{"id":2790,"date":"2017-12-18T18:31:43","date_gmt":"2017-12-18T18:31:43","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/thridja-mosebok-8-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:43","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:43","slug":"thridja-mosebok-8-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/thridja-mosebok-8-kafli\/","title":{"rendered":"\u00deri\u00f0ja M\u00f3seb\u00f3k 8. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Og Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og sag\u00f0i: &#8222;Tak Aron og hans sonu me\u00f0 honum og \u00feeirra kl\u00e6\u00f0i og smurningaroleum og eirn uxa til syndoffurs, tvo hr\u00fata og eina k\u00f6rf me\u00f0 \u00f3s\u00fdrt brau\u00f0, og samansafna \u00f6llum alm\u00faganum utan fyrir vitnisbur\u00f0arb\u00fa\u00f0ardyrum.&#8220; <span class=\"athugasemd\" title=\"Exod. 28; 29\">[<\/span> Og M\u00f3ses gj\u00f6r\u00f0i sem Drottinn bau\u00f0 honum og samansafna\u00f0i \u00f6llum alm\u00faganum fyrir vitnisbur\u00f0arb\u00fa\u00f0ardyrunum og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;\u00deetta er sem Drottinn hefur bo\u00f0i\u00f0 a\u00f0 gj\u00f6ra.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg hann t\u00f3k Aron og hans sonu og \u00fevo\u00f0i \u00fe\u00e1 \u00ed vatni og f\u00e6r\u00f0i hann \u00ed l\u00edfkyrtilinn og umgyrti hann me\u00f0 einu belti og f\u00e6r\u00f0i hann \u00ed silkim\u00f6ttulinn og l\u00e9t yfir hann l\u00edfkyrtilinn og gyrti hann utan yfir l\u00edfkyrtilinn. <span class=\"athugasemd\" title=\"Arons og hans sona v\u00edgsla\">[<\/span> Og hann hengdi brj\u00f3stskj\u00f6ldinn upp\u00e1 hann og \u00ed brj\u00f3stskj\u00f6ldinn lj\u00f3si\u00f0 og r\u00e9ttinn. Og hann setti m\u00edtri\u00f0 upp\u00e1 hans h\u00f6fu\u00f0 og setti \u00fe\u00e1 gullsp\u00f6ng af \u00feeirri helgu k\u00f3r\u00f3nu framan \u00e1 m\u00edtri\u00f0 \u00e1 hans enni, sem Drottinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 M\u00f3se.<\/p>\n<p>\tOg M\u00f3ses t\u00f3k smurningaroleum og smur\u00f0i tjaldb\u00fa\u00f0ina og allt \u00fea\u00f0 sem var \u00fear inni og v\u00edg\u00f0i \u00fea\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Smurningarvi\u00f0smj\u00f6ri\u00f0\">[<\/span> Og hann st\u00f6kkti sj\u00f6 reisur \u00e1 altari\u00f0 \u00fear af og smur\u00f0i altari\u00f0 og allt \u00fea\u00f0 sem \u00fear tilheyr\u00f0i, laugarkeri\u00f0 me\u00f0 s\u00ednum f\u00e6ti, a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri v\u00edgt. Og hann hellti smurningaroleo yfir Arons h\u00f6fu\u00f0 og smur\u00f0i hann so a\u00f0 hann v\u00e6ri v\u00edg\u00f0ur og leiddi Arons syni \u00fear a\u00f0 og f\u00e6r\u00f0i \u00fe\u00e1 \u00ed l\u00edfkyrtla og gyrti \u00fe\u00e1 me\u00f0 belti og setti h\u00fafurnar upp\u00e1 \u00fe\u00e1, sem Drottinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 honum.