{"id":2795,"date":"2017-12-18T18:31:47","date_gmt":"2017-12-18T18:31:47","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/thridja-mosebok-13-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:47","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:47","slug":"thridja-mosebok-13-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/thridja-mosebok-13-kafli\/","title":{"rendered":"\u00deri\u00f0ja M\u00f3seb\u00f3k 13. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Og Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og Aron og sag\u00f0i: &#8222;\u00de\u00e1 nokkur ma\u00f0ur f\u00e6r b\u00f3lgu \u00ed sitt hold e\u00f0a kl\u00e1\u00f0a e\u00f0a hv\u00edtnar hans hold, so sem \u00fea\u00f0 vildi ver\u00f0a spitelska \u00ed hans holdi, \u00fe\u00e1 skal lei\u00f0a \u00feann mann fyrir prestinn Aron e\u00f0a fyrir eirn af hans sonum \u00e1 me\u00f0al prestanna. <span class=\"athugasemd\" title=\"Spitelska \u00e1 m\u00f6nnum \/ H\u00e9r er auglj\u00f3st a\u00f0 M\u00f3ses kallar spitelsku allrahanda skurfur, vos, kl\u00e1\u00f0a e\u00f0ur flekki, af hverjum l\u00edk\u00fer\u00e1 kann a\u00f0 koma, e\u00f0ur eins er a\u00f0 sj\u00e1 sem l\u00edk\u00fer\u00e1\">[<\/span> Og \u00fe\u00e1 presturinn s\u00e9r flekkinn \u00e1 hans h\u00f6rundi, a\u00f0 h\u00e1ri\u00f0 hv\u00edtnar og a\u00f0 \u00fea\u00f0 er dj\u00fapara til a\u00f0 sj\u00e1 \u00e1 \u00feeim sta\u00f0 en annarssta\u00f0ar \u00e1 hans holdi, \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 vissilega l\u00edk\u00fer\u00e1. \u00dear fyrir skal presturinn sko\u00f0a hann og d\u00e6ma hann \u00f3hreinan.<\/p>\n<p>\tEn s\u00e9 \u00fear nokkur hv\u00edtur flekkur \u00e1 hans h\u00f6rundi og er \u00fe\u00f3 ekki dj\u00fapara til a\u00f0 sj\u00e1 en hans anna\u00f0 skinn \u00e1 holdinu og h\u00e1ri\u00f0 hv\u00edtnar ekki, \u00fe\u00e1 skal presturinn byrgja hann inni \u00ed sj\u00f6 daga og sko\u00f0a hann \u00e1 \u00feeim sj\u00f6unda degi. S\u00e9 \u00fea\u00f0 so a\u00f0 flekkurinn bl\u00edfur samt sem fyrri s\u00fdndist hann og hefur ekki inn\u00e9ti\u00f0 sig \u00e1 holdinu, \u00fe\u00e1 skal presturinn byrgja hann inni \u00ed a\u00f0ra sj\u00f6 daga. Og \u00fe\u00e1 hann sko\u00f0ar hann \u00ed enn annan t\u00edma \u00e1 \u00feeim sj\u00f6unda degi og formerkir hann a\u00f0 flekkurinn er \u00ed burt horfinn og hefur ekki v\u00ed\u00f0ar inn\u00e9ti\u00f0 sig \u00e1 holdinu, \u00fe\u00e1 skal hann d\u00e6ma hann hreinan, vegna \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er kl\u00e1\u00f0i. Og hann skal \u00fevo s\u00edn kl\u00e6\u00f0i og \u00fe\u00e1 er hann hreinn. Og ef s\u00e1 kl\u00e1\u00f0i \u00e9tur sig v\u00ed\u00f0ara \u00fat \u00e1 holdinu s\u00ed\u00f0an hann var sko\u00f0a\u00f0ur af prestinum og d\u00e6mdur hreinn, en er n\u00fa \u00ed annan t\u00edma sko\u00f0a\u00f0ur af prestinum, og ef presturinn s\u00e9r \u00fea\u00f0 a\u00f0 kl\u00e1\u00f0inn hefur \u00e9ti\u00f0 sig v\u00ed\u00f0ara inn \u00ed holdi\u00f0, \u00fe\u00e1 skal hann d\u00e6ma hann \u00f3hreinan, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er vissulega spitelska.