{"id":2799,"date":"2017-12-18T18:31:47","date_gmt":"2017-12-18T18:31:47","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/thridja-mosebok-17-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:47","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:47","slug":"thridja-mosebok-17-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/thridja-mosebok-17-kafli\/","title":{"rendered":"\u00deri\u00f0ja M\u00f3seb\u00f3k 17. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Og Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og sag\u00f0i: &#8222;Tala \u00fe\u00fa til Arons og hans sona og allra \u00cdsraelsbarna og seg \u00fe\u00fa til \u00feeirra: \u00deetta er \u00fea\u00f0 sem Drottinn hefur bo\u00f0i\u00f0. Hv\u00f6r af \u00cdsraels h\u00fasi sem sl\u00e1trar einum uxa e\u00f0a lambi e\u00f0a geitsau\u00f0 \u00ed herb\u00fa\u00f0unum e\u00f0a fyrir utan herb\u00fa\u00f0irnar og ber \u00fea\u00f0 ekki fram fyrir vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0ardyr a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 bori\u00f0 Drottni til offurs fyrir tjaldb\u00fa\u00f0 Drottins, hann skal vera <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (Sekur) \/ H\u00e9r s\u00e9r \u00fe\u00fa a\u00f0 Gu\u00f0 vill ekki \u00fe\u00e1 \u00fej\u00f3nustu sem eirn hann \u00fatvelur sj\u00e1lfur og diktar \u00e1n \u00feeirrar \u00fej\u00f3nustugj\u00f6r\u00f0ar sem Gu\u00f0 b\u00fd\u00f0ur. \u00dev\u00ed kallar hann sl\u00edkan f\u00f3rnf\u00e6rara eirn mor\u00f0ingja, so sem og Esajas talar \u00ed lxvi. Kap.\">[<\/span> bl\u00f3\u00f0sekur, svo sem s\u00e1 a\u00f0 \u00fathellt hefur bl\u00f3\u00f0i, og sl\u00edkur ma\u00f0ur skal afm\u00e1\u00f0ur ver\u00f0a fr\u00e1 s\u00ednu f\u00f3lki.<\/p>\n<p>\t\u00dear fyrir skulu \u00cdsraelssynir f\u00e6ra s\u00ednar f\u00f3rnir \u00fe\u00e6r sem \u00feeir vilja f\u00e6ra \u00fati \u00e1 v\u00ed\u00f0um v\u00f6llum fram fyrir Drottin fyrir vitnisbur\u00f0ar b\u00fa\u00f0ardyrnar til prestsins og \u00fear skulu \u00feeir offra Drottni \u00feakkoffur. Og presturinn skal st\u00f6kkva bl\u00f3\u00f0inu \u00e1 altari Drottins fyrir utan vitnisbur\u00f0ar tjaldb\u00fa\u00f0arinnar dyr og upptendra \u00fea\u00f0 feita Drottni til eins s\u00e6ts ilms. Og \u00feeir skulu \u00ed \u00f6ngvan m\u00e1ta h\u00e9\u00f0an af f\u00e6ra dj\u00f6flinum \u00feeirra f\u00f3rnir, me\u00f0 hv\u00f6rjum \u00feeir hafa frami\u00f0 s\u00ednar h\u00f3ranir. \u00deetta skal vera \u00feeim ein eil\u00edf skikkan hj\u00e1 \u00feeirra eftirkomendum. \u00dear fyrir skaltu segja til \u00feeirra: Hv\u00f6r ma\u00f0ur af \u00cdsraels h\u00fasi e\u00f0a \u00fatlendingur \u00e1 me\u00f0al y\u00f0ar sem f\u00e6rir f\u00f3rn e\u00f0a brennioffur og ber \u00fea\u00f0 ekki fram fyrir vitnisbur\u00f0artjaldb\u00fa\u00f0ina til a\u00f0 gj\u00f6ra \u00fea\u00f0 Drottni, hann skal uppr\u00e6tast fr\u00e1 s\u00ednu f\u00f3lki.