<\/p>\n<p>\tOg hann l\u00e9t lei\u00f0a eirn uxa fram til syndaoffurs. <span class=\"athugasemd\" title=\"Syndf\u00f3rnin \/ Exo. 29\">[<\/span> Og Aron og hans synir l\u00f6g\u00f0u s\u00ednar hendur yfir hans h\u00f6fu\u00f0 og so var honum sl\u00e1tra\u00f0. Og M\u00f3ses t\u00f3k af bl\u00f3\u00f0inu og strauk \u00fev\u00ed um altarishornin r\u00e9tt um kring me\u00f0 s\u00ednum fingri og hreinsa\u00f0i altari\u00f0. Og hann hellti bl\u00f3\u00f0inu ni\u00f0ur hj\u00e1 altarinu, hj\u00e1 \u00feess f\u00e6ti, og v\u00edg\u00f0i \u00fea\u00f0 til forl\u00edkunar. Og hann t\u00f3k allt \u00fea\u00f0 sem feitt var innyflunum, lifrarnetjuna og \u00feau tv\u00f6 n\u00fdrun me\u00f0 n\u00fdrnam\u00f6rnum og upptendra\u00f0i \u00fea\u00f0 \u00e1 altarinu. <span class=\"athugasemd\" title=\"Brennif\u00f3rnin\">[<\/span> En uxann me\u00f0 hans h\u00fa\u00f0, kj\u00f6t og myki brenndi hann me\u00f0 eldi fyrir utan herb\u00fa\u00f0irnar, so sem Drottinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 honum.<\/p>\n<p>\tOg hann leiddi eirn hr\u00fat fram til brennioffurs og Aron og hans synir l\u00f6g\u00f0u s\u00ednar hendur yfir hans h\u00f6fu\u00f0 og so var honum sl\u00e1tra\u00f0. Og M\u00f3ses st\u00f6kkti bl\u00f3\u00f0inu kringum altari\u00f0 og hj\u00f3 hr\u00fatinn \u00ed stykki og upptendra\u00f0i h\u00f6fu\u00f0i\u00f0, stykkinn og kroppinn. En hann \u00fevo\u00f0i innyflin og beinin \u00ed vatni og upptendra\u00f0i so allan hr\u00fatinn \u00e1 altari\u00f0. \u00dea\u00f0 var eitt brennioffur, eirn s\u00e6tleiks ilmur og eirn eldur fyrir Drottni, sem Drottinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 honum.<\/p>\n<p>\tHann leiddi og \u00feann fyllingaroffurs hr\u00fatinn fram og Aron me\u00f0 s\u00ednum sonum l\u00f6g\u00f0u hendur yfir hans h\u00f6fu\u00f0 og so var honum sl\u00e1tra\u00f0. <span class=\"athugasemd\" title=\"Uppfyllingaroffri\u00f0\">[<\/span> Og M\u00f3ses t\u00f3k af hans bl\u00f3\u00f0i og smur\u00f0i \u00e1 Arons h\u00e6gra eyrnasnepil og \u00e1 hans h\u00e6gri \u00feumalfingur og \u00e1 hans h\u00e6gri \u00feumalt\u00e1. Og hann leiddi Arons syni fram og smur\u00f0i af bl\u00f3\u00f0inu \u00e1 \u00feeirra h\u00e6gra eyrnasnepil og \u00e1 \u00feeirra h\u00e6gra \u00feumalfingur og \u00e1 \u00feeirra h\u00e6gri \u00feumalt\u00e1 og dreyf\u00f0i bl\u00f3\u00f0inu r\u00e9tt um kring \u00e1 altarinu.<\/p>\n<p>\tSo t\u00f3k hann \u00fea\u00f0 feita og r\u00f3una og allan m\u00f6rinn og lifrarnetjuna og b\u00e6\u00f0i n\u00fdrun og \u00fea\u00f0 feita \u00fear me\u00f0 fylgdi og \u00feann h\u00e6gra b\u00f3ginn. \u00dear til t\u00f3k hann og af k\u00f6rfinni \u00feess \u00f3s\u00fdr\u00f0a brau\u00f0s fyrir Drottni, \u00f3s\u00fdr\u00f0a k\u00f6ku eina og eina k\u00f6ku af \u00fev\u00ed brau\u00f0i sem menga\u00f0 var me\u00f0 oleo og eirn leif og lag\u00f0i \u00feetta ofan \u00e1 \u00fea\u00f0 feita og ofan \u00e1 \u00feann h\u00e6gra b\u00f3ginn og f\u00e9kk Aroni og hans sonum \u00fea\u00f0 alltsaman aftur \u00ed hendur og veifa\u00f0i \u00fev\u00ed til veifunar fyrir Drottni. So t\u00f3k hann \u00fea\u00f0 alltsaman aftur af \u00feeirra h\u00f6ndum og uppkveikti \u00fea\u00f0 \u00e1 altarinu ofan upp\u00e1 brennif\u00f3rninni \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er eitt fyllingaroffur, til eins s\u00e6ts ilms, eirn eldur fyrir Drottni. Og M\u00f3ses t\u00f3k bringuna og veifa\u00f0i me\u00f0 veifingu fyrir Drottni af fyllingaroffurs hr\u00fati og \u00fea\u00f0 f\u00e9kk M\u00f3ses \u00ed sinn part, sem Drottinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 honum.