{"id":2796,"date":"2017-12-18T18:31:47","date_gmt":"2017-12-18T18:31:47","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/thridja-mosebok-14-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:47","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:47","slug":"thridja-mosebok-14-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/thridja-mosebok-14-kafli\/","title":{"rendered":"\u00deri\u00f0ja M\u00f3seb\u00f3k 14. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Og Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og sag\u00f0i: &#8222;\u00deetta er l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 yfir \u00feeim l\u00edk\u00fer\u00e1 \u00fe\u00e1 hann skal hreinsast. <span class=\"athugasemd\" title=\"Hreinsan \u00feeirra l\u00edk\u00fer\u00e1u \/ Math. 8 \/ Mark. 1 \/ L\u00fak. 5\">[<\/span> Hann skal koma til prestsins og presturinn skal ganga \u00fat af herb\u00fa\u00f0unum og sko\u00f0a hv\u00f6rnin \u00fea\u00f0 spitelskuteikn er l\u00e6kna\u00f0 \u00e1 \u00feeim l\u00edk\u00fer\u00e1. Og hann skal bj\u00f3\u00f0a \u00feeim sem hreinsast skal a\u00f0 taka upp tvo lifandi fugla sem hreinir eru og sedrustr\u00e9 og purpuraull og \u00eds\u00f3p. Og hann skal bj\u00f3\u00f0a a\u00f0 sl\u00e1tra \u00f6\u00f0rum fuglinum \u00ed einu leirkeri hj\u00e1 einu rennanda vatni. Og hann skal taka \u00feann lifanda fugl me\u00f0 sedrustr\u00e9nu, purpuraullu og \u00eds\u00f3p\u00f3 og drepa \u00fev\u00ed \u00ed bl\u00f3\u00f0 \u00feess s\u00e6f\u00f0a fugls hj\u00e1 \u00fev\u00ed rennanda vatni og st\u00f6kkva sj\u00f6 sinnum yfir \u00feann sem hreinsast skal af l\u00edk\u00fer\u00e1nni og hreinsa hann so og l\u00e1ta \u00feann lifanda fugl flj\u00faga lausan \u00ed burt.<\/p>\n<p>\tEn s\u00e1 sem hreinsa\u00f0ur er skal \u00fevo s\u00edn kl\u00e6\u00f0i og raka allt sitt h\u00e1r af og lauga sig \u00ed vatni, so er hann hreinn. S\u00ed\u00f0an gangi hann \u00ed herb\u00fa\u00f0irnar. \u00de\u00f3 skal hann vera fyrir utan sitt tjald \u00ed sj\u00f6 daga. Og \u00feann sj\u00f6unda dag skal hann raka allt sitt h\u00e1r af s\u00ednu h\u00f6f\u00f0i, skeggi og augnabr\u00e1m, so a\u00f0 allt hans h\u00e1r s\u00e9 afraka\u00f0. Og hann skal \u00fevo s\u00edn kl\u00e6\u00f0i og lauga sinn l\u00edkama \u00ed vatni, svo er hann hreinn.<\/p>\n<p>\tOg \u00e1 \u00feeim \u00e1ttunda degi skal hann taka tv\u00f6 l\u00f6mb \u00e1n l\u00fdta og veturgamlan sau\u00f0 vankalausan og \u00ferj\u00e1 t\u00edunda parta hveitissarla til matoffurs, blanda\u00f0 me\u00f0 oleo, og einn <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (L\u00f3g) \/ M\u00e6lir hj\u00e1 ebreskum. Vita menn ei hva\u00f0 st\u00f3r hann var. Sumir halda a\u00f0 i l\u00f3g taki sex h\u00e6nuegg. N\u00edu