<\/p>\n<p>\tEf nokkur spitelsk \u00e1koma er \u00e1 manninum \u00fe\u00e1 skal lei\u00f0a hann til prestsins. Og n\u00e6r hann s\u00e9r og formerkir a\u00f0 \u00fear er hv\u00edtt upphlaupi\u00f0 \u00e1 skinninu og a\u00f0 h\u00e1ri\u00f0 hv\u00edtnar og h\u00f6rundi\u00f0 er rau\u00f0b\u00f3lgi\u00f0 \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 vissulega ein g\u00f6mul l\u00edk\u00fer\u00e1 \u00ed hans holdi. \u00dear fyrir skal presturinn d\u00e6ma hann \u00f3hreinan og ekki byrgja hann inni, \u00fev\u00ed hann er allarei\u00f0u \u00f3hreinn.<\/p>\n<p>\tEn \u00feegar spitelskan br\u00fdst \u00fat \u00ed holdinu og hylur allan l\u00edkamann, fr\u00e1 h\u00f6f\u00f0inu allt til f\u00f3tanna, allt \u00fea\u00f0 sem presturinn m\u00e1 sj\u00e1 me\u00f0 augunum, s\u00e9r \u00fe\u00e1 presturinn og finnur a\u00f0 spitelskan hefur huli\u00f0 allt hans hold, \u00fe\u00e1 skal hann d\u00e6ma hann hreinan, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er or\u00f0i\u00f0 alltsaman hv\u00edtt \u00e1 honum. \u00dev\u00ed er hann hreinn. En er \u00fea\u00f0 rautt h\u00f6rund b\u00f3lgi\u00f0 \u00e1 \u00feeim degi sem hann er sko\u00f0a\u00f0ur, \u00fe\u00e1 er hann \u00f3hreinn. Og \u00fe\u00e1 presturinn s\u00e9r \u00fea\u00f0 rau\u00f0b\u00f3lgi\u00f0 h\u00f6rund \u00fe\u00e1 skal hann d\u00e6ma hann \u00f3hreinan, \u00fea\u00f0 hann er \u00f3hreinn og \u00fea\u00f0 er v\u00edst spitelska. En ef \u00fea\u00f0 rau\u00f0b\u00f3lgna h\u00f6rundi\u00f0 umbreytist og ver\u00f0ur hv\u00edtt, \u00fe\u00e1 skal hann koma til prestsins. Og \u00fe\u00e1 presturinn sko\u00f0ar og formerkir a\u00f0 \u00e1koman er or\u00f0in hv\u00edt, \u00fe\u00e1 skal hann d\u00e6ma hann hreinan, \u00fev\u00ed hann er hreinn.<\/p>\n<p>\tVaxi \u00fear k\u00fdli \u00e1 nokkurs manns h\u00fa\u00f0ar holdi og l\u00e6knast aftur og \u00fear kemur upp s\u00ed\u00f0an nokku\u00f0 hv\u00edtt \u00ed \u00feeim sama sta\u00f0 e\u00f0a ver\u00f0i \u00fear hv\u00edtrau\u00f0ur flekkur, hann skal sko\u00f0ast af prestinum. Sj\u00e1i \u00fea\u00f0 presturinn a\u00f0 \u00fea\u00f0 er dj\u00fapara a\u00f0 sj\u00e1 en hanns anna\u00f0 hold og a\u00f0 h\u00e1ri\u00f0 er or\u00f0i\u00f0 hv\u00edtt \u00fe\u00e1 skal hann d\u00e6ma hann \u00f3hreinan, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fear er v\u00edst ein spitelsk \u00e1koma or\u00f0in af \u00fev\u00ed k\u00fdli. En sj\u00e1i presturinn og finni a\u00f0 h\u00e1ri\u00f0 er ekki hv\u00edtt og a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki dj\u00fapara a\u00f0 sj\u00e1 en anna\u00f0 hans hold og er horfi\u00f0, \u00fe\u00e1 skal hann byrgja hann inni \u00ed sj\u00f6 daga. Og ef \u00fea\u00f0 \u00e9tur sig \u00fe\u00e1 v\u00ed\u00f0ara \u00fat \u00ed hans holdi \u00fe\u00e1 skal hann d\u00e6ma hann \u00f3hreinan, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er vissulega spitelsk \u00e1koma. En bl\u00edfi hv\u00edti flekkur so samt og \u00e9tur ekki v\u00ed\u00f0ara um sig \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 \u00f6ri\u00f0 af k\u00fdlinu og presturinn skal d\u00e6ma hann hreinan.<\/p>\n<p>\t\u00deegar nokkur brennir sig \u00e1 eldi \u00e1 skinninu og \u00fea\u00f0 hold er brann hefur rautt e\u00f0ur hv\u00edtt \u00f6r og presturinn sko\u00f0ar hann og formerkir a\u00f0 h\u00e1ri\u00f0 er or\u00f0i\u00f0 hv\u00edtt \u00e1 \u00feeim sta\u00f0 sem brann og er dj\u00fapara til a\u00f0 sj\u00e1 heldur en anna\u00f0 hold, \u00fe\u00e1 er \u00fear sannlega or\u00f0in ein spitelska af \u00feeim bruna. \u00dear fyrir skal presturinn d\u00e6ma hann \u00f3hreinan, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er spitelskt teikn. En sj\u00e1i presturinn og finni a\u00f0 h\u00e1ri\u00f0 \u00e1 \u00feeim sta\u00f0 hefur ekki umskiptst \u00ed hv\u00edtt og er ekki dj\u00fapara en anna\u00f0 hold og er \u00fear me\u00f0 \u00ed burt horfi\u00f0, \u00fe\u00e1 skal hann byrgja hann inni \u00ed sj\u00f6 daga og \u00feann sj\u00f6unda dag skal hann sko\u00f0a hann. Hafi \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 v\u00ed\u00f0ara \u00fat\u00e9ti\u00f0 sig \u00e1 hans holdi, \u00fe\u00e1 skal hann \u00farskur\u00f0a hann \u00f3hreinan, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er spitelska. En hafi \u00fea\u00f0 veri\u00f0 kyrrt \u00e1 \u00feeim brunasta\u00f0 og ekki v\u00ed\u00f0ara \u00e9ti\u00f0 sig \u00ed holdi\u00f0 og er \u00fear me\u00f0 horfi\u00f0, \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 \u00f6r af brunanum. Og presturinn skal d\u00e6ma hann hreinan, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er eitt \u00f6r af \u00feeim bruna.<\/p>\n<p>\tVer\u00f0i nokkur ma\u00f0ur e\u00f0a kvinna skurf\u00f3ttur \u00e1 h\u00f6f\u00f0inu e\u00f0a \u00ed skegginu og presturinn sko\u00f0ar teikni\u00f0 og finnur a\u00f0 s\u00e1 blettur er l\u00e6gri heldur en anna\u00f0 hold til a\u00f0 sj\u00e1 og h\u00e1ri\u00f0 \u00e1 sama sta\u00f0 er gult og \u00feunnt, \u00fe\u00e1 skal hann d\u00e6ma hann \u00f3hreinan, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er spitelsk skurfa \u00e1 h\u00f6f\u00f0inu e\u00f0a \u00ed skegginu. En sj\u00e1i presturinn a\u00f0 skurfan er ekki l\u00e6gri til a\u00f0 sj\u00e1 heldur en holdi\u00f0 og h\u00e1ri\u00f0 er ekki svart, \u00fe\u00e1 skal han byrgja \u00feann inni \u00ed sj\u00f6 daga. Og \u00fe\u00e1 hann