{"id":2798,"date":"2017-12-18T18:31:47","date_gmt":"2017-12-18T18:31:47","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/thridja-mosebok-16-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:47","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:47","slug":"thridja-mosebok-16-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/thridja-mosebok-16-kafli\/","title":{"rendered":"\u00deri\u00f0ja M\u00f3seb\u00f3k 16. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Og Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen (eftir \u00fea\u00f0 \u00feeir tveir Arons synir voru dau\u00f0ir, \u00fe\u00e1 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u offra\u00f0 annarlegan eld fyrir Drottni) og sag\u00f0i: &#8222;Seg\u00f0u Aron, \u00fe\u00ednum br\u00f3\u00f0ur, a\u00f0 hann gangi ekki jafnlega inn \u00ed \u00feann innsta helgid\u00f3m fyrir innan fortjaldi\u00f0 fyrir n\u00e1\u00f0arst\u00f3linn sem er \u00e1 aurkinni so hann ekki deyi. \u00dev\u00ed \u00e9g vil birtast \u00ed einu sk\u00fdi yfir n\u00e1\u00f0arst\u00f3lnum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Levit. 10 \/ Exod. 30 \/ Ebre. 9\">[<\/span><\/p>\n<p>\tEn me\u00f0 \u00feessu skal hann ganga \u00fear inn: Me\u00f0 eirn ungan uxa til syndaoffurs og me\u00f0 eirn hr\u00fat til brennif\u00f3rnar, og skal f\u00e6ra sig \u00ed \u00feann helga l\u00ednkyrtil og hafa eitt ni\u00f0urkl\u00e6\u00f0i af l\u00edni um sinn l\u00edkama og gyr\u00f0a sig me\u00f0 einu l\u00ednbelti og hafa eitt h\u00f6fu\u00f0kl\u00e6\u00f0i af l\u00edni, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 eru \u00feau helgu kl\u00e6\u00f0i, og skal lauga sinn l\u00edkama \u00ed vatni og f\u00e6ra sig so \u00ed \u00feau. Og so skal hann taka af alm\u00faga \u00cdsraelssona tvo kjarnhafra til syndaoffurs og eirn hr\u00fat til brennioffurs. <\/p>\n<p>\tOg Aron skal lei\u00f0a uxann fram til s\u00edns syndaoffurs og gj\u00f6ra eina forl\u00edkan fyrir sig og fyrir sitt h\u00fas. S\u00ed\u00f0an skal hann taka \u00fe\u00e1 tvo hafra og lei\u00f0a \u00fe\u00e1 fram fyrir Drottin fyrir vitnisbur\u00f0ar tjaldb\u00fa\u00f0ardyrnar, og skal leggja hluti \u00e1 \u00fe\u00e1 tvo hafra, einn hlut fyrir Drottin og \u00feann annan fyrir \u00feann hafur sem skal laus l\u00e1tast. Og hann skal f\u00f3rnf\u00e6ra \u00feann hafur sem Drottins hlutur f\u00e9ll yfir til syndaoffurs. En s\u00e1 hafurinn sem hluturinn f\u00e9ll yfir a\u00f0 hann skyldi laus l\u00e1tast \u00feann skal hann skikka lifanda fyrir Drottin, a\u00f0 hann gj\u00f6ri eina forl\u00edkan fyrir hann og sleppa so \u00feeim lausa hafri \u00fat \u00e1 ey\u00f0im\u00f6rk. <span class=\"athugasemd\" title=\"S\u00e1 lausi hafurinn\">[<\/span> Og so skal hann s\u00ed\u00f0an lei\u00f0a \u00feann uxa fram til s\u00edns syndaoffurs og forl\u00edka sig og sitt h\u00fas og s\u00e6fa hann.<\/p>\n<p>\tSo skal hann taka eitt gl\u00f3\u00f0arker fullt af gl\u00e6\u00f0um af altarinu \u00fev\u00ed sem stendur fyrir Drottni og einn hremming fullan af m\u00f6ldu reykelsi og bera \u00fea\u00f0 innyfir fortjaldi\u00f0 og kasta so reykelsinu \u00e1 eldinn fyrir Drottni so a\u00f0 reykurinn af reykelsinu hylji n\u00e1\u00f0arst\u00f3linn sem er upp\u00e1 vitnisbur\u00f0inum a\u00f0 hann ekki deyi. So skal hann taka bl\u00f3\u00f0i\u00f0 af uxanum og st\u00f6kkva \u00fev\u00ed me\u00f0 s\u00ednum fingri framanvert \u00e1 n\u00e1\u00f0arst\u00f3linn. Sj\u00f6 sinnum skal hann so st\u00f6kkva me\u00f0 s\u00ednum fingri af bl\u00f3\u00f0inu fyrir n\u00e1\u00f0arst\u00f3lnum.