h\u00e6nuegg ganga \u00ed vora m\u00f6rk me\u00f0 oss, \u00fe\u00e1 er l\u00f3g tveir hlutir \u00far m\u00f6rk\">[<\/span> l\u00f3g oleum. S\u00ed\u00f0an skal presturinn skikka \u00feann sem hreinn er gj\u00f6r\u00f0ur og \u00feessa hluti fram fyrir Drottin, utan fyrir vitnisbur\u00f0arb\u00fa\u00f0ardyrunum. Og hann skal taka anna\u00f0 lamb og offra \u00fev\u00ed til skuldoffurs me\u00f0 \u00feeim l\u00f3g af vi\u00f0smj\u00f6ri og skal veifa \u00fev\u00ed fyrir Drottni og sl\u00e1tra s\u00ed\u00f0an hinu lambinu \u00fear sem vant er a\u00f0 sl\u00e1tra syndaoffrinu og brennif\u00f3rninni, sem er \u00e1 \u00feeim helgum sta\u00f0. \u00dev\u00ed a\u00f0 l\u00edka sem syndaoffri\u00f0 heyrir prestinum til svo l\u00edka og skuldoffri\u00f0, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er \u00fea\u00f0 allra helgasta.<\/p>\n<p>\tOg presturinn skal taka af skuldoffursins bl\u00f3\u00f0i og strj\u00faka \u00fev\u00ed \u00e1 \u00feann h\u00e6gra eyrnasnepil \u00e1 \u00feeim sem hreinn er or\u00f0inn og \u00e1 hans h\u00e6gra \u00feumalfingur og \u00e1 hans h\u00e6gri \u00feumalt\u00e1. \u00dear eftir skal hann taka vi\u00f0smj\u00f6ri\u00f0 af sama l\u00f3g og l\u00e1ta \u00fea\u00f0 \u00ed s\u00edna (\u00fea\u00f0 er prestsins) vinstri h\u00f6nd og drepa s\u00ednum fingri af sinni h\u00e6gri hendi \u00ed oleum sem hann hefur \u00ed sinni vinstri h\u00f6nd og st\u00f6kkva me\u00f0 s\u00ednum fingri sj\u00f6 sinnum af \u00fev\u00ed vi\u00f0smj\u00f6ri fyrir Drottni. En af \u00fev\u00ed vi\u00f0smj\u00f6ri sem hann hefur \u00ed sinni hendi eftir skal hann strj\u00faka \u00e1 hans h\u00e6gra eyrnasnepil sem er or\u00f0inn hreinn og \u00e1 hans h\u00e6gra \u00feumalfingur og \u00e1 hans h\u00e6gri \u00feumalt\u00e1, ofan \u00e1 skuldoffursins bl\u00f3\u00f0. En \u00fea\u00f0 sem afgengur af \u00fev\u00ed vi\u00f0smj\u00f6ri \u00ed hans hendi, \u00fea\u00f0 skal hann l\u00e1ta upp\u00e1 hans h\u00f6fu\u00f0 sm hreinn er or\u00f0inn og forl\u00edka hann sem hreinn er or\u00f0inn fyrir Drottni. Og hann skal gj\u00f6ra syndoffri\u00f0 og forl\u00edka hann sem hreinn er or\u00f0inn vegna hans \u00f3hreinleika. Og s\u00ed\u00f0an skal hann sl\u00e1tra brennif\u00f3rninni og skal offra henni \u00e1 altari\u00f0 me\u00f0 matoffrinu og forl\u00edka hann og so er hann hreinn.<\/p>\n<p>\tEn s\u00e9 hann f\u00e1t\u00e6kur og geti ekki \u00fatvega\u00f0 so miki\u00f0 me\u00f0 sinni hendi \u00fe\u00e1 skal hann taka eitt lamb til eins skuldoffurs, til veifunar, og forl\u00edka hann, og einn t\u00edunda part hveitissarla, blanda\u00f0 me\u00f0 vi\u00f0smj\u00f6ri, til matoffurs, og eirn l\u00f3g oleum og tv\u00e6r turtild\u00fafur e\u00f0a tvo d\u00fafuunga sem hann kann a\u00f0 \u00fatvega me\u00f0 sinni hendi, a\u00f0 eirn s\u00e9 til syndaoffurs en annar til brennif\u00f3rnar. <span class=\"athugasemd\" title=\"L\u00f6gm\u00e1l fyrir \u00fe\u00e1 f\u00e1t\u00e6ku sem hreinsast\">[<\/span> \u00deetta skal hann bera til prestsins fyrir Drottin utan fyrir vitnisbur\u00f0ar b\u00fa\u00f0ardyrunum, \u00feann \u00e1ttunda dag eftir sem hann er or\u00f0inn hreinn.