sko\u00f0ar \u00fea\u00f0 \u00e1 inum sj\u00f6unda degi og formerkir a\u00f0 sama skurfa hefur ekki v\u00ed\u00f0ar inn\u00e9ti\u00f0 sig og \u00fear eru engin gul h\u00e1r og skurfan er ekki dj\u00fapari til a\u00f0 sj\u00e1 en anna\u00f0 hold, \u00fe\u00e1 skal hann raka s\u00e9r, \u00fe\u00f3 hann raki ekki skurfuna. Og presturinn skal lykja hann inni aftur \u00ed a\u00f0ra sj\u00f6 daga. Og \u00fe\u00e1 hann sko\u00f0ar hann \u00e1 \u00feann sj\u00f6unda dag og formerkir a\u00f0 skurfan hefur ekki v\u00ed\u00f0ar \u00fat\u00e9ti\u00f0 sig \u00e1 holdinu og a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki dj\u00fapara til a\u00f0 sj\u00e1 en annarssta\u00f0ar \u00e1 holdinu, \u00fe\u00e1 skal presturinn segja hann hreinan og hann skal \u00fevo s\u00edn kl\u00e6\u00f0i, \u00fev\u00ed hann er hreinn. En s\u00e9 \u00fea\u00f0 so a\u00f0 skurfan \u00e9ti sig v\u00ed\u00f0ara \u00fat \u00e1 holdinu s\u00ed\u00f0an hann er d\u00e6mdur hreinn og presturinn s\u00e9r \u00fea\u00f0 og formerkir a\u00f0 skurfan hefur so v\u00ed\u00f0ara inn \u00e9ti\u00f0 sig \u00e1 holdinu, \u00fe\u00e1 skal hann ekki meir leita \u00fear eftir ef h\u00e1ri\u00f0 er gult, \u00fev\u00ed hann er \u00f3hreinn. En s\u00e9 skurfan kyrr fyrir hans augum og \u00fear er svart h\u00e1r upp \u00e1 vaxi\u00f0, \u00fe\u00e1 er skurfan l\u00e6knu\u00f0 og hann er hreinn. Og \u00fear fyrir skal presturinn segja hann hreinan.<\/p>\n<p>\tN\u00e6r eirn ma\u00f0ur e\u00f0a kvinna hefur nokkurn hv\u00edtan flekk \u00e1 h\u00fa\u00f0 s\u00edns holds og presturinn sko\u00f0ar \u00fea\u00f0 sama og s\u00e1 hv\u00edti flekkur \u00ed burt hverfur, \u00fe\u00e1 er ein hv\u00edt skurfa uppvaxin \u00ed skinninu og hann er hreinn.<\/p>\n<p>\tEn n\u00e6r h\u00e1ri\u00f0 fellur af nokkurs manns h\u00f6f\u00f0i so hann ver\u00f0ur sk\u00f6ll\u00f3ttur, hann er hreinn. Falli \u00fea\u00f0 honum framan af h\u00f6f\u00f0inu og \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur gl\u00e6roti\u00f0, \u00fe\u00e1 er hann hreinn. En vaxi \u00fear \u00e1 \u00feeim bersk\u00f6ll\u00f3tta e\u00f0a hvar hann er rotinn eirn hv\u00edtur e\u00f0a rau\u00f0ur flekkur, \u00fe\u00e1 er \u00fear spitelska upprunnin \u00e1 \u00feeim h\u00e1rlausa e\u00f0a \u00e1 \u00fev\u00ed sk\u00f6ll\u00f3tta h\u00f6f\u00f0i. \u00dear fyrir skal presturinn sko\u00f0a hann og \u00fe\u00e1 hann formerkir a\u00f0 hv\u00edtur e\u00f0a rau\u00f0ur flekkur er kominn \u00e1 \u00fev\u00ed gl\u00e6rotna e\u00f0a sk\u00f6ll\u00f3tta h\u00f6f\u00f0i og \u00fea\u00f0 er a\u00f0 sj\u00e1 so sem l\u00edk\u00fer\u00e1 \u00e1 skinnin, \u00fe\u00e1 er hann spitelskur og \u00f3hreinn. Og presturinn skal segja hann \u00f3hreinan fyrir sakir \u00fev\u00edl\u00edks merkis sem er \u00e1 hans h\u00f6f\u00f0i.