{"id":2810,"date":"2017-12-18T18:31:47","date_gmt":"2017-12-18T18:31:47","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fjorda-mosebok-1-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:47","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:47","slug":"fjorda-mosebok-1-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fjorda-mosebok-1-kafli\/","title":{"rendered":"Fj\u00f3r\u00f0a M\u00f3seb\u00f3k 1. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Numeri<\/p>\n<p>Fj\u00f3r\u00f0a b\u00f3k M\u00f3ses<\/p>\n<p>Og Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen \u00ed ey\u00f0im\u00f6rku S\u00edna\u00ed \u00ed vitnisbur\u00f0arb\u00fa\u00f0inni, \u00e1 \u00feeim fyrsta degi \u00ed \u00f6\u00f0rum m\u00e1na\u00f0i og \u00e1 \u00f6\u00f0ru \u00e1ri eftir \u00fea\u00f0 sem \u00feeir voru \u00fatgengnir af Egyptalandi, og sag\u00f0i: &#8222;Reikni\u00f0 manntal alls alm\u00fagans \u00cdsraelssona eftir \u00feeirra kynkv\u00edslum og \u00feeira fe\u00f0ra h\u00fasum og n\u00f6fnum, allt kallkyns, h\u00f6fu\u00f0 fyrir h\u00f6fu\u00f0, \u00feeir sem eru tuttugu \u00e1ra og \u00fea\u00f0an af eldri, alla \u00fe\u00e1 sem vopnf\u00e6rir eru til bardaga af \u00cdsrael. <span class=\"athugasemd\" title=\"Exod. 30 \/ Num. 26\">[<\/span> Og \u00fe\u00fa og Aron skulu\u00f0 telja \u00fe\u00e1 eftir s\u00ednum fj\u00f6lda og \u00fei\u00f0 skulu\u00f0 taka til ykkar einn af hv\u00f6rri kynkv\u00edsl og setja hann til eins h\u00f6f\u00f0ingja yfir s\u00edns f\u00f6\u00f0urs h\u00fas.<\/p>\n<p>\t\u00deessi eru n\u00f6fn h\u00f6f\u00f0ingjanna sem standa skulu hj\u00e1 y\u00f0ur: Af R\u00faben skal vera El\u00ed-S\u00far son Sede\u00far. <span class=\"athugasemd\" title=\"N\u00f6fn t\u00f3lf \u00cdsraelis h\u00f6f\u00f0ingja\">[<\/span> Af S\u00edmeon skal vera Sel\u00fam\u00edel son S\u00far\u00ed-Sada\u00ed. Af J\u00fada skal vera Nahesson son Amm\u00ednadab. Af \u00cdsaskar skal vera Netaneel son S\u00faar. Af Seb\u00falon skal vera El\u00edab son Hel\u00f3n. Af J\u00f3sefs sonum af Efra\u00edm skal vera El\u00edsama son Am\u00edh\u00fad. Af Manasse skal vera Ah\u00edeser son Amm\u00ed-Sada\u00ed. Af Asser skal vera Pag\u00edel son Okran. Af Ga\u00f0 skal vera El\u00edasaf son Deg\u00fael. Af Neftal\u00ed skal vera Ah\u00edra son Enan.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00deessir eru \u00feeir yppurstu af alm\u00faganum, h\u00f6fu\u00f0smenn af kyni \u00feeirra fe\u00f0ra, sem voru inu yppustu h\u00f6fu\u00f0 og h\u00f6f\u00f0\u00edngjar \u00ed \u00cdsrael. <span class=\"athugasemd\" title=\"Manntal t\u00f3lf kyn\u00fe\u00e1tta \u00cdsraels\">[<\/span> Og M\u00f3ses og Aron t\u00f3ku \u00fe\u00e1 til s\u00edn svo sem \u00feeir voru n\u00fa n\u00f6fnum nefndir. \u00deeir s\u00f6fnu\u00f0u \u00f6llum alm\u00faganum til samans \u00e1 \u00feeim fyrsta degi \u00ed \u00f6\u00f0rum m\u00e1nu\u00f0i og reiknu\u00f0u \u00fe\u00e1 eftir \u00feeirra f\u00e6\u00f0ingu, kyni, n\u00f6fnum og heimkynni, tv\u00edtuga og \u00fea\u00f0an af eldri, h\u00f6fu\u00f0 fyrir h\u00f6fu\u00f0, sem Drottinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 M\u00f3se. Og \u00feeir t\u00f6ldu \u00fe\u00e1 \u00ed ey\u00f0im\u00f6rku S\u00edna\u00ed.