{"id":2789,"date":"2017-12-18T18:31:43","date_gmt":"2017-12-18T18:31:43","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/thridja-mosebok-7-kafli\/"},"modified":"2017-12-18T18:31:43","modified_gmt":"2017-12-18T18:31:43","slug":"thridja-mosebok-7-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/thridja-mosebok-7-kafli\/","title":{"rendered":"\u00deri\u00f0ja M\u00f3seb\u00f3k 7. kafli"},"content":{"rendered":"<p>Og \u00feetta er skuldoffursins l\u00f6gm\u00e1l og \u00fea\u00f0 er \u00fea\u00f0 allra heilagasta. <span class=\"athugasemd\" title=\"L\u00f6gm\u00e1l skuldoffursins\">[<\/span> Mann skal sl\u00e1tra skuldoffursf\u00f3rninni \u00ed \u00feeim sta\u00f0 sem sl\u00e1tra\u00f0 er brennif\u00f3rninni og dreyfa bl\u00f3\u00f0inu \u00fear af kringum altari\u00f0. Og allri feitinni \u00fear af skal offra, r\u00f3unni og \u00fev\u00ed feita af innyflunum, b\u00e1\u00f0um n\u00fdrunum me\u00f0 \u00feeirri feiti sem \u00fear er vi\u00f0 lendarnar og lifrarnetjunni me\u00f0 n\u00fdrunum. Og presturinn skal upptendra \u00fea\u00f0 \u00e1 altari Drottins til eins elds. \u00dea\u00f0 er eitt skuldoffur.<\/p>\n<p>\tAllt kallkyns \u00e1 me\u00f0al prestanna skal eta \u00fea\u00f0 \u00ed helgum sta\u00f0 \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er \u00fea\u00f0 allra helgasta. L\u00edka sem syndoffri\u00f0 er, so skal og skuldoffri\u00f0 vera, \u00fear skal vera eitt l\u00f6gm\u00e1l um \u00feau b\u00e6\u00f0i. Og \u00fea\u00f0 skal heyra prestunum til, \u00feeim sem hann forl\u00edkar \u00fear me\u00f0. Hv\u00f6r s\u00e1 prestur sem f\u00f3rnar nokkurs manns brennioffri hann skal halda skinninu af \u00fev\u00ed brennioffri sem hann hefur offra\u00f0. Og so allt mataroffur sem baka\u00f0 er \u00ed ofni e\u00f0a \u00e1 rist e\u00f0a \u00ed p\u00f6nnu, \u00fea\u00f0 skal heyra prestinum til, \u00feeim sem \u00fea\u00f0 offrar. Og allt matoffur sem menga\u00f0 er me\u00f0 oleo ,e\u00f0a s\u00e9 \u00fea\u00f0 \u00feurrt, skal alltsaman heyra Arons sonum til, so einum sem \u00f6\u00f0rum.<\/p>\n<p>\tOg \u00feetta er l\u00f6gm\u00e1l \u00feakkl\u00e6tisf\u00f3rnarinnar sem menn f\u00e6ra Drottni. Vilji \u00feeir f\u00e6ra lofgj\u00f6r\u00f0arf\u00f3rn \u00fe\u00e1 skulu \u00feeir offra \u00f3s\u00fdr\u00f0um k\u00f6kum, meng\u00f6\u00f0um me\u00f0 oleo og \u00f3s\u00fdr\u00f0um leifum, yfirdreif\u00f0um me\u00f0 oleo, og b\u00f6ku\u00f0um hveitisarlak\u00f6kkum, blanda\u00f0 me\u00f0 oleo. En \u00feeir skulu gj\u00f6ra \u00feetta offur upp\u00e1 eina k\u00f6ku af s\u00fdr\u00f0u brau\u00f0i, til \u00feeirrar \u00feakkl\u00e6tis lofgj\u00f6r\u00f0aroffurs. Og skal offra Drottni eitt af \u00feeim \u00f6llum til eins upplyftingaroffurs og \u00fea\u00f0 skal heyra prestinum til sem st\u00f6kkvir \u00feakkl\u00e6tisf\u00f3rnarbl\u00f3\u00f0inu. Og kj\u00f6ti\u00f0 af lofgj\u00f6r\u00f0aroffrinu \u00ed hans \u00feakkl\u00e6tisoffri skal upp etast sama dag sem \u00fea\u00f0 offrast og ekki neitt skal leyfast \u00fear af til morguns.