{"id":2793,"date":"2017-12-18T18:31:47","date_gmt":"2017-12-18T18:31:47","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/thridja-mosebok-11-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:47","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:47","slug":"thridja-mosebok-11-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/thridja-mosebok-11-kafli\/","title":{"rendered":"\u00deri\u00f0ja M\u00f3seb\u00f3k 11. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Og Drottinn m\u00e6lti vi\u00f0 M\u00f3sen og Aron og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Tali\u00f0 vi\u00f0 \u00cdsraelssonu og segi\u00f0: \u00deessi eru \u00feau kvikindi sem \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 eta \u00e1 me\u00f0al allra d\u00fdra \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni. <span class=\"athugasemd\" title=\"Hrein og \u00f3hrein kvikindi hj\u00e1 Gy\u00f0ingum\">[<\/span> Allt \u00fea\u00f0 sem hefur klaufir og j\u00f3rtrar \u00e1 me\u00f0al d\u00fdranna, \u00fea\u00f0 skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r eta. En hva\u00f0 sem j\u00f3rtrar og hefur ekki klaufir, sem er \u00falfaldinn, \u00fea\u00f0 er y\u00f0ur \u00f3hreint. Og ekki skulu \u00fe\u00e9r eta \u00fea\u00f0. K\u00fan\u00edsinn tyggur j\u00f3rtur en hefur \u00fe\u00f3 ekki klaufirnar, \u00fear fyrir er hann \u00f3hreinn. H\u00e9rinn j\u00f3rtrar en hann hefur \u00fe\u00f3 ekki klaufir og \u00fev\u00ed er hann y\u00f0ur \u00f3hreinn. Sv\u00edni\u00f0 hefur klaufirnar en \u00fea\u00f0 j\u00f3rtrar ekki og \u00fev\u00ed skal \u00fea\u00f0 vera y\u00f0ur \u00f3hreint. \u00de\u00e9r skulu\u00f0 ekki eta af \u00feeirra kj\u00f6ti og ei heldur snerta vi\u00f0 \u00feeirra hr\u00e6, \u00fev\u00ed \u00feau eru y\u00f0ur \u00f3hrein.<\/p>\n<p>\tEn \u00feetta skulu \u00fe\u00e9r eta af \u00fev\u00ed sem er \u00ed vatninu: Allt \u00fea\u00f0 sem hefur sundugga og hreistur \u00ed vatninu, \u00ed sj\u00f3num og v\u00f6tnum, \u00fea\u00f0 skulu \u00fe\u00e9r eta. <span class=\"athugasemd\" title=\"Hreinir og \u00f3hreinir fiskar\">[<\/span> En allt \u00fea\u00f0 sem ekki hefur sundugga og hreistur \u00ed sj\u00f3num og v\u00f6tnunum, \u00e1 me\u00f0al alls sem sig hr\u00e6rir \u00ed vatninu og \u00fea\u00f0 sem lifir \u00ed vatninu, \u00fea\u00f0 skal vera y\u00f0ur sv\u00edvir\u00f0ilegt, so \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 ekki eta af \u00feeirra kj\u00f6ti og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 for\u00f0ast \u00feeirra hr\u00e6. \u00dev\u00ed allt \u00fea\u00f0 sem ekki hefur ugga og hreistur \u00ed vatninu, \u00fea\u00f0 skulu \u00fe\u00e9r for\u00f0ast.<\/p>\n<p>\tEn \u00e1 me\u00f0al fuglanna skulu \u00fe\u00e9r \u00feessa for\u00f0ast so \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 ekki eti\u00f0: Aurnina, haukinn, hali\u00e6etum, gj\u00f3\u00f0inn og allt hans kyn, gamminn, og alla hrafna me\u00f0 sinni tegund, str\u00fatsfuglinn, n\u00e1ttugluna, gaukinn, valinn og allt valakyn, steinuglan, \u00e1lftin, hornuglan, fl\u00e6\u00f0arm\u00fasin, m\u00fasarbr\u00f3\u00f0urinn, tranan, orrinn, hegrinn me\u00f0 sinni tegund, upupa og svalan. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00d3hreinir fuglar\">[<\/span> Og allt \u00fea\u00f0 sem hr\u00e6rist \u00e1 me\u00f0al fuglanna og skr\u00ed\u00f0ur \u00e1 fj\u00f3rum f\u00f3tum \u00fea\u00f0 skal vera sv\u00edvir\u00f0ulegt fyrir y\u00f0ur.