<\/p>\n<p>\tSynir R\u00faben, \u00cdsraelis frumgetna sonar, eftir \u00feeirra f\u00e6\u00f0ingu, kynsl\u00f3\u00f0, \u00feeirra fe\u00f0ra h\u00fasi og n\u00f6fnum, h\u00f6fu\u00f0 fyrir h\u00f6fu\u00f0, allir kallmenn tv\u00edtugir og \u00fea\u00f0an af eldri, \u00feeir sem vopnf\u00e6rir voru, voru reikna\u00f0ir af \u00e6tt R\u00faben sex og fj\u00f6rutygi \u00fe\u00fasundir og fimm hundru\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"1 \/ R\u00faben\">[<\/span><\/p>\n<p>\tSynir S\u00edmeon eftir \u00feeirra f\u00e6\u00f0ingu, kyni og heimkynni, nafni og t\u00f6lu, h\u00f6fu\u00f0 fyrir h\u00f6fu\u00f0, allir kallmenn tv\u00edtugir og \u00fea\u00f0an af eldri sem vopnf\u00e6rir voru, voru reikna\u00f0ir af kyni S\u00edmeon n\u00edu og fimmtygu \u00fe\u00fasundir og \u00ferj\u00fa hundru\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"2 \/ S\u00edmeon\">[<\/span><\/p>\n<p>\tSynir Ga\u00f0 eftir \u00feeirra f\u00e6\u00f0ingu, kyni, fe\u00f0ra h\u00fasi og nafni, fr\u00e1 tuttugu \u00e1rum og \u00fea\u00f0an af, sem f\u00e6rir voru a\u00f0 fara \u00ed bardaga, voru reikna\u00f0ir af kyni Ga\u00f0 fimm og fj\u00f6rutygi \u00fe\u00fasundir sex hundru\u00f0 og fimmtygi. <span class=\"athugasemd\" title=\"3 \/ Ga\u00f0\">[<\/span><\/p>\n<p>\tSynir J\u00fada eftir \u00feeirra f\u00e6\u00f0ingu, kyni, \u00feeirra fe\u00f0ra h\u00fasi og nafni, tv\u00edtugir og \u00fea\u00f0an af eldri, \u00feeir sem f\u00e6rir voru til bardaga, voru reikna\u00f0ir af \u00e6tt J\u00fada fj\u00f3rar og sj\u00f6tygi \u00fe\u00fasundir og sex hundru\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"4 \/ J\u00fada\">[<\/span><\/p>\n<p>\tSynir \u00cdsaskar eftir \u00feeirra f\u00e6\u00f0ingu, kyni, \u00feeirra fe\u00f0ra h\u00fasi og n\u00f6fnum, tuttugu vetra og \u00fea\u00f0an af eldri, vopnf\u00e6rir til bardaga, voru taldir af kyni \u00cdsaskar fj\u00f3rar og fimmtygi \u00fe\u00fasundir og fj\u00f6gur hundru\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"5 \/ \u00cdsaskar\">[<\/span><\/p>\n<p>\tSynir Seb\u00falon eftir \u00feeirra f\u00e6\u00f0ingu, kyni, \u00feeirra fe\u00f0ra h\u00fasi og n\u00f6fnum, tv\u00edtugir og \u00fea\u00f0an af eldri, sem vopnf\u00e6rir voru, voru reikna\u00f0ir af kyni Seb\u00falon sj\u00f6 og fimmtygi \u00fe\u00fasundir og fj\u00f6gur hundru\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"6 \/ Seb\u00falon\">[<\/span><\/p>\n<p>\tSynir J\u00f3sef af Efra\u00edm eftir \u00feeirra f\u00e6\u00f0ingu, kyni, \u00feeirra f\u00f6\u00f0urs h\u00fasi og n\u00f6fnum, tv\u00edtugir og \u00fea\u00f0an af eldri, sem vopnf\u00e6rir voru til bardaga, reikna\u00f0ir af