<\/p>\n<p>\tS\u00ed\u00f0an skal hann sl\u00e1tra hafrinum sem er f\u00f3lksins syndaf\u00f3rn og bera hans bl\u00f3\u00f0 innyfir fortjaldi\u00f0 og skal gj\u00f6ra me\u00f0 hans bl\u00f3\u00f0 l\u00edka sem hann gj\u00f6r\u00f0i vi\u00f0 uxans bl\u00f3\u00f0 og dreifa \u00fev\u00ed framanvert a\u00f0 n\u00e1\u00f0arst\u00f3lnum, og skal so forl\u00edka helgid\u00f3minn af \u00cdsraelissona \u00f3hreinleika og af \u00feeirra yfirtro\u00f0slu \u00ed \u00f6llum \u00feeirra syndum. So skal hann og gj\u00f6ra me\u00f0 vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0, \u00fev\u00ed \u00feeir eru \u00f3hreinir \u00feeir sem \u00fear liggja um kring. <span class=\"athugasemd\" title=\"L\u00fak. 1\">[<\/span> <\/p>\n<p>\t\u00dear skal enginn ma\u00f0ur vera \u00ed vitnisbur\u00f0arb\u00fa\u00f0inni \u00e1 me\u00f0an hann gengur \u00fear inn a\u00f0 gj\u00f6ra forl\u00edkun \u00ed helgid\u00f3minum, \u00fear til hann kemur \u00fat aftur. Og so skal hann gj\u00f6ra eina <span class=\"athugasemd\" title=\"sword bi\u00f0ja fyrir s\u00e9r\">[<\/span> forl\u00edkun fyrir sig og sitt h\u00fas og fyrir allan alm\u00fagann \u00ed \u00cdsrael. Og n\u00e6r hann gengur \u00fat til altarisins sem stendur fyrir Drottni, \u00fe\u00e1 skal hann gj\u00f6ra eina forl\u00edkun \u00fear fyrir og skal taka uxans bl\u00f3\u00f0 og hafursins bl\u00f3\u00f0 og r\u00ed\u00f0a \u00fev\u00ed \u00e1 altarisins horn umhverfis, og skal r\u00ed\u00f0a bl\u00f3\u00f0inu sj\u00f6 sinnum me\u00f0 s\u00ednum fingri \u00fear \u00e1 og hreinsa \u00fea\u00f0 og helga \u00fea\u00f0 af \u00cdsraelssona \u00f3hreinleika.<\/p>\n<p>\tOg sem hann hefur fullkomna\u00f0 helgid\u00f3msins forl\u00edkun og vitnisbur\u00f0arb\u00fa\u00f0arinnar og altarisins, \u00fe\u00e1 skal hann framlei\u00f0a \u00feann lifandi hafurinn. \u00de\u00e1 skal Aron leggja s\u00ednar b\u00e1\u00f0ar hendur yfir hans h\u00f6fu\u00f0 og me\u00f0kenna allar \u00cdsraelssona syndir yfir honum og allar \u00feeirra yfirtro\u00f0slur og allar \u00feeirra syndir og skal leggja \u00fe\u00e6r upp\u00e1 hafursins h\u00f6fu\u00f0 og senda burt \u00ed au\u00f0n me\u00f0 einum manni sem \u00fear er vi\u00f0staddur, a\u00f0 hafurinn beri so alla \u00feeirra misgj\u00f6rninga \u00e1 s\u00e9r \u00ed eina villiau\u00f0n, og l\u00e1ti hann \u00fear eftir \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni. <span class=\"athugasemd\" title=\"Lifandi hafurinn sem ber syndirnar merkir Herrann Kristum\">[<\/span><\/p>\n<p>\tSo skal Aron ganga inn \u00ed vitnisbur\u00f0arb\u00fa\u00f0ina og f\u00e6ra sig af l\u00ednkl\u00e6\u00f0um sem hann f\u00f3r \u00ed \u00fe\u00e1 hann gekk inn \u00ed helgid\u00f3minn og l\u00e1ta \u00feau \u00fear eftir. Og hann skal lauga l\u00edkama sinn \u00ed vatni \u00ed \u00feeim helga sta\u00f0 og f\u00e6ra sig \u00ed s\u00edn eiginkl\u00e6\u00f0i og ganga so \u00fat og gj\u00f6ra so b\u00e6\u00f0i sitt eigi\u00f0 brennioffur og f\u00f3lksins brennioffur og gj\u00f6ra forl\u00edkun b\u00e6\u00f0i fyrir sig og fyrir f\u00f3lki\u00f0, og skal upptendra \u00fea\u00f0 feita af syndaf\u00f3rninni \u00e1 altarinu. En s\u00e1 sem f\u00e6r\u00f0i \u00feann lausa hafur \u00ed burt skal \u00fevo s\u00edn kl\u00e6\u00f0i og \u00fevo sinn l\u00edkama \u00ed vatni og gangi s\u00ed\u00f0an \u00ed herb\u00fa\u00f0irnar.