<\/p>\n<p>\tEn hver sem \u00fear er n\u00fa l\u00edk\u00fer\u00e1r, hans kl\u00e6\u00f0i skulu vera sundurrifin og hans h\u00f6fu\u00f0 bert en munnurinn huldur og skal kallast me\u00f0 \u00f6llu \u00f3hreinn. <span class=\"athugasemd\" title=\"Teikn og skilna\u00f0ur \u00feeirra l\u00edk\u00fer\u00e1u fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum m\u00f6nnum\">[<\/span> Og so lengi sem \u00fea\u00f0 teikn er \u00e1 honum skal hann vera \u00f3hreinn. Hann skal b\u00faa alleina og hans heimili skal vera fyrir utan herb\u00fa\u00f0irnar.<\/p>\n<p>\tS\u00e9 \u00fear nokku\u00f0 spitelskt teikn \u00e1 nokkru kl\u00e6\u00f0i, hvort heldur \u00fea\u00f0 er \u00e1 ullu e\u00f0a l\u00edni, \u00e1 uppist\u00f6\u00f0unni e\u00f0a fyrirvafinu, hvort heldur \u00fea\u00f0 er af l\u00edni e\u00f0a af ullu, e\u00f0a \u00e1 skinni, e\u00f0a \u00e1 s\u00e9rhverju \u00fev\u00ed sem gj\u00f6rt er af skinni, og \u00fe\u00e1 \u00fea\u00f0 teikn er bleikt e\u00f0a rautt \u00e1 kl\u00e6\u00f0inu e\u00f0a skinninu e\u00f0a \u00e1 uppist\u00f6\u00f0unni e\u00f0a \u00e1 fyrirvafinu e\u00f0a \u00e1 nokkrum hlut sem gj\u00f6r\u00f0ur er af skinni, \u00fea\u00f0 er v\u00edst eitt spitelskt teikn. <span class=\"athugasemd\" title=\"Spitelsku teikn \u00e1 kl\u00e6\u00f0unum\">[<\/span> \u00dear fyrir skal presturinn sko\u00f0a \u00fea\u00f0. Og \u00fe\u00e1 hann s\u00e9r teikni\u00f0 \u00fe\u00e1 skal hann loka \u00fea\u00f0 inni \u00ed sj\u00f6 daga. Sj\u00e1i hann \u00fea\u00f0 \u00e1 hinum sj\u00f6unda degi a\u00f0 teikni\u00f0 hefur v\u00ed\u00f0ara \u00e9ti\u00f0 sig inn \u00e1 kl\u00e6\u00f0inu, \u00e1 \u00fer\u00e6\u00f0inum, e\u00f0a \u00e1 fyrirvafinu, \u00e1 skinninu e\u00f0a \u00e1 nokkru \u00fev\u00ed sem gj\u00f6rt er af skinni, \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 eitt \u00e9tandi spitelskt teikn og er \u00f3hreint. Og mann skal brenna \u00fea\u00f0 sama kl\u00e6\u00f0i e\u00f0a \u00fer\u00e1\u00f0inn e\u00f0a fyrirvafi\u00f0, hvort \u00fea\u00f0 er heldur af ullu e\u00f0a af l\u00edni, e\u00f0a hva\u00f0a skinnav\u00f6ru \u00fea\u00f0 er, \u00e1 hv\u00f6rju a\u00f0 soddan teikn er, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er spitelskt teikn og skal uppbrennast \u00ed eldi.<\/p>\n<p>\tEn sj\u00e1i presturinn a\u00f0 teikni\u00f0 hefur ekki \u00e9ti\u00f0 sig v\u00ed\u00f0ara inn \u00e1 kl\u00e6\u00f0inu e\u00f0a \u00e1 \u00fer\u00e6\u00f0inum e\u00f0a \u00e1 fyrirvafinu e\u00f0a \u00e1 hva\u00f0a skinnav\u00f6ru \u00fea\u00f0 er, \u00fe\u00e1 skal hann skipa a\u00f0 \u00fevo \u00fea\u00f0 sem teikni\u00f0 er \u00e1 og lykja \u00fea\u00f0 inn \u00ed a\u00f0ra sj\u00f6 daga. Sj\u00e1i \u00fe\u00e1 presturinn eftir \u00e1 \u00fe\u00e1 teikni\u00f0 er \u00fevegi\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 hefur eigi umbreyst fyrir hans augum, hefur og ekki v\u00ed\u00f0ara