb\u00fa\u00f0ina \u00ed vestur. El\u00edasaf son Lael skal vera \u00feeirra h\u00f6f\u00f0ingi. \u00deeir skulu taka vara upp\u00e1 vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0 sem er \u00e1 tjaldinu og tjaldb\u00fa\u00f0nni, hennar \u00feaki og \u00e1 dyrunum fyrir vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0ardyrum og \u00e1 sparl\u00f6kunum til forgar\u00f0sins og \u00e1 d\u00faknum \u00ed forgar\u00f0sins dyrum sem gengur \u00ed kringum tjaldb\u00fa\u00f0ina og \u00ed kringum altari\u00f0, \u00e1 st\u00f6gunum og \u00e1 \u00f6llu \u00fev\u00ed sem heyrir til \u00feeirri \u00fej\u00f3nustugj\u00f6r\u00f0.<\/p>\n<p>\t\u00deessir eru kyn\u00fe\u00e6ttir Kahat: Amram\u00edtar, Jesehar\u00edtar, Hebron\u00edtar og \u00das\u00edel\u00edtar, allir kallkyns m\u00e1na\u00f0ar gamlir og \u00fea\u00f0an af eldri, \u00feeir sem voru a\u00f0 t\u00f6lu \u00e1tta \u00fe\u00fasund og sex hundru\u00f0, sem vara t\u00f3ku \u00e1 helgid\u00f3minum. <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ Kahat\u00edtar\">[<\/span> Og \u00feeir skulu leggja sig \u00e1 \u00feeirri sy\u00f0ri s\u00ed\u00f0u hj\u00e1 tjaldb\u00fa\u00f0inni. El\u00edsafan son \u00das\u00edel skal vera \u00feeirra h\u00f6f\u00f0ingi. Og \u00feeir skulu var\u00f0veita \u00f6rkina, bor\u00f0i\u00f0, kertistikuna, altari\u00f0, og \u00feau verkf\u00e6ri sem heyra til helgid\u00f3minum a\u00f0 gj\u00f6ra \u00fej\u00f3nustu me\u00f0, og d\u00fakana og \u00fea\u00f0 sem heyrir til \u00feeirri \u00fej\u00f3nustu. En Eleasar son Arons prests skal vera h\u00f6f\u00f0inginn og allra \u00e6\u00f0stur af Lev\u00edtunum, yfir \u00feeim sem eru skikka\u00f0ir til a\u00f0 var\u00f0veita helgid\u00f3minn.<\/p>\n<p>\t\u00deetta eru Merar\u00ed kyn\u00fe\u00e6ttir: Mahel\u00edtar og M\u00fas\u00edtar, sem voru reikna\u00f0ir a\u00f0 t\u00f6lu sex \u00fe\u00fasundir og tv\u00f6 hundru\u00f0, allt \u00fea\u00f0 kallkyns var, m\u00e1na\u00f0argamlir og \u00fea\u00f0an af eldri. <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ Merar\u00edtar\">[<\/span> S\u00far\u00edel son Ab\u00edha\u00edl skal vera \u00feeirra h\u00f6f\u00f0ingi. Og \u00feeir skulu leggja sig \u00e1 nyr\u00f0ri s\u00ed\u00f0u vi\u00f0 tjaldb\u00fa\u00f0ina. Og \u00feeirra emb\u00e6tti skal vera a\u00f0 taka vara \u00e1 fj\u00f6lunum og \u00e1 st\u00f6ngunum, \u00e1 st\u00f3lpunum og \u00e1 f\u00f3tunum til tjaldb\u00fa\u00f0arinnar og \u00e1 umb\u00fana\u00f0inum sem heyrir til \u00feeirri \u00fej\u00f3nustu, svo og \u00e1 st\u00f3lpunum \u00ed kringum tjaldb\u00fa\u00f0argar\u00f0inn og \u00e1 f\u00f3tunum og \u00e1 h\u00e6lunum og so l\u00edka \u00e1 st\u00f6gunum.<\/p>\n<p>\tEn M\u00f3ses og Aron og hans synir skulu setja \u00feeirra landtj\u00f6ld fyrir austan vitnisbur\u00f0arinnar tjaldb\u00fa\u00f0 so \u00feeir megi taka vara upp\u00e1 helgid\u00f3minum og \u00e1 \u00cdsraelissonum. En ef nokkur framandi kemur \u00fear n\u00e6r \u00fe\u00e1 skal hann deyja. Allir Lev\u00edtarnir \u00feeir sem M\u00f3ses og Aron h\u00f6f\u00f0u tali\u00f0 eftir or\u00f0i Drottins, allir \u00feeir sem kallkyns voru, m\u00e1na\u00f0argamlir og \u00fea\u00f0an af eldri, \u00ed \u00feeirra kyn\u00fe\u00e1ttum, voru tv\u00e6r og tuttugu \u00fe\u00fasundir. <span class=\"athugasemd\" title=\"Summa allra Lev\u00edtanna\">[<\/span><\/p>\n<p>\tOg Drottinn sag\u00f0i til M\u00f3sen: &#8222;Tel alla frumgetninga \u00fe\u00e1 sem eru kallkyns me\u00f0al \u00cdsraelissona, m\u00e1na\u00f0argamla og \u00fea\u00f0an af eldri, og tak t\u00f6luna og \u00feeirra n\u00f6fn. Og \u00fe\u00fa skalt fr\u00e1skilja m\u00e9r til handa, sem er Drottinn, Lev\u00edtana \u00ed sta\u00f0inn allra frumbur\u00f0a \u00e1 me\u00f0al \u00cdsraelssona, og Lev\u00edtanna f\u00e9 \u00ed sta\u00f0inn fyrir alls fyrsta frumbur\u00f0ar me\u00f0al \u00cdsraelissona f\u00e9na\u00f0ar.