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 skal presturinn taka lambi\u00f0 til skuldoffursins og \u00feann l\u00f3g oleum og skal veifa \u00fev\u00ed \u00f6llu fyrir Drottni, og skal sl\u00e1tra lambinu til skuldoffursins og taka af sama skuldoffursins bl\u00f3\u00f0i og smyrja \u00e1 hans h\u00e6gra eyrnasnepil sem er or\u00f0inn hreinn og \u00e1 hans h\u00e6gra \u00feumalfingur og \u00e1 hans h\u00e6gri \u00feumalt\u00e1. Og hann skal l\u00e1ta af vi\u00f0smj\u00f6ri \u00ed s\u00edna (\u00fea\u00f0 er prestsins) vinstri h\u00f6nd og st\u00f6kkva me\u00f0 s\u00ednum h\u00e6gri handar fingri af \u00fev\u00ed oleo sem er \u00edhans vinstri hendi sj\u00f6 sinnum fyrir Drottni.<\/p>\n<p>\tEn hann skal st\u00f6kkva af \u00fev\u00ed sem hann hefur eftir \u00ed sinni hendi \u00e1 hans h\u00e6gra eyrnasnepil sem hreinn er or\u00f0inn og \u00e1 hans h\u00e6gra \u00feumalfingur og \u00e1 hans h\u00e6gri \u00feumalt\u00e1, ofan \u00e1 skuldoffursins bl\u00f3\u00f0. En hva\u00f0 sem \u00fe\u00e1 eftir er af oleo \u00ed hans hendi, \u00fea\u00f0 skal hann l\u00e1ta upp\u00e1 hans h\u00f6fu\u00f0 sem hreinn er or\u00f0inn til a\u00f0 forl\u00edka hann fyrir Drottni. S\u00ed\u00f0an skal hann gj\u00f6ra eitt syndaoffur af annarri turtild\u00fafunni e\u00f0a d\u00fafuunganum so sem hans h\u00f6nd kunni a\u00f0 \u00fatvega og eitt brennioffur af \u00feeim \u00f6\u00f0rum me\u00f0 matoffrinu. Og presturinn skal so <span class=\"athugasemd\" title=\"sword Bi\u00f0ja fyrir honum\">[<\/span> forl\u00edka hann fyrir Drottni sem hreinn er or\u00f0inn. \u00deetta skal vera l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 um \u00feann l\u00edk\u00fer\u00e1 sem ekki kann a\u00f0 \u00fatvega me\u00f0 sinni hendi \u00fea\u00f0 sem heyrir til hans hreinsunar.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og Aron og sag\u00f0i: &#8222;\u00de\u00e1 \u00fe\u00e9r komi\u00f0 inn \u00ed Kanaansland \u00fea\u00f0 sem \u00e9g vil gefa y\u00f0ur til eignar og \u00e9g sendi spitelskt teikn \u00ed nokkurt h\u00fas \u00fat \u00ed y\u00f0ar eiginlegu landi, \u00fe\u00e1 skal s\u00e1 koma sem h\u00fasi\u00f0 \u00e1 og \u00e1v\u00edsa prestinum og segja: M\u00e9r s\u00fdnist a\u00f0 \u00fear s\u00e9 komi\u00f0 spitelskt teikn inn \u00ed mitt h\u00fas. <span class=\"athugasemd\" title=\"Spitelska \u00ed h\u00fasum\">[<\/span> S\u00ed\u00f0an skal presturinn bj\u00f3\u00f0a a\u00f0 \u00feeir ry\u00f0ji h\u00fasi\u00f0 \u00e1\u00f0ur en presturinn kemur \u00fear inn a\u00f0 sko\u00f0a teikni\u00f0 so \u00fea\u00f0 ver\u00f0i ekki alltsaman \u00f3hreint sem \u00ed h\u00fasinu er. \u00dev\u00ed n\u00e6st skal presturinn fara \u00fear me\u00f0 og sko\u00f0a h\u00fasi\u00f0.