<\/p>\n<p>\t\u00de\u00f3 skulu \u00fe\u00e9r eta af \u00feeim fuglum sem hr\u00e6ra sig og ganga \u00e1 fj\u00f3rum f\u00f3tum og hoppa ekki \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni me\u00f0 tveimur beinum, af \u00feeim s\u00f6mum megi \u00fe\u00e9r eta, sem er <span class=\"athugasemd\" title=\"sword Locusta\">[<\/span> arben me\u00f0 sinni tegund og selaam me\u00f0 sinni tegund og hargel me\u00f0 sinni tegund og hagab me\u00f0 hennar tegund. En allt anna\u00f0 \u00fea\u00f0 sem hefur fj\u00f3rar f\u00e6tur \u00e1 me\u00f0al fuglanna, \u00fea\u00f0 skal vera y\u00f0ur sv\u00edvir\u00f0ilegt og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 halda \u00fea\u00f0 \u00f3hreint. Og hver sem snertur vi\u00f0 soddan eitt hr\u00e6, hann skal vera \u00f3hreinn til kvelds. Og ef einhver ber nokku\u00f0 af \u00feeirra hr\u00e6, hann skal \u00fevo s\u00edn kl\u00e6\u00f0i og vera \u00f3hreinn til kvelds.<\/p>\n<p>\t\u00dear fyrir skulu \u00f6ll d\u00fdr sem hafa klaufir og ekki j\u00f3rtra vera \u00f3hrein fyrir y\u00f0ur. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00d3hrein d\u00fdr\">[<\/span> Og hv\u00f6r sem snertir \u00feau hann skal vera \u00f3hreinn. Og allt \u00fea\u00f0 sem gengur \u00e1 s\u00ednum hr\u00f6mmum \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra d\u00fdra sem ganga \u00e1 fj\u00f3rum f\u00f3tum skal vera y\u00f0ur \u00f3hreint. Og hv\u00f6r sem snertir nokku\u00f0 hr\u00e6 hann skal vera \u00f3hreinn til kv\u00f6lds. Og hv\u00f6r hann ber \u00feeirra hr\u00e6 hann skal \u00fevo s\u00edn kl\u00e6\u00f0i og vera \u00f3hreinn til kvelds, \u00fev\u00ed soddan er y\u00f0ur \u00f3hreint.<\/p>\n<p>\t\u00deessi skulu og vera y\u00f0ur \u00f3hrein \u00e1 me\u00f0al d\u00fdranna sem skr\u00ed\u00f0a \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni, sem er hreysik\u00f6tturinn, m\u00fasin, paddan, hv\u00f6rt me\u00f0 sinni tegund, pindusv\u00edn, camelion, stellio, lacerta og moldvarpan. \u00deetta er y\u00f0ur \u00f3hreint \u00e1 me\u00f0al alls \u00feess sem skr\u00ed\u00f0ur. Hv\u00f6r sem snertir vi\u00f0 \u00feeirra hr\u00e6 hann skal vera \u00f3hreinn til kvelds og allt \u00fea\u00f0 sem eitt svoddan dautt hr\u00e6 fellur yfir, \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 \u00f3hreint, hvort heldur \u00fea\u00f0 er tr\u00e9ker, kl\u00e6\u00f0i, skinn e\u00f0a sekkir, og \u00f6ll aunnur ker sem til nokkurs gagns eru h\u00f6f\u00f0 skulu leggjast \u00ed vatn og er saurugt til kvelds. \u00dear eftir er \u00fea\u00f0 hreint. <\/p>\n<p>\tEf soddan eitt hr\u00e6 fellur \u00ed nokkursh\u00e1ttar leirker \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 allt \u00f3hreint sem \u00ed \u00fev\u00ed er og skal \u00ed sundursl\u00e1st. Komi soddan vatn \u00ed nokkurn mat \u00feann etinn ver\u00f0ur \u00fe\u00e1 er hann \u00f3hreinn. Og allur s\u00e1 drykkur sem drukkinn ver\u00f0ur af svoddan keri er \u00f3hreinn. Og allt \u00fea\u00f0 sem soddan hr\u00e6 fellur yfir ver\u00f0ur \u00f3hreint og skal vera y\u00f0ur \u00f3hreint. S\u00e9 \u00fea\u00f0 ofn e\u00f0a ketill, \u00fe\u00e1 skal \u00fea\u00f0 \u00ed sundur brj\u00f3ta, \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er \u00f3hreint og skal vera y\u00f0ur \u00f3hreint. En \u00fe\u00f3 eru brunnar, uppsprettur og l\u00e6kir hreinir. En hver sem snertir \u00feeirra hr\u00e6 hann er \u00f3hreinn.<\/p>\n<p>\tOg ef nokkur svoddan hr\u00e6 fellur \u00e1 nokku\u00f0 korns\u00e6\u00f0i sem s\u00e1\u00f0 er \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 \u00fe\u00f3 hreint. En ef menn ausa vatni yfir s\u00e1\u00f0i\u00f0 og falli s\u00ed\u00f0an nokku\u00f0 svoddan hr\u00e6 \u00fear yfir \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 y\u00f0ur \u00f3hreint. <\/p>\n<p>\t\u00de\u00e1 nokkursh\u00e1ttar kvikindi deyr \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e9r megi\u00f0 eta og hver sem kemur vi\u00f0 \u00feess hr\u00e6 hann er \u00f3hreinn til kvelds. En hver sem etur af soddan hr\u00e6i hann skal \u00fevo s\u00edn kl\u00e6\u00f0i og vera \u00f3hreinn til kvelds. L\u00edka og so hv\u00f6r sem snertir svoddan hr\u00e6, hann skal \u00fevo s\u00edn kl\u00e6\u00f0i og vera \u00f3hreinn til kvelds.