&#8220; Og M\u00f3ses taldi sem Drottinn bau\u00f0 honum alla frumbur\u00f0i \u00e1 me\u00f0al \u00cdsraelissona, m\u00e1na\u00f0argamla og \u00fea\u00f0an af eldri, \u00feeir voru tv\u00e6r og tuttugu \u00fe\u00fasundir og tv\u00f6 hundru\u00f0 og \u00fer\u00edr og fj\u00f6rutygu.<\/p>\n<p>\tOg Drottinn tala\u00f0i til M\u00f3sen og sag\u00f0i: &#8222;Tak \u00fe\u00fa Lev\u00edtana \u00ed sta\u00f0inn allra frumgetinna me\u00f0al \u00cdsraelssona og Lev\u00edtanna f\u00e9na\u00f0 fyrir \u00feeirra f\u00e9na\u00f0, so a\u00f0 Lev\u00edtarnir heyri m\u00e9r til. <span class=\"athugasemd\" title=\"Siclus er h\u00e1lfur dalur\">[<\/span> \u00c9g em Drottinn. En \u00fe\u00fa skalt taka lausnarpeninga fyrir \u00feau tv\u00f6 hundru\u00f0 \u00ferj\u00e1 og sj\u00f6tygi sem frumgetnir eru \u00e1 me\u00f0al \u00cdsraelssona og voru yfir Lev\u00edtanna t\u00f6lu, fimm siclos fyrir hv\u00f6rt h\u00f6fu\u00f0 til lausnar, eftir helgid\u00f3msins sikli (en tuttugu gera gilda eirn sikil) og \u00fe\u00fa skalt afhenda Aroni og hans sonum \u00feessa peninga sem so er yfir t\u00f6luna.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Exod. 30 \/ Levit. 27 \/ Esek. 45\">[<\/span> So t\u00f3k M\u00f3ses lausnarpeninga \u00feeirra sem afhlaups voru fram yfir Lev\u00edtanna t\u00f6lu, af \u00feeim frumgetnu \u00cdsraelissonum, \u00fe\u00fasund \u00ferj\u00fa hundru\u00f0 og fimm og sextygu siclos, eftir helgid\u00f3msins sikli. Og hann gaf Aroni og hans sonum \u00fe\u00e1 peninga, eftir Drottins or\u00f0i sem Drottinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 M\u00f3se.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deessi er kyn\u00fe\u00e1ttur Arons og M\u00f3ses \u00e1 \u00feeim t\u00edma er Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen \u00e1 S\u00edna\u00edfjalli og \u00feessi eru n\u00f6fn Arons sona: S\u00e1 fyrsti var Nadab, hans frumgetinn son, \u00fear n\u00e6st Ab\u00edh\u00fa, Eleasar og \u00cdtamar. [ \u00deessi eru Arons sona n\u00f6fn sem smur\u00f0ir voru til kennimanna og \u00feeirra hendur voru fylldar til prestaemb\u00e6ttis. En Nadab og Ab\u00edh\u00fa d\u00f3u fyrir Drottni \u00fe\u00e1 \u00feeir offru\u00f0u annarlegum eldi fyrir Drottni \u00ed ey\u00f0im\u00f6rku S\u00edna\u00ed, og \u00feeir h\u00f6f\u00f0u \u00f6ngva syni. En Eleasar og \u00cdtamar fr\u00f6mdu prestemb\u00e6tti\u00f0 me\u00f0 \u00feeirra f\u00f6\u00f0ur Aron. Og Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og sag\u00f0i: &#8222;L\u00e1ttu Lev\u00ed \u00e6tt koma fram og skikka \u00fe\u00fa <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fjorda-mosebok-3-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2812","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2812","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2812"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2812\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2812"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}