<\/p>\n<p>\tOg hv\u00f6r ma\u00f0ur sem nokku\u00f0 bl\u00f3\u00f0 etur, hvort heldur hann er af \u00cdsraels h\u00fasi e\u00f0a er eirn framandi \u00e1 me\u00f0al y\u00f0ar, \u00ed gegn honum vil \u00e9g setja mitt andlit og fyrirkoma honum fr\u00e1 s\u00ednu f\u00f3lki. <span class=\"athugasemd\" title=\"Act. 15\">[<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 l\u00edkamans er \u00ed bl\u00f3\u00f0inu og \u00e9g hef gefi\u00f0 y\u00f0ur \u00fea\u00f0 til altaris, a\u00f0 y\u00f0ar s\u00e1lir skulu \u00fear me\u00f0 forl\u00edkast. \u00dev\u00ed a\u00f0 bl\u00f3\u00f0i\u00f0 er forl\u00edkunin fyrir l\u00edfi\u00f0. \u00dear fyrir hefi \u00e9g sagt til \u00cdsraelssona: Engin s\u00e1l skal eta bl\u00f3\u00f0 \u00e1 me\u00f0al y\u00f0ar og eigi heldur nokkur framandi ma\u00f0ur sem b\u00fdr \u00e1 me\u00f0al y\u00f0ar.<\/p>\n<p>\tOg hv\u00f6r s\u00e1 ma\u00f0ur sem vei\u00f0ir eitt d\u00fdr e\u00f0a eirn fugl sem mann m\u00e1 eta, hvort heldur hann er af \u00cdsraels h\u00fasi e\u00f0a framandi \u00e1 me\u00f0al y\u00f0ar, \u00fe\u00e1 skal hann \u00fathella bl\u00f3\u00f0inu af \u00fev\u00ed og hylja \u00fea\u00f0 me\u00f0 j\u00f6r\u00f0u. <span class=\"athugasemd\" title=\"Bl\u00f3\u00f0 fyrirbo\u00f0i\u00f0 a\u00f0 eta\">[<\/span> \u00dev\u00ed l\u00edf l\u00edkamans er bl\u00f3\u00f0i\u00f0 so lengi sem hann lifir. Og \u00e9g hefi sagt til \u00cdsraelssona: \u00de\u00e9r skulu\u00f0 ekki eta bl\u00f3\u00f0i\u00f0 af \u00fev\u00ed sem hefur l\u00edf, \u00fea\u00f0 l\u00edfi\u00f0 l\u00edkamans er \u00ed hans bl\u00f3\u00f0i. Hv\u00f6r \u00fea\u00f0 etur, hann skal upprykkjast. Og hv\u00f6r s\u00e1l sem etur nokku\u00f0 hr\u00e6 e\u00f0a \u00fea\u00f0 sem sliti\u00f0 er af d\u00fdrum, hvort hann er heldur innbyggjari e\u00f0a framandi, hann skal \u00fevo s\u00edn kl\u00e6\u00f0i og ba\u00f0a sig \u00ed vatni og vera \u00f3hreinn til kvelds, \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur hann hreinn. \u00devoi hann ekki s\u00edn kl\u00e6\u00f0i og ba\u00f0ar sig ekki \u00fe\u00e1 skal hann vera saka\u00f0ur \u00ed s\u00ednum misgj\u00f6rningi.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Og Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og sag\u00f0i: &#8222;Tala \u00fe\u00fa til Arons og hans sona og allra \u00cdsraelsbarna og seg \u00fe\u00fa til \u00feeirra: \u00deetta er \u00fea\u00f0 sem Drottinn hefur bo\u00f0i\u00f0. Hv\u00f6r af \u00cdsraels h\u00fasi sem sl\u00e1trar einum uxa e\u00f0a lambi e\u00f0a geitsau\u00f0 \u00ed herb\u00fa\u00f0unum e\u00f0a fyrir utan herb\u00fa\u00f0irnar og ber \u00fea\u00f0 ekki fram fyrir vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0ardyr a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 bori\u00f0 Drottni til offurs fyrir tjaldb\u00fa\u00f0 Drottins, hann skal vera [ bl\u00f3\u00f0sekur, svo sem s\u00e1 a\u00f0 \u00fathellt hefur bl\u00f3\u00f0i, og sl\u00edkur ma\u00f0ur skal afm\u00e1\u00f0ur ver\u00f0a fr\u00e1 s\u00ednu f\u00f3lki. \u00dear fyrir skulu \u00cdsraelssynir f\u00e6ra s\u00ednar f\u00f3rnir \u00fe\u00e6r sem \u00feeir vilja f\u00e6ra \u00fati \u00e1 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/thridja-mosebok-17-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2799","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2799","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2799"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2799\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2799"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}