<\/p>\n<p>\tOg \u00fe\u00e1 hann sko\u00f0ar teikni\u00f0 og formerkir a\u00f0 \u00fear eru gular e\u00f0a rau\u00f0ar holur \u00e1 veggnum \u00ed h\u00fasinu svo a\u00f0 \u00fea\u00f0 er dj\u00fapara til a\u00f0 sj\u00e1 en veggurinn sj\u00e1lfur, \u00fe\u00e1 skal hann ganga \u00fat af dyrum h\u00fassins og byrgja h\u00fasi\u00f0 aftur \u00ed sj\u00f6 daga. Og \u00fe\u00e1 hann kemur aftur \u00e1 \u00feeim sj\u00f6unda degi og s\u00e9r a\u00f0 teikni\u00f0 hefur v\u00ed\u00f0ara inn \u00e9ti\u00f0 sig \u00e1 veggjunum \u00ed h\u00fasinu, \u00fe\u00e1 skal hann skipa a\u00f0 brj\u00f3ta \u00fe\u00e1 steina \u00fat sem teikni\u00f0 er \u00e1 og kasta \u00feeim \u00fat \u00far sta\u00f0num \u00ed einn \u00f3hreinan sta\u00f0. S\u00ed\u00f0an skulu menn skafa h\u00fasi\u00f0 allt um kring innan til og kasta \u00fev\u00ed kalki sem af er skafi\u00f0 \u00fat \u00far sta\u00f0num \u00ed eirn \u00f3hreinan sta\u00f0 og taka a\u00f0ra steina og setja aftur \u00ed sta\u00f0inn og so l\u00edmkasta h\u00fasi\u00f0 aftur me\u00f0 \u00f6\u00f0ru kalki.<\/p>\n<p>\tEn ef sama teikn kemur aftur og \u00fatbr\u00fdst \u00ed h\u00fasinu eftir \u00fea\u00f0 sem mann hefur ni\u00f0urbroti\u00f0 steinana og so l\u00edmkasta\u00f0 h\u00fasi\u00f0 a\u00f0 n\u00fdju, \u00fe\u00e1 skal presturinn fara \u00fear inn. <span class=\"athugasemd\" title=\"Hvernin spitelskt h\u00fas skal hreinsast\">[<\/span> Og \u00fe\u00e1 hann s\u00e9r a\u00f0 \u00fea\u00f0 teikni\u00f0 hefur v\u00ed\u00f0ara inn\u00e9ti\u00f0 sig, \u00fe\u00e1 er \u00fear sannlega ein fort\u00e6randi spitelska \u00ed h\u00fasinu og \u00fea\u00f0 er \u00f3hreint. \u00dear fyrir skal ni\u00f0urbrj\u00f3ta h\u00fasi\u00f0, steina og tr\u00e9 og allt \u00fea\u00f0 kalk sem er \u00ed h\u00fasinu, og bera \u00fea\u00f0 \u00fat \u00far sta\u00f0num \u00e1 eirn \u00f3hreinan sta\u00f0. Og hv\u00f6r sem gengur inn \u00ed \u00fea\u00f0 h\u00fas so lengi sem \u00fea\u00f0 er til lukt, s\u00e1 sami er \u00f3hreinn til kvelds. En hver sem liggur e\u00f0a etur \u00fear inni, hann skal \u00fevo s\u00edn kl\u00e6\u00f0i.