<\/p>\n<p>\tOg hvort heldur \u00fea\u00f0 er eitt heit e\u00f0a eitt sj\u00e1lfviljugt offur \u00fe\u00e1 skal \u00fea\u00f0 etast \u00feann sama dag sem \u00fea\u00f0 offrast. En ef af er leyft og \u00fear gengur af til annars dags \u00fe\u00e1 skal \u00fea\u00f0 og etast. En hva\u00f0 sem leyfist af kj\u00f6tinu \u00fev\u00ed sem offra\u00f0 er til hins \u00feri\u00f0ja dags \u00fea\u00f0 skal uppbrennast \u00ed eldi. <span class=\"athugasemd\" title=\"\u00dea\u00f0 afgangs er af f\u00f3rninni\">[<\/span> Og ef nokkur etur \u00e1 \u00feeim \u00feri\u00f0ja degi af \u00fev\u00ed f\u00f3rnf\u00e6r\u00f0u kj\u00f6ti hans \u00feakkl\u00e6tisoffurs \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur s\u00e1 ekki \u00feakkn\u00e6milegur sem \u00fea\u00f0 offra\u00f0i. Og \u00fea\u00f0 skal ekki tilreiknast honum heldur skal \u00fea\u00f0 vera ein sv\u00edvir\u00f0ing og hv\u00f6r s\u00fa s\u00e1l sem \u00fear etur af h\u00fan er s\u00f6ku\u00f0 \u00ed einum misgj\u00f6rning.<\/p>\n<p>\tOg \u00fea\u00f0 kj\u00f6t sem snertir nokku\u00f0 \u00f3hreint skal ekki etast heldur uppbrennast \u00ed eldi. Hver sem er hreinn \u00e1 s\u00ednum l\u00edkama hann skal eta \u00fea\u00f0 kj\u00f6t og hv\u00f6r s\u00e1l sem etur kj\u00f6ti\u00f0 af \u00feakkl\u00e6tisoffrinu sem heyrir til Drottni \u00fe\u00e1 skal hennar \u00f3hreinleiki vera yfir henni og h\u00fan skal fyrirfarast fr\u00e1 s\u00ednu f\u00f3lki. Og ef nokkur s\u00e1l kemur vi\u00f0 nokku\u00f0 \u00f3hreint, s\u00e9 \u00fea\u00f0 \u00f3hreinn ma\u00f0ur, f\u00e9na\u00f0ur e\u00f0a hva\u00f0 anna\u00f0 sem a\u00f0 er sv\u00edvir\u00f0ulegt, og etur hann af \u00feakkl\u00e6tisf\u00f3rnarkj\u00f6tinu sem a\u00f0 tilheyrir Drottni, hann skal uppr\u00e6tast fr\u00e1 s\u00ednu f\u00f3lki.&#8220;<\/p>\n<p>\tOg Drottinn m\u00e6lti vi\u00f0 M\u00f3sen og sag\u00f0i: &#8222;Tala \u00fe\u00fa vi\u00f0 \u00cdsraelissonu og seg \u00fe\u00fa \u00feeim: \u00de\u00e9r skulu\u00f0 ekkert \u00fea\u00f0 feita eta af uxunum, l\u00f6mbum og geitum. <span class=\"athugasemd\" title=\"Bl\u00f3\u00f0 og m\u00f6r fyrirbo\u00f0i\u00f0 a\u00f0 eta \/ Levit. 13; 7 \/ Deut. 12 \/ Gen. 9\">[<\/span> En \u00fea\u00f0 feita af hr\u00e6inu og hva\u00f0 sem rifi\u00f0 er af villud\u00fdrum \u00fea\u00f0 megi \u00fe\u00e9r hafa y\u00f0ur til allsh\u00e1tta\u00f0rar nytsemdar, en eigi skulu \u00fe\u00e9r eta \u00fea\u00f0. \u00dev\u00ed hv\u00f6r sem etur \u00fea\u00f0 feita af f\u00e9na\u00f0inum \u00feeim sem Drottni er gefinn til offurs s\u00fa s\u00e1la skal uppr\u00e6tast fr\u00e1 s\u00ednu f\u00f3lki. Eigi skulu \u00fe\u00e9r heldur eta bl\u00f3\u00f0i\u00f0, hvorki af f\u00e9 n\u00e9 fuglum, hvar helst sem \u00fe\u00e9r b\u00fai\u00f0. Hv\u00f6r s\u00fa s\u00e1l sem nokkurnt\u00edma etur bl\u00f3\u00f0 h\u00fan skal uppr\u00e6tast fr\u00e1 s\u00ednu f\u00f3lki.