<\/p>\n<p>\t\u00d6ll skri\u00f0kvikindi \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni \u00feau skulu vera y\u00f0ur sv\u00edvir\u00f0uleg og menn skulu ekki eta \u00feau og allt \u00fea\u00f0 sem skr\u00ed\u00f0ur \u00e1 kvi\u00f0num og allt \u00fea\u00f0 sem gengur \u00e1 fj\u00f3rum e\u00f0a fleirum f\u00f3tum \u00e1 me\u00f0al allra \u00feeirra d\u00fdra sem skr\u00ed\u00f0a fram \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni skulu \u00fe\u00e9r ekki eta \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 skal vera y\u00f0ur sv\u00edvir\u00f0ilegt. Gj\u00f6ri\u00f0 ekki y\u00f0ar s\u00e1lir sauruglegar og gj\u00f6ri\u00f0 y\u00f0ur ekki \u00f3hreina \u00e1 \u00feeim svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r saurgi\u00f0 y\u00f0ur. <\/p>\n<p>\t\u00dev\u00ed \u00e9g er Drottinn y\u00f0ar Gu\u00f0. \u00dear fyrir skulu \u00fe\u00e9r helga y\u00f0ur so \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 heilagir, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er heilagur. Og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 ekki gj\u00f6ra y\u00f0ar s\u00e1lir \u00f3hreinar \u00e1 nokkru skr\u00ed\u00f0anda kvikindi sem skr\u00ed\u00f0ur \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni, \u00fev\u00ed \u00e9g er Drottinn sem \u00fatleiddi y\u00f0ur af Egyptalandi til \u00feess a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 y\u00f0ar Gu\u00f0. \u00dear fyrir skulu \u00fe\u00e9r vera heilagir, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g em heilagur. <\/p>\n<p>\t\u00deessi eru l\u00f6gin um d\u00fdr og fugla og allsh\u00e1ttu\u00f0 kvikindi \u00ed vatninu, og so um allrahanda kvikindi sem skr\u00ed\u00f0a \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni, so \u00fe\u00e9r kunni\u00f0 a\u00f0 gj\u00f6ra grein \u00e1 millum \u00feess sem er hreint og \u00f3hreint og hv\u00f6r kvikindi \u00e6t eru og hvor a\u00f0 s\u00e9 \u00f3\u00e6t.&#8220;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Og Drottinn m\u00e6lti vi\u00f0 M\u00f3sen og Aron og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;Tali\u00f0 vi\u00f0 \u00cdsraelssonu og segi\u00f0: \u00deessi eru \u00feau kvikindi sem \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 eta \u00e1 me\u00f0al allra d\u00fdra \u00e1 j\u00f6r\u00f0unni. [ Allt \u00fea\u00f0 sem hefur klaufir og j\u00f3rtrar \u00e1 me\u00f0al d\u00fdranna, \u00fea\u00f0 skulu\u00f0 \u00fe\u00e9r eta. En hva\u00f0 sem j\u00f3rtrar og hefur ekki klaufir, sem er \u00falfaldinn, \u00fea\u00f0 er y\u00f0ur \u00f3hreint. Og ekki skulu \u00fe\u00e9r eta \u00fea\u00f0. K\u00fan\u00edsinn tyggur j\u00f3rtur en hefur \u00fe\u00f3 ekki klaufirnar, \u00fear fyrir er hann \u00f3hreinn. H\u00e9rinn j\u00f3rtrar en hann hefur \u00fe\u00f3 ekki klaufir og \u00fev\u00ed er hann y\u00f0ur \u00f3hreinn. Sv\u00edni\u00f0 hefur klaufirnar en \u00fea\u00f0 j\u00f3rtrar ekki <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/thridja-mosebok-11-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2793","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2793","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2793"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2793\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2793"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}