<\/p>\n<p>\tEn ef presturinn, \u00fe\u00e1 hann gengur \u00fear inn, s\u00e9r a\u00f0 teikni\u00f0 hefur ekki \u00e9ti\u00f0 sig \u00fat v\u00ed\u00f0ara \u00ed h\u00fasinu eftir \u00fea\u00f0 sem h\u00fasi\u00f0 var l\u00edmkasta\u00f0, \u00fe\u00e1 skal hann d\u00e6ma \u00fea\u00f0 hreint, \u00fev\u00ed teikni\u00f0 er l\u00e6kna\u00f0. So skal hann taka til syndoffurs fyrir h\u00fasi\u00f0 tvo fugla, sedrustr\u00e9 og purpuraull og \u00fds\u00f3p og skal sl\u00e1tra \u00f6\u00f0rum fuglinum \u00ed einu leirkeri hj\u00e1 rennanda vatni og skal taka sedrustr\u00e9\u00f0, purpuraullina og \u00fds\u00f3pinn og \u00feann lifanda fuglinn og drepa \u00feessu \u00ed bl\u00f3\u00f0 hins s\u00e6f\u00f0a fuglsins hj\u00e1 \u00fev\u00ed rennanda vatni og st\u00f6kkva yfir h\u00fasi\u00f0 sj\u00f6 sinnum. Og svo skal hann afleysa h\u00fasi\u00f0 me\u00f0 fuglsins bl\u00f3\u00f0i og me\u00f0 rennanda vatni, me\u00f0ur \u00feeim lifanda fugli , me\u00f0 sedrustr\u00e9nu, me\u00f0 \u00fds\u00f3p\u00f3 og me\u00f0 \u00feeirri purpuraullu. Svo skal hann l\u00e1ta \u00feann lifanda fugl \u00fat af sta\u00f0num flj\u00faga frj\u00e1lslega hvert hann vill \u00ed m\u00f6rkina og forl\u00edka h\u00fasi\u00f0 og so er \u00fea\u00f0 hreint.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00deetta eru l\u00f6gin um allsh\u00e1tta\u00f0a l\u00edk\u00fer\u00e1 og hennar teikn og um skurfu og um spitelsku \u00e1 kl\u00e6\u00f0unum og h\u00fasunum og um b\u00f3lgur og vos og margh\u00e1tta\u00f0a litu, so menn megi vita n\u00e6r nokku\u00f0 er hreint e\u00f0ur \u00f3hreint. Og \u00feetta eru l\u00f6gin um spitelskuna.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Og Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og sag\u00f0i: &#8222;\u00deetta er l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 yfir \u00feeim l\u00edk\u00fer\u00e1 \u00fe\u00e1 hann skal hreinsast. [ Hann skal koma til prestsins og presturinn skal ganga \u00fat af herb\u00fa\u00f0unum og sko\u00f0a hv\u00f6rnin \u00fea\u00f0 spitelskuteikn er l\u00e6kna\u00f0 \u00e1 \u00feeim l\u00edk\u00fer\u00e1. Og hann skal bj\u00f3\u00f0a \u00feeim sem hreinsast skal a\u00f0 taka upp tvo lifandi fugla sem hreinir eru og sedrustr\u00e9 og purpuraull og \u00eds\u00f3p. Og hann skal bj\u00f3\u00f0a a\u00f0 sl\u00e1tra \u00f6\u00f0rum fuglinum \u00ed einu leirkeri hj\u00e1 einu rennanda vatni. Og hann skal taka \u00feann lifanda fugl me\u00f0 sedrustr\u00e9nu, purpuraullu og \u00eds\u00f3p\u00f3 og drepa \u00fev\u00ed \u00ed bl\u00f3\u00f0 \u00feess s\u00e6f\u00f0a fugls hj\u00e1 \u00fev\u00ed <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/thridja-mosebok-14-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2796","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2796","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2796"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2796\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2796"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}