<\/p>\n<p>\tEn syndaf\u00f3rnaruxann og hafurinn, hverra bl\u00f3\u00f0 inn er bori\u00f0 \u00ed helgid\u00f3minn til forl\u00edkunar, skulu menn bera \u00fat fyrir herb\u00fa\u00f0irnar og brenna me\u00f0 eldi \u00feeirra h\u00fa\u00f0, hold og myki. Og s\u00e1 sem \u00fe\u00e1 brennir skal \u00fevo s\u00edn kl\u00e6\u00f0i \u00ed vatni og sinn l\u00edkama og koma \u00fear eftir \u00ed herb\u00fa\u00f0irnar.<\/p>\n<p>\tOg \u00feetta skal vera y\u00f0ur ein eil\u00edf skikkan. <span class=\"athugasemd\" title=\"Forl\u00edkunarh\u00e1t\u00ed\u00f0in \/ Deut. 16 \/ Levit. 23\">[<\/span> \u00de\u00e9r skulu\u00f0 \u00fej\u00e1 y\u00f0ra l\u00edkami \u00feann t\u00edunda dag \u00ed \u00feeim sj\u00f6unda m\u00e1na\u00f0i og ekkert arbide fremja, hvorki innbyggjarar n\u00e9 framandi \u00e1 me\u00f0al y\u00f0ar. Fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 y\u00f0ar forl\u00edkun sker \u00e1 \u00feeim degi, a\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 vera hreinir gj\u00f6r\u00f0ir, af \u00f6llum y\u00f0ar syndum eru \u00fe\u00e9r hreinsa\u00f0ir fyrir Drottni. \u00dear fyrir skal \u00fea\u00f0 y\u00f0ar vera inn st\u00e6rsti sabbat og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 \u00fej\u00e1 y\u00f0ar l\u00edkami. Og \u00feetta skal vera y\u00f0ur ein eil\u00edf skikkan.<\/p>\n<p>\tEn \u00feessa forl\u00edkun skal eirn prestur gj\u00f6ra, s\u00e1 sem v\u00edg\u00f0ur hefur veri\u00f0 og hv\u00f6rs h\u00f6nd a\u00f0 mann hefur uppfyllt til prestsemb\u00e6ttis \u00ed hans f\u00f6\u00f0urs sta\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Ebre. 9\">[<\/span> Og hann skal f\u00e6ra sig \u00ed \u00feau l\u00ednkl\u00e6\u00f0i, sem er \u00feau heil\u00f6g kl\u00e6\u00f0i, og forl\u00edka so helgid\u00f3minn og vitnisbur\u00f0arins tjaldb\u00fa\u00f0ina og altari\u00f0 og prestana og allt f\u00f3lki\u00f0 safna\u00f0arins. \u00dea\u00f0 skal vera y\u00f0ur ein eil\u00edf skikkan a\u00f0 \u00fe\u00e9r forl\u00edki\u00f0 \u00cdsraelssonu af \u00f6llum \u00feeirra syndum eirn t\u00edma um \u00e1ri\u00f0.&#8220; Og M\u00f3ses gj\u00f6r\u00f0i sem Drottinn haf\u00f0i b\u00edfala\u00f0 honum.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Og Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen (eftir \u00fea\u00f0 \u00feeir tveir Arons synir voru dau\u00f0ir, \u00fe\u00e1 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u offra\u00f0 annarlegan eld fyrir Drottni) og sag\u00f0i: &#8222;Seg\u00f0u Aron, \u00fe\u00ednum br\u00f3\u00f0ur, a\u00f0 hann gangi ekki jafnlega inn \u00ed \u00feann innsta helgid\u00f3m fyrir innan fortjaldi\u00f0 fyrir n\u00e1\u00f0arst\u00f3linn sem er \u00e1 aurkinni so hann ekki deyi. \u00dev\u00ed \u00e9g vil birtast \u00ed einu sk\u00fdi yfir n\u00e1\u00f0arst\u00f3lnum. [ En me\u00f0 \u00feessu skal hann ganga \u00fear inn: Me\u00f0 eirn ungan uxa til syndaoffurs og me\u00f0 eirn hr\u00fat til brennif\u00f3rnar, og skal f\u00e6ra sig \u00ed \u00feann helga l\u00ednkyrtil og hafa eitt ni\u00f0urkl\u00e6\u00f0i af l\u00edni um sinn l\u00edkama og gyr\u00f0a sig <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/thridja-mosebok-16-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2798","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2798","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2798"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2798\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2798"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}