kyni Efra\u00edms, fj\u00f6rutygi \u00fe\u00fasundir og fimm hundru\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"7 \/ Efra\u00edm\">[<\/span><\/p>\n<p>\tSynir Manasses eftir \u00feeirra f\u00e6\u00f0ingu, kyni, \u00feeirra fe\u00f0ra h\u00fasi og nafni, tuttugu vetra og \u00fea\u00f0an af eldri, sem duglegir voru a\u00f0 draga \u00ed str\u00ed\u00f0, voru taldir til Manasses \u00e6ttar t\u00f3lf og tuttugu \u00fe\u00fasundir og tv\u00f6 hundru\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"8 \/ Manasses\">[<\/span><\/p>\n<p>\tSynir Ben-Jam\u00edn eftir \u00feeirra f\u00e6\u00f0ingu, kyni, \u00feeirra fe\u00f0ra h\u00fasum og n\u00f6fnum, tuttugu vetra og \u00fea\u00f0an af eldri, \u00feeir sem duganlegir voru a\u00f0 dragast \u00ed str\u00ed\u00f0, voru reikna\u00f0ir af kyni Ben-Jam\u00edn fimm og \u00ferj\u00e1tygu \u00fe\u00fasundir og fj\u00f6gur hundru\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"9 \/ Ben-Jam\u00edn\">[<\/span><\/p>\n<p>\tSynir Dan eftir \u00feeirra f\u00e6\u00f0ingu, kyni, \u00feeirra fe\u00f0ra h\u00fasi og n\u00f6fnum, tv\u00edtugir og \u00fear yfir, \u00feeir sem hraustir voru a\u00f0 draga \u00ed str\u00ed\u00f0, voru taldir af kyni Dan tv\u00e6r og sextygi \u00fe\u00fasundir og sj\u00f6 hundru\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"10 \/ Dan\">[<\/span><\/p>\n<p>\tSynir Asser eftir \u00feeirra f\u00e6\u00f0ingu, kyni, \u00feeirra fe\u00f0ra h\u00fasi og n\u00f6fnum, tv\u00edtugir og \u00fea\u00f0an af eldri, sem duglegir voru a\u00f0 draga \u00ed str\u00ed\u00f0, voru taldir af kyni Asser ein og fj\u00f6rutygi \u00fe\u00fasund og fimm hundru\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"11 \/ Asser\">[<\/span><\/p>\n<p>\tSynir Neftal\u00ed eftir \u00feeirra f\u00e6\u00f0ingu, kyni, \u00feeirra fe\u00f0ra h\u00fasi og n\u00f6fnum, tv\u00edtugir menn og \u00fea\u00f0an af eldri, sem duganlegir voru a\u00f0 draga \u00ed str\u00ed\u00f0, voru taldir af kyni Neftal\u00ed \u00ferj\u00e1r og fimmtygu \u00fe\u00fasundir og fj\u00f6gur hundru\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"12 \/ Neftal\u00ed\">[<\/span><\/p>\n<p>\t\u00deessir eru \u00feeir hverja M\u00f3ses og Aron reiknu\u00f0u og \u00feeir t\u00f3lf \u00cdsraelis h\u00f6f\u00f0ingjar, s\u00e9rhv\u00f6r \u00feessara var yfir sinna fe\u00f0ra h\u00fasi. <span class=\"athugasemd\" title=\"Manntal alls \u00cdsraels undanteknum Lev\u00edtis\">[<\/span> Og manntal allra \u00cdsraelissona, eftir \u00feeirra fe\u00f0ra h\u00fasi, \u00feeir sem tv\u00edtugir voru og \u00fea\u00f0an af eldri, sem vopnf\u00e6rir voru til bardaga me\u00f0al \u00cdsrael, var sex sinnum hundra\u00f0 \u00fe\u00fasundir manna, \u00ferj\u00e1r \u00fe\u00fasundir fimm hundru\u00f0 og fimmtygu. En Lev\u00edtarnir eftir \u00feeirra fe\u00f0ra \u00e6tt voru ekki taldir h\u00e9r me\u00f0.          <\/p>\n<p>\tOg Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og sag\u00f0i: &#8222;\u00de\u00fa skalt ekki telja Lev\u00ed \u00e6tt og eigi reikna \u00feeirra manntal \u00e1 me\u00f0al \u00cdsraelssona, heldur skalt \u00fe\u00fa skikka \u00fe\u00e1 til vitnisbur\u00f0arb\u00fa\u00f0arinnar og til allra hennar kera og til alls hennar umb\u00fana\u00f0ar. <span class=\"athugasemd\" title=\"Kyn\u00fe\u00e1ttur Lev\u00ed\">[<\/span> Og \u00feeir skulu bera tjaldb\u00fa\u00f0ina og allan \u00feann umb\u00fana\u00f0 sem henni fylgir. Og \u00feeir skulu vakta \u00fear upp\u00e1 og skulu setja s\u00edn tj\u00f6ld kringum tjaldb\u00fa\u00f0ina. Og \u00feegar menn eiga a\u00f0 fer\u00f0ast \u00fe\u00e1 skulu Lev\u00edtarnir taka tjaldb\u00fa\u00f0ina ofan. En sem herinn setur s\u00ednar tjaldb\u00fa\u00f0ir \u00fe\u00e1 skulu \u00feeir reisa tjaldb\u00fa\u00f0ina upp. <span class=\"athugasemd\" title=\"Emb\u00e6tti Lev\u00ed\">[<\/span> Og ef nokkur framandi kemur \u00fear vi\u00f0 \u00fe\u00e1 skal hann deyja. \u00cdsraelissynir skulu leggja sig, s\u00e9rhv\u00f6r \u00ed s\u00ednum herb\u00fa\u00f0um, og hj\u00e1 merki s\u00edns li\u00f0s. En Lev\u00edtarnir skulu tjalda \u00ed kringum vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0 so a\u00f0 \u00fear komi ekki nokkur rei\u00f0i yfir alm\u00fagann \u00cdsraelissona. \u00dev\u00ed skulu Lev\u00edtarnir halda var\u00f0hald hj\u00e1 vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0.&#8220; Og \u00cdsraelssynir gj\u00f6r\u00f0u allt so sem Drottinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 M\u00f3se.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Numeri Fj\u00f3r\u00f0a b\u00f3k M\u00f3ses Og Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen \u00ed ey\u00f0im\u00f6rku S\u00edna\u00ed \u00ed vitnisbur\u00f0arb\u00fa\u00f0inni, \u00e1 \u00feeim fyrsta degi \u00ed \u00f6\u00f0rum m\u00e1na\u00f0i og \u00e1 \u00f6\u00f0ru \u00e1ri eftir \u00fea\u00f0 sem \u00feeir voru \u00fatgengnir af Egyptalandi, og sag\u00f0i: &#8222;Reikni\u00f0 manntal alls alm\u00fagans \u00cdsraelssona eftir \u00feeirra kynkv\u00edslum og \u00feeira fe\u00f0ra h\u00fasum og n\u00f6fnum, allt kallkyns, h\u00f6fu\u00f0 fyrir h\u00f6fu\u00f0, \u00feeir sem eru tuttugu \u00e1ra og \u00fea\u00f0an af eldri, alla \u00fe\u00e1 sem vopnf\u00e6rir eru til bardaga af \u00cdsrael. [ Og \u00fe\u00fa og Aron skulu\u00f0 telja \u00fe\u00e1 eftir s\u00ednum fj\u00f6lda og \u00fei\u00f0 skulu\u00f0 taka til ykkar einn af hv\u00f6rri kynkv\u00edsl og setja hann til eins h\u00f6f\u00f0ingja yfir <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/fjorda-mosebok-1-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2810","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2810","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2810"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2810\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2810"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}