&#8220;<\/p>\n<p>\tDrottinn m\u00e6lti vi\u00f0 M\u00f3sen og sag\u00f0i: &#8222;Tala \u00fe\u00fa vi\u00f0 \u00cdsraelissonu og seg so: Hv\u00f6r sem vill f\u00e6ra \u00feakkl\u00e6tisf\u00f3rn Drottni \u00fe\u00e1 skal hann bera me\u00f0 s\u00e9r hva\u00f0 sem heyrir til \u00feakkl\u00e6tisoffrinu fyrir Drottni. En hann skal bera \u00fea\u00f0 fram me\u00f0 sinni hendi til offurs Drottins, sem er \u00fea\u00f0 feita \u00e1 bringunni skal hann bera fram og bringuna, so \u00fea\u00f0 s\u00e9 ein upplyfting fyrir Drottni. Og presturinn skal upptendra \u00fea\u00f0 feita \u00e1 altarinu en bringan skal heyra Aroni og hans sonum til. Og \u00feeir skulu gefa prestinum \u00feann h\u00e6gra b\u00f3g til upplyftingar af \u00feeirrar \u00feakkaroffri. <span class=\"athugasemd\" title=\"Prestanna hlutdeild\">[<\/span> En hv\u00f6r af Arons sonum sem offrar bl\u00f3\u00f0inu af \u00feakkl\u00e6tisf\u00f3rninni og \u00fev\u00ed inu feita hann skal hafa \u00feann h\u00e6gra b\u00f3g til s\u00edns hlutar, \u00fev\u00ed \u00e9g hefi teki\u00f0 veifunarbringuna og upplyftingarb\u00f3ginn fr\u00e1 \u00cdsraelissonum af \u00feeirra \u00feakkaroffri og hefi gefi\u00f0 prestinum Aron og hans sonum \u00fea\u00f0, til eirnrar eil\u00edfrar skikkunar.&#8220;<\/p>\n<p>\t\u00deetta er Arons og hans sona smurning af Drottins f\u00f3rnf\u00e6ringum, \u00e1 \u00feeim degi sem \u00feeir voru skikka\u00f0ir til kennimannsskapar Drottins, \u00fe\u00e1 er Drottinn bau\u00f0 \u00e1 \u00feeim degi \u00fe\u00e1 hann smur\u00f0i \u00fe\u00e1, \u00fea\u00f0 honum skyldi gefast af \u00cdsraelissonum til eins eil\u00edfs r\u00e9ttar hj\u00e1 \u00f6llum \u00feeirra eftirkomendum. Og \u00feetta er l\u00f6gm\u00e1l um brennif\u00f3rnirnar, matf\u00f3rnirnar, syndaf\u00f3rnirnar, skuldaf\u00f3rnirnar, fyllingarf\u00f3rnir og \u00feakkl\u00e6tisf\u00f3rnir, sem Drottinn bau\u00f0 M\u00f3se upp\u00e1 S\u00edna\u00edfjalli \u00feann dag sem hann gaf honum b\u00edfalning til \u00cdsraelissona, a\u00f0 \u00feeir skyldu f\u00e6ra Drottni \u00feeirra f\u00f3rnir \u00ed ey\u00f0im\u00f6rku S\u00edna\u00ed.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Og \u00feetta er skuldoffursins l\u00f6gm\u00e1l og \u00fea\u00f0 er \u00fea\u00f0 allra heilagasta. [ Mann skal sl\u00e1tra skuldoffursf\u00f3rninni \u00ed \u00feeim sta\u00f0 sem sl\u00e1tra\u00f0 er brennif\u00f3rninni og dreyfa bl\u00f3\u00f0inu \u00fear af kringum altari\u00f0. Og allri feitinni \u00fear af skal offra, r\u00f3unni og \u00fev\u00ed feita af innyflunum, b\u00e1\u00f0um n\u00fdrunum me\u00f0 \u00feeirri feiti sem \u00fear er vi\u00f0 lendarnar og lifrarnetjunni me\u00f0 n\u00fdrunum. Og presturinn skal upptendra \u00fea\u00f0 \u00e1 altari Drottins til eins elds. \u00dea\u00f0 er eitt skuldoffur. Allt kallkyns \u00e1 me\u00f0al prestanna skal eta \u00fea\u00f0 \u00ed helgum sta\u00f0 \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 er \u00fea\u00f0 allra helgasta. L\u00edka sem syndoffri\u00f0 er, so skal og skuldoffri\u00f0 vera, \u00fear skal <a href=\"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/thridja-mosebok-7-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2789","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2789","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2789"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2789\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/gudbrandsbiblia\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2789"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}