inn\u00e9ti\u00f0 sig, \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 \u00f3hreint og skal brennast \u00ed eldi, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 hefur dj\u00fapt inn\u00e9ti\u00f0 sig og gj\u00f6rt \u00fea\u00f0 kl\u00e1\u00f0ugt. En n\u00e6r presturinn s\u00e9r a\u00f0 teikni\u00f0 er horfi\u00f0 eftir \u00fea\u00f0 \u00fea\u00f0 er \u00fevegi\u00f0 \u00fe\u00e1 skal hann r\u00edfa \u00fea\u00f0 af kl\u00e6\u00f0inu, af skinninu, af \u00fer\u00e6\u00f0inum e\u00f0a af fyrirvafinu. Vill \u00fea\u00f0 enn brj\u00f3tast \u00fat aftur \u00e1 kl\u00e6\u00f0inu, \u00e1 \u00fer\u00e6\u00f0inum, \u00e1 fyrirvafinu og \u00e1 allsh\u00e1ttu\u00f0u skinnverki, \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 flekkur og skal brennast \u00ed eldi, \u00fear soddan teikn er. En s\u00e9 \u00fea\u00f0 teikn gengi\u00f0 af kl\u00e6\u00f0inu, af \u00fer\u00e6\u00f0inum e\u00f0a af fyrirvafinu e\u00f0a af \u00f6llu \u00fev\u00ed sem gj\u00f6rt er af skinni s\u00ed\u00f0an \u00fea\u00f0 var \u00fevegi\u00f0, \u00fe\u00e1 skal \u00fea\u00f0 \u00fevost aftur og so er \u00fea\u00f0 hreint.\u0094 \u00deetta er l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 um spitelskt teikn \u00e1 kl\u00e6\u00f0unum, hvort heldur \u00feau eru af ullu e\u00f0a l\u00edni, \u00e1 \u00fer\u00e6\u00f0inum, \u00e1 fyrirvafinu og \u00e1 \u00f6llu \u00fev\u00ed sem gj\u00f6rt er af skinni, til a\u00f0 segja \u00fea\u00f0 hreint e\u00f0a \u00f3hreint.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Og Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og Aron og sag\u00f0i: &#8222;\u00de\u00e1 nokkur ma\u00f0ur f\u00e6r b\u00f3lgu \u00ed sitt hold e\u00f0a kl\u00e1\u00f0a e\u00f0a hv\u00edtnar hans hold, so sem \u00fea\u00f0 vildi ver\u00f0a spitelska \u00ed hans holdi, \u00fe\u00e1 skal lei\u00f0a \u00feann mann fyrir prestinn Aron e\u00f0a fyrir eirn af hans sonum \u00e1 me\u00f0al prestanna. [ Og \u00fe\u00e1 presturinn s\u00e9r flekkinn \u00e1 hans h\u00f6rundi, a\u00f0 h\u00e1ri\u00f0 hv\u00edtnar og a\u00f0 \u00fea\u00f0 er dj\u00fapara til a\u00f0 sj\u00e1 \u00e1 \u00feeim sta\u00f0 en annarssta\u00f0ar \u00e1 hans holdi, \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 vissilega l\u00edk\u00fer\u00e1. \u00dear fyrir skal presturinn sko\u00f0a hann og d\u00e6ma hann \u00f3hreinan. En s\u00e9 \u00fear nokkur hv\u00edtur flekkur \u00e1 hans <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/thridja-mosebok-13-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2795","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2795","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2795"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2795\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2795"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}