<\/p>\n<p>\tOg M\u00f3ses t\u00f3k af smurningaroleo og af bl\u00f3\u00f0inu af altarinu og staukkti \u00e1 Aron og \u00e1 hans kl\u00e6\u00f0i, \u00e1 hans sonu og \u00e1 \u00feeirra kl\u00e6\u00f0i, og v\u00edg\u00f0i so Aron og hans kl\u00e6\u00f0i, hans syni og \u00feeirra kl\u00e6\u00f0i me\u00f0 honum, og sag\u00f0i til Arons og hans sona: &#8222;Matgj\u00f6ri\u00f0 kj\u00f6ti\u00f0 fyrir utan vitnisbur\u00f0arb\u00fa\u00f0ardyrnar og eti\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed sama sta\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed brau\u00f0i sem er \u00ed fyllioffursins k\u00f6rf, sem m\u00e9r er b\u00edfala\u00f0 og sagt, a\u00f0 Aron og hans synir skulu eta \u00fea\u00f0. En hva\u00f0 sem leyfist af kj\u00f6tinu og brau\u00f0inu \u00fea\u00f0 skulu \u00fe\u00e9r uppbrenna me\u00f0 eldi.<\/p>\n<p>\tOg \u00ed sj\u00f6 daga skulu \u00fe\u00e9r ekki ganga \u00fat um vitnisbur\u00f0arb\u00fa\u00f0ardyrnar, fyrr en y\u00f0ar fylloffurdagar eru fullkomnir, \u00fev\u00ed a\u00f0 y\u00f0ar hendur eru <span class=\"athugasemd\" title=\"a \/ (Fylltar) \/ Hendur a\u00f0 fylla er ebreskt m\u00e1lt\u00e6ki og var s\u00e9rleg v\u00edsa \u00fea\u00f0 prestanna hendur, \u00fe\u00e1 \u00feeir voru v\u00edg\u00f0ir, voru fylltar af f\u00f3rninni fyrir Drottni\">[<\/span> fylltar \u00ed sj\u00f6 daga sem n\u00fa er ske\u00f0 upp\u00e1 \u00feennan dag. Drottinn b\u00edfala\u00f0i so a\u00f0 gj\u00f6ra upp\u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 vera forl\u00edktir. Og \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 vera sj\u00f6 daga fyrir vitnisbur\u00f0arb\u00fa\u00f0ardyrunum, dag og n\u00f3tt, og skulu\u00f0 Drottins var\u00f0halds g\u00e6ta, so \u00fe\u00e9r deyi\u00f0 ekki, \u00fev\u00ed so er \u00fea\u00f0 m\u00e9r bo\u00f0i\u00f0.&#8220; Og Aron og hans synir gj\u00f6r\u00f0u allt \u00fea\u00f0 sem Drottinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 fyrir M\u00f3sen.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Og Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3sen og sag\u00f0i: &#8222;Tak Aron og hans sonu me\u00f0 honum og \u00feeirra kl\u00e6\u00f0i og smurningaroleum og eirn uxa til syndoffurs, tvo hr\u00fata og eina k\u00f6rf me\u00f0 \u00f3s\u00fdrt brau\u00f0, og samansafna \u00f6llum alm\u00faganum utan fyrir vitnisbur\u00f0arb\u00fa\u00f0ardyrum.&#8220; [ Og M\u00f3ses gj\u00f6r\u00f0i sem Drottinn bau\u00f0 honum og samansafna\u00f0i \u00f6llum alm\u00faganum fyrir vitnisbur\u00f0arb\u00fa\u00f0ardyrunum og sag\u00f0i til \u00feeirra: &#8222;\u00deetta er sem Drottinn hefur bo\u00f0i\u00f0 a\u00f0 gj\u00f6ra.&#8220; Og hann t\u00f3k Aron og hans sonu og \u00fevo\u00f0i \u00fe\u00e1 \u00ed vatni og f\u00e6r\u00f0i hann \u00ed l\u00edfkyrtilinn og umgyrti hann me\u00f0 einu belti og f\u00e6r\u00f0i hann \u00ed silkim\u00f6ttulinn og l\u00e9t yfir hann l\u00edfkyrtilinn og gyrti <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/thridja-mosebok-8-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2790","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2790","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2790"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2790\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2790"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}